Morgunblaðið - 13.02.2001, Qupperneq 39
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 39
muni eða greind fólks og barna, gall-
inn er bara sá að vitsmunir og greind
eru svo nátengdir persónubundinni
reynslu, að túlkun á greindarprófum
getur verið vafasöm. Einnig má geta
þess að á síðari árum hafa verið
skrifaðar lærðar bækur um tilfinn-
ingagreind (Emotional IQ). Þá má
loks nefna kenningar Howard
Gardners um fjölgreind (sjá Mbl. 23/
01/01).
Vitsmunaþroski barna
og gildi reynslunnar
En hvaða vitsmunaþáttur og/eða
tilfinningaþáttur er það nákvæmlega
sem heimspekikennsla með börnum
stefnir á að þroska? „Heimspeki með
börnum hjálpar þeim til að átta sig á
hlutunum, að leita merkingar þess
sem er óljóst, og að sætta sig við það
þegar þau vita ekki endanlegt svar,
eins og við hinni vinsælu spurningu,
„Hvað er hinum megin við alheiminn
ef hann er endalaus?““ svarar
Hrannar og að í heimspekikennslu
með börnum sé ein frumforsendan
sú að þátttakendur eru manneskjur,
með eigin gildi og viðhorf, sem hafa
vægi í sjálfum sér. „Oft eiga hinir
eldri erfitt með að gera sér grein fyr-
ir að börn eru fullgild í lífinu. Þau lifa
í reynsluheimi og hafa þekkingu á
eigin umhverfi, á sjálfum sér, og fjöl-
skyldutengslunum sem þau búa við,
og öllu því sem þau snerta,“ segir
Hrannar. „En þegar börn setjast í
hring og fá tækifæri til að ræða þá
þekkingu sem þau hafa áunnið sér,
kemur margt á óvart, því að reynslu-
heimur annarra barna er oft gjör-
ólíkur.“
Hrannar segir að þegar börnin fái
tækifæri til að ræða um eigin
reynsluheim (með aðstoð heimspeki-
kennarans) safna þau í sig ólíkum
viðhorfum og eiga auðveldara fyrir
vikið með að mynda sér sitt eigið við-
horf, á góðum og traustum forsend-
um. „Heimspekikennarinn leiðir
börnin vísvitandi í gegnum völund-
arhús heimspekinnar, án þess að
fræða þau beinlínis um heimspek-
inga, heimspekistefnur eða heim-
spekisögu, heldur með því að tengja
saman hefð heimspekilegrar hugs-
unar og reynsluheim barnanna,“
segir hann. „Heimspekin er
slíkt hafdjúp af hugmyndum
að barnæskan endist ekki til
að snerta þær allar, né heldur
mannsævin. Hins vegar hefur
snerting við heimspekina þau
ótvíræðu áhrif að hún hjálpar
fólki að hugsa skýrar og að
gera greinarmun.“
Að kenna börnum gagn-
rýna og skapandi hugsun
Það virðist einnig vera sam-
eiginleg niðurstaða flestra
rannsókna sem gerðar hafa
verið á áhrifum barnaheim-
spekinnar, að hún skerpi
hugsun þátttakenda til muna.
Hreinn Pálsson, stofnandi
Heimspekiskólans í Reykja-
vík, gerði t.d. könnun á áhrif-
um heimspekikennslu við
Síðuskóla á Akureyri. Niður-
staðan var ótvíræð.
Annar, af tveimur hópum
sem rannsakaðir voru, fékk
kennslu í heimspeki, en hinn
ekki. Einkunnir þeirra, sem
fengu heimspekikennsluna,
hækkuðu í öðrum fögum frá
því sem áður var, en hinn hóp-
urinn stóð í stað. Þessi niður-
staða hefur margoft verið
staðfest af rannsóknum á veg-
um I.A.P.C. við Montclair
State háskólann í New Jersey,
en þar starfar Matthew Lip-
man, frumkvöðull barnaheim-
spekinnar, við rannsóknir og
kennslu.
„Heimspeki skerpir hugsun
barna, jafnvel þótt tekið sé til-
lit til þess að það hugsa ekki
allir á sama veg. Heimspekin
hvetur börnin til að hugsa
dýpra og til að finna fleiri
spurningar þegar þau hafa
uppgötvað eitthvað,“ segir
Hrannar. „Börnin hugsa skýr-
ar og verða fyrir vikið gagn-
rýnni á skoðanir og fullyrðing-
ar, sem þýðir þó ekki að þau
fari sjálfkrafa að efast um allt,
t.d. tilvist Guðs eða jólasveins-
ins. Í heimspekitímum eru þau
t.d. hvött til að rifja upp liðna atburði
og skýra frá þeim. Það eitt að segja
frá eigin hugmynd krefst gagnrýn-
innar og skapandi hugsunar af þátt-
takandanum.“
Samhljómurinn ber
sigurorð af kaldhæðni
Börn eru mjög næm fyrir háði.
Þess vegna lærist þeim fljótt gildi
þess að vera einlæg í heimspekilegri
samræðu. Reyndar verður heim-
spekikennarinn oft að leiða börn inn
á veg einlægninnar, en börn, eins og
fullorðnir, eiga það til að vera kald-
hæðin, óvönduð og hvöss í máli, sem
hjálpar ekki við heimspekilega sam-
ræðu. „Það tekur yfirleitt nokkrar
kennslustundir að fá nemendur til að
finna samhljóminn,“ segir Hrannar.
„Kennarinn verður að gera sitt ít-
rasta til að börnin geti byggt upp
traust og einlæg samskipti, sem
verða svo til þess að gildi samræð-
unnar eykst. Þessi leið til einlægra
samskipta er alls ekki auðveld, og
þarf kennarinn oft að leggja sig allan
fram ef hann vill ná þessu stigi.“
Samlestur er mikið notaður til að
styðja þessa þróun. Ef börn lesa
saman, (eitt tekur við af öðru við að
lesa ákveðna sögu), kynnast þau
smám saman rödd hvert annars og
komast ekki hjá því að hlusta. Sam-
ræðan er eðlilegt framhald samlest-
ur, sem byggist oftast á efni lesturs-
ins. Þannig hefur sérhver
heimspekitími góð áhrif á lestur,
samræðuhæfni og persónuleg sam-
skipti. „Þegar vel er gert og hópur-
inn nær vel saman, fara börnin að
sýna umhyggju, sem er ákveðin
tengsl milli vitsmuna og tilfinninga,“
segir hann. „Þessi umhyggja hefur
góð áhrif á alla þátttakendur. Þegar
börnin sjá að þeim er sýnd umhyggja
af félögum sínum, eykst sjálfstraust
þeirra, og möguleikar til meiri vits-
muna- og tilfinningaþroska opnast
upp á gátt.“
Uppgötvun sem
birtist í samræðunni
Á mörkum vitsmuna og tilfinninga
liggur uppgötvunin. Þegar börnin
ræða heimspeki sína saman og sjá ný
tengsl sem auka á skilning þeirra,
eykst áhugi þeirra til muna og verð-
ur bæði að innri og ytri hvatningu
fyrir aðra í hópnum. „Það má í stuttu
máli fullyrða að heimspeki þroski
með börnum gagnrýna og skapandi
hugsun annarsvegar, og umhyggju
og sjálfstraust hinsvegar. Svo má
auðvitað ekki gleyma þeirri þekk-
ingu og skilningi sem börnin öðlast
vegna innihalds samræðnanna
sjáfra,“ segir hann og að börn séu að
vissu leyti speglar í orðum sínum
þegar þau ræða saman. „Þegar barn
segir t.d. frá undrun sinni yfir að fólk
sé stundum ósammála, gæti kviknað
á perunni hjá öðru barni sem lýsir
því að það hafi alltaf haldið að allir
fullorðnir væru alltaf sammála. Sam-
ræða gæti svo spunnist út frá þessu
sem varpaði ljósi á það af hverju fólk
er stundum ósammála, og gæti jafn-
vel leitt út í dýpri sálma, eins og tak-
mörk mannlegrar þekkingar.“
Heimspekiskóli Hrannars og Angelesar heitir Cefilni, centro de filosofia para
ninas y ninos og er rekinn á neðri hæðinni í húsinu sem þau leigja á í Merída:
http://members.xoom.com/hraba/cefilni/cefilni.htm.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1. flokkur 1989: Nafnverð:
500.000 kr.
50.000 kr.
5.000 kr.
Innlausnarverð:
1.391.597 kr.
139.160 kr.
13.916 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð:
500.000 kr.
50.000 kr.
5.000 kr.
Innlausnarverð:
1.228.609 kr.
122.861 kr.
12.286 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
2.471.490 kr.
247.149 kr.
24.715 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
2.297.308 kr.
229.731 kr.
22.973 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
10.138.071 kr.
2.027.614 kr.
202.761 kr.
20.276 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.353.094 kr.
1.870.619 kr.
187.062 kr.
18.706 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
8.165.438 kr.
1.633.088 kr.
163.309 kr.
16.331 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
8.016.168 kr.
1.603.234 kr.
160.323 kr.
16.032 kr.
Innlausnardagur 15. febrúar 2001.
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800
Húsbréf
Árið 2000 var Merída menn-
ingarborg Ameríku, en hún er
almennt þekkt sem Borgin
hvíta. Þetta er sannkölluð há-
skólaborg, en flestir háskólar
Yucatan-fylkis í Mexíkó eru á
þessu svæði, og fer Univers-
idad del Mayab þar fremstur
meðal jafningja. Nemendur
koma úr nærliggjandi fylkjum
til að stunda nám í Merída.
Mikið af bandarískum mann-
fræðinemendum taka áfanga
við Yucatan-háskólann sem er
einnig hér í Merida, þar sem
enn er mikið af frumstæðum
þorpum í grenndinni, falin í
regnskógum sem eru hér allt í
kring.
Um 800.000 manns búa í
borginni en yfirbragð borg-
arinnar er frekar rólegt og
hægt. Aðeins í hálftíma fjar-
lægð má finna rústir borg-
arinnar Dzibilchaltún og í 2-3
tíma fjarlægð má finna hina
heimsfrægu píramída í borg-
unum Chichen Itza og Uxmal.
Einnig má finna merkar neð-
anjarðarhvelfingar (Cenoté)
sem voru híbýli Maya á öldum
áður. Þar má finna eitthvað af
fornu veggjakroti. Þetta svæði
er gullnáma fyrir mannfræð-
inga og fornleifafræðinga.
Hér og þar í Yucatan má finna
hið stórmerka fyrirbæri Cen-
otes, eða hringlaga vatnslón
sem tengjast saman í neð-
anjarðarfljóti. Maya-kyn-
stofninn er ríkjandi í Merída
en þeir eru frumbyggjar fylk-
isins. Þeir ráða yfir sínu eigin
tungumáli sem er haldið við af
menntastofnunum og sjón-
varpi, þó að spænska sé op-
inbert móðurmál hérna, og
menningararfleifð Mayanna
er í hávegum höfð.
Menningarborgin
Merída
Í 2–3 tíma akstursfjarlægð frá Merída eru hinir frægu píramídar í Chichen Itza
og Uxmal: http://www.yucatan.gob.mx/turismo/merida.htm.
skólar/námskeið
tungumál
■ Enskunám í Englandi
Bjóðum enskunám við einn virtasta
málaskóla Englands. Skólinn sér þér
fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjöl-
skyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18
ára og eldri, viðskiptaensku og ungl-
ingaskóla í júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdótt-
ir í síma 862 6825 eftir kl. 18:00.
nudd
■ www.nudd.is