Morgunblaðið - 13.02.2001, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.02.2001, Qupperneq 21
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 21 NÝTT TANNLÍMBetra hald - Aukin vellíðan Fæst í flestum apótekum Innflytjandi: Pharmaco hf. Bragðlaust og ofnæmisprófað A U K IN VE LLÍÐAN BETRA H A L D K O R T E R ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. (ÚA) sendi í gær frá sér ársreikn- ing fyrir síðasta ár. Þar kemur fram að tap ársins var 779 milljónir króna miðað við 157 milljóna króna hagnað árið 1999. Fjármálafyrirtæki spáðu að meðaltali 568 milljóna króna tapi og var niðurstaðan því rúmum 200 milljónum króna undir þeim vænting- um. Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri ÚA, segir meginskýr- ingu á tapi félagsins vera gengistap vegna skulda og tap vegna sölu rekstrarfjármuna. Samanlagt séu þessir liðir neikvæðir um sjö hundruð milljónir. Þetta þurfi reyndar ekki að koma á óvart, því í desember hafi félagið sent frá sér afkomuviðvörun með upplýsingum um gengistap 11 fyrstu mánaða ársins. Guðbrandur segir að þrátt fyrir tapið nú hafi hann sjaldan verið bjart- sýnni á rekstur félagsins en á yfir- standandi rekstrarári. Mikið hafi ver- ið tekið til í útgerðarhlið fyrirtækisins og félagið standi vel hvað aflaheimildir snertir. Eigið fé ÚA dróst saman um 29% á milli ára. Spurður að því hvort þetta væri áhyggjuefni segir Guðbrandur að hann telji svo ekki vera. Fyrirtæk- ið eigi töluvert af duldum eignum og sé með sterkan efnahag. Vergur hagnaður, þ.e. rekstrar- tekjur að frádregnum rekstrargjöld- um, án söluhagnaðar eða -taps, hefur farið ört vaxandi hjá ÚA á síðustu ár- um. 1996 var hann 209 milljónir króna, eða 4,7% af veltu en er nú 959 milljónir króna, eða 18,3% af veltu. Skuldir hafa hækkað mikið á sama tímabili, eða úr rúmum 21⁄2 milljarði króna í rúma 5 milljarða. Guðbrandur segir að fyrirhugað sé að lækka skuldir félagsins. Gengismunur vegur þungt Kristrún Þóra Hallgrímsdóttir hjá greiningu Íslandsbanka-FBA segir að ástæður fyrir verri afkomu ÚA nú í samanburði við árið 1999 séu fyrst og fremst mun óhagstæðari fjár- magnsliðir en árið áður. Gengis- munur og verðbætur hafi verið nei- kvæðar um 574 milljónir en árið á undan hafi fjármagnsliðir verið já- kvæðir um 178 milljónir. „Það er því ljóst að veiking krónunnar hefur komið illa við félagið,“ segir Kristrún. „Vextir hækkuðu einnig almennt á árinu 2000 og vaxtagjöld sem hlutfall af heildarskuldum félagsins voru 6,5% árið 2000 en voru 4,8% árið 1999. Kristrún segir að hagnaður félags- ins fyrir afskriftir og fjármagnsliði hafi numið 839 milljónum króna sam- anborið við 905 milljónir árið 1999 „Í ár fellur þó sölutap undir rekstrar- gjöld sem nemur 120 milljónum. Þeg- ar framlegð er skoðuð er því réttast að leiðrétta fyrir sölutapinu til að um sambærilegar tölur á milli ára sé að ræða. Með því fæst að framlegð hafi verið 18,3% (Íslandsbanki-FBA spáði 19,8%) í samanburði við 22,6% árið 1999. Minnkandi framlegð á sér m.a. skýringar í hækkandi olíukostnaði. Jafnframt var félagið að fara í gegn- um sameiningarferli og hefur það að öllum líkindum haft áhrif á framlegð- ina. Það hefur væntanlega einnig áhrif að Hólmadrangur, sem kom nú inn í samstæðuna í fyrsta skipti, rek- ur rækjuverksmiðju á Hólmavík en afkomu af rækjuveiðum og -vinnslu hefur ekki verið góð á síðustu miss- erum. Ofangreindir kostnaðarliðir komu sterkar fram en gert var ráð fyrir í spá Greiningar ÍSFBA.“ Kristrún segir að þrátt fyrir sam- einingu við Hólmadrang hafi fjár- binding ekki aukist að ráði. „Heildar- eignir Hólmadrangs voru færðar til bókar við árslok 1999 á 1.086 milljónir króna. Á árinu 2000 seldi ÚA síðan bæði Arnarnúp ÞH fyrir 475 milljónir (sölutap 120 m.kr.) og Hólmadrang ST 70 fyrir 225 milljónir (hvorki sölu- hagnaður né tap). Fjárbinding félagsins dregst því saman um 1,2% á milli ára. Fjármunamyndun sem hlutfall af fjárbindingu minnkar á milli ára og er það vegna ofangreinds samdráttar í veltufé frá rekstri. Hlut- fallið var 7,0% við síðustu áramót í samanburði við 9,5% við árslok 1999 og getur sú þróun vart talist viðun- andi. Á hinn bóginn er rétt að geta þess að nú í janúar seldi félagið Sval- bak fyrir 650 milljónir. Fjárbinding félagsins minnkar um 8,1% við þessa sölu og bendir hún til þess að félagið leitist áfram við að minnka fjárbind- ingu sem gefur fyrirheit um að fjár- munamyndun muni aukast sem hlut- fall af fjárbindingu.“ Nýtt verðmat væntanlegt „Í ljósi birtingar Útgerðarfélags Akureyringa á ársuppgjöri sínu mun verðmat á félaginu verða endurskoð- að. Stefnt er að því að senda nýtt verðmat út í þessari viku og bendir allt til þess að verðmatið frá 29. júlí síðastliðnum verði lækkað. Það skýr- ist annars vegar af lækkun á fram- legðarforsendum til lengri tíma og hins vegar af því að fjárbinding sem hlutfall af veltu minnki hægar til lengri tíma litið. Forsendur um sjóðs- streymi á árinu 2001 verða þó nokk- urn veginn óbreyttar,“ segir Krist- rún.    #$ % &'(                                                #                                      /%,0,)0 +%(/0)+     '0&)+  (()0  *(,$),    +%,0+)+ 0%(,+).  &&')+ +&)/1 &)'1 +/& )  ) * ) ) ) )  ) ) )  ) )          !  "  !  "  !  "                  Tap 779 milljónir Ársuppgjör Útgerðarfélags Akureyringa hf. alltaf á sunnudögum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.