Morgunblaðið - 13.02.2001, Qupperneq 50
MINNINGAR
50 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum einnig um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
8
6
2
% 2
%
'
&'
'
40+ 7
*),@;0
9$
6
%
% 9% &
,- $ .##
+$ <0 .$$) ,- .##
, 0 .$ .## ,$$)
1 <! $ .$ .##
<8 0 .$$) (
),* */0
8
6
6
2
% 2%
'%
'
'
9 <9 7
, * #HC
$0
-1!8.3$ .##
.##
A#
A#$$)
1!8.3 $) +$ 70% $ .##
, .## <#
/0 $) ,A#
A#$ .##
* */), , 3 * 0
8
6
6
2
% 2%
'
'
?% ( 70
9$
6
'
+
,&
-
D
,*8/, $ .##
2$#$ $ .## I $1 .$ .##
<, $ $ .##
,
,+ $)
,*8/,.%,3-$ .##0
0'
2
% 2% &
'
& '
'
4 9 7 3"("$ -$3
8 * #@J
! 8 0
9$
6
+
,&
-
+
,&
+
,*8/, $ .##
),38/$ ! 0
-
6
2
'
2
&'
'
'
<0%
7
<) ,/&
#8 $0
,*8/, $ .##
4. , .## 2$#8"4)*,$$)
, .## ,9. $$)
1 , .## )38 # $)
*8/+$I *8/$$)
*8/$$)
4) % $$) 2$#8
),* */0
Mínar fyrstu minn-
ingar um hann afa
minn eru frá því að
hann kom mjög óvænt
í heimsókn að Kjóa-
stöðum.
Það var bankað á
dyrnar og ég og Gunna systir fórum
til dyra, við vorum ekki lítið hissa
þegar þessi maður sagðist vera afi
okkar. Við kölluðum á mömmu og
sögðum henni að það væri sköllótur
maður í dyrunum. Það fannst okkur
mjög merkilegt, við höfðum aldrei
séð alveg sköllóttan mann áður,
bara í sjónvarpinu. Þegar við vild-
um fá að vita af hverju hann væri
hárlaus sagðist hann hafa verið
óþekkur á sínum yngri árum og
alltaf verið með húfu inni og líka við
matarborðið, þess vegna hefði hárið
dottið af honum. Þetta fannst okkur
alveg ótrúlegt og eftir þetta var það
algjör glæpur í okkar augum að
vera með húfu inni, við ætluðum
sko ekki að missa hárið.
Þó að það hafi ekki verið mikil
samskipti voru þínar óvæntu heim-
ÓLAFUR PÉTUR
SIGURLINNASON
✝ Ólafur Pétur Sig-urlinnason fædd-
ist 12. maí 1929.
Hann varð bráð-
kvaddur 5. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Garðakirkju á Álfta-
nesi 12. febrúar.
sóknir alltaf skemmti-
legar, til dæmis þegar
við Gulli fluttum í hús-
ið okkar. Þá var allt á
tjá og tundri og við
vorum að reyna að
koma okkur fyrir.
Kom þá ekki hann afi,
skoðaði húsið í krók og
kring, bankaði á
nokkra veggi og sagði
svo: „Þetta er gott hús
og verður ennþá betra
þegar þið eruð búin að
taka til.“ Hann afi var
nefnilega mikill snyrti-
pinni og þoldi ekki
drasl og sóðaskap.
Ég er svo þakklát fyrir síðustu
heimsókn hans til okkar, aldrei
þessu vant var hann ekki að flýta
sér, sat bara í róglegheitum og tal-
aði um daginn og veginn. Ólöf Arna
teiknaði handa honum mynd og
sýndi honum herbergið sitt og vildi
alltaf vera að knúsa hann. Þegar
hann var að fara sagði hann að
maður ætti að leyfa fólki að lifa líf-
inu eins og það vildi og skipta sér
sem minnst af annarra manna
ákvörðunum um sig sjálfa. Þetta
var hans speki. Svo faðmaði hann
okkur með stóru höndunum sínum
og kvaddi. Og nú er hann alfarinn
frá okkur og við söknum hans mik-
ið. Þegar ég sagði henni Ólöfu Örnu
að hann afi Óli væri dáinn og farinn
til himna varð hún svolítið sorg-
mædd en kom svo og sagði:
„Mamma þetta er allt í lagi, hann
langafi Jónas passar hann afa Óla
og englarnir líka. Kannski eru þeir
að spila saman og skoða stjörnurn-
ar.“
Vertu yfir og allt í kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Ég kveð þig, elsku afi minn, með
sorg í hjarta en minningin um þig
lifir áfram.
Þín
Anna Björk, Gunnlaugur
og Ólöf Arna.
Elsku amma mín.
Ég veit ekki alveg
hvar ég á að byrja því
að ég á svo margar
góðar minningar um
nærveru þína.
Ég man þegar þú, Guðrún og
Helga komuð í heimsókn til okkar
þegar við bjuggum í Svíþjóð og ég
söng fyrir þig lag sem ég átti að
syngja á skólaskemmtun. Þegar ég
hafði lokið laginu brostirðu svo fal-
lega til mín og lítið tár lak niður
kinnina þína.
Eftir að við fluttum heim heim-
sótti ég þig oft á Njálsgötuna. Það
MARGRÉT O.
SKÚLADÓTTIR
✝ Margrét Odd-fríður Skúladótt-
ir fæddist í Stykkis-
hólmi 22. apríl 1910.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Skjóli
18. janúar síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskapellu 25.
janúar.
var svo gott að skríða
upp í hlýtt rúmið til
þín á morgnana og þú
sagðir mér sögur eða
söngst.
Við sátum stundum
og spiluðum eða spjöll-
uðum saman meðan þú
sast og saumaðir. Það
var oft sem ég mátti
velja hvað ætti að vera
í matinn og varð
grjónagrauturinn allt-
af fyrir valinu, þetta
var besti grautur í
heimi.
Hún Sigurborg
sagði mér um daginn að henni fynd-
ist ég líkjast þér og það voru orð
sem fylltu mig stolti og yljuðu mér
um hjartarætur.
Ég veit það, amma mín, að hvíld-
in var þér kærkomin og því kveð ég
þig með söknuði og þakklæti fyrir
þær stundir sem við áttum saman.
Guð veri með þér og varðveiti þig.
Þín sonardóttir,
Nanna.
Taska
aðeins 750 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is