Morgunblaðið - 13.02.2001, Side 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VILHJÁLMUR Aleksander, krón-
prins Hollands, gæti þurft að velja
milli krúnunnar og ástkonu sinnar,
Maximu Zorreguieta, dóttur arg-
entínsks stjórnmálamanns sem var
ráðherra í herforingjastjórninni
1979 til 1981. Þær raddir verða nú
æ háværari í Hollandi sem hvetja
prinsinn til að segja af sér krún-
unni ákveði hann að giftast Max-
imu en trúlofun þeirra hefur lengi
legið í loftinu.
Hópur hollenskra þingmanna
hefur látið hafa eftir sér að þeir
muni ekki líða að nokkur sem grun-
aður er um mannréttindabrot teng-
ist konungsfjölskyldunni. Því er
hætta á að ástarsamband prinsins
og hinnar 29 ára gömlu Maximu
gæti valdið stjórnlagakreppu í Hol-
landi þar sem hollenska stjórn-
arskráin kveður á um nauðsyn
samþykktar þingsins á brúð-
kaupum konungsfjölskyldunnar.
Faðir Maximu, Jorge Zorreguita,
var landbúnaðarráðherra árin
1979-1981 í tíð herforingjastjórnar
Jorge Rafael Videla. Að sögn
mannréttindasamtaka var stjórnin
ábyrg fyrir kerfisbundnum pynt-
ingum og morðum á andstæðingum
sínum. „Maxima getur ekki orðið
drottning mín með slíkan föður,“
segir Jan van Walsem, þingmaður
flokksins D66.
Dagblaðið NRC Handelsbad hef-
ur gefið í skyn að prinsinn ætti að
afsala sér krúnunni ef hann er stað-
ráðinn í að trúlofa sig Maximu.
Hún og prinsinn kynntust fyrir
tveimur árum í New York þar sem
hún vann hjá Deutsche Bank. Hún
flutti síðan til Brussel þar sem hún
leggur stund á hollensku en gerð er
krafa um hollenskukunnáttu þegar
sótt er um hollenskan ríkisborg-
ararétt. Maxima var í fyrstu mjög
vinsæl í hollenskum fjölmiðlum sem
dáðust að útliti hennar og skemmt-
anagleði, sem er í hrópandi and-
stöðu við hinn 33 ára gamla Vil-
hjálm Aleksander sem þykir
fáskiptinn mjög. Efasemdir vökn-
uðu hins vegar um kvonfang prins-
ins þegar upp komst um faðernið.
Jan Marijnnissen, þingmaður
sósíalista, bendir á að ef Vilhjálmur
Aleksander skyldi deyja á undan
drottningu sinni yrði drottingin
æðsti yfirmaður ríkisins „þannig að
við verðum að vera alveg viss um
að hún sé lýðræðissinni af öllu
hjarta.“
Maarten Mourik, fyrrverandi
sendiherra Hollands hjá Menning-
ar- og framfarastofnun Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, höfðaði mál í
Hollandi í síðasta mánuði gegn
Jorge Zorreguita og sakaði hann
um að vera meðábyrgan í glæpum
gegn mannkyninu. Hvati kærunnar
er, að sögn Mourik, sá að hann vill
koma í veg fyrir að glæpamaður
verði meðlimur hollensku konungs-
fjölskyldunnar. Samþykki hol-
lenski ríkissaksóknarinn málið
gæti farið svo að því lyki með að
gefin yrði út alþjóðleg handtöku-
skipan á hendur Zorreguita.
Hollenski krónprinsinn í vanda
Kærast-
an gæti
kostað
krúnuna
Brussel. The Daily Telegraph.
Vilhjálmur Alexander, krónprinsinn í Hollandi, fylgist vel með sínum
mönnum í landsliðinu .
Reuters
Ólafsvík - Þjóðlegur andi ríkti á
Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík á
dögunum þegar þorri var blótaður.
Slegið var upp veisluborði og var
óvenjumargt um manninn því vinum
og vandamönnum heimilismanna var
boðið til veislunnar.
Á milli tarna við borðhaldið var
gripið í harmonikku og alkunn ís-
lensk kvæði sungin auk þess sem
heimilismaðurinn Gunnar Jón Vil-
hjálmsson lék nokkur ljúf lög á blokk-
flautu sína. Veronica Osterhammer
messósópran kórónaði að lokum
kvöldið með íslenskum sönglögum
við undirleik Key Wiggs, organista
og tónlistarkennara á Hellissandi.
Á Dvalarheimilinu eru um þessar
mundir 12 heimilismenn, ýmist í ein-
staklingsíbúðum eða tveggja manna
íbúðum. Notalegur matsalur er á
Jaðri og lítil setustofa þar sem t.d.
sóknarpresturinn messar einu sinni í
mánuði. Í stofunni eru þar að auki
haldnir reglulega svokallaðir blaða-
mannafundir en þá gluggar sóknar-
prestur ásamt heimilisfólki í það
markverðasta úr dagblöðum liðinna
vikna.
Morgunblaðið/Elín Una Jónsdóttir
Til vinstri sitja hjónin Olgeir Gíslason og Þórunn Jóhannsdóttir en til
hægri hjónin Björg Guðmundsdóttir og Jón Björnsson.
Þorri blótaður með
íslenskri tónlist
'7 :"
1 ( !2':! :"
2:* (
*2':
:"
72
!
(
!" #
$
$
;
, *(
2 2
9&
"
%&&'())
Litla svið
SKIPULAGÐUR HÁVAÐI – ÚR SMIÐJU TOM
WAITS
Mið 14. feb kl. 21
Lög, ljóð og sögur Tom Waits. Flytjendur:
Valur Freyr Einarsson, Halldór Gylfason,
Stefán Már Magnússon, Karl Olgeirsson,
Friðrik Geirdal, Vernaharður Jósefsson,
Birkir Freyr Matthíasson og Ottó Tynes.
Aðgangseyrir kr. 1.000,-
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Fös 16. feb kl. 20 - UPPSELT
Fös 23. feb kl. 20 – UPPSELT
Fös 2. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 10. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Tilnefnt til Menningarverðlauna DV:
„...verkið er skopútfærsla á kviðlingaáráttu
landans í bland við upphafna aðdáun á
þjóðskáldunum...undirtónninn innileg
væntumþykja...fjörugt sjónarspil.”
ATH. SÝNINGUM LÝKUR Í MARS
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Fös 16. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fim 22. feb kl. 20
Fös 23. feb kl. 20
ATH. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI!
Litla svið - VALSÝNING
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Lau 17. feb kl. 19
Sun 18. feb kl. 19
Fim 22. feb kl. 20
Stóra svið
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 18. feb kl. 14– UPPSELT
Sun 25. feb kl. 14 – UPPSELT
Sun 4. mars kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 11. mars kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Stóra svið
LED ZEPPELIN - TÓNLEIKAR
Lau 24. feb kl. 19.30 og kl. 22.00
Hljómsveitin Dúndurfréttir flytur tónlist Led
Zeppelin. Meðal gesta sem einnig koma
fram eru Pink Floyd og Deep Purple.
Ertu í saumaklúbbi? Skráðu klúbbinn á
póstlistann á www.borgarleikhus.is og
fáðu glæsileg leikhústilboð fyrir hópinn
vikulega. Mánaðarlega er einn sauma-
klúbbur dreginn út og öllum meðlimum
boðið á leiksýningu í Borgarleikhúsinu.
Í HLAÐVARPANUM
Eva
- bersögull sjálfsvarnareinleikur
12. sýn. í kvöld kl. 21 örfá sæti laus
13. sýn. fim. 15. feb kl. 21 uppselt
14. sýn. fös. 16. feb. kl. 21
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna
og taka karlana með...“ (SAB Mbl.)
Háaloft
geðveikur
svartur gamanleikur
25. sýn. lau. 17. feb. kl. 21
26. sýn. þri. 20. feb. kl. 21
„Áleitið efni, vel skrifaður texti,
góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl)
„... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV)
*+,#$$
-./ 0 0-%%&1)%%
3/$0@;03*066$#
0@C03*0/3"$I#
3/$0&H03*0/3"$I#
0&503*0/3"$I#
!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
23/ 3./ 3 -456
2!
3*<:'7<:
77
#
80*8 ++7#
7 #
&9:(
77
#
;<.84 3.88$ -
9.<:
,,# 1
,,#=:*<:
,,# 1
,,#=<!
,,# 1
,,#=<! #
1#
.<! #
1#
=:*<!
77
#
1
,,#=<
77
#
1
77
#
-/ > 36*.-6
#"
+?? 7##+7 3<!
,,#':<!
,,#=
"<!
,,#=
1<!
,, Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
-/ > 36*.-6
;
<:
,,#=
1<:
,,#=.<:
,,#=::<:
,,#
:<:
,,#:*<:
,,#=
:.<:
,,#='(<!
,,#=<!
,,#
<!*<!
,, < @28 3.A 2 B;- ? 3'7<:
Litla sviðið kl. 20.30:
6<=-.868@CD+
3'7<:
77
#
1<:#
':!<:
,,#=
:<:
EEE #7
$ $#F#7
$ 9&
,
"
-#
, GH 7# &IG&J= G
7# &IG()
2'7 :"
2
1 :" 2. :"
-#
,##?7$
7# &IB&9
$ 'K(&'))
EEE #7# 552 3000
Opið 11-19 virka daga
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
lau 17/2 örfá sæti laus
sun 18/2 Aukasýning
lau 24/2 örfá sæti laus
fös 2/3 laus sæti
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG
fös 16/2 kl. 20 örfá sæti laus
fös 23/2 kl. 20 örfá sæti laus
lau 3/3 nokkur sæti laus
530 3030
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN - sýningar hefjast í
mars
SÝND VEIÐI
fös 16/2 kl. 20 nokkur sæti laus
Síðasta sýning
MEDEA - Aukasýningar
fim 22/2 kl. 20
fös 23/2 kl. 20
lau 24/2 kl. 20
sun 25/2 kl. 20
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að sýn-
ingu og um helgar opnar hún í viðkomandi leik-
húsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið. Hópasala er í
síma 530 3042 frá kl. 10-16 virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is