Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 44

Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 44
MINNINGAR 44 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðmunda Sig-urlaug Péturs- dóttir fæddist á Lækjarbakka á Skagaströnd 24. október 1914. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hlíð á Akureyri 2. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Marta Guð- mundsdóttir, f. á Torfalæk í Torfa- lækjarhreppi 22. janúar 1885, d. 31. mars 1957, og Pétur Jakop Stefánsson, f. á Höfðahólum í Vindhælishreppi, nú Höfðahreppi, 29. janúar 1878, d. 29. júní 1962. Systkini Guð- mundu: 1) Sigurbjörg Pétursdótt- ir (hálfsystir, samfeðra), f. 26. ágúst 1906, d. 28. júlí 1993. 2) Guðrún Margrét Pétursdóttir, f. 20. október 1915. 3) Jóhann Frí- mann Pétursson, f. 2. febrúar 1918, d. 13. janúar 1999. 4) Elísa- bet Pétursdóttir, f. 12. ágúst 1919. 5) Ingi- björg Kristín Péturs- dóttir, f. 1. september 1921. 6) Ófeigur Pét- ursson, f. 1. mars 1928. Guðmunda giftist 26. september 1940 Finni G.K. Daníels- syni. Finnur var fædd- ur 24. nóvember 1919 á Vöðlum í Önundar- firði, d. 26. júlí 1999. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur Jón Bjarni Finnsson, f. 18. maí 1942. Kona hans er Hallbera Ágústsdóttir, f. 19. október 1938. Þau eiga þrjú börn. 2) Valur Georg Finnsson, f. 3. júlí 1945. Kona hans er Arna Dóra Svavarsdóttir, f. 7. desember 1959, og eiga þau eina dóttur. Útför Guðmundu fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. „Æ, ertu þá kominn? Mikið er nú langt síðan.“ Þetta sagði hún við mig fyrst orða, þegar ég settist við rúm- stokkinn hjá henni í síðustu heim- sókn minni, kvöldstund á úthallanda sumri í fyrra. Ekki var sú heimsókn löng, fjölskyldan á hraðferð austur á land, og talsvert um liðið frá því að ég kom síðast til hennar eins og marka má af orðunum. Síðustu árin átti hún skjól á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, beygð af sjúkdómi sem olli því að minnið var orðið gloppótt og hún bar oft varla eða ekki kennsl á gesti, jafnvel þá sem verið höfðu henni nánir. Og nú er hún öll, 86 ára gömul, fékk hægt andlát, nýkomin á ról árdegis á kyndilmessu. Í munni mínum og okkar bræðra þriggja og síðar eiginkvenna okkar og barna hét hún aldrei annað en Munda frænka, en fullt nafn hennar var Guðmunda Sigurlaug Péturs- dóttir. Hún lifði tímana tvenna og þrenna, því að dagsins ljós leit hún fyrst í litlum torfbæ á Skagaströnd 24. október 1914, fyrsta barn Mörtu Guðmundsdóttur og Péturs Stefáns- sonar á Lækjarbakka. Þar ólst hún upp við efni, sem vísast voru knöpp, en atlæti sem ég veit, að hefur verið gott. Því kynntist ég sjálfur síðar, þegar ég fékk að vera hjá ömmu og afa á Skagaströnd á sumrum. Þegar ég hugsa til þeirra daga er Lækj- arbakki höfuðból, Spákonufell fjalla mest og fegurst og alltaf sól í heiði. Einhverjar fyrstu bernskuminn- ingar mínar eru frá Skagaströnd. Ekki er mér þó alltaf ljóst hvað séu raunverulegar minningar og hvað sögur sem Munda frænka sagði mér löngum um ýmislegt skoplegt, sem drifið hefði á daga mína og frænd- systkina á líku reki, því að öll vorum við jafnvelkomin til ömmu og afa. Ung fór Munda þó að heiman. Fimmtán eða sextán ára hélt hún til Akureyrar og í Eyjafirði var hún næsta áratuginn við nám og störf og var þá langdvölum á heimili Helga Pálssonar, útgerðarmanns á Akur- eyri, og Kristínar Pétursdóttur, konu hans, mikils sæmdarfólks. Um skeið vann hún við hjúkrun að Krist- nesi, enda stóð hugur hennar til hjúkrunarnáms. Svo varð þó ekki, því að ástin setti strik í þann reikn- ing. Árið 1940 gekk hún að eiga ung- an mann, Finn Daníelsson. Þau sett- ust að í Reykjavík og bjuggu lengst af í Barmahlíð, og þar átti ég alltaf vísan samastað. Fljótt varð Munda því sú kona sem í vitund minni kom næst móður minni. Þær systur voru líka miklar vinkonur, trúnaðarvin- konur, enda skildi þær aðeins tæpt ár. Raunar tókst líka fljótt mikill vinskapur með þeim svilum, föður mínum og Finni. Heimsóknir voru miklar og tíðar og það hélst svo, þótt Munda og Finnur flyttu 1952 norður og settust að á Akureyri, þegar Finnur gerðist stýrimaður og síðar skipstjóri á togurum Útgerðarfélags Akureyringa. Þegar börn voru vaxin úr grasi, tóku þau upp þann sið að fara fjögur saman um landið. Það tíðkuðu þau, allt þar til faðir minn féll frá 1981. Oft og löngum var ég gestur þeirra Mundu og Finns, hér syðra og þar nyrðra og raunar fjölskyldan öll. Ekki fór milli mála að innan- stokks réð frænka mín ríkjum og ég held að Finnur hafi unað því vel. Höfðingsskapur og gestrisni ein- kenndi bæði. Alla tíð var gestkvæmt mjög í Norðurgötunni, frændgarð- urinn stór og vinirnir margir, óvenju margir, held ég, því að slík hjarta- hlýja var eitt einkenna Mundu að allir hlutu eins og ósjálfrátt að laðast að henni. Hlýja hennar var af því tagi að þyrfti maður halds og trausts við var auðvitað að hvort tveggja væri að finna hjá henni. Það sem henni var trúað fyrir fór ekki lengra. Umhyggja hennar og ástúð átti ekk- ert skylt við væmni heldur var þess háttar sem kemur krókalaust frá hjartanu. Aldrei vissi ég hana leggja illt til nokkurs manns, þótt því færi einnig fjarri að hún lægi á skoðunum sínum um menn og málefni, teldi hún það nokkru varða. Létt var hún alla jafna í spori, glaðvær og gamansöm. Af sjálfu leiðir að í lífi hennar sem annarra setti þó annað kastið niður skúr, en því flíkaði hún ekki. Tvö fjögurra barna þeirra Finns, piltur og stúlka, létust í fæðingu, en á legg komust tveir synir, Guðmundur Jón Bjarni og Valur Georg. Barn að aldri velti ég því stundum fyrir mér hvort ég hlyti ekki að vera eftirlætisfrændinn hennar Mundu svo góð sem hún væri mér og nær- gætin. Nú er mér þó nær að ætla að á þessa lund höfum við öll hugsað, systkinabörn hennar, hvert um sig. Slíkt var ástríki þessarar konu, þeg- ar við áttum í hlut. Hún lét sér ekki nægja að stýra rausnarheimili þar sem gestagangur var jafnan mikill. Jafnframt lét hún fljótt til sín taka í félagslífi, eftir að norður kom, starfaði ötullega í kven- félaginu Hlíf í fjölda ára. Má því vel geta þess hér að hljóðara hefur verið en skyldi um það hver hlíf Hlífar- konur hafa alla tíð verið akureyrsk- um og norðlenskum börnum, fyrst með rekstri barnaheimilisins Pálm- holts á Akureyri og síðar með því að færa Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri að gjöf margvísleg tól og tæki. Í meira en þrjá áratugi var Munda líka umboðsmaður Happ- drættis DAS á Akureyri. Allt jók þetta drjúgum við vinafjöld hennar, því að í þessu sem öðru duldust eðl- iskostir hennar og eigindir engum þeim sem við hana átti skipti. Þótt aldur þess sem kvaddur er hafi verið orðinn hár og löngu ljóst að hverju færi, finnst manni sjálf- sagt alltaf sem ýmislegt hafi enn verið ógert og ósagt. Þó ekki hefði verið nema enn einn koss á hrukk- óttan vanga eða klapp á lúna og knýtta hönd. Það verður svo að vera úr þessu. Guðmunda Sigurlaug Pét- ursdóttir hefur vafalaust orðið hvíld- inni fegin svo var að henni sorfið undir lokin. Í spor okkar allra fýkur með tíð og tíma. Sporanna hennar mun þó sjá stað meðan þeir lifa sem muna hana þegar hún var og hét. Sonum hennar, Guðmundi Jóni Bjarna, konu hans, Hallberu Árnýju Ágústsdóttur, börnum þeirra og barnabörnum og Vali Georgi og Örnu Dóru Svavarsdóttur, konu hans, og dóttur þeirra sendum við samúðarkveðjur. Þakkarkveðjur eru líka fluttar starfsfólki dvalar- heimilisins Hlíðar á Akureyri fyrir elskusemd og líkn síðustu árin, sem henni entist líf, en ekki heilsa. Helgi H. Jónsson og fjölskylda. Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast móðursystur minnar Guð- mundu Pétursdóttur sem dó að morgni 2. febrúar síðastliðins. Munda var hún alltaf kölluð. Hún fæddist 24. október 1914 á Lækjar- bakka, Skagaströnd, elsta dóttir hjónanna Péturs Stefánssonar sjó- manns, bónda og verkamanns og Mörtu Guðmundsdóttur húsmóður og saumakonu. Var hún því 86 ára er hún lést. Á heimilinu ólust upp fimm alsystkini Mundu og ein hálfsystir. Það hefur því verið þröngt í búi sem og víða á fyrri hluta þessarar aldar. Munda giftist síðan Finni Daníels- syni skipstjóra og síðar fiskmats- manni, sem einnig er látinn, og bjuggu þau lengst af á Akureyri. Tvo syni eignuðust þau, þá Guð- mund og Val. Mamma mín og Munda voru afar nánar og mikil samgangur milli fjölskyldnanna þrátt fyrir að búa hvor í sínum landshlutanum. Alltaf gistu Munda og Finnur hjá mömmu og pabba þegar þau komu í bæinn, saman eða hvort í sínu lagi. Munda þurfti jafn- an að heimsækja alla þá vini og ætt- ingja sem hún mögulega gat, þegar hún kom suður, enda ættrækin vel og félagslynd. Þeir bræður Guð- mundur J.B. og Valur Georg bjuggu líka báðir hjá okkur í Miðtúninu ef ég man rétt meðan á námi fyrir sunnan stóð. Um langt árabil ferð- uðust þau jafnan saman um landið í sumarfríum mamma og pabbi og Munda og Finnur. Það vildi svo til að pabbi og Finnur voru saman að veiða í Svartá í Langadal þegar pabbi dó 1981. Margar ferðirnar voru farnar til Akureyrar og jafnan gist hjá Mundu og Finni á Norður- götu 45 á Akureyri. Fyrst með mömmu og pabba og síðar fórum við Helga kona mín að venja komur okkar á Norðurgötuna. Tók Munda jafnan á móti okkur með hinni mestu rausn og aldrei kom til greina annað en við gistum hjá henni. Börnum okkar var líka tekið með kostum og kynjum og litu þau á Mundu sem nokkurs konar viðbótarömmu. Á árinu 1990 fluttu þau Munda og Finnur í íbúð í Víðilundi 20 á Ak- ureyri. Skrítið var að koma til Ak- ureyrar og fara ekki á Norðurgöt- una. Munda var umboðsmaður happdrættis DAS á Akureyri alla tíð sem ég man eftir mér, þangað til fyr- ir fáeinum árum að hún dró sig í hlé frá þeim störfum. Alltaf var litið inn hjá Mundu í DAS og fengið kaffi, ef við vorum fyrir norðan. Munda starfaði líka í kvenfélaginu á Akur- eyri og var mjög virk í því starfi. Síð- ustu árin hefur Munda dvalið á GUÐMUNDA SIGURLAUG PÉTURSDÓTTIR , -       .&7.  >   <"'4#" ?@ &# " '" $   2  $ 3 +  &&' 5)## 7$1+# 7$$A  ' #(()"  &$$ &$$  ()"  <$+   ' #(()"  #(* # + * #* #, BLÓMABÚÐ MICHELSEN TILKYNNIR LOKAÐ VEGNA BREYTINGA Í FEBRÚAR MICHELSEN HÓLAGARÐI, SÍMI 557 3460 , -                  : B: 7 4 ) " &$$*   CD &# " '" $   2  $ 0   !  4  +'' 5     $     (       6  !  7    ++.888' 5)#1# ()"   $"#( # ()"   #( 7(4 (+#  2) # +# 4$ # ()"   " ' ()"  2)  = ## %#()"  * #* # +  "#",       99 .8: 9: &6    % "#( *   &4  '" %' "$ " "$" % &4+$4" @C &4+$4$$"    9 : !      ,$  *#$   ! 3 4  &&'   ;  ! <  9"$  6 "1#  ')#()"  6 "$" )+# $1  6 "$"()" + ) 6 "$"+#, =   >      !   >   ?   ( ?$  (   3     !          !     !   5: 7: "E 1' "  7E" '" ?  41, " 1' %#()"  %# " "##  #+# " 1' " ()"   ' #  #()"   <  F )  #()"   #" %#+# # &  "  <+ *  &$$()  1 %#+#, =   >  # ?        !    !   !   65 : 5 :  4, $" *" "')  6$EE4" ?C, @  > -  ;$  / @ $!#  -  ($    ;      ) 2+ $"()"  " 1' 6 #()"  5)# 2) 6 #+# #"*  G #(()"  2+ $" 6 #+# + * #* #,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.