Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Uppbyggingarstefnan er ferli
sem kennir ungu fólki sjálfs-
aga. Það er byggt á þeirri
meginreglu að fólk hefur
áskapaða innri hvöt til að
hegða sér vel. Sjónum er fyrst
beint að einstaklingnum og
síðan er hann beðinn um að
líta í eigin barm og meta
hvaða áhrif hegðun hans hef-
ur á aðra. Stefnan byggist í
aðalatriðum á tveimur kenn-
ingum, raunsæiskenningunni
og stýrikenningunni sem eiga
rætur sínar að rekja til þeirr-
ar greinar sálfræðinnar sem
telur að með breyttum við-
horfum eða hugsunum megi
breyta hegðun til hins betra.
Á námskeiðinu kynnti
kanadíski ráðgjafinn Bruce
Innes, sem hefur masterspróf
í ráðgjöf og samfélagsþróun,
hvernig íbúar og stofnanir í
hverfum í Bandaríkjunum og
Kanada hafa nýtt sér upp-
byggingarstefnuna. Einnig
tóku þar til máls Ragnar
Gíslason, skólastjóri Folda-
skóla, en þar hafa kennarar
samþykkt að stuðla að sam-
skiptum í anda uppbygging-
arstefnunnar, og Sigþrúður
Arnardóttir, MA í sálfræði og
ráðgjafi Miðgarðs í Folda-
skóla, en hún hefur verið leið-
andi á þessu sviði og hefur um
nokkurt skeið sótt sér frekari
menntun, ásamt starfsliði
Foldaskóla, í aðferðfræði upp-
byggingarstefnunnar.
Uppbyggingarstefnan
við lýði í Foldaskóla
Ragnar Gíslason var beðinn
um að segja frá því hverju
uppbyggingarstefnan hefði
skilað í Foldaskóla.
„Jú, við höfum hafist handa
við að skilgreina og endur-
meta samskipti allra sem
starfa í skólasamfélaginu,
nemenda, kennara, stjórn-
enda og annarra starfsmanna.
Á næstunni er svo fyrirhugað
víðtækt kynningarstarf fyrir
foreldra nemenda sem við
viljum fá til liðs við okkur,“
sagði Ragnar. „Starfið hófst
snemma árs 1999 þegar
Magni Hjálmarsson, einkar
áhugasamur námsráðgjafi
skólans, komst í samband við
Diane Chelsom Gossen,
kanadískan kennslufræðing
sem hefur unnið að þróun
uppbyggingarstefnunnar í
hartnær 30 ár, bæði í Kanada
og í Bandaríkjunum. Hún
kom síðan til okkar vorið 2000
og hélt námskeið fyrir alla
kennara skólans auk þess að
funda með öðrum starfs-
mönnum og foreldrum nem-
enda. Í kjölfar námskeiðsins
ákváðum við í skólanum að
ganga þessa braut og hefja
uppbyggingarstarfið. Okkur
fannst þessar hugmyndir
styðja við og vera í anda
þeirrar skólastefnu sem við
höfðum þegar gefið út og fylgt
á undanförnum árum.“
Hefur gengið
ótrúlega vel
Að sögn Ragnars hefur
starfið gengið ótrúlega vel.
Segist hann geta fullyrt að
þeir fjölmörgu kennarar sem
hafi tekið tilboði skólans um
að vinna í þessum anda hafi
fyllst áhuga og viljað læra
meira. Kennarar finni fljótt að
þessar aðferðir styðji við það
sem þeir hafi viljað gera í
starfinu og uppgötvi að nú fá
þeir í hendur verkfæri sem
dugi. Segir hann skipulega
unnið að jákvæðum samskipt-
um, og þær þarfir sem liggi að
baki hegðun nemenda séu
greindar og unnið úr upplýs-
ingum með það að markmiði
að allir gangi uppréttir frá
samskiptum, hversu erfið sem
þau kunni að vera.
En skyldu refsingar þá með
öllu vera aflagðar í Folda-
skóla, með tilkomu uppbygg-
ingarstefnunnar?
„Það er algengur misskiln-
ingur varðandi þessar aðferð-
ir að nemendur þurfi ekki að
standa fyrir máli sínu þegar
þeir brjóta af sér,“ sagði
Ragnar. „Auðvitað fá þeir að
taka afleiðingum gjörða sinna
en „refsing“ í hefðbundinni
merkingu þess orðs er aldrei
markmið í uppbyggingarferl-
inu. Við tölum um „afleiðing-
ar“ af tiltekinni hegðun, sem
oftast er tilboð til nemanda
um uppbyggingu. Um þessar
mundir er verið að móta regl-
ur um þær „marklínur“ sem
við drögum í Foldaskóla og
þegar nemendur kjósa að
stíga út fyrir þær eiga afleið-
ingar að vera öllum kunnar.
Nemendur vita til dæmis að
þeim er tafarlaust vísað tíma-
bundið eða varanlega frá
skóla ef þeim verður á laga-
brot, s.s. þjófnaður, líkams-
árásir, alvarleg skemmdar-
verk, hegðun sem ógnar
öryggi viðkomandi eða ann-
arra, s.s. vopnaburður,
reykingar í skólanum og
neysla áfengis eða annarra
vímuefna. Viðbrögð við væg-
ari brotum eru metin og ávallt
reynt að hefja uppbyggingar-
ferlið. Það er ekki gert nema
allir aðilar að málinu séu sátt-
ir við það. Þegar nemendur
koma aftur eftir að hafa verið
vísað frá skóla eða tilteknum
kennslustundum er þeim boð-
ið upp á að hefja uppbygging-
arferlið.“
Það er mannlegt að
gera mistök
Hvað gerist þá þegar nem-
endur hegða sér illa í kennslu-
stundum?
„Samkvæmt reglum okkar,
marklínum og skólastefnu líð-
ur skólasamfélagið ekki að
nemendur komist upp með að
trufla skólafélaga sína í starfi.
Á því er tekið með því að
vinna með þann einstakling
sem ekki getur einbeitt sér að
námi, sýnir kennara mótþróa
og truflar starfið. Kennarar
geta bæði sjálfir eða með að-
stoð frá námsráðgjafa og
stjórnendum skólans rætt við
nemandann og greint hvað
liggur að baki hegðuninni.
Þegar það tekst er unnið með
nemandann þannig að hann
sjálfur fallist á greininguna og
setji sér áætlun um að leið-
rétta það sem við köllum
„mistök í samskiptum“. Í upp-
byggingarstefnunni er lögð
áhersla á að það sé mannlegt
að gera mistök og að hægt sé
að bæta fyrir þau og koma í
veg fyrir endurtekningu.
Nemendur gera skriflega
áætlun um hvernig þeir ætla
að breyta hegðun sinni og við-
komandi kennari kemur að
málinu, samþykkir áætlun
nemandans og þeir fara að
starfa saman í þessum anda.
Hlutverk skólastjóra í þessu
ferli er að hitta nemandann og
viðkomandi kennara. Þá gerir
skólastjóri aðilum ljóst hvar
marklínur liggja og hvaða af-
leiðingar óbreytt hegðun
muni hafa. Oft þurfa kennarar
og stjórnendur skólans einnig
að endurmeta samskipti, við-
urkenna mistök og setja sér
áætlun um að leiðrétta þau.
Við göngum nefnilega út frá
því í Foldaskóla að kennarar
séu einnig mannlegir. Von-
andi kemur það fáum á
óvart!“
Fækkun agatilvísana
til skólastjórnenda
Hvað er framundan í
Foldaskóla?
„Við ætlum okkur að ná
mælanlegum árangri á þrem-
ur árum,“ sagði Ragnar. „Nú
er þetta verkefni sett fram
sem tilboð um starfsaðferðir
sem kennarar kjósa að við-
hafa. Langflestir kennarar
skólans eru þegar jákvæðir og
fjölmargir spreyta sig á þessu
verkefni í daglegum störfum
sínum. Framundan er áfram-
haldandi endurmenntun og
þjálfun kennara og annarra
starfsmanna skólans auk
þeirrar kynningar sem ég
nefndi áður fyrir nemendur
og foreldra þeirra. Í einu orði
sagt þá hafa þessar aðferðir
verið sem hvalreki fyrir okkur
í skólanum. Aðferðirnar eru
auðskiljanlegar, framkvæm-
anlegar og skila þegar ár-
angri. Það sjáum við á
breyttri og bættri hegðun
tuga nemenda í skólanum. Þá
er ánægjulegt að greina veru-
lega fækkun agatilvísana til
stjórnenda skólans, fræðslu-
yfirvalda og til Miðgarðs. Þá
erum við mjög ánægð með að
Miðgarður, fjölskylduþjón-
ustan í Grafarvogi, ætli að
taka upp þessi sömu vinnu-
brögð og væntum góðrar sam-
vinnu við Miðgarð og einnig
þá skóla Grafarvogs sem þeg-
ar hafa lýst yfir áhuga á að
kynna sér uppbyggingar-
stefnuna. Við teljum okkur
vera að byggja upp nemendur
með aukna ábyrgðartilfinn-
ingu og siðferðiskennd og þá
er vindur í seglum.“
Áætlun gerð til
næstu þriggja ára
Að sögn Regínu Ásvalds-
dóttur, framkvæmdastjóra
Miðgarðs, hefur verið gerð
áætlun til næstu þriggja ára
um innleiðingu uppbygging-
arstefnunnar í Grafarvogi.
„Sem lykilstofnun í hverf-
inu með ábyrgð á allri sér-
fræðiþjónustu við leik- og
grunnskóla auk víðtæks sam-
starfs við foreldrafélög og
félagasamtök getur Miðgarð-
ur boðið upp á fræðslu og
þjálfun fyrir ofangreindar
stofnanir,“ sagði Regína.
„Fyrsta skrefið hefur verið
tekið og það er þjálfun allra
sérfræðinga í Miðgarði og
hefur hún átt sér stað frá því
sl. haust og er koma Bruce
Innes liður í þessari þjálfun.
Næstu skref eru að gera
fræðsluefni fyrir mismunandi
hópa í hverfinu og í framhaldi
af því bjóða upp á fræðslu og
þjálfun. Nokkrir aðilar hafa
þegar lýst yfir áhuga á að taka
vinnuaðferðir uppbyggingar-
stefnunnar upp og á meðal
þeirra eru tveir grunnskólar í
hverfinu fyrir utan Folda-
skóla og einn leikskóli. Ávinn-
ingurinn af því að nýta sam-
eiginlegt gildismat og
aðferðafræði í uppeldisstarfi
með börnum í hverfi eins og
Grafarvogi er að börnin eru
þá að fá svipuð skilaboð frá
öllum í umhverfinu, hvort sem
um er að ræða skóla, foreldra
eða íþróttaþjálfara. Í öðru lagi
er þetta mjög hagkvæmt, það
er hægt að samnýta fræðslu-
efni upp að vissu marki, miðla
þekkingu og mynda vinnu-
hópa þvert á stofnanir sam-
félagsins.“
Ný leið í uppeldismálum, sem farið hefur sigurför um hinn vestræna heim, reynd í Grafarvogi
Ungu fólki
kennt að temja
sér sjálfsaga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ragnar Gíslason, skólastjóri Foldaskóla, er ánægður með
hvað uppbyggingarstefnan hefur reynst vel þar og segir
stefnt að því að ná mælanlegum árangri á þremur árum.
Dagana 6.–9. febrúar var haldið
námskeið fyrir starfsmenn fjöl-
skylduþjónustunnar Miðgarðs í
Grafarvogi í aðferðafræði svokall-
aðrar uppbyggingarstefnu, en hún
hefur verið að ryðja sér til rúms í
Kanada, Bandaríkjunum og víðar á
undanförnum árum, með undra-
verðum árangri.
Grafarvogur
BRUCE Innes, sem er með
masterspróf í ráðgjöf og
samfélagsþróun, auk BA-
gráðu í félagsfræði með sál-
fræði sem aukagrein, fjallaði
á námskeiðinu um það hvern-
ig íbúar og stofnanir í hverf-
um í Bandaríkjunum og Kan-
ada hafa tileinkað sér
sameiginlega siðfræði og
leiðarljós hinnar nýju upp-
byggingarstefnu í starfi með
börnum og unglingum. Hann
telur stefnuna vera eina
bestu forvörn sem völ sé á.
Innes, sem hefur unnið
sem grunnskólakennari, við
félags- og skólaþjónustu, og
innan fangelsiskerfisins,
vinnur þessa stundina með
skólum og skólastjórnendum
í Kanada, Bandaríkjunum og
víðar. Hann trúir því að
raunsæiskenningin og stýri-
kenningin hjálpi fólki til að
ná betri árangri í daglegu
lífi. Hugmyndin er að fólk
skoði hvað gengur vel og
hvað það getur gert til þess
að ná frekari árangri. For-
tíðin er notuð sem leið til að
bæta nútíðina og gera áætl-
anir varðandi framtíðina.
Innes sýnir fólki hvernig á
að taka ábyrgð. Hann trúir
því að fólk verði að taka sín-
ar eigin ákvarðanir um hvað
hjálpar því að ná árangri auk
þess að þróa með sér hæfi-
leika til að aðlagast breyttum
aðstæðum.
Nýtt kerfi byggt á
eldri hugmyndum
Aðspurður um sögu þess-
arar nýju stefnu, sagði Innes,
að þar væri um nýtt kerfi að
ræða, en hugmyndirnar sem
uppbyggingarstefnan byggði
á hefðu þó lengi verið á
sveimi, m.a. í sálfræðikenn-
ingum Alfreds Adlers, Abra-
hams Maslows og Williams
Glassers. En það hefði verið
Dianne Gosser sem tók
stökkið þaðan og yfir í það,
sem í dag sé þekkt undir heit-
inu uppbyggingarstefnan.
„Uppbyggingarstefnan
hefur fengið góðar viðtökur
og breiðst út um heiminn, að-
allega þó Norður-Ameríku,
en er að byrja að ná fótfestu
líka í Evrópu,“ sagði Innes.
„Aðalástæðan fyrir því er sú,
að fólk sér hvers stefnan er
megnug. Þetta er ekki spurn-
ing um að kasta öllu því burt,
sem er gamalt, heldur er það
notað sem brúklegt er og síð-
an bætt við það nýjum hlut-
um. Þannig er ekki um að
ræða að sleppa refsingum
fyrir agabrot, því marklínur
eru nauðsynlegar; hins vegar
er farin sú leið að reyna að
gera þessa hluti á uppbyggj-
andi hátt, en ekki niðurríf-
andi. Ef nemanda er vísað úr
kennslustund, einhverra
hluta vegna, er hann ekki
kvaddur með þeim orðum, að
vonandi komi hann aldrei
aftur, heldur einmitt á hinn
veginn; hann er beðinn um að
koma sem fyrst aftur, en með
breytt hugarfar.“
Tekur 3–5 ár að koma
uppbyggingarstefnunni á
„Ég tel uppbyggingar-
stefnuna vera eina bestu for-
vörn sem völ er á á þessum
vettvangi um þessar mundir,
enda er ljóst að eitthvað nýtt
verður að koma til í þessum
efnum. Í Kaliforníu var eitt
árið fyrir ekki löngu varið
meiri fjármunum í fangels-
ismál heldur en allt skóla-
kerfi fylkisins, frá grunn-
skóla og upp úr. Og það þarf
engan vitring til að sjá, að
slíkt nær ekki nokkurri átt.
En þetta tekur tíma; við ger-
um ráð fyrir að 3-5 ár taki að
koma uppbyggingarstefn-
unni á í öllu sínu veldi í
dæmigerðum skóla. En það
er sannarlega þess virði.“
!"
#$$%!$#
#$$&!$'
#$$%!$# #$$#!$( #$$(!$& #$$&!$'
#'
#(
#%
)
*
'
(
%
+
#$$%!$#
#$$#!$(
#$$(!$&
#$$&!$'
,
Morgunblaðið/Kristinn
Kanadamaðurinn Bruce Innes er sannfærður um
ágæti uppbyggingarstefnunnar.
„Ein besta for-
vörn sem völ er á“
Hér má sjá áhrif uppbyggingarstefnunnar í einum grunnskóla
Bandaríkjanna, sem tók hana upp á arma sína árið 1990.