Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 52

Morgunblaðið - 13.02.2001, Page 52
HESTAR 52 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FREMSTIR FYRIR GÆÐI Milli manns og hests... ... er arhnakkur ÞEIR hrossaræktendur sem stunda sína iðju á lögbýlum eru lukkunnar pamfílar þar sem þeir geta kennt hross sín við nafn býlis- ins og fengið þar með auðkenni á það sem þeir framleiða. Öðru máli gegnir um þá sem eru svo óheppnir að búa í þéttbýli. Sá sem býr í Reykjavík verður að kenna hross sín við borgina ásamt öllum þeim fjölda Reykvíkinga sem nú stunda hrossarækt í stórum eða litlum mæli samkvæmt þeirri vinnureglu sem viðhöfð hefur verið við skráningu hrossa. Venjan er sem sagt sú að hrossin séu skráð í samræmi við lögheimili eigandans. Ýmsar undantekningar eru til frá þessu og má þar nefna Jón Jónsson sem á lögheimili í Hafnarfirði en á jörð í austur sveitum og stundar þar hrossarækt. Óski hann eftir fær hann að kenna hrossin við bæ- inn sem hann á. Þeir sem hinsvegar eiga enga jörð en búa í þéttbýli og eru að rækta hross verða að öllum líkind- um að kenna hrossin við þann bæ eða borg sem þeir búa í. Mörgum þykir þetta óréttlátt og telja að tímabært sé orðið að samdar séu einhverjar sanngjarnar reglur um það hvernig skuli skrá hrossin. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram, meðal annars þær að menn fái að kenna hrossin við fyrirtæki sín en sú hugmynd virðist hafa fall- ið í mjög grýttan jarðveg. Spurn- ingin snýst fyrst og fremst um það hvernig þeir sem ekki hafa aðgang að einhverju lögbýlisnafni geti skráð sín hross. Verði þessum aðilum gefinn kostur á að finna sér nafn til að kenna hrossin við vilja sumir að þar verði haldið mjög í gamlar hefðir. Til dæmis að menn geti fundið eitt- hvað gott örnefni sem einnig gæti verið nafn á sveitabæ. Það vill svo til að íslenskt mál býður upp á mikla fjölbreytni og mikill fjöldi ör- nefna er til vítt og breitt um landið. Af nógu er að taka. Til að ekki fari allt úr böndunum gæti Félag hrossabænda, Bændasamtökin og Fagráð hrossaræktar skipað í sam- einingu nefnd sem tæki fyrir um- sóknir manna um ræktunarnafn á sína hrossarækt. Myndi nefndin gæta þess að nöfnin væru íslensk, útilokaði orðskrípi og eins að þess væri gætt að aðrir væru ekki með sama nafn. Með slíku fyrirkomulagi mætti ætla að lausn væri komin á þessu nýja vandamáli þéttbýlisbú- ans í sínu hrossaræktarvafstri. Hið skrásetta vörumerki hrossanna Von frá Bakkakoti er gott dæmi um hross sem kennt er við annan stað en eigandinn (Ársæll Jónsson) býr á. Hann býr sjálfur í Fróðholti en kennir hrossin við Bakkakot sem er um leið gæðastimpill enda hafa af- bragðsgóð hross komið þaðan. Knapi á myndinni er Hafliði Halldórsson. Strangt til tekið hefði Einar Ellertsson, sem hér situr heiðursverðlauna- hryssuna Vordísi, átt að kenna hross sín við Reykjavík en sjálfur er hann frá Meðalfelli, þar ganga hrossin hans og þykir öllum eðlilegt að kenna þau við þann stað. Meðalfell er betra vörumerki en Reykjavík. Í hrossarækt er fæðingarstaður hrossanna hið skrásetta vörumerki. Mikilvægi þess hefur aukist síðustu árin og þykir þörfin fyrir ákveðnar reglur þar um nauðsynleg. ÞÁ eru hestamótin að hefjast fyrir alvöru, Ljúfur í Hveragerði reið á vaðið með mót í Ölfushöllinni í lok janúar, Geysismenn frestuðu sínu móti sem halda átti 3. febrúar en héldu það á laugardaginn var. Fyrsta mót Sörla í Hafnarfirði var að venju hið árlega Grímutölt þar sem knaparnir skrýðast allskonar furðubúningum og var mikið lagt í búningagerð að þessu sinni bæði fyr- ir menn og hesta. Að sjálfsögðu voru veitt sér verðlaun fyrir búningana en auk þess tilþrifaverðlaun. Mótið var eins og áður opið og fór fram í reiðskemmu þeirra Sörla- manna á laugardagskvöldið. Áhorf- endapallar voru þéttsetnir og var stemmningin feiknagóð þar sem frísklegur þulur, Tómas Snorrason, gegndi lykilhlutverki. Dómari var Halldór Victorsson. Hjá Geysi fengu menn að glíma við meira en fákana sem þeir sýndu því veðurguðirnir sendu þeim bæði vind og vætu svo öll stemmning fauk að segja út í veður og vind. Þetta fyrsta mót Geysis er sem fyrr eitt af þremur slíkum í mótaröð þar sem verðlaunað verður sérstaklega að loknu þriðja mótinu fyrir saman- lagðan árangur úr öllum mótunum. Hestakostur þótti með ágætum og þá sérstaklega í yngri flokkunum en á síðasta ári stóðu krakkar frá Geysi sig mjög vel á opnum mótum og ekki síður á landsmótinu. Keppnin var hörð í atvinnumannaflokki og sem dæmi um það má nefna að tveir fyrstuverðlauna stóðhestar sem báð- ir hafa hlotið háa tölteinkunn kom- ust ekki í úrslit. En úrslit mótanna urðu á þessa leið og er byrjað á Grímutölti Sörla. Pollaflokkur: 1. „Skrímsli“. Skúli Þ. Jóhanns- son, Sörla, á Tinna frá Viðvík. 2. „Indíáni“. Páll H. Guðlaugsson, Herði, á Grána frá Gröf. 3. „Bat- man“. Sigríður M. Egilsdóttir, Sörla, á Sprota frá Kirkjubæ. 4. „Býflugan og blómið“. Hanna R. Ingibergsdótt- ir, Sörla, á Donnu frá Söndum. 5. „Bangsi“. Hafdís A. Sigurðar- dóttir á Kúlubrún frá Hafnarfirði. Besti búningur: „Býflugan og blóm- ið.“ Barnaflokkur: 1. „Arabaprinsessa“ Camilla P. Sigurðardóttir, Mána, á Fróða frá Miðsitju. 2. „Hani“. Hreiðar Hauks- son, Herði, á Perlu frá Egilsstöðum. 3. „Brúðhjón“. Sandra L. Þórðar- dóttir, Sörla, á Díönu frá Enni. 4. „Sígaunastelpa“. Jóhanna Jónsdótt- ir, Herði, á Söndru frá Varmadal. 5. „Ung hjón“. Edda D. Ingibergs- dóttir, Sörla, á Stormi frá Stóra-Ár- móti. Besti búningur: „Brúðhjón“. Unglingaflokkur: 1. „Klappstýra“. Halldóra S. Guð- laugsdóttir, Herði, á Hlátri frá Þórs- eyri. 2. „Ljósbláa ríðandi kvik- myndaeftirlitið“. Rósa B. Þorvalds- dóttir, Sörla, á Árvakri frá Sandhóli. 3. „Þjónustustúlka“. Íris Þorgeirs- dóttir, Andvara, á Rödd frá Strönd. 4. „Klósettrúlla“. Katrín Sævars- dóttir, Sörla, á Lokki frá Akranesi. Besti búningur: „Ljósbláa ríðandi kvikmyndaeftirlitið“. Ungmennaflokkur: „Arabi“. Guðni S. Sigurbjörnsson, Mána, á Skafli frá Norður-Hvammi. 2. „Skylmingaþrællinn Maximus“. Perla D. Þórðardóttir, Sörla, á Gný frá Langholti II, keppti fyrir Sörla. 3. „Gísli á Uppsölum“. Daníel Ingi Smárason á Rák 7 v. frá Galtanesi. 4. „Krossriddari“. Margrét Guðrúnar- dóttir, Sörla, á Flóka frá Merkigili. 5. „Sjóliði“. Eva M. Ágústsdóttir, Fáki, á Brúðu frá Sandhólaferju. Besti búningur: „Gísli á Uppsölum“. Opinn flokkur: 1. „Mótorhjólakappi“. Siguroddur Pétursson, Andvara, á Sögu frá Sigluvík. 2. „Norn“. Áslaug F. Guð- mundsdóttir á Greifa frá Hala. 3. „Bob Marley“. Jón Jónsson, Herði, á Hlökk frá Neðra-Ási. 4. „Smokkur“. Snorri Dal, Fáki, á Garra frá Reykjavík. 5. „Harley Davidson“. Þórný Birgisdóttir á Zöru frá Syðra-Skörðugili. Besti búningur: „Siggi Ævars“. Sigurður Ævarsson, Sörla, á Skildi frá Hrólfs- stöðum. Tilþrifaverðlaun hlaut: „Mótorhjólakappi“, Siguroddur Pét- ursson. Vetrarmót Geysis Atvinnumannaflokkur: 1. Vignir Siggeirsson á Andvara frá Sléttubóli 2. Kristjón Kristjáns- son á Mirru frá Gunnarsholti. 3. Marjolyn Tiepen á Fiðlu frá Höfða- brekku. 4. Sigurður Sigurðarson á Glampa frá Fjalli. 5. Elvar Þormars- son á Vöku frá Hvolsvelli. Áhugamannaflokkur: Björk Svavarsdóttir á Gullmola frá Bólstað 2. Birkir Jónsson á Perlu frá Vindási. 3. Gestur Ágústsson á Blakk frá Suður-Nýjabæ. 4. Trini Söholm á Ruslapoka frá Miðkoti 5. Gunnar Rúnarsson á Skelfi frá Varmadal. Unglingaflokkur: 1. Katla Gísladóttir á Kolskör frá Flugumýrarhvammi. 2. Elín H. Sig- urðardóttir á Kópi frá Hala. 3. Unn- ur L. Hermannsdóttir á Eitli úr Skagafirði. 4. Jóhanna Magnúsdóttir á Ófeigi frá Reykjavík. 5. Laufey G. Kristinsdóttir á Rösk frá Skarði. Barnaflokkur: 1. Hekla K. Kristinsdóttir á Töru frá Lækjarbotnum 2. Inga B. Gísla- dóttir á Úlfi frá Hjaltastöðum 3. Rakel N. Kristinsdóttir á Gými frá Skarði. 4. Halldóra Anna á Sókrates frá Bólstað. 5. Ragnheiður Ársæls- dóttir á Framtíð frá Bakkakoti. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Vignir Siggeirsson og Andvari frá Sléttubóli byrjuðu keppnistímabilið með sigri í flokki atvinnumanna á móti Geysis á Gaddstaðaflötum. Grímutölt og slagveðursmót NÚ þegar mótahald hestamanna er að hefjast er rétt að minna á að forráðamenn móta geta sent inn upplýsingar um fyrirhuguð mót, hvað er á dagskrá og sér- staklega ef um einhverjar nýj- ungar er að ræða. Upplýsingar um mót sem halda skal næstu helgi þurfa að berast fyrir hádegi á mánudag eigi þær að birtast í Hestaþætti á þriðjudag. Að loknu móti er svo vel þegið að fá úrslit mótanna. Allar upplýsingar skal senda á vakr@mbl.is og þurfa úrslit móta að berast á sunnudagskvöld fyrir klukkan 22 ef tryggt á að vera að efnið birtist á þriðjudegi. Umsjón- armenn Hestaþáttar vonast eftir góðu samstarfi við hestamanna- félögin á komandi keppnistímabili og að hægt verði að vera með góða og reglulega umfjöllun um þau mót sem haldin verða. Mótahald og úrslit Febrúarmánuður hefur ekki verið sá tími sem menn velja sér til að fara bæjarleiðir með hrossarekstur en það bar svo við á laugardag að hrossabændur á þremur bæjum í Tungunum hreinsuðu út úr húsum sínum og riðu með slætti í Gríms- nesið og þáðu þar kaffi og kökur. Hér áttu hlut að máli Kristinn Antonsson og María Þórarinsdóttir í Fellskoti sem ráku hross sín niður að Friðheimum í Reykholti þar sem Knútur Ármann bætti sínum hross- um í hópinn og riðið var áfram í Torfastaði þar sem Drífa Krist- jánsdóttir og Ólafur Einarsson buðu í hádegisverð. Að því búnu var hesthúsið að Torfastöðum tæmt eða því sem næst líklega um 40 hross og riðið meðfram Bisk- upstungnabraut með 83 hross í rekstrinum á nýlegum reiðvegi áleiðis að Þórisstöðum í Grímsnesi þar sem Gísli Guðmundsson tók á móti hersingunni og bauð í kaffi. Síðan var riðið til baka og allir voru komnir til síns heima fyrir myrkur enda ekki gott að vera með hross í rekstri í myrkri meðfram fjölfarinni akbraut. Veðrið var hið besta allan daginn og má kallast heppni því á sama tíma voru Geys- ismenn að berjast við að halda mót á Gaddstaðaflötum í slagveðri sem greinilega hefur ekki náð í upp- sveitir Árnessýslu. Ákveðið var seinni partinn í janúar að fara í þrjár slíkar ferðir yfir veturinn og sagði Ólafur á Torfastöðum tilganginn þríþættan. Í fyrsta lagi að gera eitthvað skemmtilegt með sveitungum sín- um og í öðru lagi að heimsækja góðbændur í nágrannasveitum og síðast en ekki síst væri þetta mjög áhrifamikill þáttur í tamningu ung- hrossa og góð uppbygging og lík- amsþjálfun eldri hrossanna. Rekst- urinn gekk vel að sögn Ólafs, að vísu dreifðust hrossin aðeins til að byrja með en hópurinn var búinn að lesta sig tryggilega löngu áður en komið var að brúnni á Brúará og riðið var yfir í Grímsnesið. Ann- ars taldi Ólafur að mikið sannleiks- korn væri í orðum Ingvars gamla á Hvítárbakka þegar hann sagði að það væri ekki merkilegur rekstur ef ekki dreifðist aðeins úr hópnum. Um miðjan mars hyggjast Tungnamenn ríða í Laugardals- hrepp og heimsækja bændur í Efstadal og í byrjun apríl verður aftur farið í Grímsnesið en þá verð- ur Sigurður Gunnarsson á Bjarna- stöðum heimsóttur. Tungna- menn með 83 hross í kaffiboð í Grímsnesi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.