Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.01.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ UNDIRRITAÐUR var í gær kjara- samningur Félags íslenskra leik- skólakennara og launanefndar sveitarfélaganna í húsnæði ríkis- sáttasemjara. Samningurinn gildir til ágústloka 2004 og hækka byrj- unarlaun, miðað við 12 tíma vinnu, á þeim tíma um 26,8% eða úr tæp- um 115 þúsund kr. í 145.500 kr. Laun deildarstjóra, sem hefur haft 12 tíma yfirvinnu, hækka um 42% á samningstímanum eða úr rúmum 126 þúsund kr. í rúmar 179 þúsund kr. Aðspurð kveðst Björg Bjarna- dóttir, formaður FÍL, vera „þokka- lega ánægð með samninginn,“ eins og hún orðar það en bætir því við að auðvitað vilji menn alltaf hafa gert betur. Þegar tveir aðilar semji þurfi þó alltaf að slá af einhverjum kröfum beggja vegna borðsins. Karl Björnsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna, segir full- trúa launanefndarinnar sátta við samninginn og telja hann verða til að efla leikskólastarfið og laða að fleiri leikskólakennara til starfa í leikskólum landsins. Aðspurður segir hann útgjaldaauka sveitar- félaganna vegna samninganna í krónum talið vera um 500 milljónir kr. á ársgrundvelli. Stíf fundarhöld hafa verið hjá samningsaðilum síðustu daga enda gerði viðræðuáætlun samningsaðil- anna ráð fyrir því að samnningar næðust fyrir 29. janúar nk. Að öðr- um kosti yrði viðræðunum vísað til ríkissáttasemjara. „Það hefur verið mikið álag á samningafólki síðustu dagana en það var á móti mikill vilji fólks til að ná saman,“ segir Björg. Ríflega 1.200 manns eru í Félagi Íslenskra leikskólakennara. Að sögn Bjargar ætlar félagið að kynna samninginn um land allt á næstu tveimur vikum. Að þeim tíma loknum munu félagsmenn greiða atkvæði um samninginn. Gert er ráð fyrir því að niðurstaðan liggi fyrir eigi síðar en 23. febrúar nk. Þess má geta að skv. samningn- um hækka byrjunarlaun leikskóla- kennara um 14,3% við upphaf samningstímans eða í rúm 131 þús- und kr. og laun deildarstjóra hækka um 22,4% við upphaf samn- ingstímans eða í rúmar 154 þúsund kr. Börnum verði fjölgað Að sögn Karls er útgjaldaauki sveitarfélaganna vegna samning- anna í prósentum talið og miðað við að núverandi samningur hefði gilt óbreyttur fram að 1. september 2004 um 28,45% án tillits til hag- ræðingar en um 23,55% miðað við hagræðingu. Hagræðingin sem þarna er talað um felst m.a. í því að fjölga börnum í leikskólum og auka þannig nýtingu bæði rekstrarút- gjalda og þess fjármagns sem bundið er í húsnæði. Hafa samn- ingsaðilar farið fram á það við menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, að hann beiti sér fyrir breytingum á lögum og reglugerð um leikskóla til að svo megi verða. Með þessari hagræðingu telja samningsaðilar að megi stytta nú- verandi biðlista eftir leikskólarými. Þó er tekið fram að það hvernig til takist fari eftir aðstæðum í hverjum leikskóla. Spurður um gang viðræðnanna síðustu daga segir Karl að þær hafi gengið mjög vel. „Það var mjög góður skilningur beggja aðila á þörfum og kröfum hvors aðila um sig enda sjáum við að gegn þessum auknu útgjöldum eru leikskóla- kennarar tilbúnir að taka þátt í meiri hagræðingu á móti. Þannig verður til ábati sem við látum að mestu leyti renna til leikskólakenn- ara.“ Aðspurður segir Karl að samningurinn sé ekki svipaður samningi grunnskólakennaranna. „Þessi samningur hefur sínar sjálf- stæðu forsendur.“ Innt eftir því hvort hún sé ánægð með samninginn segir Björg: „Ég er þokkalega ánægð með hann. Maður vill auðvitað alltaf hafa get- að náð betur. Það sem er gagn- rýnivert eru byrjunarlaun almenns leikskólakennara. Við lögðum höf- uðáherslu á laun deildarstjóra og náðum þó nokkrum áfanga þar á kostnað byrjunarlauna.“ Breytt viðhorf til leikskólarekturs Forsvarsmenn Félags íslenskra leikskólakennara sögðu í nóvember sl. að þeir myndu krefjast allt að tvöföldunar byrjunarlauna í kjara- viðræðunum en samningar leik- skólakennara urðu lausir um ára- mótin. Spurð um þetta segir Björg að krafan um byrjunarlaunin hafi ekki náðst en á hinn bóginn hafi náðst góður árangur í öðrum þátt- um kröfugerðarinnar. Vísar hún þar m.a. til hækkunar launa deild- arstjóranna. Einnig bendir hún á að skv. samningnum verði undirbún- ingstími deildarstjóra aukinn og metinn til launa og sömuleiðis verði námskeið og framhaldsnám meira metin. Þar með séu komnar fleiri möguleikar fyrir leikskólakennara til að hækka í launum. En telur Björg að samningurinn eigi eftir að laða að fleiri leikskóla- kennara til starfa í leikskólum landsins? „Ég vona það,“ segir hún og bætir við: „Ég vil leggja áherslu á að við finnum að viðhorf samn- ingsaðila til leikskólastarfs og leik- skólakennaranámsins hefur breyst mjög. Sveitarfélög eru búin að átta sig á því að leikskólarekstur er mikilvægur þáttur í starfi og þjón- ustu sveitarfélaganna. Við finnum þennan vilja sem kemur fram í því að menn vilja gera eins vel og hægt er hverju sinni. En auðvitað eru viðsemjendur okkar bundnir um- hverfinu eins og við, þ.e. til dæmis þeim kjarasamningum sem þegar er búið að gera.“ Leikskólakennarar og sveitarfélögin skrifa undir kjarasamning til fjögurra ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Karl Björnsson, formaður Launanefndar sveitarfélaganna, og Björg Bjarnadóttir, formaður Félags íslenskra leikskólakennara, takast í hendur eftir að nýr kjarasamningur hafði verið undirritaður. Milli þeirra stendur Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Byrjunar- laun hækka um 26,8% á samnings- tímanum Laun deildarstjóra hækka um 42% á samningstímanum DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent Ástþóri Magnússyni, hjá Friði 2000, bréf þar sem farið er fram á það að hann stöðvi dreifingu auglýsingamiða, þar sem happdrættið Símahapp er auglýst. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu fékk Ástþór, í nóv- ember síðastliðnum, leyfi til þess að reka hlutaveltu en ekki happ- drætti. Rekstur happdrættis er háður ströngum skilmálum, þar sem m.a. er kveðið á um það að vinningar séu dregnir út undir eftirliti viðkomandi sýslumanns og það að reka happdrætti í leyf- isleysi varðar sektum. Ástþór sagði í samtali við Morgunblaðið að málið væri á misskilningi byggt og að ekki væri um neitt stórmál að ræða. Ástþór sendi dómsmálaráðu- neytinu bréf í lok nóvember þar sem leiknum var lýst, en sam- kvæmt lýsingunni taldi ráðuneyt- ið að um hlutaveltu væri að ræða og því bæri Ástþóri að fá leyfi hjá lögreglustjóra. Samkvæmt upp- lýsingum ráðuneytisins hefur nú komið í ljós að lýsingin á leiknum var ekki rétt og ekki í samræmi við þau gögn sem ráðuneytinu og lögreglustjóra bárust í nóvember. Að mati ráðuneytisins er um happdrætti að ræða en ekki hluta- veltu og því ber Ástþóri að stöðva leikinn. Ástþór sagðist hafa fengið bréf- ið frá ráðuneytinu í fyrradag og að í gær hefði hann sótt um leyfi fyrir happdrætti. Hann sagðist búast við því að ráðuneytið myndi afgreiða leyfið á næstu dögum. Hann sagði að verið væri að at- huga hvort ekki væri hægt að stöðva leikinn þangað til, en að þeir sem þegar hefðu hringt í Símahapp myndu fá sína vinn- inga, ekki væri hægt að breyta því eins og gæfi að skilja. Yf- irskrift auglýsingamiðans, sem þegar hefur dreift í einhver íbúðahverfi er: „Milljónapottur- inn. Engin núll – þú átt öruggan vinning.“ Neytendasamtökin og Sam- keppnisstofnun skoða málið Á miðanum kemur hvergi fram hver stendur fyrir happdrættinu, né hvernig ágóðanum verði ná- kvæmlega varið. Aðeins er sagt að honum verði varið til hjálpar stríðshrjáðum. Á miðanum kemur fram að vinningarnir séu að verð- mæti tvö þúsund krónur til ein milljón króna og að þátttakendur fái alltaf vinning. Á heimasíðu leiksins kemur hins vegar fram að Símahapp sé fjáröflunarverkefni fyrir alþjóðlegt hjálparstarf Frið- ar 2000. Á bakhlið miðans, sem kemur fram að um er að ræða vöruúttektir hjá verslunar- og þjónustufyrirtækjum og að kostn- aður við hvert símtal í happdrætt- ið sé 990 krónur. Bæði Neytendasamtökin og Samkeppnisstofnun hafa fengið þetta mál inn á borð til sín og eru með það til skoðunar. Björk Sigurgísladóttur, löfræð- ingur hjá Neytendasamtökunum, sagði að samtökunum hefðu borist talsvert mörg símtöl vegna þessa. Hún sagði að fólk væri m.a. að kvarta undan því að upplýsing- arnar á miðunum væru villandi og einnig hefði verið kvartað undan vinningunum þ.e. að þeir væru háðir ýmsum takmörkunum. Anna Birna Halldórsdóttir, for- stöðumaður markaðsmálasviðs Samkeppnisstofnunar, sagði að líklega myndi stofnunin gera at- hugasemd við auglýsingu á bak- hlið miðans, en þar er auglýst fæðubótarefni. Hún sagði að í auglýsingunni væri slegið fram ýmsum fullyrðingum. Þar segir m.a.: „Bandaríska tímaritið Time fjallaði fyrr á árinu um rannsókn- ir sem sýndu að fæðubótaefni unnin úr ávöxtum og grænmeti eru ein áhrifamesta vörnin gegn krabbameini. Rannsóknir banda- rískra háskóla hafa komist að svipuðum niðurstöðum og að töfl- urnar dragi úr líkum á krabba- meini um 60%!“ Anna Birna sagði að fullyrð- ingar eins og þessar vektu óneit- anlega upp ýmsar spurningar um réttmæti auglýsingarinnar. Dómsmálaráðuneytið sendir Ástþóri Magnússyni hjá Friði 2000 bréf vegna happdrættis Óskað eftir því að leikurinn Símahapp verði stöðvaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.