Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 43
✝ Arne FriðrikKristensen fædd-
ist á Þormóðsstöðum
við Skerjafjörð 12.
júlí 1925. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans aðfaranótt
sunnudagsins 4.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Arne Kristensen frá
Þelamörk í Noregi, f.
22. maí 1890, d. 7.
október 1953, og
Ingibjörg Þórðar-
dóttir frá Efra-Seli í
Stokkseyrarhreppi,
f. 22. maí 1887, d. 14. janúar 1957.
Systkini Arne Friðriks voru Anna
Karen, f. 23.5. 1915, d. 1.5. 1997;
andvana drengur, f. 1917, Eðvarð
Kristján, f. 4.10. 1919; Þórður
Marteinn, f. 27.2. 1921; d. 19.4.
1997; Hlín Hulda, f. 1.8. 1922, d.
28.4. 1984; Ásta Kristín, f. 10.12.
1923, d. 19.1. 1995; Baldur Sig-
urður, f. 1.4. 1929; Sonia Ingi-
björg, f. 9.3. 1931. Arne Friðrik
átti einnig tvö hálfsystkini af
móður. Ingvar Hjálmtý Sigurðs-
son, f. 11.1. 1911, d. 3.12. 1979,
Sigurlín Unnur Sigurðardóttir, f.
9.11. 1913, d. 27.12. 1998.
Arne Friðrik kvæntist 22. sept-
ember 1946 Ingunni
Karlsdóttur frá Reyð-
arfirði. Foreldrar
hennar voru Karl
Björgólfur Björnsson
frá Stuðlum í Norð-
firði, f. 1889, d. 1995,
og Lilja Einarsdóttir
frá Hofteigi á Jökul-
dal, f. 1894, d. 1980.
Börn Arne Friðriks
og Ingunnar eru: 1)
Karl, f. 12.1. 1947,
kvæntur Oktavíu
Ágústsdóttur. Þau
eiga einn son. Karl á
þrjá syni fyrir. 2)
Lilja, f. 5. febrúar 1949, gift Unn-
steini Jóhannssyni. Þau eiga þrjú
börn. Eitt þeirra er látið. 3) Arn-
heiður Ingibjörg, f. 27. júlí 1954,
gift Óskari Diano, búsett í Banda-
ríkjunum, þau eiga þrjú börn. 4)
Hrefna, f. 7. febrúar 1960, gift Gil
Cereno, búsett í Bandaríkjunum.
Hrefna á þrjú börn frá fyrra hjóna-
bandi. 5) Jóhanna Marta, f. 10.
mars 1968, gift Gunnari Sigurðs-
syni, þau eiga þrjú börn.
Arne Friðrik vann í 50 ár sem
bifreiðastjóri hjá flugmálastjórn.
Útför Arne fer fram frá Nes-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Okkur langar að kveðja þig,
elsku pabbi, með örfáum orðum
þótt erfitt sé að koma þeim á blað.
Þrátt fyrir sorg og söknuð, var
hvíldin þér kærkomin og við hugg-
um okkur við það. Það er margt
sem kemur upp í hugann, því þær
stundir sem við áttum með þér voru
yndislegar. Það var alveg sama
hvað bjátaði á hjá okkur, þú gast
alltaf leyst úr vandanum. Þú varst
hafsjór af róðleik um landið okkar,
og nutum við þess í þeim ferðum
sem við fórum með þér, og eru þær
stundir ógleymanlegar. Þú varst
svo hlýr og alltaf var stutt í húm-
orinn og stríðnina.
Elsku pabbi, Guð geymi þig og
varðveiti og lýsi þér veginn til sín.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast
svo margt sem um huga menn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Börnin.
Nú þegar afi minn og nafni hefur
lokið sinni vist á þessari jörð, lang-
ar mig að minnast hans með fáein-
um orðum.
Afi minn var einstakt ljúfmenni
og afskaplega barngóður. Hann
elskaði ömmu heitt, og alltaf voru
þau saman hvert sem þau fóru.
Bernskuminningar mínar um afa
tengjast flestar Reynimelnum þar
sem afi og amma bjuggu lengst af.
Þar var oft líf í tuskunum. Afi ham-
aðist með okkur krakkana í eltinga-
leik og hann brá sér í allra kvikinda
líki s.s úlfa og Grýlu. Það var mikið
hlegið og oft var manni orðið ansi
heitt, og þá sérstaklega þegar við
strákarnir flugumst á við afa.
Og aldrei fóru afi og amma í sum-
arbústað í Munaðarnesi öðruvísi en
að taka með sér heilan her af börn-
um og koma svo í Krummaklett og
sækja mig. Þar var oft mikið fjör og
mikið brallað.
Sumarið 1986 var ég svo heppinn
að fá að vinna með afa á Reykjavík-
urflugvelli, þar sem afi vann í 50 ár.
Ég var þá unglingur og kynntist afa
á nýjum vetfangi.
Hann sinnti vinnunni af sam-
viskusemi, var afskaplega duglegur
og góður vinnufélagi. Og ég mun
aldrei gleyma ferðinni sem við fór-
um um Vesturlandið og völtuðum
flugbrautir og máluðum „hatta“.
Við vorum saman tveir nafnarnir og
hittum engan. Þetta var dagurinn
okkar.
Hin seinni ár, eftir að ég flutti til
Akureyrar og eignaðist þar mína
fjölskyldu, áttum við mikið og
ómetanlegt samband við afa og
ömmu. Við komum oft í heimsókn á
Reynimelin og fengum þar alltaf
höfðinglegar móttökur. Einnig
komu afi og amma norður til okkar
á sumrin og gistu hjá okkur, þá var
alltaf gaman og mikið hlegið. Afi
var alltaf til í að leika við langaf-
abörnin sín, lék úlfa og gamlar kerl-
ingar, fór í eltingaleiki og espaði
þau í að þrasa við sig og ekki var
langt í stríðnina. Það hafði ekkert
breyst frá því ég var lítill. Á kvöldin
sátum við svo fullorðna fólkið og
spiluðum og spjölluðum. Þetta voru
ómetanlegar stundir.
Elsku afi, þú varst engum líkur
og þín verður sárt saknað.
Elsku amma, missir þinn er mik-
ill. Þú og afi voruð elskendur, bestu
vinir og sálufélagar í meira en hálfa
öld. Ég bið góðan guð að vaka yfir
þér og styrkja þig á þessum erfiða
tíma. Og mundu að þú ert alltaf vel-
komin heima hjá okkur.
Guð blessi afa minn og nafna og
minninguna um hann.
Nafni,
Arne Friðrik Karlsson.
Í minningu afa míns Arne Frið-
rik Kristensen.
Ástarfaðir himinhæða
heyr þú barna þinna kvak.
enn í dag og alla daga
í þinn náðarfaðm mig tak.
(Steingr. Thorsteinsson.)
Ég kveð þig, afi minn, með þess-
ari bæn og bið góðan guð að varð-
veita þig.
Ólafur Örn Karlsson.
Ég hef ekki verið hár í lofti þegar
minningar um hann afa minn hefj-
ast, þá vorum við bræður að kepp-
ast um athygli hans, berir að ofan
og rennandi sveittir í hörkuáflog-
um. Já, það var ekkert lítið sem
gekk á þegar okkur tókst að lokka
hann í eltingaleik, hann skellihlæj-
andi á hlaupum eftir okkur á Reyni-
melnum, og þegar hann fór úr öðr-
um leðurinniskónum og lét hann
smella í lófann þá skríkti krakka-
skarinn. Já, ég óska þess að ég
verði jafnskemmtilegur afi og hann.
Ekki vantaði hlýju í okkar garð,
því það var og er eðlilegt að allir
kyssist og faðmist við komu og för,
já, helst líka aðeins þess á milli.
Er hann að frysta?, skyldi hann
snjóa? Þetta mátti heyra afa tauta
út í glugga, ég hélt ungur drengur
að hann afi minn bæri ábyrgð á öll-
um flugsamgöngum á þessu landi,
hann gaf sjálfan sig allan í starfið
því heima við hafði hann áhyggjur
af flugbrautunum. Þarna er hann
afi minn, benti ég öllum á stoltur,
þegar sást til hans þeyta snjónum
af brautunum. Á sumrin fór hann
margar ferðir út á land á vörubíln-
um að flytja ýmsan varning og fór
ég með í eina ógleymanlega ferð.
Það voru góðar sögur úr öllum
þessum ferðum, lýsing á landinu
sínu kryddað með gamanmáli.
En mér finnst nú vænst um sög-
una okkar, hana geymi ég svo lengi
sem ég lifi og allar minningar um
ljúfan og elskulegan afa.
Ég þakka guði okkar samveru-
stundir, við höldum gott þorrablót
saman seinna.
Sigurjón Kristensen.
Á vordögum árið 1946 var Frið-
rik mættur til starfa hjá Flugmála-
stjórn, þá ungur og glæsilegur
maður. Seinni styrjöldinni var ný-
lokið og við Íslendingar teknir við
Reykjavíkurflugvelli. Hann hóf
starf sitt sem vörubílstjóri hjá
stofnuninni og var afar farsæll í því
starfi í samfleytt hálfa öld. Á hverju
vori í marga áratugi átti hann m.a.
þann fasta starfa að fara hringferð
um landið og fara á hvern einasta
skráðan flugvöll utan stóru áætlun-
arvallanna og valta þá og slétta.
Þessir flugvellir skiptu mörgum
tugum og eiga íslenskir flugmenn
honum mikið að þakka hversu vel
þetta var gert. Varla er hægt að
benda á nokkurn þann mann sem
hefur þekkt betur til flugvalla á Ís-
landi en Friðrik. Allt frá stofnun
Félags flugmálastarfsmanna ríkis-
ins, 6. desember árið 1946, var
Friðrik traustur félagi í þau 50 ár
sem hann vann hjá Flugmálastjórn.
Við sem eftir erum þökkum hon-
um fyrir samfylgdina og minnumst
hans sem trausts og góðs félaga.
Við vottum fjölskyldu og ættingj-
um dýpstu samúð.
Kveðja frá
Félagi flugmálastarfs-
manna ríkisins.
ARNE FRIÐRIK
KRISTENSEN
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Sjáum einnig um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
!
"
"# "$ " "$"
% & #" &# " '"
! "# $ %
&&'
(! ) $ *#$
+
+''
$()"
' # $()"
' $()"
' $()"
$ $()"
$ '* #(+#
+ $ $( ,
, -
-. .
/$$0
& #" &# " '"
1' % 2+ 3
41
. " ' &$+# $"4 &$+#
4"## ## &$+#
&$()" 5)# 6 $ 7"# +#
5)## &$+# 2) "$( , 7"$()"
&$" , &$+# "# ## ## ()"
* #* # + * #* #* #,
/
8.9-6 6
5
::
"#+$"
#(
0 (-
1
!
' ; 1 ## '41+# 6 "1# <, 5)#()"
6 ""## =
6 "1# '41()" ## 6 , ' #(+#
6 $ '41+# ## , " )#()"
* #* # + * #* #* #,