Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN
42 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LISTAHÁSKÓLI Íslands hefur
ekki farið hátt í almennri umræðu
fyrr en nú í enda janúar. Ástæðan er
skýrsla sem Björn
Stefán Hallsson, arki-
tekt hjá húsagerðar-
stofunni O’Donnell,
Wicklund, Pigozzi and
Peterson Architects
Inc. í Chicago, hefur
lokið fyrir stjórn
Listaháskóla Íslands.
Skýrsla Björns fjallar
um mat á húsnæði fyr-
ir skólann, staðsetn-
ingu hans og ákjósan-
legt umhverfi fyrir
stofnunina.
Ekki var skýrslunni
fyrr lokið en greinar
tóku að ryðjast fram á
síðum Morgunblaðs-
ins. Í byrjun mánaðar-
ins birtist svo forystugrein um mál-
ið. Þar eru aðeins tveir staðir
nefndir af þeim hálfum öðrum tug
tillagna sem skýrslan hefur að
geyma og fagnað að vænta megi
verðugrar samkeppni um þessa tvo
kosti. Annar er Miklatún í Reykja-
vík en hinn er lóð á gamla hafn-
arbakkanum í Hafnarfirði. Fyrri til-
lögunni fylgir ósk stjórnar
Listaháskólans um að borgaryfir-
völd kanni möguleikann á vestan-
verðu Miklatúni skólanum til handa.
Hin tillagan var borin fram á fundi í
Hafnarborg 29. janúar sem Magnús
Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, efndi til og fimmtíu hafnfirskir
listamenn sóttu. Á fundinum var
samþykkt áskorun til viðkomandi
yfirvalda þess efnis að þau legðu sitt
af mörkum til að tryggja Hafnar-
firði þessa allt í einu eftirsóttu
stofnun.
Eins og ávallt ganga mál þannig
fyrir sig í okkar litla samfélagi að
um þau ríkir dauðaþögn í langan
tíma – mörg ár ef út í það er farið –
uns stíflan brestur allt í einu og
ályktanir eru teknar á örskotsstund
á grundvelli tíunda hluta þeirra til-
lagna sem settar eru fram af sér-
fræðingum þeim sem kynnt hafa sér
málin í þaula. Þá eru þeir sem málið
varðar helst – í þessu tilviki þeir
sem starfa innan veggja Listahá-
skóla Íslands – seinast spurðir álits.
Því er fljótsvarað að hvorugur kost-
urinn í forystugrein Morgunblaðs-
ins, fyrsta febrúar, er ákjósanlegur í
ljósi allra hinna tillagna Björns
Stefáns og arkitektastofunnar í Chi-
cago. Raunar mætti ætla að hlut-
aðeigandi þrýstihópar – þeir sem
annaðhvort vilja sjá Listaháskólann
á Miklatúni eða á gamla hafnar-
bakkanum í Hafnarfirði – hefðu ekki
nennt að velta lengi fyrir sér inni-
haldi skýrslunnar, kanna hug þeirra
sem vinna eiga innan veggja stofn-
unarinnar – kennara og nemenda –
eða skoðað staðsetningu sambæri-
legra stofnana hjá öðrum vestræn-
um þjóðum.
Ef við hugum fyrst að gamla
Klambratúninu og staðsetningu
Listaháskóla Íslands í norðvestur-
horni garðsins, þá geta gatnamót
Rauðarárstígs og Flókagötu engan
veginn talist til miðborgar Reykja-
víkur. Í skýrslunni er þó bent á að
miðborg Reykjavíkur sé ákjósanleg-
asti staðurinn fyrir
skólann. Hverfið um-
leikis Kjarvalsstaði er
ótvírætt íbúðarhverfi,
eða svefnbær ef svo má
að orði komast. Ef frá
er talin kaffiterían á
Kjarvalsstöðum er
hvorki vott né þurrt að
hafa í nágrenni vænt-
anlegs háskóla. Þeir
sem kynnst hafa mötu-
neytismálum Listahá-
skólans og forvera
hans, bæði í Laugar-
nesi og Skipholti, kæt-
ast vart við tilhugs-
unina um að þurfa að
skokka í frímínútum út
á Hlemm til að fá eitt-
hvað í svanginn, eða kverkarnar.
Þá er það hreinn ídealismi að ætla
að íbúar í Norðurmýrinni taki því
átölulaust að þrengt sé að þeim með
voldugum skólabyggingum og það á
eina græna reitnum sem þeir hafa
sér til andardrátts og líkamlegrar
útrásar. Gleymum ekki að íbúar við
Miklubraut eru þegar í stríði út af
hávaða, umferð og loftmengun. Ef
klípa á af eina græna svæðinu sem
þeir hafa sér til hugarhægðar er ég
hræddur um að Listaháskóli Íslands
auki ekki vinsældir sínar meðal
væntanlegra nágranna. Eða hvað
skyldi borgarstjórnin segja, sem
lent hefur í skæðu áróðursstríði út
af mun minni reit en Klambratúninu
norðvestanverðu? Þá kemur Hafn-
arfjörður vart til greina þegar hug-
að er að ákjósanlegum stað fyrir
Listaháskóla Íslands. Með fullri
virðingu fyrir listalífinu í Hafnar-
firði og ágæti bæjarins að öðru leyti
er röksemdafærslan um að slíkur
skóli yrði mikil lyftistöng fyrir sam-
félagið undir Hvaleyrarholti öfug-
snúningur á öllum raunhæfum
spurningum. Við spyrjum ekki hvað
Listaháskóli Íslands geti fært Hafn-
arfirði heldur hitt hvað Hafnarfjörð-
ur geti gert fyrir Listaháskóla Ís-
lands.
Í framhaldi af því spyrjum við
hvort Hafnarfjarðarbær treysti sér
til að gera betur við væntanlegan
Listaháskóla Íslands en Reykjavík-
urborg, eða hvort það sé líklegt að
stofnuninni vegni betur í Firðinum
en í Reykjavík. Þegar spurningunni
er þannig snúið og Hafnfirðingar
inntir eftir því hvort þeir vilji axla
allar þær skuldbindingar sem óhjá-
kvæmilega fylgja stofnun á borð við
Listaháskóla Íslands er ég ekki í
vafa um að þeir yrðu því fegnastir
að verða af bikarnum.
Nú er það svo að Ingibjörg Sólrún
hefur lengi haft augastað á Tollhús-
inu í Tryggvagötu til handa Listahá-
skólanum en fjármálaráðherra neit-
ar að fallast á makaskipti til að
henni megi verða að ósk sinni. Þó er
enn betri kostur steinsnar frá Toll-
inum. Það er bílastæðið stóra vestan
við Borgarbókasafnið. Stækkunar-
möguleikar skólans á þeim stað eru
margfaldir á við túnið umhverfis
Kjarvalsstaði. Þá er slíkur kostur
mun nútímalegri en fornfáleg
draumsýn um klassíska akademíu í
trjálundunum við Rauðarárstíg. Nú
er árið 2001 en ekki 1801, og listin
kærir sig ekkert um verndað um-
hverfi í grænum haga fjarri ys og
þys hvunndagsins. Á sama hátt
krefst listfræðslan þess að vera óað-
skiljanlegur hluti athafnagrósk-
unnar og því koma syfjaðir grasbal-
arnir í Norðurmýrinni vart til
greina sem heppilegt staðarval fyrir
Listaháskóla Íslands.
Listahá-
skólinn – hvar
og hvenær?
Halldór Björn
Runólfsson
Höfundur er kennari við
Listaháskóla Íslands.
List
Nú er árið 2001 en ekki
1801, segir Halldór
Björn Runólfsson, og
listin kærir sig ekkert
um verndað umhverfi í
grænum haga fjarri ys
og þys hvunndagsins.
FRÆÐSLUFUNDUR um sorg og
sorgarviðbrögð verður í Kirkjulundi
í Keflavík fimmtudagskvöld kl.
20.30.
Sr. Sigurður Pálsson, sóknar-
prestur Hallgrímssóknar, flytur er-
indi sem hann nefnir Líf í sorg, líf í
von. Hann mun flytja mál sitt með
myndskyggnum og m.a. ræða um
hve fáir hafa í raun þrek til að gera
sorg annarra að sinni og hvort
kirkjan eigi einhver svör við þján-
ingunni. Hann segir m.a.: „Kirkjan
boðar ekki skyndilausnir. Hún tek-
ur sorgina alvarlega. En hún bendir
á hann sem býður fylgd og hún á
sjálf að bjóða fylgd, svo tár syrgj-
andans þorni, svo augu syrgjandans
ljúkist upp og hann eygi von að
nýju í fylgd Jesú Krists.“
Sr. Sigurður Pálsson gaf út bók-
ina Börn og sorg árið 1998. Bókin
er mikill fengur fyrir fjölskyldur
sem eru að takast á við sorg og
missi. Að loknu erindinu mun hann
sitja fyrir svörum ásamt konu sinni,
Jóhönnu Möller.
Fjölskyldu-
eftirmiðdagar
í opnu húsi
ALLA fimmtudaga er opið hús í
safnaðarheimili Dómkirkjunnar í
Lækjargötu 14a (gamla iðnaðar-
mannafélagshúsinu) milli 14:00 og
16:00. Á sama tíma og á sama stað
eru einnig fjölskyldueftirmiðdagar
og inni í þeim er tónlistarnámskeið
milli kl. 15:00 og 15:30 fyrir ung
börn í umsjón Gerðar Bolladóttur
söngkonu. Þessi námskeið eru fólki
að kostnaðarlausu. Fimmtudaginn
15. febrúar ætlar Auður Bjarna-
dóttir að koma á fjölskyldueftir-
miðdag, en hún býður upp á jóga-
leikfimi fyrir mæður og ungbörn á
mömmumorgnum hjá Planet-lík-
amsræktarstöðvunum. Hún mun
kynna okkur þessa leikfimi milli kl.
14:30 og 15:00 og kl. 15:00 tekur
tónlistarnámskeiðið við. Kaffiveit-
ingar á miðhæð safnðarheimilisins á
vægu verði. Verið velkomin.
F.h. Dómkirkjunnar,
Bolli Pétur Bollason.
Konur í
kirkjunni – systur
í Kristi Jesú
SAMVERUSTUND með altaris-
göngu í Friðrikskapellu í Reykja-
vík, miðvikudagskvöldið 14. febrúar
kl. 20. Allir velkomnir.
Konur í kirkjunni - systur í Kristi
Jesú eru konur sem hafa um árabil
staðið fyrir svonefndum Systradög-
um. Upphaf Systradaga var á þann
veg að þrjár konur sem höfðu
myndað bænaþrennu og beðið sam-
an um nokkurt skeið, fundu hjá sér
köllun til að hafa kyrrðardaga og
bjóða konum að koma til að upp-
byggjast saman í bæn og kyrrð. Á
þessum dögum hefur verið lögð sér-
stök áhersla á að biðja fyrir kirkju
Krists á Íslandi og þjónum hennar.
Voru fyrstu Systradagarnir haldnir
1989 og hafa síðan verið haldnir í
20-30 skipti á ýmsum stöðum á
landinu – hin síðari ár á Imbrudög-
um að vori og hausti í Skálholti.
Núna eru það 8 konur sem sjá um
undirbúning og skipta með sér
verkum eftir aðstæðum.
Undirbúningsnefnd.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10–12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Þorrasamvera
eldri borgara kl. 12.10. Helgistund,
þorramatur. TTT-starf (10–12 ára)
kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10–12.
Fræðsla: Afbrýði eldri barna. Sig-
ríður Jóhannesdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
Háteigskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 11–16 í Setrinu í umsjón
Þórdísar Ásgeirsdóttur, þjónustu-
fulltrúa. Viðtalstímar Þórdísar eru
alla virka daga kl. 10–11, sími 551-
2407. Kórskóli fyrir 5–6 ára börn kl.
16. Barnakór 7–9 ára kl. 17. Kvöld-
bænir og fyrirbænir í dag kl. 18.
Langholtskirkja. Þorraskemmtun
eldri borgara er kl. 12.30–16.
Bænagjörð, sálmasöngur og orgel-
spil er í kirkjunni kl. 13–13.30. Síð-
an er þorramatur (kr. 1.000) á borð-
um í safnaðarheimilinu. Eftir
matinn gefst tækifæri á að taka í
spil, hlusta á upplestur eða mála á
dúka og keramik. Stundinni lýkur
með spjalli um þorrann og söng-
stund á léttu nótunum undir stjórn
Jóns Stefánssonar organista. Allir
eldri borgarar eru hjartanlega vel-
komnir.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Kirkjuprakkarar 6–7 ára
kl. 14.10. Fermingarfræðsla kl.
19.15. Unglingakvöld Laugarnes-
kirkju og Þróttheima kl. 20, 8.
bekkur.
Neskirkja. Orgelandakt kl. 12. Jón-
as Þórir leikur. Ritningarorð og
bæn. Starf fyrir 7 ára börn kl. 14–
15. Opið hús kl. 16. Myndasýning
frá Kverkfjöllum og Herðubreiðar-
lindum. Bænamessa kl. 18. Sr. Hall-
dór Reynisson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverð-
ur á eftir í safnaðarheimilinu. Starf
fyrir 11–12 ára börn kl. 17.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13–16.
Handmennt, spjall og spil. Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 16. Bænar-
efnum er hægt að koma til presta
safnaðarins. Kirkjuprakkarar 7–9
ára kl. 16–17. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17–18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju fyrir
10–12 ára drengi kl. 17.30. Ung-
lingastarf KFUM&K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Opið hús fyrir fullorðna
til kl. 15. Bæna- og þakkarefnum
má koma til Lilju djákna í síma
557-3280. Látið einnig vita í sama
síma ef óskað er eftir keyrslu til og
frá kirkju. Starf fyrir 9–10 ára
stúlkur kl. 15–16. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan há-
degisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. Kirkju-
krakkar í Engjaskóla kl. 18–19.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Samvera 8–9 ára
barna í dag kl. 16.45–17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. TTT-sam-
vera 10–12 ára barna í dag kl.
17.45–18.45 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og
í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10–12 í safnaðarheimilinu.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14–16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
í hádegi kl. 12.00, altarisganga og
fyrirbænir. Léttur hádegisverður
frá kl. 12:30–13.00.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurs-
hópar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir
guðfræðingur. Alfanámskeið í
Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkj-
unni um kl. 22.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. STN-starf í
dag kl. 16.30 í umsjón Vilborgar
Jónsdóttur og er ætlað börnum 6–9
ára.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Helgistund á Hraunbúðum kl. 11.
Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni
kl. 12–12.20. Opið hús í KFUM&K-
húsinu kl. 20.
Boðunarkirkjan. Námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar, „Lærum að
merkja biblíuna“, í kvöld kl. 20.
Mörg spennandi efni verða tekin
fyrir og biblían verður aðgengilegri.
Allir velkomnir.
Kapella sjúkrahúss Hvammstanga.
Bænastund í dag kl. 17. Allir vel-
komnir.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Keflavíkurkirkja
Safnaðarstarf
Líf í sorg,
líf í von
KIRKJUSTARF