Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 1
37. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 14. FEBRÚAR 2001
EINN af yfirmönnum lífvarða Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, lét lífið í árás ísraelska
hersins á Gaza-svæðinu í gær. Fjórum flugskeyt-
um var skotið úr herþyrlu á bifreið hans en hann
var einn í bílnum.
Aðstoðarvarnarmálaráðherra Ísraels, Ephraim
Sneh, sagði aðgerðina hafa verið nauðsynlega til
að sporna gegn hryðjuverkum. „Þessi maður,
Massoud Ayyad, stjórnaði aðgerðum hryðju-
verkahópa og hafði lagt á ráðin um fleiri ódæði,
þar á meðal mannrán og sprengjuárásir á ísraelsk
þorp,“ sagði Sheh í viðtali við CNN í gær. „Þar
sem við gátum ekki handtekið hann höfðum við
ekki önnur ráð.“ Sneh sagði að Ísraelar myndu
ekki gera fleiri slíkar árásir ef Palestínumenn
tækju þá höndum sem skipulegðu hryðjuverk.
Ziad Abu Zayyad, ráðherra í palestínsku sjálf-
stjórninni, sagði hins vegar að árásin hefði verið
algjörlega óréttlætanleg og vísaði því á bug að
Ayyad hefði verið meðlimur Hezbollah, samtaka
herskárra múslíma. Hann viðurkenndi að Ísraels-
stjórn bæri skylda til að tryggja öryggi borgar-
anna en sagði að uppreisn Palestínumanna myndi
halda áfram þar til Ísraelar hættu að undiroka pal-
estínsku þjóðina og að mannfall yrði á báða bóga.
Þrettán ára gamall palestínskur drengur var
skotinn til bana á Gaza-svæðinu í gær en stjórn-
völd í Ísrael sögðu ísraleska hermenn ekki bera
ábyrgð á morðinu. Palestínskir byssumenn hófu í
fyrrinótt skothríð að Gilo, hverfi gyðinga í um-
deildum hluta Jerúsalem, og ísreaelskir hermenn
svöruðu í sömu mynt. Þá kom til átaka í bænum
Khan Yunis á Gaza-svæðinu í gær, fimmta daginn
í röð. Ekki bárust fregnir af mannfalli.
Terje Röd-Larsen, sendimaður Sameinuðu
þjóðanna í Mið-Austurlöndum, varaði í gær við því
að bág lífskjör Palestínumanna gætu leitt til enn
frekari spennu á svæðinu. Hvatti hann Ísraels-
stjórn til að aflétta efnahagsþvingunum sem tóku
gildi eftir að uppreisn Palestínumanna hófst fyrir
hálfum fimmta mánuði.
Samkomulag í augsýn
Talsmaður Ariels Sharons, verðandi forsætis-
ráðherra Ísraels, sagði í gær að Sharon og Ehud
Barak, fráfarandi forsætisráðherra, væru mjög
nálægt því að ná samkomulagi um myndun þjóð-
stjórnar en hljótt var um gang viðræðnanna í gær.
Tilkynnt var í gær að rannsóknarnefnd, sem
Bandaríkjastjórn skipaði til að kanna orsakir
átakanna á sjálfstjórnarsvæðunum, hefði frestað
för sinni til þar til ný stjórn hefði tekið við völdum.
Viðræðum um myndun þjóðstjórnar haldið áfram í Ísrael
Þyrluárás gerð
á lífvörð Arafats
AP
Palestínumenn virða fyrir sér flak bifreiðar-
innar eftir flugskeytaárás Ísraelshers í gær.
Gaza-borg, Jerúsalem. AFP, AP.
ALAN Greenspan, seðlabankastjóri
í Bandaríkjunum, sagði í gær að
bandarískt efnahagslíf væri „þungt á
sér“ um þessar mundir en ekki í
lægð. Kvaðst hann vænta frekari
þrenginga áður en það næði sér á
strik aftur. Ummæli Greenspans
þykja benda til þess að seðlabank-
inn, sem hefur þegar lækkað vexti
um heilt prósent það sem af er árinu,
sé reiðubúinn að ganga lengra til að
draga úr hættu á samdrætti.
Greenspan gaf bankanefnd banda-
ríska þingsins skýrslu sína í gær og
þar kom meðal annars fram að hag-
vöxtur í byrjun árs var nálægt núlli.
Hann spáði því þó að efnahagslífið
tæki við sér eftir nokkra mánuði og
að hagvöxtur yrði 2 til 2,5% á árinu.
Benti hann meðal annars á að smá-
söluvelta í Bandaríkjunum hefði
aukist um 0,7% í janúar en það er
meiri aukning en vænst hafði verið.
Greenspan varaði við því að erfitt
væri að spá fyrir um efnahagslægðir
því samdráttur orsakaðist oft af
órökstuddum ótta manna við yfirvof-
andi kreppu.
Bandaríkin
Nær enginn
hagvöxtur
í ársbyrjun
New York, Washington. AFP, AP.
VOJISLAV Kostunica, forseti Júgó-
slavíu, sagði í gær að verið væri að
semja lagafrumvarp um samvinnu
við stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna, sem gæti heimilað fram-
sal grunaðra stríðsglæpamanna til
dómstólsins í Haag. Hann ítrekaði
þó efasemdir sínar um að rétt væri
að framselja Slobodan Milosevic,
fyrrverandi forseta, til dómstólsins.
Kostunica vill að réttað verði yfir
Milosevic í heimalandinu fyrir þá
glæpi sem hann framdi í 13 ára
valdatíð sinni. Hann vildi ekki svara
því í gær hvort Milosevic yrði tek-
inn höndum á næstunni, en innan-
ríkisráðherra Júgóslavíu hafði í
fyrradag lýst því yfir að lögreglan
væri tilbúin að handtaka hann um
leið og ákæra hefði verið lögð fram.
Dragoljub Milanovic, fyrrverandi
sjónvarpsstjóri júgóslavneska ríkis-
sjónvarpsins og náinn samstarfs-
maður Milosevics, var hnepptur í
varðhald í gær og þykir það vís-
bending um að hringurinn sé farinn
að þrengjast í kringum forsetann
fyrrverandi.
Frumvarp samið
um framsal
Belgrad. AP.
KÍNVERJAR eru meðal þeirra
þjóða sem hafa sýnt því áhuga að
halda Ólympíuleikana árið 2008. Í
höfuðborginni Peking ríkir nú
töluverð eftirvænting enda eru
embættismenn Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar væntanlegir þangað
í næstu viku til að kanna aðstæð-
ur. Yfirvöld eru staðráðin í að
láta borgina þá skarta sínu feg-
ursta og meðal þess sem ástæða
þótti til að lífga upp á var grasið
á Torgi hins himneska friðar. Á
myndinni sést borgarstarfsmaður
úða grænum lit á grasflöt við
torgið í gær.
Reuters
Grasið sprautað grænt
Talið er að um þúsund manns hafi
farist í skjálftanum 13. janúar og að
um ein milljón manna hafi misst
heimili sín. Yfir 3.000 eftirskjálftar
hafa riðið yfir síðan.
Öflugur jarðskjálfti
skók Súmötru
Öflugur jarðskjálfti skók einnig
eyjuna Súmötru í vesturhluta
Indónesíu seint í gærkvöld. Skjálft-
inn mældist 7,4 stig á Richter, en
hann átti upptök sín um 30 km und-
an ströndinni. Ekki höfðu borist
fregnir um manntjón eða skemmdir
þegar blaðið fór í prentun.
AÐ minnsta kosti 92 höfðu fundist
látnir í gærkvöld eftir að jarðskjálfti
reið yfir Mið-Ameríkuríkið El
Salvador og óttast var að enn fleiri
hefðu týnt lífi. Talið er að um eitt
þúsund manns hafi slasast og að
hundruð manna hafi grafist í rúst-
um húsa, en það gæti þýtt að tala
látinna eigi eftir að hækka verulega.
Aðeins mánuður er liðinn síðan
öflugur skjálfti varð hundruð manna
að fjörtjóni í El Salvador. Jarð-
skjálftinn í gær mældist 6,1 stig á
Richter-kvarða og var hann fyrst
talinn hafa átt upptök sín á sama
stað og sá stóri í janúar, sem var 7,7
stig. Bandarískir jarðskjálftafræð-
ingar sögðu þó síðar að upptök
seinni skjálftans hefðu verið nokkuð
lengra inni í landi, um 20 km aust-
suðaustur af höfuðborginni San
Salvador.
Mestar skemmdir urðu í bæjun-
um Cojutepeque, San Vicente, San
Martin og í höfuðborginni. Allt til-
tækt lið hers og lögreglu var sent til
þeirra svæða sem verst urðu úti, en
erfiðlega gekk að komast til sumra
héraðanna þar sem aurskriður
höfðu rofið vegi.
Jarðskjálftans varð einnig vart í
Guatemala, Hondúras og hluta Ník-
aragúa.
AP
Slösuð börn hljóta aðhlynningu fyrir utan Bloom-barnaspítalann í San
Salvador, höfuðborg El Salvador, í gær.
Að minnsta kosti eitt
hundrað manns fórust
San Salvador. AFP.
Jarðskjálfti, sem mældist 6,1 stig, reið yfir El Salvador
Annar skjálfti
undan ströndum
Indónesíu