Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 1

Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 1
BANDARÍSKA geimfarið NEAR lenti í gærkvöldi á smástirninu Eros, sem er um 313 milljón km frá jörðu. Er þetta í fyrsta sinn í sög- unni sem geimfar lendir á smá- stirni. Leiðangursstjórinn Robert Far- quhar sagði í gærkvöldi að NEAR væri enn að senda merki og myndir frá Eros þótt vísindamenn hefðu talið að aðeins væru 1% líkur á því að geimfarið myndi senda gögn frá yfirborði smástirnisins. Geimfarið lenti skömmu eftir klukkan 20 að íslenskum tíma, næstum nákvæmlega eftir áætlun. Geimfarið var ekki hannað til að lenda á smástirninu en ákveðið var að reyna lendinguna þar sem áætl- uðum endingartíma þess er að ljúka. Markmiðið var að ná sem ná- kvæmustum myndum af smá- stirninu. Geimfarinu var skotið á loft fyrir fjórum árum og síðan hefur það lagt 3,2 milljarða km að baki. Það hafði verið á braut um Eros í eitt ár áður en það lenti. NEAR hefur sent 160.000 myndir til jarðar og gert milljónir mælinga. Vísindamenn telja hugsanlegt að Eros skelli á jörðinni eftir um það bil 1,5 milljónir ára. Talið er að risa- eðlurnar hafi dáið út vegna árekst- urs miklu minna smástirnis eða loft- steins fyrir 65 milljónum ára. Ed Weiler, deildarstjóri hjá bandarísku geimrannsóknastofn- uninni, NASA, segir að lendingin í gærkvöldi sé góður undirbúningur fyrir hugsanlegar tilraunir til að lenda geimförum á öðrum smástirn- um og jafnvel halastjörnum. Lendingin var mjög vandasöm vegna óreglulegrar lögunar smá- stirnisins og óttast hafði verið að geimfarið myndi hrapa og eyði- leggjast ef ekki yrði hægt að gang- setja eldflaugar þess til að draga úr hraðanum. Laurel. Reuters. APLendingarstaður geimfarsins á Eros sýndur með rauðum hring. Geimfari lent á smástirni 36. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 SKOSKA lögreglan handtók í gær 325 manns sem söfnuðust saman við stöð kjarnorkukafbáta í Skotlandi til að mótmæla kjarnavopnum sem notuð eru í fjórum breskum Tri- dent-kafbátum. Mótmælendurnir segja að vopnin séu ólögleg þar sem þau geti ekki greint í sundur hern- aðarleg og borgaraleg skotmörk. Leikarinn Sean Connery hafði lýst yfir stuðningi við mótmælin en kvaðst ekki geta tekið þátt í þeim þar sem hann væri við kvikmynda- töku. Lögreglumaður reynir hér að handtaka skoska þingmanninn Tommy Sheridan, sem afplánaði nýlega fimm daga fangelsisdóm fyrir að neita að greiða sekt eftir að hafa verið handtekinn í svipuðum mótmælum í fyrra.Reuters Kjarna- vopnum mótmælt ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Bandaríkjunum komst að þeirri nið- urstöðu í gær að netþjónustufyrir- tækið Napster hefði að öllum líkind- um brotið lög um höfundarrétt með því að gera milljónum netverja kleift að skiptast á tónlistarskrám án end- urgjalds. Dómstóllinn úrskurðaði að Napst- er bæri að hindra að þeir sem nýttu sér þjónustu fyrirtækisins brytu gegn höfundarrétti með því að skiptast á tónlistarskrám. Úrskurð- urinn kann að verða til þess að vef- síðu Napster verði lokað. Hljómplötuútgefendur fagna sigri „Þetta er augljós sigur. Áfrýjun- ardómstóllinn komst að þeirri niður- stöðu að lögbann væri ekki aðeins heimilt heldur nauðsynlegt,“ sagði Hilary Rosen, formaður samtaka bandarískra hljómplötuútgefenda. Dómstóllinn komst að þeirri nið- urstöðu að útgefendurnir hefðu lagt fram sannfærandi rök fyrir því að notendur Napster-hugbúnaðarins hefðu brotið gegn höfundarrétti með því að skiptast á tónlistarskrám. Napster hefði „vísvitandi hvatt not- endurna til að brjóta gegn útgáfu- rétti fyrirtækja og aðstoðað þá við það“. Var fyrirtækinu gert að fjar- lægja tengla til notenda sem skiptast á tónlistarefni og brjóta þar með gegn höfundarrétti. Stjórnendur fyrirtækisins segja að 60 milljónir manna hafi notfært sér þjónustu þess. Gert að hindra brot á höfund- arrétti San Francisco. AFP, AP. Úrskurðað í máli Napster VÍSINDAMENN birtu í gær niðurstöður fyrstu rannsókn- anna á genamengi mannsins og þær benda til þess að í mann- inum séu miklu færri gen en áð- ur var talið. Þau eru 30-40.000 og aðeins tvöfalt fleiri en í flug- um og ormum. John Sulston, sem stjórnar rannsóknum breskra vísinda- manna á genamenginu, stendur hér við sameindalíkan af DNA- keðju á blaðamannafundi í London þar sem skýrt var frá niðurstöðum rannsókna á veg- um Genamengisáætlunarinnar (HGP). AP Gen manna færri en talið var  Fáein svör/34 HEIMILDARMAÐUR í Likud-flokknum í Ísr- ael sagði í gærkvöldi að Ariel Sharon, verðandi forsætisráðherra, og Ehud Barak, fráfarandi forsætisráðherra, væru að nálgast samkomulag um myndun þjóðstjórnar. „Flokkarnir hafa náð samkomulagi um flest atriðin,“ sagði heimildarmaðurinn og bætti við að leiðtogarnir myndu koma aftur saman í dag til að ræða skiptingu ráðherraembætta. Ísraelska ríkisútvarpið sagði að Sharon og Barak hefðu samþykkt stefnuskrá þar sem því væri lýst yfir að stjórnin myndi stefna að því að ná bráðabirgðasamningi við Palestínumenn. Lokafriðarsamningar við Palestínumenn, Sýr- lendinga og Líbana yrðu í samræmi við ályktanir Sameinuðu þjóðanna og regluna um land fyrir frið eins og Palestínumenn hafa krafist. Þingmenn Verkamannaflokksins greinir á um hvort hann eigi að mynda stjórn með Likud- flokknum eftir ósigur Baraks fyrir Sharon í kosningunum í vikunni sem leið. Ólgan í Verka- mannaflokknum magnaðist í gær þegar Benjam- in Ben-Eliezer, fráfarandi ráðherra fjarskipta- mála, tilkynnti að hann sæktist eftir því að taka við af Barak sem leiðtogi flokksins. Ben-Eliezer er fyrrverandi hershöfðingi og hefur lýst yfir stuðningi við þá afstöðu Sharons að ekki verði efnt til friðarviðræðna við Palestínumenn nema þeir hætti árásum sínum á Ísraela. Fatah hyggst verða Sharon að falli Ísraelskir hermenn skutu tvo Palestínumenn til bana og særðu tvo aðra alvarlega á Vest- urbakkanum í gær. Fatah, hreyfing Yassers Arafats, leiðtoga Pal- estínumanna, kvaðst í gær ætla að halda áfram skotárásum sínum á byggðir gyðinga á hernáms- svæðunum þar til þær yrðu fjarlægðar. „Mark- mið okkar er að verða Sharon og gyðingabyggð- um hans að falli,“ sagði í yfirlýsingu frá Fatah. Hreyfingin fagnaði einnig drápi palestínskra byssumanna á ísraelskum landnema nálægt Gilo, byggð gyðinga innan borgarmarka Jerúsalem, á sunnudag. Stjórnmálaskýrendur segja að Sharon stafi ekki aðeins hætta af uppreisn Palestínumanna heldur einnig af Benjamin Netanyahu, fyrrver- andi forsætisráðherra og leiðtoga Likud. Þeir spá því að Netanyahu geri allt sem í hans valdi standi til að grafa undan stjórn Sharons með andófi innan Likud-flokksins til að komast sjálf- ur til valda. Sharon þarf að mynda stjórn innan 45 daga frá kosningunum og þingið þarf að samþykkja fjár- lög þessa árs ekki síðar en 31. mars, annars verður efnt til nýrra þing- og forsætisráð- herrakosninga. Fari svo verður stjórn Sharons, fimmta forsætisráðherra Ísraels á sex árum, sú skammlífasta í sögu landsins. Sharon og Barak sagðir nálgast samkomulag Jerúsalem. Reuters, AP, The Daily Telegraph. MORGUNBLAÐIÐ 13. FEBRÚAR 2001

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.