Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 30
LISTIR 30 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Myndataka og ráðgjöf gegn Snyrtistofan Safír Snyrtistofan La-Rosa Snyrtistofan Paradís 14. feb. S: 553-1330 16. feb. S: 565-1441 15. feb. S: 533-3100 Snyrtistofan Hrund 19. feb. S: 554-4025 snyrtistofurnar ráða yfir bestu fáanlegu úrræðunum sólarskemmdum og öldrun Pantið tíma strax: Venjulegt ljós Útfjólublátt ljós 15% afsláttur af MDF vörum NÝTT tónverk fyrir píanó og klar- inett eftir John Speight verður frumflutt á háskólatónleikum í Norræna húsinu á morgun, mið- vikudaginn 14. febrúar. Verkið nefnist „...into That Good Night“ og vísar titillinn í seinni hluta heit- is á ljóði Dylan Thomas „Do Not Go Gentle into That Good Night“. Flytjendur eru Jón Aðalsteinn Þorgeirsson klarinettleikari og Örn Magnússon píanóleikari. Tón- leikarnir hefjast kl. 12.30 og standa í um það bil hálfa klukku- stund. Vildi að verkið yrði dálítið stórt í sniðum John Speight, sem er fæddur í Englandi en hefur verið búsettur hérlendis frá 1972, er mörgum kunnur fyrir tónverk sín, en eftir hann liggja tónsmíðar af ýmsum toga, jafnt einleiks- og einsöng- sverk sem hljómsveitarverk. John segist hafa samið verkið sérstak- lega fyrir flytjendurna, þá Jón Að- alstein Þorgeirsson og Örn Magn- ússon, en sá fyrrnefndi hefur einbeitt sér að flutningi tónlistar fyrir klarinett og píanó. „Jón Að- alsteinn bað mig fyrir nokkru að skrifa verk fyrir klarinett og pí- anó. Hann vildi gjarnan að verkið yrði dálítið stórt í sniðum, þar sem honum þótti vanta ný verk fyrir þessa hljóðfærasamsetningu,“ seg- ir John sem í kjölfarið ákvað að taka verkefnið að sér. Verkið er í þremur köflum, í ætt við sónötu, og um að ræða verk mikilla átaka og andstæðna. Í titli verksins er sem fyrr segir vísað í ljóð eftir Dylan Thomas. „Þetta er fallegt ljóð sem ég varð mjög snortinn af,“ segir John. „Það fjallar um föður skáldsins og dauðastund hans, þar sem hann berst á móti fram á síðustu stundu. Þetta end- urspeglast í verkinu, m.a. í klarin- ettinu sem streitist mikið við í gegnum verkið þar til það róast í lokin og deyr smám saman út,“ segir John. „Annars fær fólk að vita mest um verkið með því að hlusta á það,“ bætir John við. Tónleikar í amstri dagsins Að sögn Margrétar Jónsdóttur, formanns tónleikanefndar Háskóla Íslands, eru tónleikarnir merkur þáttur í dagskrá vetrarins, þar sem um frumflutning á íslensku verki er að ræða. Tónleikanefndin stendur að jafnaði fyrir sex til átta háskólatónleikum á hverju misseri og eru þeir, eins og margir vita, ávallt haldnir í Norræna húsinu í hádeginu á miðvikudögum. Tón- leikanefnd háskólans hefur starfað frá því fyrir miðjan áttunda ára- tuginn, hátt í þrjátíu ár, en þeir Þorsteinn Gylfason og Þorkell Helgason eru upphafsmenn starf- seminnar. „Þessari starfsemi er ætlað að auðga háskólasamfélagið með fjöl- breyttri tónlist og gefa tónlistar- fólki færi á að koma fram. Tónleik- arnir eru stuttir, aðeins hálftími að lengd, þannig að allir ættu að geta skroppið í matartímanum og hlýtt á tónlist, mitt í amstri dagsins. Þannig er leitast við að gera tón- leika aðgengilega háskólafólki og öllum almenningi, enda er verði stillt í hóf og ókeypis inn fyrir handhafa stúdentaskírteinis,“ seg- ir Margrét. „Formið á tónleikunum hefur hentað tónlistarfólki vel til flutn- inga á styttri dagskrám. Tónlist- arfólk, sem e.t.v. hefur ekki mikla reynslu, hefur auk þess nýtt sér þetta tónleikaform talsvert.“ Í til- felli tónleikanna sem hér um ræðir segir Margrét aðstandendur þeirra hafa óskað eftir að flytja verkið á háskólatónleikum, þar sem formið hafi hentað því vel. „Verkið tekur um tuttugu mínútur í flutningi og hentar því vel þessu formi, þar sem um eitt langt verk er að ræða,“ segir Margrét að lok- um. Aðangseyrir að tónleikunum er 500 krónur en ókeypis er fyrir handhafa stúdentaskírteinis. Frumflutningur tónverks eftir John Speight á háskólatónleikum í hádeginu á morgun Verk mikilla átaka og and- stæðna Ljósmynd/Bergþór Sigurðsson Tónskáldið John Speight (fyrir miðju) ásamt Jóni Aðalsteini Þorgeirssyni klarinettleikara (t.v.) og Erni Magnússyni píanóleikara (t.h.) á æfingu fyrir háskólatónleikana í Norræna húsinu á morgun. ÚR djúpunum nefnist tónlistar- dagskrá sem fimm sunnlenskir listamenn flytja á næstu vikum í kirkjum á Suðurlandi. Dagskrá- in er einkum sniðin fyrir flutn- ing í smærri kirkjum og var frumflutt í Torfastaðakirkju í Biskupstungum í byrjun febrú- ar. Næst verður hún flutt í Búr- fellskirkju í Grímsnesi sunnu- daginn 18. febrúar kl. 16 og í Stóra-Núpskirkju sama dag kl. 20.30. Síðan er áformað að fara með dagskrána í 11 aðrar kirkjur víðs vegar um Árnes- og Rangárvallasýslu og að minnsta kosti á einn stað í Reykjavík. Verkin eru öll að stofni til byggð á lögum sem gyðingar í útrýmingarbúðum og fátækra- hverfum sömdu í síðari heims- styrjöldinni. Flytjendur eru þau Hilmar Örn Agnarsson, organ- isti í Skálholti, Hjörtur Hjart- arson klarinettleikari á Selfossi, Ingunn Jensdóttir söngvari og leikstjóri á Hvolsvelli, Eyvindur Erlendsson leikstjóri og upples- ari í Hátúni og Sveinn Pálsson gítarleikari í Reykholti. Saman við verk gyðinga er fléttað eigin skáldskap og list- sköpun flytjenda og verkum sem sótt eru til annarra minni- hlutahópa, s.s. indíána í Amer- íku, Sama á Norðurlöndum, gú- lagfanga í Sovét, vitringa í Austurlöndum og bænda við ís- lensku hálendisbrúnina. Alls eru verkin sem flutt eru á annan tug og kemur þar við söguna bæði hljóðfæraleikur, upplestur og söngur. Kveikjan að dagskránni, sem listamenn- irnir byrjuðu að æfa sl. haust, er áhugi þeirra Hjartar og Hilmars á tónlist gyðinga og listviðleitni í fátækrahverfum og fangabúðum. Tónlistardagskrá í sunnlenskum kirkjum Tónlistarfólkið á æfingu: Sveinn Pálsson, Hilmar Örn Agnarsson, Ingunn Jensdóttir, Hjörtur Hjartarson og Eyvindur Erlendsson. SÝNINGUM á leikritinu Ástkonur Picassos eftir Brian McAvera fer senn að ljúka og verður síðsta sýning á föstudag. Leikritið var frumsýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins á liðnu hausti. Þar stíga sex af ást- konum þessa fræga listamanns fram og segja frá stormasömu og ástríðufullu lífi með meist- aranum. Ástkonurnar leika þær Anna Kristín Arngrímsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Helga E. Jóns- dóttir, Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir. Frá sýningu Þjóðleikhússins á Ástkonum Picassos eftir Brian McAvera. Sýningum á Ástkonum Picassos að ljúka  BÓKIN Faraldsfræði og heilsu- vernd er nú komin út hjá Háskóla- útgáfunni. Um er að ræða endur- útgáfu á bókinni en hún kom fyrst út árið 1989. Tilgangurinn með bókinni er tví- þættur, eins og segir í formála hennar. Í fyrsta lagi að koma á prent á íslensku umfjöllun um far- aldsfræði, en lítið hefur verið ritað á íslensku um það efni. Annar til- gangur bókarinnar er að safna sam- an á einn stað efni sem að gagni hefur komið við kennslu læknastúd- enta og gæti gagnast þeim sem kenna faraldsfræði og aðrar grein- ar sem snerta heilsuvernd. Fyrstu kaflar bókarinnar fjalla um faraldsfræði og heilsuvernd, svo er fjallað um smitsjúkdómavarnir, manneldismál og loks um orsakir krabbameina. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin er 178 bls. Verð kr. 1.490. Nýjar bækur alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.