Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 51
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 51
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa í neðri safnaðarsal kl. 10-14 í
umsjá Þórönnu Þórarinsdóttur.
Skemmtiganga kl. 10:30. Júliana
Tyrfingsdóttir leiðir gönguhópinn.
Bæna- og fyrirbænastund í kirkjunni
kl. 12 í umsjá Guðrúnar. Þórsdóttur,
djákna. Léttur hádegisverður á vægu
verði eftir stundina. Samvera for-
eldra ungra barna kl. 14-16 í neðri
safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningar-
lestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina. Æfing barnakórs
kl. 17–19.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguð-
sþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Háteigskirkja. Fermingarfræðsla kl.
16. Fundur í Æskulýðsfélaginu Vin-
áttu kl. 20. Samskipti. Kristin mystik
kl. 20. Námskeið Leikmannaskóla
þjóðkirkjunnar.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
hljóðrar bænagjörðar í hádeginu.
Nærhópur/hópstarf um úrvinnslu
sorgar hefst kl. 20 í Guðbrandsstofu
(í anddyri kirkjunnar).
Laugarneskirkja. Morgunbænir k.
6.45–7.05. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Sóknarprestur kennir úr Biblíunni.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lof-
gjörðarstund þar sem Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Sr. Bjarni
Karlsson flytur guðs orð og bæn.
Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í um-
sjón bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30–
18. Stjórnandi Inga J. Backman. For-
eldramorgunn miðvikudag kl. 10–12.
Fræðsla: Kynning á Heimilisiðnaðar-
skólanum.
Seltjarnarneskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12. Kaffi og spjall. Verið
öll hjartanlega velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bænastund í
kapellunni í safnaðarheimilinu 2. hæð
kl. 12. Koma má bænarefnum á fram-
færi áður en bænastund hefst eða
með því að hringja í síma 552-7270 og
fá bænarefnin skráð. Safnaðarprest-
ur leiðir bænastundirnar. Að bæna-
stund lokinni gefst fólki tækifæri til
að setjast niður og spjalla. Allir eru
hjartanlega velkomnir til þátttöku.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10–12. Við fáum
heimsókn frá foreldrastarfi Grafar-
vogskirkjuu. Komum sjálf með með-
læti. Hittumst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM&K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr-
aðra. Leikfimi ÍAK kl. 11.20. Sam-
vera, léttur málsverður, kaffi. Æsku-
lýðsstarf KFUM&K og Digranes-
kirkju fyrir stúlkur (10–12 ára) kl.
17.30.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund-
ir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12 ára
stúlkur kl. 17–18.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Alltaf eitt-
hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakk-
ar í Rimaskóla kl. 18–19 fyrir börn á
aldrinum 7–9 ára.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í
dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Opið
hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyr-
irbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10–12 ára börn í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl.17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra kl.
16. Starf fyrir stúlkur 10–12 ára í
samstarfi við KFUK kl. 17.30 í safn-
aðarheimilinu.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorgunn
í safnaðarheimili Þverholti 3, 3. hæð
frá kl. 10–12. Fundur hjá kirkju-
krökkum frá kl. 17.15–18.15. Safnað-
arheimilið opnað kl. 17.
Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur op-
inn kl. 13–16 með aðgengi í kirkjunni
og Kapellu vonarinnar eins og virka
daga vikunnar. Gengið inn frá
Kirkjuteigi. Starfsfólk kirkjunnar
verður á sama tíma í Kirkjulundi.
Fermingarundirbúningur kl. 14.10–
16.25 í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT tíu– tólf ára
starf alla þriðjudagakl. 17–18. Helgi-
stund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15– 19.
Útskálakirkja. Safnaðarheimilið
Sæborg. NTT (9–12 ára) starf er
hvern þriðjudag í vetur kl. 17. Allir
krakkar 9–12 ára hvattir til að mæta.
Hvalsneskirkja. Safnaðarheimilið
Sandgerði. NTT (9–12 ára) starf er
hvern þriðjudag í vetur kl. 17 í safn-
aðarheimilinu. Allir krakkar 9–12 ára
hvattir til að mæta.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf í
dag kl. 17 í umsjá Ástríðar Helgu Sig-
urðardóttur og undirleikari er Tune
Solbakke. Starfið er ætlað börnum
10–12 ára.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudögum kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 KKK Kirkjuprakkarar 7–9 ára
í umsjá Hrefnu Hilmisdóttur. Mynd-
bandsupptaka á þættinum Hver er
náungi minn?
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30
í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Ómar
KIRKJUSTARF
Það er til orðatil-
tæki sem segir: „Betra
er seint en aldrei.“
Kannski á það við nú.
Allavega langar mig
til að kasta á þig hinstu kveðju.
Þegar ég frétti af andláti þínu varð
mér mjög um. Ég fór aftur í tímann
og sá fyrir mér allt það sem við
brölluðum sem krakkar og ungling-
ar. Satt að segja á ég margar af
mínum bestu minningum í sveitinni
á Sauðanesi að leik með þér, Bjössi
minn. Það var alltaf tilhlökkun í að
hitta þig, og það sem var brallað
verður kannski margt látið liggja
milli hluta. Könnunarleiðangrar
hingað og þangað um sveitina eru
mjög eftirminnilegir eins og allir
„leynistaðirnir“ þar sem við áttum
BJÖRN
ÁGÚSTSSON
✝ Björn Ágústssonfæddist í Nes-
kaupstað 28. mars
1973. Hann lést á
heimili sínu á Húsa-
vík 3. febrúar síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Þórs-
hafnarkirkju 10.
febrúar.
okkar leyndarmál.
Hafðu engar áhyggjur,
ég hef engum sagt frá.
Mér kemur ekki til
hugar að segja að
aldrei hafi orðið
rifrildi eða fýla, en
hverjir eru svo full-
komnir að það komi
aldrei neitt uppá?
Þessar minningar hafa
aldrei horfið úr huga
mér þannig að þær
hafi gleymst. Eins og
svo oft vill verða, eins
sorglegt og það er,
þegar fjarlægðir
myndast á milli manna vill sam-
bandið rofna. Þetta gerðist í okkar
tilfelli og nú er ekkert sem ég get
gert til að bæta það. Að lokum vil
ég minna á tilvitnun sem mér var
kennd í KFUM á sínum tíma: „Þeir
deyja ungir sem guðirnir elska.“
Ég sendi foreldrum þínum, systk-
inum, frændum, frænkum og öllum
vinum þínum hlýhug og styrk til að
takast á við þá sorg og tómleika
sem við okkur blasir.
Og þér, Björn Ágústsson, sendi
ég þakkarkveðju.
Ægir Ágústsson.
Ég mun aldrei
gleyma þeim stundum
sem ég átti með ömmu
Siggu. Til dæmis öll-
um skiptunum sem við
spiluðum lúdó. Hún kenndi mér að
spila þennan skemmtilega leik og
við höfðum gaman af. Stundum
spiluðum við tímunum saman og
skiptumst á að vinna, þó að hún
hafi nú oftar farið með sigur af
hólmi.
Það má segja að hún hafi spilað
eins og atvinnumaður í lúdó.
Það var alltaf gaman að hitta
ömmu því að hún var alltaf svo
hress og það var auðvelt að fá hana
til þess að hlæja. Í mínum augum
leit hún alltaf vel út. Fjölskyldu-
boðin og strætóferðirnar eru mér
mjög minnisstæðar. Þegar ég var
lítill strákur fórum við, ég og hún,
niður í bæ með strætó. Hún var
með allar strætóferðirnar á hreinu,
vissi hvaða vagn átti að taka og
hvert ferðinni var heitið. Mér
fannst þessar stundir okkar í
strætó mjög skemmtilegar og
ógleymanlegar. Laxaboðið var ár-
legt boð hjá ömmu Siggu í kringum
afmælisdaginn hennar. Laxinn
hennar bragðaðist best, sérstak-
lega med Sinalco. Á boðstólum var
yfirleitt skipsfarmur af lax og
borðaði fjölskyldan yfir sig af hon-
um. Laxinn hennar ömmu klikkaði
aldrei. Á jólunum gaf amma Sigga
alltaf pakka merktan jólasveinin-
um, en í honum var undantekning-
arlaust konfekt. Það voru aldrei
nein jól án þess að fá konfekt frá
jólasveininum.
Amma, ég sakna þín rosalega
mikið. Þú gafst mér svo margt. Þú
gafst mér endalausa ást og skilning
og þú stóðst alltaf við bakið á mér
sama hvað það var. Manstu, þegar
við kvöddumst á spítalanum, við
ætluðum að spila lúdó þegar ég
kæmi heim frá Bandaríkjunum, en
það verður víst að bíða betri tíma.
Ég veit að einn góðan dag þá
munum við hittast aftur – og
kannski vinn ég þig næst.
SIGRÍÐUR EYGLÓ
ÞÓRÐARDÓTTIR
✝ Sigríður EyglóÞórðardóttir
fæddist í Vík í Mýr-
dal 5. ágúst 1931.
Hún lést á líknar-
deild Landspítalans
5. f ebrúar síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Fella- og Hólakirkju
12. febrúar.
Takk fyrir að koma
í draumi til mín um
daginn og segja mér
að þér líði vel.
Ég mun aldrei
gleyma þér. Ég elska
þig. Sjáumst seinna.
Þinn
Ásgeir Orri.
Nú er erfiðri bar-
áttu lokið hjá þér,
elsku frænka. Ótrú-
legur dugnaður og
kraftur sem þú sýndir
þessi tæpu tvö ár sem
liðin eru frá því að þú greindist
með krabbamein. Ég skildi aldrei
að þessar miklu og erfiðu lyfja-
meðferðir sem þú gekkst í gegnum
skyldu aldrei buga þig. Þvert á
móti; þú ætlaðir að sigra sjúkdóm-
inn og komast í gegnum þetta.
En manninn með ljáinn er erfitt
að sigra. Svona er lífið, Guð gefur
og Guð tekur, og oft stendur maður
ráðþrota frammi fyrir lífinu og til-
gangi þess.
Margs er að minnast frá upp-
vextinum og er þar samband systk-
inanna á Skóló og okkar systkin-
anna í Langó ofarlega í huga. Þið
systurnar, mamma og þú, með
börnin ykkar á svipuðu reki og
mikill samgangur þar á milli.
Öll afmælin, jólaboðin, allar
samverustundirnar okkar hvort
sem var hér í Reykjavík eða austur
í Vík hjá ömmu og afa, allt yljar
þetta og vekur góðar minningar
sem gott er að eiga þegar við fáum
ekki notið þín lengur. Síðan þegar
ég eignaðist börnin mín, Krist-
björgu Þöll og Hjörleif, gladdist þú
innilega með mér. Þá eignuðust
börnin mín auka-ömmu því þú
gekkst alltaf undir nafninu „amma
Sigga“ og festist þessi nafngift við
þig.
Samband þitt og mömmu var ná-
ið og það var notalegt til þess að
vita að þið gátuð deilt gleði og sorg
og gefið hvor annarri styrk er á
reyndi.
Elsku Sigga, ég bið Guð að taka
vel á móti þér og ég veit að þar eru
amma, afi og Unnur frænka líka.
Elsku Einar, Guðni, Inga og Óli,
ykkar er sorgin mest, Guð veri
með ykkur.
Ég þakka þér samfylgdina,
frænka. Hvíl þú í friði.
Þín
Sigríður (Sigga).