Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LENDING geimfarsins NEAR á
smástirninu Eros í fyrrakvöld kom
öllum aðstandendum geimfarsins
mjög á óvart. NEAR er fyrsta
ómannaða geimfar sem lendir á
smástirni og var jafnvel búist við því
að það myndi brotlenda á Eros, enda
ekki hannað til lendingar. Einnig
var talið líklegt að samskipti NEAR
við jörðu myndu rofna um leið og
það lenti á stirninu en svo fór ekki.
Robert Farquahs, leiðangursstjóri
NEAR, sagði lendinguna hafa geng-
ið ótrúlega vel. „Ég er meira að
segja hissa.“
Þetta er fyrsta lending geimfars á
smástirni með nær ekkert aðdrátt-
arafl og vegna breytilegra þyngd-
araflskrafta á óreglulegu yfirborði
Erosar var erfitt að stýra því.
Hemlunarflaugar voru notaðar til
að hægja á geimfarinu og stýra því.
Þessum flaugum varð að skjóta á ná-
kvæmlega réttum tíma. Einnig
þurfti að stilla myndavélar geim-
farsins á smástirnið, aðal loftnet
geimfarsins í átt að jörðu og sólar-
plötur þess í átt að sólu. Allt þetta
krafðist meira eldsneytis en vana-
lega. Óvíst var hversu mikið elds-
neyti var eftir, en víst er að það var
lítið. Geimfarið var heldur ekki
hannað til að lenda.
Verkfræðingar mátu að tekist
hefði að hægja á geimfarinu þannig
að þegar það lenti hefði hraðinn ein-
ungis verið 5-8 km/klst. sem telst
vera mjúk lending.
Myndirnar sem teknar voru í
lendingunni af Eros eru miklu ná-
kvæmari en myndir sem áður hafa
verið teknar af smástirni og víst að
vísindamenn munu verja næstu ár-
um í að greina þær.
Smástirnið Eros, sem nefnt er eft-
ir gríska ástarguðinum, er 33 km
langt og 13 km í þvermál og í 316
milljón km fjarlægð frá jörðu. Smá-
stirni eru leifar frá myndun sólkerf-
isins sem hringsnúast í kringum sólu
en eru of lítil til að teljast vera plán-
etur. Vegna þessa hafa vísindamenn
einstakan áhuga á þeim því þau eru
talin gefið vísbendingu um hvernig
jörðin og hinar pláneturnar mynd-
uðust fyrir 4,5 milljónum ára.
Vísindamenn fylgdust með lend-
ingunni af áhuga en sjónvarpsskjár
var um borð í geimfarinu, þannig að
hægt var að fylgjast með beinum
myndum, nálægt yfirborði.
„Myndirnar eru frábærar,“ sagði
Joseph Veverka, frá Cornell-
háskóla, sem leiðir myndalið NEAR.
„Þetta er stórkostleg reynsla að
sitja hér og vera í raun í ferð með
geimfarinu þegar það lendir á yf-
irborðinu.“
Æðsti geimvísindamaður NASA,
Edward Weiler, sagði að upplýs-
ingar frá leiðangrinum myndu
verða nýttar í væntanlegum geim-
ferðum í framtíðinni. Þegar Weiler
var spurður út í kaldhæðnina í því
að tekist hefði að lenda geimfari
sem ekki var hannað til lendingar
þegar mistókst að lenda geimfari á
mars eins og stefnt hafði verið að
sagði Weiler: „Mars er ill pláneta.“
Geimfarið NEAR
Ótrúlega far-
sæl lending
Washington. AP, The Washington Post.
34 5 %6
78 + %6
9
&*'
% ' &11, :%
: # 5 6 8 5 9
% &,('((( 64 " ' $
694;4 % %6
9
4< 9
:= 9
6 %4 6%
" '
>%6
:<" 9 %6
/. 6?
5 0- 6? %6 % 9"#
% %4 : ' @ :4
9
6 %4 6% %6
%4 ! #
; % #
% !% 5 9 " '
90 :0
;
<
<
90=0
<
<
>0>;0
%
%
7
A " %
/* 65 9 %
9 ";
%6
B
90? 0
?
<
<
- . 7
4
,4
,4
,
/
@<
+
'*) ) +
=0?
A 4
B
8
;
C 4
<
<
AP
Mynd af yfirborði Eros tekin úr
252 m fjarlægð frá yfirborðinu.
TERJE Søviknes, formaður Fram-
faraflokksins í Os á Hörðalandi, sem
sakaður hefur verið um að hafa
nauðgað 16 ára stúlku, sagði af sér
því embætti um stundarsakir í gær
og einnig sem annar varaformaður
flokksins á landsvísu en búist er við,
að hann verði formlega ákærður síð-
ar í vikunni. Önnur kona, Cathrin
Rustøen, 21 árs, hefur einnig skýrt
frá því, að sér hafi verið nauðgað af
frammámanni í flokknum og hún
segist vita um fleiri, sem sætt hafi
slíku ofbeldi. Hefur þetta mál vakið
mikla athygli í Noregi og mun vafa-
laust hafa mikil áhrif á gengi Fram-
faraflokksins á næstunni en kosið
verður til Stórþingsins í haust.
Það var eins og sprengju hefði
verið kastað inn á fund Framfara-
flokksins í Björgvin á Hörðalandi
síðastliðinn laugardag þegar Cath-
rin Rustøen, miðstjórnarmaður í
flokknum, steig í ræðustól og skýrði
frá því, að henni hefði verið nauðgað
af frammámanni í flokknum fyrir
ári er ungliðahreyfing flokksins var
með landsfund á hóteli á Þelamörk.
Kvaðst hún hafa skýrt forystu
flokksins frá þessum atburði en þar
sem hún hefði ekkert aðhafst, hefði
hún ákveðið að kveða upp úr með
þetta sjálf. Að því búnu sagði hún af
sér öllum trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn.
Ólifnaður og
morðhótanir
Rustøen ætlar ekki að leggja
fram kæru eða nefna þann, sem hún
segir hafa nauðgað sér, en hún seg-
ist vilja vekja athygli á þeim ólifnaði,
sem viðgangist innan flokksins. Í
viðtali við NTB-fréttastofuna
kvaðst hún vita um sjö stúlkur aðrar
og tvo unga menn, sem hefði ýmist
verið nauðgað eða beitt öðru kyn-
ferðislegu ofbeldi á fundum flokks-
ins eða í sambandi við þá. Sagðist
hún vona, að þetta fólk kæmi einnig
fram með sína sögu.
Rustøen segist hafa sagt Siv
Jensen, varaformanni Framfara-
flokksins, frá nauðguninni í október
sl. og hefði þá virst sem hún legði
trúnað á söguna. Hefði Siv ætlað að
ræða málið við Carl I. Hagen, for-
mann flokksins, og aðra í forystunni
en frá þeim hefði ekkert heyrst.
Rustøen segir, að hins vegar hafi
flokksforystan komið af stað ýmsum
gróusögum um hana meðal flokks-
félaga hennar á Hörðalandi. Segist
hún efast um, að forystan geri neitt í
því að uppræta ólifnaðinn í flokkn-
um enda sé hann mjög útbreiddur.
Rustøen telur víst, að einhver hafi
búist við því, að hún kynni að segja
frá málinu á fundinum í Björgvin.
Fimmtudagskvöldið áður hafi ein-
hver ókunnur maður hringt í hana
og verið með óbeinar morðhótanir.
Sagði hann henni, að hún gæti
hvergi verið örugg.
Grátklökkir
leiðtogar
Carl I. Hagen, formaður Fram-
faraflokksins, brást fyrst við ásök-
unum stúlknanna með því að reyna
að gera lítið úr þeim. Sakaði hann
þær um „hreinan uppspuna“ og
Rustøen lýsti hann sem „örvænting-
arfullri“ konu. Það var hins vegar
allt annar Hagen, sem boðaði til
blaðamannafundar í Ósló í fyrradag
ásamt Siv Jensen, varaformanni
flokksins. Voru þau næstum grát-
klökk og Hagen sagði, að tekið hefði
verið á óskjalfestum ásökunum um
nauðgun með réttum hætti innan
flokksins. Rustøen hefði lagt á það
áherslu, að ekki mætti nefna þann,
sem hún sakaði um nauðgun, og því
hefði ekki verið margra kosta völ.
Kvaðst Hagen harma fyrstu yfirlýs-
ingar sínar um ásakanir stúlknanna
og skýrði þær með því, að hann
hefði verið illa fyrir kallaður, þreytt-
ur og raunar með hita. Hann bað þó
ekki stúlkurnar sérstaklega afsök-
unar á ummælunum.
Stjórnmálaferillinn á enda
Terje Søviknes, formaður Fram-
faraflokksins í Os á Hörðalandi,
sagði af sér trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn í gær vegna ásakana 17 ára
gamallar stúlku um að hann hefði
nauðgað henni á fyrrnefndum
landsfundi ungliðahreyfingarinnar
fyrir ári. Ber Søviknes ekki á móti
því, að hann hafi haft mök við hana
en heldur því fram, að það hafi verið
með hennar vilja og hann hafi hald-
ið, að hún væri 18 ára en ekki 16 eins
og hún var þá. Búist er við, að hann
verði formlega ákærður eftir
nokkra daga. Eru norsku fjölmiðl-
arnir sammála um, að ferill Søvik-
nes sem stjórnmálamanns hljóti að
vera á enda.
Søviknes bar sig illa undan um-
ræðunni um málið í síðdegisblöðun-
um í Ósló og sagðist njóta meiri
skilnings og stuðnings í sínu heima-
héraði, Hörðalandi, en svo virðist þó
ekki vera. Flokksfélagar hans þar
vilja, að hann dragi sig alveg í hlé
þar sem mál hans hafi stórskaðað
flokkinn og ekki komi til mála, að
hann skipi efsta sæti á lista flokks-
ins í kosningunum í haust eins og
ákveðið hefði verið.
„Útstillingargluggi“
Framfaraflokksins
Søviknes er 31 árs og hóf afskipti
af stjórnmálum fyrir sjö eða átta ár-
um. Við síðustu sveitarstjórnar-
kosningar vann Framfaraflokkur-
inn mikinn sigur í Os og þá var
ákveðið að gera bæjarfélagið að eins
konar tilraunastofu eða útstillingar-
glugga fyrir stefnumál flokksins.
Margar stofnanir bæjarfélagsins
voru seldar, öldruðu fólki var lofað
ókeypis sólarlandaferð og þeir, sem
sóttu um byggingaleyfi, þurftu ekki
að óttast afsvar. Enginn ber heldur
á móti því, að mikið hafi „lifnað“ yfir
miðbænum eftir að farið var að
segja já við næstum öllum umsókn-
um um vínveitingaleyfi.
Fljótlega kom í ljós, að Søviknes
var einn af erfðaprinsum Carls I.
Hagens en þá þurfti líka að tryggja
honum sæti á Stórþinginu. Hagen
og flokksforystan kröfðust þess í
október sl., að Søviknes fengi fyrsta
sætið á listanum á Hörðalandi en
margir frammámenn flokksins í
fylkinu brugðust mjög illa við þeim
afskiptum. Hófu þeir hatramma
baráttu gegn Søviknes og fljótlega
komust á kreik ýmsar sögur um
kynlíf hans og misferli í fjármálum.
Þrátt fyrir það bar Søviknes sigur
úr býtum og hreppti fyrsta sætið á
fundi kjördæmisráðsins fyrir hálf-
um mánuði.
Brátt um
„virðuleikann“
Þetta mál hefur að sjálfsögðu
stórskaðað Framfaraflokkinn en
fyrir skömmu var hann stærsti
flokkurinn í Noregi samkvæmt
skoðanakönnunum. Hefur fylgi
hans að vísu dalað nokkuð síðan en
hann ætlaði sér samt stóra hluti í
kosningunum í haust. Að undan-
förnu hefur flokkurinn unnið að því
að bæta ímynd sína, gera hana
virðulegri og almennilega sam-
kvæmishæfa. Í því skyni hefur stór-
lega verið dregið úr áróðri flokksins
gegn innflytjendum og með „stalín-
ískum hreinsunum“ innan flokksins
hefur því fólki, sem ekki þótti passa
við hina nýju ímynd, verið bolað
burt og rekið úr flokknum. Hefur
það valdið miklum átökum innan
hans og uppreisnarástandi í sumum
flokksdeildum en það er þó ekkert í
líkingu við þann vanda, sem flokk-
urinn stendur nú frammi fyrir.
Hann þarf nú að reka af sér það
ólifnaðarorð, sem Cathrin Rustøen
ber á hann, og komi fram fleiri ásak-
anir um nauðganir og kynferðislegt
ofbeldi er ekki líklegt, að hann verði
til stórræðanna í kosningunum í
haust.
Framfaraflokkurinn í Noregi í miklum vanda vegna ásakana um kynferðislegt ofbeldi
Søviknes neyðist
til að segja af sér
Scanpix
Carl I. Hagen og Siv Jensen á blaðamannafundinum í gær.
Terje Søviknes talar við fréttamenn er hann yfirgefur skrifstofu sína.
Ósló. Morgunblaðið.