Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. DAGLEGT amstur hversdags- fólks á götum Reykjavíkur á rigningardegi er fjarri lífi kvik- myndapersóna sem boða kátínu og áhyggjuleysi gegn framvísun aðgöngumiða á nýjustu kvik- myndina. Sólrík bros stjarnanna hverfa ekki af andlitum þeirra á veggspjöldum borgarinnar þótt slagviðrið berji andlit goðanna með slíkum látum að ekki dugar minna en að verjast áganginum með hettum og húfum að hætti alvörufólks. Morgunblaðið/Kristinn Sólrík bros í slagviðri ÁFORM stjórnenda Reykjagarðs hf. um flutning frá Hellu eru nú í alvar- legri endurskoðun, en ætlunin var að flytja alla starfsemi fyrirtækisins, kjúklingaslátrun, kjötvinnslu og dreifingarstöð, til Borgarness. Sá möguleiki hefur verið ræddur að kjötvinnsla Goða flytji í húsnæði Reykjagarðs í Borgarnesi. Bjarni Ásgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Reykjagarðs, sagði að það væru meiri líkur en minni til þess að fyrirtækið myndi fremur byggja við núverandi húsnæði á Hellu og bæta véla- og tækjabúnað en að flytja starfsemina. Hann sagði að fyrirsjáanleg væri harðnandi samkeppni með nýjum framleið- anda, Íslandsfugli, sem byrjar vinnslu á árinu. Fyrirtækið þyrfti að vera í stakk búið að mæta þeirri samkeppni og við þessar aðstæður væri frekar óhagstætt að flytja fyr- irtækið. Auk þess væru frábærir starfsmenn á Hellu sem hefðu staðið með fyrirtækinu í gegnum ýmsa erf- iðleika, að sögn Bjarna Ásgeirs. Ákvörðunar er að vænta fljótlega en í Reykjagarði á Hellu eru um 60– 70 störf. Snemma á síðasta ári keypti Reykjagarður mjólkursamlagshúsið við Engjaás í Borgarnesi undir starf- semina, en ljóst er að ef verður af þessum áformum mun Reykjagarð- ur selja þá eign. „Við höfum látið kjötvinnslufyrirtækið Goða vita af þessum möguleika, en þeir hafa áætlanir um frekari uppbyggingu í viðbót við starfsemi sína, sem er m.a. í Reykjavík, á Selfossi og Hellu,“ sagði Bjarni Ásgeir. Kristinn Þór Geirsson, fram- kvæmdastjóri Goða hf., sagði að ver- ið væri að athuga þann möguleika að kjötvinnsla fyrirtækisins flytti í hús- næðið sem Reykjagarður á í Borg- arnesi. Goði hf. tilkynnti í byrjun ársins að fyrirtækið myndi sameina fjórar kjötvinnslur í eigu félagsins í eina. Kjötvinnslurnar sem um ræðir eru kjötvinnsla Goða á Kirkjusandi í Reykjavík, kjötvinnsla Nóatúns í Faxafeni í Reykjavík, kjötvinnslan Höfn á Selfossi og Borgarnes-kjöt- vörur í Borgarnesi. Með sameiningu þeirra verður til ein stærsta kjöt- vinnslustöð landsins. Kristinn gerir ráð fyrir að allt að 80–100 manns muni starfa í hinni nýju kjötvinnslu. Gert var ráð fyrir að kjötvinnslan og höfuðstöðvar Goða hf. yrðu í nýju húsnæði í Mosfellsbæ. Kristinn Þór segir að stutt sé síðan sá möguleiki kom upp að kjötvinnslan flyttist þess í stað til Borgarness. Ekkert væri ákveðið í þeim efnum. Reykjagarður verður líklega áfram á Hellu ÚTVEGSMENN hafa í undirbún- ingi að boða verkbann á þá sjómenn sem ekki hafa samþykkt verkfall 15. mars nk. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir þetta nauðsynlegt svo útvegsmenn lendi ekki í þeirri stöðu að vera með hluta áhafnar á launaskrá en skipin bund- in við bryggju vegna verkfalls. Fundur var í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna hjá ríkissáttasemj- ara í gær. Sævar Gunnarsson, for- maður Sjómannasambandsins, sagði að enginn árangur hefði orðið af fundinum og ekkert benti til þess að menn væru að þokast í átt til sam- komulags. Friðrik J. Arngrímsson sagði eftir fundinn að mál þokuðust áfram. Áformað væri að funda nokkuð þétt á næstunni. Það væri verkefni samningamanna að ná samningum og hann sagðist vera sannfærður um að það væri samningsvilji af hálfu beggja aðila. Næsti samningafundur hefur verið boðaður nk. laugardag. Forysta LÍÚ fundar með útvegsmönnum Forysta LÍÚ hefur boðað til funda með útvegsmönnum um allt land og lýkur þeim í byrjun næstu viku. Friðrik sagði að tilgangur fundanna væri að fara yfir stöðuna með útvegsmönnum. LÍÚ vildi m.a. kynna fyrir þeim tillögur sjómanna í kjaraviðræðunum og hvaða mögu- leikar væru á að ná samningum. Hann sagði að á fundunum yrði leit- að eftir heimild til boðunar verk- banns. „Ef einn hópur sjómanna sam- þykkir verkfall en annar ekki kemur upp sú staða að við sitjum uppi með hluta áhafnarinnar á launum án þess að geta róið. Verkfall kallar því á þann möguleika að boðað sé verk- bann,“ sagði Friðrik. Vélstjórar og flest aðildarfélög Sjómannasambandsins hafa sam- þykkt tillögu um verkfall 15. mars hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Verkalýðsfélögin á Sel- fossi, Eyrarbakka og Raufarhöfn felldu þó tillögu um verkfall. Ekki er búið að telja hjá félögum yfirmanna á fiskiskipum. Síðast þegar sjómenn boðuðu til verkfalls boðuðu útvegsmenn verk- bann. Sjómenn kærðu verkbannið til félagsdóms sem úrskurðaði það ólögmætt á þeirri forsendu að stjórnir félaga útvegsmanna hefðu afgreitt tillöguna. Félagsdómur taldi að tillögu um verkbann yrði að bera undir félagsfundi í útvegs- mannafélögum með sama hætti og tillaga um verkfall er borin undir félög sjómanna. Útvegsmenn undirbúa verk- bann á sjómenn LOÐNUFRYSTING á Japansmarkað hófst á nokkrum stöðum um helgina. Góð loðnuveiði er nú bæði fyrir vestan og austan land, loðnan er átulaus og hrognafylling í bestu hrygnunni er í kringum 15%. Japanskir fulltrúar kaupenda hafa lýst ánægju með loðnuna og eru að sögn sólgnir í hana. Á Þórshöfn á Langanesi hófst fryst- ing í gær og gaf Steinfríður Alfreðs- dóttir sér vart tíma til að líta upp frá verkinu. Japanir sólgnir í loðnuna Ljósmynd/Þorgrímur Kjartansson Frysting hafin/23 HEILDARFJÁRHÆÐ samþykktra lána í húsbréfakerfinu var 10% hærri í janúarmánuði í ár en í sama mánuði í fyrra og innkomnum um- sóknum um húsbréf fjölgaði einnig verulega eða um 17,1%, samkvæmt samantekt Íbúðalánasjóðs. Í samantektinni kemur fram að heildarfjárhæð samþykktra lána nam 2.161 milljón króna í janúar í ár en 1.964 milljónum kr. í sama mánuði í fyrra. Aukningin er 10,0%. Inn- komnum umsóknum í janúar fjölgaði einnig verulega eða um 17,1%, úr 549 í janúar í fyrra í 643 í janúarmánuði í ár. Fjölgaði umsóknum í öllum lána- flokkum samanborið við sama tíma- bil í fyrra. Umsóknir skiptust þannig að 465 umsóknir voru vegna notaðra íbúða, 109 voru vegna nýbygginga einstak- linga, 48 umsóknir voru vegna ný- bygginga byggingaraðila og 21 vegna endurbóta. Til samanburðar dróst heildar- fjárhæð samþykktra húsbréfalána saman í fyrra samanborið við árið 1999 og nam samdrátturinn sam- kvæmt upplýsingum Íbúðalánasjóðs tæpum 11%. Húsbréfaútgáfa óx um 10% í janúar frá janúar í fyrra Umsóknum fjölgaði um 17,1% ♦ ♦ ♦ ENGINN árangur varð á samninga- fundi Félags íslenskra flugumferðar- stjóra og samninganefndar ríkisins í gær. Næsti fundur er boðaður nk. mánudag en daginn eftir hafa flug- umferðarstjórar boðað tveggja daga verkfall hafi samningar ekki tekist. Loftur Jóhannesson, formaður Félags íslenskra flugumferðar- stjóra, sagði að enn væri langt bil á milli aðila, en það væri þó vel fram- kvæmanlegt að ná samningum fyrir þriðjudag. 96 manns eru í félagi flug- umferðarstjóra. Enginn árangur af viðræðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.