Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ *meðan birgðir endast Nýi farðinn er kominn! HYDRATION LIQUID FOUNDATION Frábær rakagefandi, næfurþunnur og léttur farði fyrir fallegt, náttúrulegt útlit. Clarins sérfræðingur verður í Lyfju Laugavegi í dag, þriðjudag frá kl. 14-18, Lyfju Setbergi, miðvikudag, frá kl. 14-18, Lyfju Hamraborg, fimmtudag, frá kl. 14-18. Komdu og fáðu ráðgjöf og sýnishorn* Glæsilegir kaupaukar ef verslað er fyrir 3000 kr. eða meira* Verið velkomin THE GODFATHER (1972) Stórkostleg bíómynd eftir sam- nefndri sögu Mario Puzos um mafíu- fjölskyldu Don Corleones (Brando í óskarsverðlaunahlutverki). Glæsileg mynd í uppbyggingu og útliti og mögnuð úttekt á mafíulífinu í nýja heiminum, gerð með stórmyndastíl í meistaralegri kvikmyndatöku Gord- on Willis en í bakgrunni er tregafullt stef Nino Rota. Leikurinn er fanta- góður, Brando er sér á blaði, en aðrir leikarar slá ekki feilnótu. Allt þetta gerir myndina að meistaraverki leik- stjórans og um leið meistaraverki amerískrar kvikmyndagerðar. THE GODFATHER PART II. (1974) Best heppnaða framhaldsmynd sem gerð hefur verið, stendur sem sjálfstætt listaverk. Rekur sögu Don Corleone II, sem Al Pacino leikur á sinn magnaða hátt, og brask hans á Kúbu rétt áður en Castro hrifsar völdin. Klippir hana saman við frá- sögnina af því hvernig Corleone I, (Robert De Niro í óskarsverðlauna- ham), kom undir sig fótunum, fátæk- ur innflytjandi, og gerist höfuð stærstu mafíufjölskyldunnar í New York. Glæsilegt kvikmyndaverk sem vann til sex Óskara og hefur engu minni áhrif en fyrri myndin. Meðal frábærra leikara má nefna John Caz- ale og Diane Keaton. THE CONVERSATION (1974) Sú mynd Coppolas sem minnst hefur farið fyrir á seinni árum enda ekki í hópi aðsóknarmynda leikstjór- ans. Á þó allt gott skilið en hún segir frá hlerunarsérfræðingi (Gene Hack- man) sem fer að skipta sér meira en honum er hollt af máli sem hann fær upp í hendur og flækist inní samsæri háttsettra manna. Afbragðsgóður leikur, sérstaklega Hackmans, og lúmsk spenna í verulega samsæris- kenndu andrúmslofti. Var útnefnd til Óskarsins sem besta myndin og handrit Coppolas var einnig útnefnt. Sígild myndbönd Sæbjörn Valdimarsson Listinn (The List) S p e n n u m y n d Leikstjórn og handrit: Sylvian Guy. Aðalhlutverk: Ryan O’Neal og Roc Lafortune. (91 mín) 1999. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. ÞEIR sem muna eftir hneykslis- málinu umhverfis vændiskonuna Heidi Fleiss, sem skók Kaliforníu- fylki fyrir nokkrum árum, gera sér fljótt grein fyrir hvaðan innblástur kvikmyndarinnar Listinn kemur. Vændiskonan Gabrielle á sér stóran kúnnahóp mikilvægra manna í þjóðfélaginu, en hópnum tilheyra m.a. lögfræðingar, dómarar og jafn- vel sjálfur ríkisstjórinn. Þegar hún leggur fram lista yfir viðskiptavini sína meðan á réttarhöldum stendur lendir dómarinn, sem gamla brýnið Ryan O’Neal leikur, í vandræðum því nöfn vina hans koma þar fram. Og svo harðna leikar því einhver virðist vera reiðubúinn að fremja morð svo listinn verði ekki gerður opinber. Hér er á ferðinni mynd sem fullnægir flestum lágmarkskröfum áhorfenda, handritið gengur upp með herkjum, flestir leikaranna líta kunnuglega út og á köflum má jafn- vel sjá nokkurn metnað í leikstjórn og kvikmyndatöku. Þó nær myndin aldrei að rísa upp úr meðalmennsk- unni, sem afþreying sleppur hún fyr- ir horn en betra val býðst án efa á myndbandaleigunum. Heiða Jóhannsdótt ir MYNDBÖND Dómari í vanda Skáldgyðjan (The Muse) G a m a n m y n d Leikstjóri Albert Brooks. Handrit: Albert Brooks og Monica Johnson. Aðalhlutverk: Sharon Stone, Andie MacDowell og Jeff Bridges. 93 mín., Bandaríkin, 2000. Skífan. Öllum leyfð. SKÁLDGYÐJURNAR sem blésu listamönnum í brjóst upphafnar hug- myndir og veittu þeim ýmiss konar liðsinni eru vel þekktar í menning- arsögu Vestur- landa og má rekja sögu þeirra allt aft- ur til Grikklands hins forna. Minna hefur þó borið á þeim upp á síðkast- ið, en í nýjustu kvikmynd Alberts Brooks er eina þeirra að finna í Hollywood þar sem hún aðstoðar mektarmenn á borð við James Cameron og Martin Scorsese. Hand- ritshöfundur nokkur (Brooks) man sinn fífil fegurri en þegar kynni tak- ast við undurfallega skáldgyðju (Sharon Stone) virðist sem allt horfi til betri vegar. Þetta er skemmtileg hugmynd og Brooks er ófeiminn við að gera gys að kvikmyndabransan- um í Hollywood og í raun er það mikla hlutverk sem sjálfur kvik- myndaiðnaðurinn leikur í þessari mynd hennar stærsti kostur. Þar fyrir utan er söguþráðurinn nokkuð stirður, ýmsir þættir handritsins eru sérlega illa til fundnir, s.s. köku- bransi eiginkonunnar, og þótt sumir brandararnir hitti í mark eru jafn- margir sem brenna af. Maður hefði búist við meiru af stórhæfileika- manni eins og Albert Brooks. Heiða Jóhannsdótt ir Andans innblástur ♦ ♦ ♦ SJÁLFSAGT verður Francis Ford Coppola (’39), talinn einn af merkari leikstjórum kvikmyndasögunnar. Sú fullyrðing er þó farin að orka nokkurs tvímælis eftir dapurt gengi síðustu áratugina. Góður sprettur á þeim áttunda ætti þó að nægja til að kæfa gagnrýnisraddirnar. Þá skóp hann meistaraverkin The Convers- ation, Apocalypse Now, en fyrst og fremst myndirnar tvær kenndar við Guðföðurinn – sem munu, að öðrum ólöstuðum, halda nafni hans á lofti um ókomin ár. Þó svo að glitti í gullið, leynist heldur engum að Coppola er ótrú- lega mistækur leikstjóri sem einnig á að baki fjölmarga hortitti og urm- ul mistaka. Sem rennir stoðum und- ir þær fullyrðingar Roberts Evens, fyrrum húsbónda hans hjá Paramo- unt á gullöld áttunda áratugarins, að í rauninni væri það hann sjálfur en ekki leikstjórinn, sem ætti heið- urinn að útliti The Godfather. Þessu hélt Evans fram í ævisögu sinni, The Kid Stays in the Picture (N.Y. 1994), þar sem hann lýsir fjálglega hvernig hann hafi orðið að púsla myndina saman. Í ljósi síðari atburða, ekki síst framhaldsmyndarinnar um Guðföðurinn, hlýtur þó lesandinn að setja spurningarmerki við slíkt mas. Coppola reyndi þó ekki að hrekja þessar fullyrðingar hins kjaftaglaða framleiðanda með málaferlum. Lærisveinn B-myndajöfurs Coppola er fæddur í bílaborginni Detroit, en sneri sér ungur að kvik- myndagerð – þó tónskáldið, faðir hans, hafi skírt drenginn í höfuðið á bílaframleiðandanum. Fjölskyldan flutti til New York, þar sem Coppola hóf ungur af- skipti af kvikmynda- gerð, einkum stutt- mynda. Sem varð til þess að hann innritaðist í hina frægu kvik- myndadeild UCLA, árið 1960. Til að eiga fyrir skólagjöldunum, lagði Coppola sína skapandi hönd á ýmsar vafasam- ar framkvæmdir, einsog ljósbláar myndir. Heldur vænkaðist hagur Strympu er Coppola var kynntur fyrir B-myndajöfrinum Roger Corman, sem greitt hefur götu fjölmargra, síðar heimsfrægra kvikmyndagerðarmanna. Þrítugur óskarshafi Í skjóli velunnara síns lauk Copp- ola við Dementria 13, sína fyrstu mynd í fullri lengd, árið 1963. Copp- ola vann ári síðar til handrits- verðlauna, kenndra við Samuel Goldwyn, fyrir Pilma, Pilma. Það hlaut þó ekki brautargengi í kvik- myndaborginni. Lokaverkefni Coppola við UCLA varð hinsvegar að kvikmyndinni You are a Big Boy Now (’66), fisléttri gamanmynd sem hlaut dreifingu hjá Warner Bros og var m.a. sýnd í salarkynnum um- boðsmanna þeirra á Íslandi, í Aust- urbæjarbíói. Lagleg, en skildi ekki mikið eftir sig. Sama ár átti Coppola hlut í handritunum Is Paris Burn- ing?, og This Property Is Condemn- ed, sem bæði voru kvikmynduð. Þau urðu ekki til að auka hróður hins unga höfundar, því síður fyrstu verkefnin hans hjá stóru kvik- myndaverunum; The Rain People og Finian’s Rainbow. Ekki alvondar myndir en höfðu lítið við sig til að freista áhorfandans. Þegar Coppola var aðeins 31 árs, hlaut hann sín fyrstu Óskars- verðlaun. Átti þau sannarlega skilin fyrir hlut sinn í handriti Patton (́70), einnar bestu stríðsmyndar allra tíma. Þrátt fyrir nokkra velgengni var Coppola í erfiðum málum. Hafði lagt allt sitt fé, og gott betur, í nýjungina Scopitone. Hún var e.k. kvikmyndasjálfsali í líkingu við „djúkboxin“ góðu, en varð aldrei að raunhæfum veruleika. Coppola riðaði lengi á gjaldþrotsbarm- inum, en hélt einhvern veg- inn jafnvæginu og kraflaði sig út úr þrengingunum. Mafíusagan margrómaða Mörgum þótti þegar talsverður slægur í hinum unga Coppola og voru tilbúnir til að gefa honum sóknarfæri á hin auðugri mið Holly- woodborgar. Einn þeirra var annar, ítalskættaður Bandaríkjamaður, rit- höfundurinn Mario Puzo, sem var að gefa út metsölubókina The God- father. Ekki síst fyrir hans orð var Coppola treyst til að glíma við hina risavöxnu mafíusögu og það sýndi sig fljótt að honum var treystandi. Verkefnið dró til sín stórstjörn- urnar Marlon Brando, Robert Duvall og James Caan og hinn unga Al Pacino, auk urmuls valinkunnra skapgerðarleikara í smærri hlut- verkum. Útkoman var stórkostleg mynd sem var samstundis talin í hópi sígildra verka kvikmyndasög- unnar. Ekki nóg með að hún þótti óaðfinnanleg í alla staði og aldeilis frábær skemmtun, heldur varð hún ein mest sótta mynd allra tíma. Guð- faðirinn (́72), hlaut einróma lof gagnrýnenda; fern Óskarsverðlaun, þ. á m. sem besta myndin og fyrir bestan leik í aðalhlutverki (Brando). Nýr kóngur var sestur að í Holly- wood. FRANCIS FORD COPPOLA I Francis Ford Coppola: merkur en mistækur. Marlon Brando sem ein eftirminnilegasta persóna kvikmyndanna, Don Vito Corleone, í fyrstu myndinni um Guðföðurinn. Robert De Niro sem Vito Corleone í annarri Guðföðurmyndinni. Gene Hackman í Conversation sem margir telja falinn fjársjóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.