Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 23
SJÖ Bretar, sem ráku með öðr-
um stærsta barnaklámhring,
sem vitað er um, voru dæmdir í
gær í 12 til 30 mánaða fangelsi.
Þykja mörgum dómarnir ótrú-
lega vægir og sumir baráttu-
menn fyrir réttindum barna
segja þá ekkert annað en
„brandara“.
Mennirnir sjö viðurkenndu að
hafa sett inn á Netið og skipst á
myndum af þúsundum barna,
sumra ekki nema þriggja mán-
aða gamalla, og er það haft eftir
lögreglumönnum, að sumar
myndanna séu með því skelfi-
legasta, sem þeir hafi séð. Dóm-
arinn hefði getað dæmt mennina
í þriggja ára fangelsi og sam-
kvæmt lagafrumvarpi, sem nú
er fyrir breska þinginu, verður
hámarksrefsing fyrir afbrot af
þessu tagi 10 ár.
Bretarnir voru meðal 107
manna, sem handteknir voru
víða um heim en alls voru gerðar
upptækar 750.000 myndir og
1.800 myndbönd.
Dr. Michelle Elliott, formaður
barnahjálparsamtakanna Kids-
cape, segir, að dómarnir, sem
mennirnir fengu, séu þeir sömu
og menn fái fyrir innbrot eða
fyrir að greiða ekki samansafn-
aða stöðumælasekt.
Af 1.263 börnum sem koma
fram á myndunum hefur aðeins
tekist að bera kennsl á 17 þeirra.
Dómar í
barnaklámsmáli
Þykja
ótrúlega
vægir
London. AFP.
LÁNIÐ hefur ekki leikið við norska
úlfaveiðimenn það sem af er veiði-
tímabilinu. Veiðileyfið hefur nú
verið takmarkað við tvo úlfa, dýrin
sem þeim er ætlað að skjóta finnast
ekki, veður hefur verið með af-
brigðum leiðinlegt og dýravernd-
unarsinnar hafa gert þeim lífið
leitt. Hefur einn þeirra raunar
gengið svo langt að hóta því að
eitra norskar ár, láti Norðmenn
ekki af úlfaveiðunum.
Dýraverndunarsinnar í Noregi
og Svíþjóð hafa haft sig mjög í
frammi. Einn þeirra hringdi til
sænsku lögreglunnar og kvaðst
hafa undir höndum 180 lítra af eitri
sem hann myndi hella í norskar ár
ef veiðunum yrði ekki hætt. Léns-
maðurinn í Stor-Elvdal segist í sam-
tali við Aftenposten ekki skilja rök-
semdina í því að drepa fisk til að
stöðva úlfadráp auk þess sem bent
hefur verið á að ekki sé um mikið
magn eiturs að ræða.
Óþekktir dýraverndunarsinnar
hafa sömuleiðis hringt í oddvita
veiðimannanna og hótað honum líf-
láti. Hafa veiðimennirnir neyðst til
að flytja sig um set vegna þessa. Þá
hafa dýraverndunarsinnar flykkst
til veiðisvæðisins til að gera þeim
erfitt fyrir og varð það til þess að
veiðistjóraembættið ákvað um
helgina að takmarka veiðarnar við
tvo úlfa í stað níu.
Eina glætan sem úlfaveiðimenn-
irnir hafa séð er dauður elgur sem
talið er víst að úlfarnir hafi drepið.
Mikið snjóaði hins vegar á veiði-
svæðinu og fennti jafnóðum í öll
spor úlfanna sem er enn leitað. Í
gær var veður hins vegar hið besta
og vonuðust veiðimennirnir tuttugu
til þess að það verði til þess að úlf-
arnir náist.
APNorskur úlfaveiðimaður.
Líflátshótanir og fann-
fergi hamla úlfaveiðum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FRANCESC Vendrell, æðsti emb-
ættismaður Sameinuðu þjóðanna í
málefnum Afganistans, kvaðst í gær
vera andvígur þeirri ákvörðun
Bandaríkjastjórnar að loka skrif-
stofu Taleban-hreyfingarinnar í
New York. Hann sagði að ákvörð-
unin gæti torveldað friðarumleitanir
Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
fyrirskipaði lokun skrifstofunnar á
föstudaginn var vegna refsiaðgerða
sem öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í síðasta mánuði.
Refsiaðgerðirnar felast meðal ann-
ars í því að skrifstofum Taleban-
hreyfingarinnar erlendis verður lok-
að, auk þess sem bannað verður að
selja hreyfingunni vopn og leiðtogar
hennar mega ekki ferðast erlendis.
Markmiðið er að knýja Taleban-
hreyfinguna til að framselja Osama
bin Laden, sem er sakaður um að
hafa staðið fyrir hryðjuverkum.
Vendrell sagði að refsiaðgerðirnir
þyrftu ekki að koma í veg fyrir að
Taleban-hreyfingin héldi skrifstofu
sinni í New York. Skrifstofan myndi
gera talebönum kleift að halda
sambandi sínu við Sameinuðu þjóð-
irnar sem reyna nú að koma í veg
fyrir enn meiri hörmungar í Afgan-
istan. Um hálf milljón Afgana hefur
flúið heimili sín vegna þurrka og 20
ára borgarastyrjaldar.
Taleban-hreyfingin hótaði á
sunnudag að loka skrifstofu Samein-
uðu þjóðanna í Kabúl ef skrifstofu
hennar í New York yrði lokað.
Ákvörðuninni verður
ekki breytt
Nancy Soderberg, aðstoðarsendi-
herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, sagði að utanríkisráðu-
neytið myndi standa við ákvörðun
sína.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
viðurkennt stjórn Taleban-hreyfing-
arinnar sem hefur náð mestum hluta
Afganistans á sitt vald. Stjórn Burh-
anuddins Rabbanis forseta, sem tal-
ebanar steyptu af stóli, heldur enn
sæti Afganistans hjá Sameinuðu
þjóðunum, en norðurhluti landsins
er á valdi stuðningsmanna hennar.
Vendrell segir að Taleban-hreyf-
ingin hafi neitað að taka þátt í frið-
arumleitunum sem hann hóf í nóv-
ember vegna þess að refsiaðgerðir
Sameinuðu þjóðanna ná ekki til and-
stæðinga hennar í Afganistan.
Hreyfingin haldi því fram að Sam-
einuðu þjóðirnar séu hlutdrægar.
Deilt um skrif-
stofu Taleban í
New York
Sameinuðu þjóðunum. AP.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri