Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 39
SJÁLFSTÆÐISMENN lýsa því
gjarnan yfir á hátíðarstundum að
þeir séu helsta vörn og baráttumenn
fyrir viðskiptafrelsi og
frelsi manna til athafna
og frumkvæðis í at-
vinnulífi. Til að gæta
sanngirni skal það fús-
lega viðurkennt að
sjálfstæðismenn hafa
það til síns máls að þeir
hafa beitt sér fyrir því
með öðrum stjórnmála-
öflum að afnema höft
og færa þjóðina fram á
veginn með breyting-
um til meira frjálsræð-
is í atvinnulífi.
En Sjálfstæðisflokk-
urinn er vesæll og
getulaus þegar þarf að
takast á við erfið verk-
efni til að koma slíkum
leikreglum á í þjóðfélaginu ef þau
eru að einhverju leyti í andstöðu við
vilja öflugra hagsmunahópa. Ýmis
dæmi eru um að áhrifamiklir at-
vinnurekendur eða hópar slíkra aðila
hafi fullkomlega völdin í flokknum
og noti hann til að verja hagsmuni
sína í skjóli löngu úreltra reglna og
fyrirkomulags sem er aftan úr grárri
forneskju.
Og þegar kemur að hagsmunum
slíkra áhrifaafla er þessi flokkur
„frelsisins“ þess albúinn að hlaupa til
og beita pólitísku valdi sínu til að
deila og drottna í þeirra þágu.
Nýjasta dæmi af slíku tagi er
ákvörðun samgönguráðherra um að
handvelja þá sem eiga að fá leyfi til
að reka nýjustu gerð farsíma.
Það eru engin haldbær rök fyrir
því að nota slíkt fyrirkomulag til að
útdeila verðmætum. Mat á því hvers
virði þau eru getur hvergi farið fram
nema í samkeppni og viðskiptum
milli þeirra sem starfa á markaðn-
um. Verði handvalið að hætti sam-
gönguráðherra Sjálfstæðisflokksins
mun markaðurinn meta virði þeirrar
aðstöðu sem leyfið veitir í auknu
virði þess fyrirtækis sem happið
hlýtur.
Hið opinbera á ekki að mismuna
þegnum sínu með slíkum hætti. Það
er einungis ein leið fær við að leysa
úr því hver eigi að fá þessi réttindi.
Hún er fólgin í því að þeir sem starfa
á þessum markaði meti sjálfir hvers
virði aðstaðan er sem leyfið veitir og
keppi um leyfin á jafnræðisgrund-
velli.
Það er athyglisvert að sjá að póli-
tísk úrlausn Sjálfstæðisflokksins í
þessu mikilvæga máli skuli vera feg-
urðarsamkeppni og handval að hætti
samgönguráðherrans einmitt nú
þegar niðurstaða auðlindanefndar
liggur fyrir.
Leiðsögn auðlinda-
nefndar hafnað
Forsætisráðherra tók við niður-
stöðum þeirrar nefndar með mikilli
viðhöfn á haustdögum og lýsti því yf-
ir að þær væru afar merkilegar og
stjórnvöldum mikilvægar til stefnu-
mótunar hvað varðar nýtingu auð-
linda í framtíðinni. Hvaða leið ætti
nú að verða fyrir valinu í farsíma-
málinu ef litið er til tillagna auðlinda-
nefndarinnar? Er á því einhver vafi?
Nei, það er alveg skýrt í tillögum
nefndarinnar að besta leiðin og aðal-
niðurstaða hennar hvað varðar allar
auðlindir í þjóðareign er talin vera að
leyst verði úr því með venjulegum og
hefðbundnum hætti á markaði þar
sem jafnræðis er gætt hverjir fái að
nýta auðlindir og efnahagslega að-
stöðu sem ríkið úthlutar. Hver er
ástæðan fyrir því að
strax og á stjórnvöld
reynir eftir að tillögur
auðlindanefndar liggja
fyrir eru tillögurnar
látnar lönd og leið?
Svarið er fólgið í
áhrifavaldi sérhags-
munaafla inni í Sjálf-
stæðisflokknum. Þar á
bæ finnst valdamönn-
um eðlilegt að deila og
drottna. Þeim finnst
við hæfi að ráðamenn
flokksins velji hverjir
hljóti feitustu bitana úr
sameiginlegum kjöt-
kötlum þjóðarinnar.
Aðalniðurstaða auð-
lindanefndarinnar er
þeim ekki þóknanleg vegna þess að
veldi sérhagsmunahópanna er ógnað
verði jafnræði og réttlæti að leiðar-
ljósi stjórnvalda þegar miklum hags-
munum sem hið opinbera ræður yfir
er ráðstafað.
Vilja helst gleyma
Ýmislegt bendir reyndar til að
valdamenn í Sjálfstæðisflokknum
vilji að skýrsla auðlindanefndar
gleymist sem fyrst og verði alls ekki
höfð að leiðarljósi hvað varðar dýr-
mætustu auðlind þjóðarinnar, fiski-
miðin. Allt tal ráðamanna um að ná
sátt með þjóðinni er nú hljóðnað og
það var haft eftir sjávarútvegsráð-
herranum að hann teldi ekki „hundr-
að í hættunni“ þótt ekki kæmi nið-
urstaða á næstunni í málinu. Þetta
segir auðvitað allt um hver hugur
fylgdi máli í aðdraganda síðustu
kosninga þegar ráðamenn beggja
stjórnarflokkanna gáfu mikilfeng-
legar yfirlýsingar um að þeim væri
best treystandi til að finna leið til
þjóðarsáttar um þetta mál. Í þessu
gífurlega stóra hagsmunamáli
standa átökin um það hvort sérrétt-
indi þeirra sem nú eru í útgerð eigi
að verða grundvöllur að séreign út-
gerðarmanna á auðlindinni eða hvort
útgerðarmenn framtíðarinnar geti
nálgast veiðiréttinn á markaði þar
sem jafnræði og sanngjarnar leik-
reglur ríkja.
Aðskilnaður veiða
og vinnslu
En það eru fleiri mikilvæg mál
sem varða athafna- og viðskiptafrelsi
sem ekki eru leyst vegna áhrifa frá
hagsmunahópum innan Sjálfstæðis-
flokksins.
Það að rjúfa tengslin milli veiða og
vinnslu í sjávarútvegi er eitt af brýn-
ustu viðfangsefnunum. Mörg dæmi
eru um að útgerðarmenn sem reka
fiskvinnslu selji sjálfum sér fiskinn á
helmingi lægra verði en fæst á mark-
aði. Eindregin krafa sjómanna um
aðskilnað veiða og vinnslu hefur
lengi legið fyrir og einnig fiskvinnslu
án útgerðar. Eftir tilkomu fiskmark-
aðanna hafa fyrirtæki sem ekki eiga
kvóta barist fyrir lífi sínu og tekist að
lifa af þrátt fyrir hrikalega mismun-
un sem felst í verðlagningu útgerða á
afla til eigin vinnslu. Þessi árangur
fiskvinnslu án útgerðar er aðdáun-
arverður en hefur hjá mörgum fyr-
irtækjum að mestu leyti byggst á að
flytja út ferskan fisk með flugi. Nú
hafa stóru útgerðarfyrirtækin sem
óðast verið að sækja inn á þennan
markað og þau geta, vegna þeirrar
aðstöðu sinnar að fá fiskinn á miklu
lægra verði til vinnslunnar, auðveld-
lega rutt hinum sem fyrir eru úr
vegi. Þau undirbuðu á þessum mark-
aði í fyrra þannig að verðið lækkaði
verulega.
Það væri engin ástæða til að
kvarta undan slíkri samkeppni ef
þessi stóru fyrirtæki kepptu með
sama hætti um hráefnið og hinir sem
ekki eru í útgerð.
Steintröllið hefur
dagað uppi
Að deila og drottna í þágu sér-
hagsmuna og þeirra sem forystunni
eru þóknanlegir er sérgrein Sjálf-
stæðisflokksins.
Fegurðarsamkeppni samgöngu-
ráðherranns er ágætt dæmi um
þessa stefnu flokksins.
Hámarki nær þó þjónkun flokks-
ins við sérhagsmuni hinna fáu í sjáv-
arútvegsstefnu flokksins.
En hún endurspeglast líka í því að
flokkurinn daufheyrist við kröfunni
um að allur fiskur taki verð á mark-
aði og um aðskilnað veiða og vinnslu.
Þetta fyrirkomulag ver Sjálfstæð-
isflokkurinn og stendur að baki
LÍÚ-forystunni, sem leggst gegn öll-
um hugmyndum um breytingar í
frjálsræðisátt. Og nú er svo komið að
stóru útgerðarrisarnir í skjóli þeirr-
ar séraðstöðu sem kvótaeignin færir
þeim stefna í það að drepa niður
þennan vaxtarbrodd sem hefur falist
í framtaki fiskvinnslufyrirtækja án
útgerðar. Og Sjálfstæðisflokkurinn
ætlar ekki að lyfta hendi til að koma
á viðskiptaumhverfi sem tryggir
jafnræði milli þeirra sem starfa á
þessum markaði. Steintröllið hefur
dagað uppi.
Sanngjarnar leikreglur,
viðskiptafrelsið og
Sjálfstæðisflokkurinn
Jóhann
Ársælsson
Viðskiptafrelsi
Verði handvalið að
hætti samgönguráð-
herra Sjálfstæðis-
flokksins, segir Jóhann
Ársælsson, mun mark-
aðurinn meta virði
þeirrar aðstöðu sem
leyfið veitir í auknu
virði þess fyrirtækis
sem happið hlýtur.
Höfundur er alþingismaður.
KARLMENN
Saw Palmetto
FRÁ
Tvöfalt sterkari
APÓTEKIN
D
re
if
in
g
J
H
V
Útsala Útsala
Pipar & salt, Klapparstíg 44
FRÁBÆRAR SNYRTIVÖRUR
Handsnyrtivörur frá = og Depend.
Augabrúnaliturinn í bláu pökkunum frá Tana.
Vax- og hitatæki til háreyðingar, háreyðingarkrem,
vaxstrimlar og svitalyktareyðir frá
Frábært verð og frábær árangur.