Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 21 Valentínusarilmurinn 2001 Remember ME Útsölustaðir: Hygea Kringlunni, Hygea Laugvegi, Clara Kringlunni, Sigurboginn Laugavegi, Snyrti- vöruverslunin Glæsibæ, Oculus Austurstræti, Bylgjan Hamraborg, Stella Bankastræti, Apótekið Hringbraut, Apótek Grafarvogs, Apótek Keflavíkur, Agnes Snyrtistofa Listhúsinu, Snyrtistofa Ólafar Selfossi, Snyrtistofan Sóley Ísafirði, Apótek Stykkishólms, Perlan Akranesi, Verslunin Minný Siglufirði, Hjá Maríu Akureyri, Verslunin Ísold Sauðarkróki. BANDARÍSKI öldungadeildarþing- maðurinn Arlen Specter hefur vakið máls á þeim möguleika að Bill Clint- on, fyrrverandi forseti, verði ákærð- ur fyrir embættisbrot vegna þeirrar ákvörðunar hans að náða kaupsýslu- manninn Marc Rich sem flúði til Sviss eftir að hafa verið sakaður um stórfelld skattsvik og ólögleg við- skipti. Specter er repúblikani, á sæti í dómsmálanefnd öldungadeildar þingsins og starfaði áður sem sak- sóknari í Fíladelfíu. Hann sagði að staðhæfing sín um að hægt væri að ákæra forsetann fyrrverandi fyrir embættisbrot byggðist á lagalegri athugun en útskýrði ekki hvers kon- ar ákæru Clinton gæti átt yfir höfði sér. „Ég legg ekki til að þetta verði gert, en tæknilega er enn hægt að ákæra Clinton fyrir embættisbrot,“ sagði Specter í sjónvarpsviðtali á sunnudag. Eftirlaun Clintons verði skert Lagasérfræðinga greinir þó á um hvort stjórnarskrá Bandaríkjanna heimili þinginu að ákæra fyrrverandi forseta fyrir meinta misnotkun á náðunarvaldi sínu. Öldungadeildar- þingmaðurinn Don Nickles, sem er repúblikani, hafnaði hugmyndinni um nýja málshöfðun á hendur Clint- on en sagði að til greina kæmi að beita öðrum aðferðum til að skerða eftirlaun forsetans fyrrverandi og opinbera fjárstyrki hans vegna leigu á skrifstofuhúsnæði og annars skrif- stofukostnaðar. Talsmaður Clintons vildi ekki ræða þessar hugmyndir við fjöl- miðla. Fulltrúadeild þingsins ákærði Clinton í desember 1998 fyrir að fremja meinsæri og leggja stein í götu réttvísinnar í tengslum við kyn- ferðislegt samband hans við Monicu Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Öldungadeildin sýkn- aði Clinton í febrúar 1999 og Specter var þá andvígur því að forsetinn yrði sviptur embættinu. Clinton náðaði 140 Bandaríkja- menn, þeirra á meðal Marc Rich, tveimur klukkustundum áður en hann lét af embætti 20. janúar. Rich flúði til Sviss árið 1983 skömmu áður en hann var ákærður fyrir að svíkja 48 milljónir dala, andvirði rúmra 4 milljarða króna, undan skatti og brjóta viðskiptabann á Íran með því að kaupa olíu frá landinu. Demókratar hafa ekki varið þá ákvörðun Clintons að náða Rich. „Ég tel að forsetinn hafi annaðhvort gerst sekur um ótrúleg mistök vegna rangminnis eða verið heiladauður þegar hann gerði þetta,“ sagði Jos- eph Biden, demókrati í öldunga- deildinni. Denise Rich veitt friðhelgi? John D. Ashcroft, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, íhugar nú þann möguleika að fyrrverandi eig- inkonu Rich, Denise Rich, verði veitt friðhelgi gegn því að hún beri vitni um þátt sinn í náðun hans. Denise Rich hefur gefið milljón dala, and- virði rúmra 85 milljóna króna, í kosningasjóði demókrata. Þar af fékk eiginkona Clintons, Hillary, 70.000 dali, tæpar sex milljónir króna, fyrir kosningarnar til öld- ungadeildarinnar. Heimildarmenn segja að Denise Rich hafi einnig gef- ið 450.000 dali, andvirði 39 milljóna króna, í forsetabókasafn Clintons áð- ur en hún beitti sér fyrir því að fyrr- verandi eiginmaður hennar yrði náð- aður. Repúblikanar í nefnd fulltrúa- deildarinnar, sem fjallar um stjórn- sýsluumbætur, bræða nú með sér að bjóða Denise Rich friðhelgi gegn því að hún beri vitni en segjast vilja fá samþykki dómsmálaráðherrans fyr- ir því áður en þeir gera það. Formað- ur nefndarinnar, repúblikaninn Dan Burton, hefur óskað eftir því að Ash- croft skýri henni frá áliti sínu á þess- um möguleika. „Ég hygg að það sé alltaf mjög mikilvægt að slíkar beiðnir séu tekn- ar mjög alvarlega,“ sagði Ashcroft. Hann bætti við að dæmi væri um að komið hefðu upp vandamál þegar þingið veitti mönnum friðhelgi fyrir að bera vitni, meðal annars í Íran- kontra-málinu. Sakfellingu Olivers Norths í því máli var hnekkt eftir að lögmenn hans héldu því fram að þeir sem báru vitni gegn honum fyrir al- ríkisdómstóli kynnu að hafa byggt staðhæfingar sínar á friðhelgum vitnisburði Norths fyrir þinginu. „Ég verð samt að segja að ég virði rétt Bandaríkjaþings til að veita frið- helgi í því skyni að afla upplýsinga,“ bætti Ashcroft þó við. Dómsmálanefnd þingsins hefur einnig hafið rannsókn á máli Rich og fleiri manna sem Clinton náðaði áður en hann lét af embætti. Þingmaður vekur máls á hugsanlegri málshöfðun vegna náðunar Rich Telur að þing- ið geti ákært Clinton aftur AP Hillary Rodham Clinton og Denise Rich á fjáröflunarsamkomu góðgerð- arstofnunar í New York fyrir rúmu ári. Washington. AP, The Washington Post. BILL Clinton, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, hefur hætt við að taka á leigu dýrt skrifstofuhúsnæði á Manhattan, með útsýni yfir Central Park, og hefur þess í stað í hyggju að leigja húsnæði í Harlem. Clinton hefur verið gagnrýndur fyrir að ætla að leigja skrifstofu- húsnæði í lúxusbyggingu á 57. stræti á Manhattan fyrir um 800.000 dali, andvirði 68 milljóna króna, á ári. Er þetta hærri fjárhæð en ríkið greiðir fyrir skrifstofu- húsnæði allra annarra fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Þessi gagnrýni varð til þess að Clinton tilkynnti fyrr í mánuðinum að góðgerðarstofnun, sem hann hef- ur komið á fót, myndi greiða hluta leigukostnaðarins, eða 300.000 dali, andvirði 26,4 milljóna króna, á ári. Aðstoðarmenn Clintons segja nú að hann sé hættur við þessi áform og hyggist taka á leigu jafnstórt húsnæði í Harlem, hverfi blökku- manna á norðanverðri Manhattan- eyju. Harlem var miðstöð mennta og lista fram undir seinni heims- styrjöldina en hverfinu hefur hnign- að eftir stríð og er það nú þekktast fyrir fátækt, glæpi og niðurníddar byggingar. Clinton hefur augastað á ný- standsettri byggingu á 125. stræti við Lennox-breiðgötuna. Áður en hann lét af embætti forseta und- irritaði hann lög sem miða að því að endurlífga fátækrahverfi miðborga með opinberum fjárfestingum og skattaívilnunum og hann beitti sér fyrir slíkum verkefnum síðasta árið í forsetaembættinu. Clinton sækist eftir húsnæði í Harlem The Washington Post. Bakpoki aðeins 1.600 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.