Morgunblaðið - 13.02.2001, Síða 58
DAGBÓK
58 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í gær
fóru Baldur Árnason,
Lagarfoss og Sava
Lake.
Hafnarfjarðarhöfn:
Haukur og Hvítanes
komu í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs. Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sólvalla-
götu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin alla
miðvikudaga frá kl. 14–
17. Sími 551-4349. Fata-
úthlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
miðvikudag í mánuði,
frá kl. 14–17 sími 552-
5277.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9 búta-
saumur og handavinna,
danskennsla kl. 9.30, kl.
9–12 bókband, kl. 13 op-
in smíðastofan og brids,
kl. 10 Íslandsbanki op-
inn, kl. 13.30 opið hús
spilað, teflt ofl. Góugleði
verður haldin föstudag-
inn 23. febrúar kl. 18
miðasala er hafin. Ath.
bingóið fellur niður
þann dag. Farið verður í
Óperuna að sjá La
Boheme föstud. 9. mars,
látið skrá ykkur í félags-
miðstöðinni sem fyrst.
Fulltrúi frá skattstjóra
aðstoðar við skatt-
framtöl, nauðsynlegt er
að skrá sig og fá tíma.
Aflagrandi 40. Enska
kl. 10 og kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14
dans. Rebekka frá Úr-
val-Útsýn verður með
ferðakynningu í dag kl.
15. Happdrætti.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og
fimmtudögum, kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Leikfimi er í íþróttasal á
Hlaðhömrum á þriðju-
dögum kl. 16. Sund-
tímar á Reykjalundi kl.
16 á miðvikudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðju-
dögum kl. 13.30. Fóta-
aðgerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmmer 565-6775.
Spilað í Holtsbúð 15.
febrúar kl. 10.30. Bingó
og skemmtikvöld í
Kirkjuhvoli 22. febrúar
kl. 19.30 á vegum Lions-
klúbbs Garðabæjar.
Rútuferðir samkvæmt
áætlun. Ferð í Þjóðleik-
húsið 24. febrúar kl. 20.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 13
föndur og handavinna.
Kl. 14.45 söngstund í
borðsal með Jónu
Bjarnadóttur
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Meistara-
keppni í skák hefst í dag
þriðjudag kl. 13:30. Al-
kort spilað kl. 13.30.
Leikhópurinn Snúður
og Snælda sýnir „Gaml-
ar perlur“, sýningar eru
á miðvikud. kl. 14 og
sunnud. kl. 17 í Ásgarði.
Miðapantanir í s. 588-
2111, 568-9082 og 551-
2203. Miðvikud:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Hlemmi mæt-
ing kl. 9:45. Sjávar-
fangsveisla verður hald-
in 16. febrúar, dansað á
eftir borðhaldi. Skrán-
ing á skrifstofu FEB.
Aðalfundur FEB verður
í Ásgarði, Glæsibæ 24.
febrúar kl.13.30. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB í s. 588-2111 frá kl.
10–16.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30 op-
in vinnustofa, tréskurð-
ur og fleira, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10 leik-
fimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
m.a. glerskurður, um-
sjón Helga Vilmundar-
dóttir, kl. 13 boccia. Að-
stoð frá Skattstofu við
skattframtöl verður
veitt miðvikud. 7. mars.
Skráning hafin. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50
og kl. 10.45, kl. 9.30
silkimálun, handa-
vinnustofa opin, kl. 14
boccia, kl. 14.30 enska,
þriðjudagsganga fer frá
Gjábakka kl. 14. Mynd-
listarsýning frístunda-
málara í Gjábakka
stendur yfir til 23.
febrúar.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 14
boccia. Dans kl. 18
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna.
Hraubær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun,
kl. 9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl.12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
16.30 myndlist. Lausir
tímar í myndlist. Upp-
lýsingar í síma 587-
2888.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 boccia, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
tréskurður.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl.11
leikfimi, kl. 13 búta-
saumur, tréútskurður
og spilamennska.
Fimmtud. 15. febrúar
kl. 10.30 verður fyrir-
bænastund í umsjón sr.
Hjálmars Jónssonar,
Dómkirkjuprests.
Föstud. 16. febrúar kl.
15 verður ferðakynning
á vegum Samvinnu-
ferðar Landsýnar.
Rjómabollur með
kaffinu. Miðvikud. 21.
febrúar verður farið kl.
13.20 í Ásgarð,
Glæsibæ. Sýndar verða
gamlar perlur með Snúð
og Snældu. Skráning í s.
562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 glerskurður,
myndlist og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi, kl.
11 boccia, kl. 13 hand-
mennt og keramik, kl.
14 félagsvist.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fund í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20,
svarað í síma 552-6644 á
fundartíma.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Eineltissamtökin halda
fundi að Túngötu 7 á
þriðjudagskvöldum kl.
20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum,
Laugardagshöll, kl. 12.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 20 í kvöld félags-
fundur. Framtíð-
arhorfur öryrkja.
Kvenfélag Breiðholts.
Fundur í safnaðarheim-
ili Breiðholtskirkju í
kvöld kl. 20. Þorramat-
ur. Sagt frá Indlands-
för. Nýir félagar vel-
komnir.
Kvennadeild Flug-
björgunarsveitarinnar.
Aðalfundurinn verður
miðvikud.14. febrúar kl.
20 í félagsheimili FBSR
við flugvallarveg.
Hallgrímskirkja eldri
borgara. Starf þriðju-
daga og föstudaga leik-
fimi báða dagana kl. 13.
Þjóðdansafélagið. Opið
hús í kvöld gömlu dans-
arnir frá 20.30 – 23.
Úrvalsfólk. Vorfagn-
aður Úrvalsfólks verður
haldinn á Hótel Sögu,
Súlnasal, 16. febrúar kl.
19 miða- og borðapant-
anir hjá Rebekku og
Valdísi í s. 585-4000.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Nán-
ari uppl. á skrifstofu GÍ,
s. 530-3600.
Í dag er þriðjudagur 13. febrúar
44. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Hver meðal manna veit hvað manns-
ins er, nema andi mannsins, sem í
honum er? Þannig hefur heldur eng-
inn komist að raun um, hvað Guðs
er, nema Guðs andi.
(I.Kor. 2, 11.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Frábær þjónusta
á Rauðará
ÉG fór til Parísar á dögun-
um, sem er svosem ekki í
frásögur færandi, og þar
sem ég bý úti á landi gistum
við fjölskyldan á Hótel
Reykjavík, gullfallegu og
mjög góðu hóteli.
Þar sem ég gisti nú ekki
mjög oft ásamt börnunum
mínum (sem höfðu orðið eft-
ir í Reykjavík meðan við
hjónakornin heimsóttum
Frakkland) á hóteli ákváð-
um við að gera þetta nú
bara huggulegt og fara út
að borða á Rauðará.
Það ásamt því að fá flotta
svítu á hótelinu var toppur-
inn á þessari annars ágætu
ferð...
Maturinn á Rauðará var
frábær og þjónustan sú
besta sem ég hef fengið. Þar
sem ekki var barnamatseð-
ill var börnunum boðið uppá
sama glæsilega matseðilinn
og okkur, steikurnar urðu
bara við þeirra hæfi, og
verðið kom „mjög skemmti-
lega á óvart“. Þrátt fyrir að
margt væri á staðnum var
eins og við værum einu
gestirnir á veitingastaðn-
um. Börnunum var færður
ís á eftir humarsúpunni og
nautasteikinni. Loks fengu
þau spennandi drykki sem
kórónuðu allt saman. Þetta
fannst þeim algjört ævintýr.
Það er gríðarlega mikil-
vægt þegar maður ætlar að
gera sér dagamun að njóta
slíkrar þjónustu og eigum
við eftir að lifa á því lengi að
hafa farið þar saman.
Ég má því til með að
koma þökkum mínum á
framfæri, því það mættu
fleiri taka þá veitingamenn
á Rauðará sér til fyrir-
myndar. Þótt ég reyndar
sjái nú alltaf betur og betur
eftir því sem ég fer víðar,
hve við Íslendingar erum
„elegant“ í því sem við ger-
um og veit það að ef ég ætla
að gera mér dagamun þarf
það ekki að vera neitt út fyr-
ir landsteinana til að njóta
þess besta í mat og þjón-
ustu.
Við eigum örugglega eftir
að koma aftur, og mæli ég
hiklaust með þessum tveim
stöðum sem eru frábærir.
240365-5109.
Hvar er konan
og hvernig hefur
hún það?
ÞAÐ komu tvær vinkonur
og ætluðu inn á veitinga-
staðinn Lækjarbrekku
mánudaginn 5. febrúar sl.
Önnur þeirra datt og slas-
aðist og þurfti að fara með
sjúkrabíl. Þessi kona var al-
veg yndisleg og hafði miklar
áhyggjur af því að okkur
starfsfólkinu á Lækjar-
brekku væri kalt á meðan
beðið var eftir sjúkrabíln-
um. Okkur starfsfólkið
langar að fá fréttir af því
hvernig hún hafi það. Við
sendum henni innilegar
kveðjur og okkur langar að
fá að sjá hana við fyrsta
tækifæri á Lækjarbrekku.
Dýrahald
Klara er týnd
KLARA, sem er týnd, er
grábröndótt læða. Hún er
ólarlaus en brennimerkt.
Hennar er sárt saknað. Ef
einhver veit um ferðir henn-
ar þá vinsamlega látið eig-
endur hennar vita.
Síminn hjá þeim er 862-
1313, 561-2208 eða 562-
4759.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kannast einhver við myndirnar?
ENN og aftur leitar skrásetjari sögu Olíuverzlunar Ís-
lands til lesenda Morgunblaðsins með upplýsingar um
mynd. Hvaða staður er þetta? Hvenær er myndin tekin?
Þeir sem geta veitt upplýsingar sem að gagni mega
koma eru beðnir um að hafa samband við Hall Hallsson í
síma 896-9898 eða hallur@hallo.is eða Friðrik Kárason
í síma 515-1260 eða eosfk@olis.is.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var nýkominn heimað loknum löngum og ströng-
um vinnudegi og í þann veginn að
fara að gæða sér á kvöldmatnum
þegar síminn hringdi. Á hinum end-
anum var kona sem kynnti sig kurt-
eislega og kvaðst vera að gera könn-
un fyrir ónefnda tryggingamiðlun
hér í borg. Víkverja leiðist ókunnugt
fólk sem hringir á matmálstímum,
hvort heldur er til þess að selja hon-
um eitthvað eða gera könnun á
stjórnmálaskoðunum eða þvottaefn-
isnotkun. Því var það með ákveðnum
fyrirvara að Víkverji spurði konuna
hvort hún væri að reyna að selja eitt-
hvað, því ef svo væri gætu þau allt
eins slitið símtalinu strax. Ekki
kvaðst hún vera í söluhugleiðingum,
ætlunin væri einungis að kanna
hversu upplýst fólk væri um lífeyr-
isréttindi sín. Auk þess tæki könn-
unin ekki nema tvær til þrjár mín-
útur. Því var það að Víkverji lét
glepjast til að svara spurningunum –
á meðan maturinn kólnaði á disknum
fyrir framan hann.
x x x
FYRSTU spurningarnar vorufrekar almenns eðlis, svo sem
um það hversu vel Víkverji væri sér
meðvitandi um lífeyrisréttindi sín,
hvort hann teldi sig geta lifað af líf-
eyrinum einum saman þegar þar að
kæmi og hvort hann hefði gert ráð-
stafanir um aukalífeyrissparnað.
Víkverji svaraði spurningunum sam-
kvæmt bestu vitund – í von um að
könnuninni færi að ljúka og hann
gæti stungið hálfköldum matnum í
örbylgjuofninn og tekið svo símann
úr sambandi til að koma í veg fyrir
frekari truflun á borðhaldi. En þegar
spurningarnar fóru að beinast að því
hvort Víkverji skipti við íslenskt
tryggingafélag eða erlent, hvort
hann þekkti til svokallaðra barna-
trygginga ónefnds þýsks trygginga-
fyrirtækis og hvort hann hefði áhuga
á að fá tryggingaráðgjafa í heimsókn
til að ræða málin frekar fóru að
renna á hann tvær grímur. Því var
það að Víkverji endurtók spurningu
sína frá því í upphafi, nefnilega hvort
það ætti þá eftir allt saman að selja
honum tryggingu. Þá kom augna-
bliks hik á konuna spurulu á hinum
enda línunnar. Svo svaraði hún því til
að hún væri ekki að selja neitt. Hins
vegar væri það undir tryggingaráð-
gjafa tryggingamiðlunarinnar komið
hvort hann myndi hafa samband við
Víkverja og bjóða honum barna-
trygginguna á kostakjörum. Þar sem
Víkverji er barnlaus hefur hann að
vísu ekkert við slíka tryggingu að
gera – en það er önnur saga.
x x x
MERGUR málsins er sá að þarnavar tryggingamiðlunin að
reyna að lauma sér inn bakdyrameg-
in á fölskum forsendum. Undir því
yfirskini að um „könnun“ væri að
ræða var sumsé verið að undirbúa
jarðveginn fyrir heimsókn trygg-
ingasölumanns. Hefði það verið upp-
lýst strax í upphafi símtalsins hefði
Víkverji afþakkað kurteislega, lagt á
og snúið sér að kvöldmatnum. Og
tryggingamiðlunarkonan hefði ekki
þurft að eyða tíma í að spyrja frekari
spurninga heldur getað hringt strax
í næsta fórnarlamb á listanum. Vík-
verji kvaddi með þeim orðum að
þetta þætti honum ekki góð aðferð
við tryggingasölu og kvaðst hún
myndu koma því til skila. Ekki virt-
ist þó hvarfla að henni að biðja afsök-
unar á ónæðinu. Hitt er svo annað
mál hvort tryggingamiðlunin breytir
söluaðferðum sínum. Um það þorir
Víkverji varla að gera sér vonir.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 Þægilegur, 8 læst, 9
fugl, 10 ferskur, 11 rann-
saka, 13 flðtinn, 15 fjöt-
urs,
18 hnötturinn, 21 fúsk, 22
eru óstöðugir, 23 grefur,
24 mjög ánægð.
LÓÐRÉTT:
2 krafturinn, 3 hamingja,
4 menga, 5 klaufdýrin, 6
rekald, 7 hafði upp á,
12 gagnleg, 14 lamdi, 15
kaup, 16 lesta, 17 vik, 18
íshem, 19 fim, 20 örlaga-
gyðja.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 pólar, 4 gætin, 7 tóman, 8 áliti, 9 dáð, 11 nýra,
13 assa, 14 tætir,
15 húma, 17 tími, 20 krá, 22 látún, 23 makar, 24 arrar, 25
nærir.
Lóðrétt: 1 pútan, 2 lómur, 3 rönd, 4 gráð, 5 teigs, 6 neita,
10 ástar, 12 ata, 13 art,
15 hulda, 16 metur, 18 ískur, 19 iðrar, 20 knýr, 21 áman.