Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 15
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
beint þeim tilmælum til Akureyrar-
bæjar að taka mið af sjónarmiðum
sem hann rekur í áliti er varðar
kvörtun manns yfir ráðningu í fjögur
störf slökkviliðsmanna í Slökkviliði
Akureyrar og úrskurð félagsmála-
ráðuneytis vegna sömu ákvörðunar,
en maðurinn var einn umsækjenda
um starfið.
Alls bárust 18 umsóknir um störf-
in sem auglýst voru í janúar 1999.
Maðurinn var ekki í hópi þeirra sem
fengu starf, en hann hafði starfað
sem afleysingamaður hjá liðinu sum-
arið áður.
Kvörtun mannsins laut m.a. að því
að deildarstjóri tæknideildar bæjar-
ins hefði ekki veitt umsögn um ráðn-
inguna ásamt slökkviliðsstjóra svo
sem skylt væri samkvæmt samþykkt
bæjarstjórnar um framkvæmda-
nefnd bæjarins. Einnig kvartaði
hann um framsetningu umsagnar
slökkviliðsstjóra og aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra um umsækjendur og að
honum hefði ekki verið veittur kost-
ur á að koma að athugasemdum fyrir
framkvæmdanefnd til jafns við um-
sagnaraðila þegar nefndin tók málið
fyrir að nýju og að jafnræðis hefði
ekki verið gætt við úrlausn málsins.
Þá kvartaði maðurinn yfir því að
tveir umsækjendur sem ráðnir voru
hefðu ekki uppfyllt skilyrði til ráðn-
ingar, annar hefði ekki uppfyllt skil-
yrði um þrek og hinn ekki lokið prófi
til að öðlast aukin ökuréttindi.
Umboðsmaðurinn gerði athuga-
semd við síðastnefnda atriðið og
taldi ekki samrýmast reglugerð um
starfsgengisskilyrði slökkviliðs-
manna að velja umsækjanda til að
gegna starfi slökkviliðsmanns sem
uppfyllti þá ekki það skilyrði að hafa
aukin ökuréttindi. Maðurinn sem um
ræðir var þá á námskeiði til aukinna
ökuréttinda.
Umboðsmaður Alþingis
um ráðningu í störf
slökkviliðsmanna
Aukin öku-
réttindi
nauðsynleg
SAMNINGUR milli Akureyrar-
bæjar, Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og Fullorðinsfræðslu
fatlaðra á Norðurlandi um að-
gang að endurhæfingarsundlaug
FSA í Kristnesi var undirritaður í
vikunni. Sundlaugin er hönnuð
með þarfir fatlaðra í huga.
Helgi Jósefsson hjá Fullorð-
insfræðslu fatlaðra sagði að
kennsla og þjálfun í sundlaug
væri það besta sem hægt væri að
bjóða fjölfötluðum og fólki með
skerta hreyfigetu, en slík sund-
laug væri dýr og því væri ómet-
anlegt að Akureyrarbær tæki
þátt í verkefninu með fullorð-
insfræðslunni. „Það gerir okkur
kleift að hafa námstilboð svo gott
sem raun er,“ sagði Helgi.
Hann sagði menn svo sann-
arlega geta glaðst yfir því að
langþráður draumur um þjálf-
unarlaug hefði ræst og benti á að
aðstæður á Kristnesi væru allar
hinar ákjósanlegustu. „Heill sé
þeim sem að því stóðu að þjálf-
unarlaugin hér á Kristnesi varð
að veruleika,“ sagði Helgi.
Samningur hefur verið undirritaður um afnot Fullorðinsfræðslu fatl-
aðra á Norðurlandi af endurhæfingarsundlaug í Kristnesi, en þar var
þessi mynd tekin í tilefni af undirrituninni í vikunni.
Akureyrarbær, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Fullorðinsfræðsla fatlaðra á Norðurlandi
Samið um afnot af sundlaug
í Kristnesi til endurhæfingar
SAMVERA eldri borgara verður í
Glerárkirkju á morgun, fimmtudag-
inn 15. febrúar, og hefst hún kl. 15.
Gestur samverunnar að þessu
sinni verður Gunnar Eyjólfsson leik-
ari sem ræðir um lífið og tilveruna.
Þá syngur Kór eldri borgara og
einnig verður almennur söngur með
kórnum. Stjórnandi er Guðjón Páls-
son. Dagskráin hefst með helgistund
og að venju verða boðnar veitingar á
vægu verði.
Samvera eldri borgara
í Glerárkirkju
Gunnar Eyj-
ólfsson ræðir
um lífið og
tilveruna
♦ ♦ ♦
alltaf á föstudögum