Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 13.02.2001, Blaðsíða 55
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 55 STYRKTARFÉLAG krabbameinssjúkra barna. Pósth. 8687, 128 Rvík. Símsv. 588 7555 og 588 7559. fax 588 7272. STYRKUR, Samtök krabbameinssjúkl. og aðstandenda. Símatími fimmtud. 16.30–18.30 562 1990. Krabbameins- ráðgjöf, grænt nr. 800 4040. TEIGUR, ÁFENGIS- og FÍKNIEFNAMEÐFERÐAR- STÖÐIN, Flókagötu 29–31. Sími 560 2890. Viðtalspant- anir frá kl. 8–16. TOURETTE-SAMTÖKIN: Hátúni 10b, 9. hæð, 105 Reykjavík. S. 551 4890. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐA KROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingas. ætlaður börnum og unglingum að 20 ára aldri. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. S: 511 5151, grænt nr: 800 5151. UMHYGGJA, félag til stuðnings langveikum börnum, Laugavegi 7, Rvík. S. 552 4242, bréfs. 552 2721. UMSJÓNARFÉLAG EINHVERFRA: Hátúni 10B, 9. h., Reykjavík. Opið mið. kl. 9–17. S. 562 1590. Bréfs. 562 1526. Netfang: einhverf@itn.is UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FERÐAMÁLA: Bankastræti 2, opið frá 16. september til 14. maí mán.–fös. kl. 9–17. Lau. kl. 9–17. Lokað á sun. S. 562 3045, bréfs. 562 3057. UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ SUÐURLANDS: Breiðumörk 2, Hveragerði. Opið frá 15. sept. til 15. maí á virkum dögum kl. 10–17 og um helgar kl. 12–16. Sími 483 4601. Bréf- sími: 483 4604. Netfang: tourinfo@hveragerdi.is STUÐLAR, Meðferðarstöð fyrir unglinga, Fossaleyni 17, uppl. og ráðgjöf s. 567 8055. VÍMULAUS ÆSKA, foreldrahópurinn, Vonarstræti 4b. Foreldras. 581 1799, opinn allan sólarhringinn. For- eldrahúsið opið alla virka daga kl. 9–17, s. 511 6160 og 511 6161. Fax: 511 6162. VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464 og grænt nr. 800– 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. ÞJÓNUSTUSETUR LÍKNAFÉLAGA: Hátúni 10B. Opið alla virka daga kl. 13-17. Allar upplýsingar og minning- arkort félaga S: 551-7744. SJÚKRAHÚS heimsóknartímar SKJÓL HJÚKRUNARHEIMILI. Frjáls alla daga. LANDSPÍTALINN – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS FOSSVOGUR: Alla daga kl. 15–16 og 19–20 og e. samkl. Á öldrunarlækningadeild er frjáls heimsóknartími e. samkl. Heimsóknartími barnadeildar er frá 15–16 og frjáls viðvera foreldra allan sólarhringinn. Heimsókn- artími á geðdeild er frjáls. GRENSÁSDEILD: Mánud.–föstud. kl. 16–19.30, laugard. og sunnud. kl. 14–19.30 og e. samkl. LANDAKOT: Á öldrunarsviði er frjáls heimsóknartími. Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í s. 525 1914. ARNARHOLT, Kjalarnesi: Frjáls heimsóknartími. HRINGBRAUT: Kl. 18.30–20. BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir samkomulagi við deildarstjóra. BARNASPÍTALI HRINGSINS: Kl. 15–16 eða e. samkl. GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam- komulagi við deildarstjóra. GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir sam- komulagi við deildarstjóra. KVENNADEILD, KVENLÆKNINGAD. Kl. 18.30–20. SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14–21 (feður, systkini, ömmur og afar). VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30–20. SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar- tími kl. 14–20 og eftir samkomulagi. ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFN.: Alla d. kl. 15–16 og 19– 19.30. SJÚKRAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar- tími a.d. kl. 15–16 og kl. 18.30–19.30. Á stórhátíðum kl. 14–21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar Suðurnesja er 422 0500. SJÚKRAHÚS AKRANESS: Heimsóknartímar eru frá kl. 15.30–16 og 19–19.30. AKUREYRI – SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30–16 og 19–20. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14–19. Slysavarðstofusími frá kl. 22–8, s. 462 2209. BILANAVAKT VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfum Orkuveitu Reykjavíkur (vatns-, hita- og rafmagnsveitu) sími 585 6230 allan sólarhringinn. Kópavogur: Vegna bilana á vatnsveitu s. 892 8215. Rafveita Hafnarfjarðar bilana- vakt 565 2936 BILANAVAKT BORGARSTOFNANA: Sími 5 800 430 tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. SÖFN ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar eru lokuð frá 1. sept- ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu- dögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13. Einnig er tekið á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn. Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8–16 alla virka daga. Nánari upplýsingar í s. 577 1111. BORGARBÓKASAFN, aðalsafn, Tryggvagötu 15: Sími: 563 1717, fax: 563 1705. Opið mánud–fimmtud. kl. 10–20. Föstud. kl. 11–19. Laug. og sun kl. 13–17. BORGARBÓKASAFNIÐ í Gerðubergi, Gerðubergi 3–5: Sími: 557 9122, fax: 575 7701. Mánud.–fimmtud. kl. 10– 20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. og sunnud. kl. 13–16. BÚSTAÐASAFN v/Bústaðaveg: Sími: 553 6270, fax: 553 9863. Mánud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. kl. 13–16. BÓKABÍLAR:Bækistöð í Bústaðasafni, sími: 553 6270.Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Bókabílar ganga ekki í tvo mánuði að sumrinu og er það auglýst sérstaklega. FOLDASAFN v/Fjörgyn:Sími: 567 5320, fax: 567 5356. Má- nud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. og sunnud. kl. 13–16. SELJASAFN, Hólmaseli 4–6: Sími: 587 3320. Mánud. kl. 11–19, þriðjud.–föstud. kl. 11–17. Sumarafgreiðslutími auglýstur sérstaklega. SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27: Sími: 553 6814. Má- nud.–fimmtud. kl. 10–19, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. kl. 13–16. BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verð- ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga. BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.–fös. 10–20. Opið lau. 10–16 yfir vetrarmánuði. BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3–5: Mán.–fim. kl. 10–21, fös. kl. 10–17, lau. (1. okt.–30. apríl) kl. 13–17. Les- stofan opin frá (1. sept.–15. maí) mán.–fim. kl. 13–19, fös. kl. 13–17, lau. (1. okt.–15. maí) kl. 13–17. BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið mán.–fim. kl. 20–23. Lau. kl. 14–16. BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu 15: Opið mán. til fös kl. 9–12 og kl. 13–16. S. 563 1770. BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: Op- ið alla daga frá kl. 10–18 til ágústloka. S: 483 1504. BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús, Vesturgötu 6, 1. júní–30. ág. er opið alla daga frá kl. 13– 17, s: 555 4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní–30. sept. er opið alla daga frá kl. 13–17, s: 565 5420, bréfs. 565 5438. Siggubær, Kirkjuvegi 10, 1. júní–30. ág. er opið lau.–sun.. kl. 13–17. Skrifstofur safnsins verða opnar alla virka daga kl. 9–17. BYGGÐASAFNIÐ Í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl. 13.30–16.30 virka daga. S. 431 11255. FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl. 13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam- komulagi. FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir samkomulagi. GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar frá kl. 9–19. GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S. 551 6061. Fax: 552 7570. HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17. LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS – HÁSKÓLABÓKA- SAFN: Opið mán.–fim. kl. 8.15–22. Fös. kl. 8.15–19 og lau. 9–17. Sun. kl. 11–17. Þjóðdeild lokuð á sun. og hand- ritadeild er lokuð á lau. og sun. S: 525 5600, bréfs: 525 5615. LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið lau. og sun. frá kl. 14–17. Lokað í desember og janúar. LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13– 16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á int- ernetinu: http//www.natgall.is LISTASAFN REYKJAVÍKUR THE REYKJAVÍK ART MUSEUM Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105 ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191 Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 – 101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net- fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn- @reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu- daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19 Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105 Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí– september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla daga LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag- lega kl. 12–17 nema mán. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er lok- að til 3. mars. Upplýsingar í s. 553 2906. LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla mið. kl. 12-18. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús, Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16. LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða safnið eftir samkomulagi. MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að- alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borg- ara. Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaus- t@eldhorn.is. MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/ Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S. 567 9009. MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253. IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550 og 897 0206. MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16. NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam- kvæmt samkomulagi. NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17. Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://www.nordice.is. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn- arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321. RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s. 551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16. SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími 530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is. SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS- SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S. 581 4677. SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443. SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18. S. 435 1490. STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður- götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15. maí. STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl. 13–18 nema mán. S. 431 5566. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lokaðar vegna endurbóta á húsnæði. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning- ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400. AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10– 19. Lau. 10–15. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14– 18. Lokað mán. NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555. NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum- ar frá kl. 11–17. ORÐ DAGSINS Reykjavík s. 551 0000. Akureyri s. 462 1840. SUNDSTAÐIR SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8– 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8– 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8– 20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri., mið. og fös. kl. 17–21. SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars). GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun. HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau. 8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–21, laug. og sun. 8–12. VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45 og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18. SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl. 11–15 um helgar. S. 426 7555. SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22, helgar 11–18. SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21, lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16. SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30– 21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og sun. kl. 8–18. S. 461 2532. SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7– 20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30. JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7– 21, lau. og sun. 9–18. S: 431 2643. BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21. ÚTIVISTARSVÆÐI HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op- inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800. SORPA SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.15–16.15. Móttökustöð er opin mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–16.15. Endur- vinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel, Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–19.30. Endurvinnslu- stöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laugardaga og sunnu- daga kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og föstud. kl. 14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205. RÚMLEGA fjörutíu umferðar- óhöpp voru tilkynnt til lögregl- unnar í Reykjavík um helgina. Þá voru 78 ökumenn stöðvaðir vegna hraðaksturs sem er svipað því sem gerist um helgar að sumar- lagi. Fjórtán ökumenn voru stöðv- aðir vegna gruns um ölvun við akstur og sex sviptir ökuréttind- um. Lögreglan hafði afskipti af ung- um piltum vegna gruns um aðild þeirra að þjófnaði á bifreið og akstri án ökuréttinda og undir áhrifum áfengis. Piltarnir voru fluttir á lögreglustöðina í Mos- fellsbæ þangað sem foreldrar urðu að sækja þá en bifreiðinni var komið í hendur eiganda. Þrennt var flutt á slysadeild eft- ir árekstur aðfaranótt sunnudags á gatnamótum Hringbrautar og Snorrabrautar. Bifreið hafði þá skömmu áður verið ekið á umferð- armerki og síðan aftan á aðra bif- reið. Ökumaður er grunaður um ölvun við akstur. Fertugur karlmaður hafði samband við lögreglu rúmlega sex á sunnudagsmorgun og tilkynnti að hann hefði verið rændur skömmu áður á Laugavegi af tveimur mönnum. Hefðu menn- irnir komið aftan að honum og slegið hann í höfuðið með flösku og rænt veski hans. Í veskinu hefðu verið tvær ávísanir fyrir samtals 800 þúsund. Hávaðasamur hundur Karlmaður var fjarlægður vegna hótana á heimili í austur- borginni. Lagt var hald á skot- vopn á staðnum. Fertugur karlmaður slasaðist í nýbyggingu í Húsahverfi er hann varð undir stafla af hurðum á föstudag. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Þrír fjórtán ára piltar voru handteknir eftir að hafa kveikt í blaðagámi við Selásbraut á föstu- dag. Piltarnir voru fluttir á lög- reglustöðina í Breiðholti þangað sem foreldrar þeirra sóttu þá. Óskað var aðstoðar lögreglu vegna hávaða frá hundi í húsi í Breiðholti. Í ljós kom að ekki voru til staðar tilskilin leyfi fyrir hund- inum, hvorki frá yfirvöldum né húseigendum. Kona var handtekin aðfaranótt sunnudags eftir að hafa valdið skemmdum á vistheimili í Breið- holti. Áfengisveitingar voru stöðvað- ar til ungmenna á veitingastað að- faranótt sunnudags. Reyndust fimm ungmenni hafa fengið af- greidda áfenga drykki á staðnum. Úr dagbók lögreglunnar Hraðakstur sem að sumarlagi 9.–11. febrúar FORELDRAFÉLAG Hagaskóla verður með fræðsluerinidi fyrir for- eldra, forráðamenn og nemendur Hagaskóla þriðjudaginn 13. febrúar kl. 20 í samkomusal Hagaskóla. Fundarefni: Næg hreyfing? Fjallað verður um hollustu hreyfingar og íþróttaþjálfunar á umbreytingartím- um unglingsáranna og hvernig næg hreyfing er lykilatriði í andlegri og líkamlegri vellíðan unglinga. Fá þeir hana? Hvað er til ráða? Fyrirlesari er Kári Jónsson, lekt- or í íþróttafræðum og heilsuþjálfun við íþróttaskor Kennaraháskóla Ís- lands. Kári er menntaður í íþrótta- fræðum og heilsuþjálfun frá íþróttaháskólanum í Ósló í Noregi og hefur stundað kennslu og rannsókn- ir síðastliðin ár. Umræður og fyrirspurnir að loknu erindi. Áætlaður fundartími er ein og hálf klukkustund. Aðgangur er ókeypis. Fundur um hreyfingu barna í Hagaskóla ARÐSEMI og áhætta í verðbréfa- viðskiptum er viðfangsefnið á nám- skeiði fyrir almenning sem Endur- menntunarstofnun stendur fyrir 26. febrúar. Fjallað verður um helstu tegundir verðbréfa, skoðaðar verða fjárfestingarstefnur, verðbréfa- markaðir kannaðir svo og fjárfest- ingarkostir á Netinu. Þá verður fjallað um skattalega meðferð í hlutabréfaviðskiptum og helstu kennitölur sem birtast á fjármálasíð- um dagblaða og á heimasíðum verð- bréfafyrirtækja svo eitthvað sé nefnt. Kennari er Kristján Jóhanns- son, lektor í fjármálum við viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Frekari upp- lýsingar á vefsetri Endurmenntun- arstofnunar www.endurmenntun.is Námskeið um verðbréf fyrir almenning EKIÐ var á bifreiðina UY-813, sem er Hyundai Accent, fólksbifreið, grá að lit, kl. 00.53 aðfaranótt sunnu- dagsins 11. febrúar þar sem hún stóð á bifreiðastæði framan við Hólatorg 8, Rvík. Sá sem þar var að verki ók strax í burtu af vettvangi. Grunur leikur á að tjónvaldur hafi verið á rauðri Subaru Legacy-skutbifreið. Ökumaður Subaru-bifreiðarinnar og vitni að atvikinu eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Árekstur við Kringlumýrarbraut Lýst er eftir vitnum að umferð- aróhappi er átti sér stað á gatnamót- um Kringlumýrarbrautar/Miklu- brautar laugardaginn 10.02. kl.17:16. Þarna varð árekstur með hvítum To- yota Land Cruiser-jeppa og blárri Volkswagen Golf-fólksbifreið. Ágreiningur er um stöðu umferðar- ljósa er óhappið varð. Þeir sem upplýsingar geta veitt um mál þetta eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Ekið utan í vegfaranda Aðfaranótt sunnudagsins 11. febrúar sl. um kl. 3.30, var blárri skutbifreið ekið vestur Austurstræti frá Lækjargötu. Móts við Astró var bifreiðinni ekið utan í gangandi veg- faranda sem var á leið yfir Austur- stræti til norðurs, vegfarandinn meiddist á fæti. Vitni telja að ökumaður skutbif- reiðarinnar hafi orðið var við að hafa ekið utan í vegfarandann, ökumað- urinn svo og vitni eru beðin að gefa sig fram við rannsóknardeild lög- reglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum Frætt um varnir gegn meindýrum á plöntum GARÐYRKJUFÉLAG Íslands efnir til fræðslufundar í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20. Magnús Á. Ágústsson, ylrækt- arráðunautur og kennari við Garð- yrkjuskóla ríkisins, mun flytja erindi um varnir gegn meindýrum á stofu- blómum og garðskálaplöntum. „Ræktun stofublóma á sér langa sögu og hefur verið notuð í fjölbreyti- legu umhverfi, t.d. skrifstofum, sjúkrastofum, gistihúsum og ekki síst í heimahúsum þar sem jurtinar eru hluti af heimilinu. Undanfarin ár hafa sól- og garðskálar notið vaxandi vin- sælda og ræktun plantna er oft um- fangsmikil. En til þess að plönturnar geti þrifist þarf að fullnægja ýmsum skilyrðum eins og t.d. að halda mein- dýrum og sjúkdómum í skefjum.“ Í erindi sínu mun Magnús meðal annars fjalla um öll algengustu mein- dýrin, mikilvægustu forvarnir, nátt- úruefni, varnarefni og þol plantna. Magnús mun svara fyrirspurnum eins og tími leyfir. Fræðslufundurinn er öllum opinn og er aðgangseyrir 300 kr. BIRNA Bjarnadóttir, löggiltur fóta- aðgerðarfræðingur frá Randers- Tekniske skole í Danmörku, hefur opnað fótaaðgerðarstofu Birnu, Garðatorgi 7, Garðabæ. Stofan er opin alla virka daga. Ný fótaaðgerð- arstofa í Garðabæ HLUTVERK Letterstedtski-sjóðs- ins er að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða. Íslandsdeild sjóðsins auglýsir eftir umsóknum um styrki og er um- sóknarfrestur til 1. mars. Ekki er um eiginlega námsstyrki að ræða, þeir einir koma til greina sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit, t.d. við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum. Styrkir eru veittir til ferða milli nor- rænu landanna og Eystrasaltsríkj- anna en hvorki til ferða innan land- anna né uppihalds. Umsóknir með greinargóðum upplýsingum skal senda ritara Íslandsdeildar Letter- stedtska-sjóðsins, Snjólaugar Ólafs- dóttur, Vesturbrún 36, 104 Reykja- vík. Styrkir veittir úr Letterstedtska
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.