Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 47
DANSÍÞRÓTTASAMBAND Ís-
lands (DSÍ) stóð fyrir sínu fyrsta Ís-
landsmeistaramóti í samkvæmis-
dönsum með frjálsri aðferð sunnu-
daginn 11. febrúar í Laugardals-
höllinni. Dansíþróttasambandið var
stofnað með formlegum hætti 18. maí
2000. Frá þeim degi hefur ekki verið
blásið til Íslandsmeistaramóts.
Eins og fram kemur í ávarpi for-
manns DSÍ, Birnu Bjarnadóttur, þá
hafa félagsmenn síður en svo haldið
að sér höndum þótt ekki hafi verið
haldið Íslandsmeistaramót. Félagar
DSÍ hafa farið víða á keppnir erlend-
is á þessum mánuðum og þeir hafa
þjálfað og æft stíft fyrir þetta mót.
„Þeir hafa unnið vel að markmiðum
sínum og náð góðum árangri á sterk-
um mótum erlendis og unnið Evr-
ópu- og Norðurlandameistaratitla.
Við óskum þessum dansíþrótta-
mönnum innilega til hamingju með
góðan árangur. En ekki síst þökkum
við þeim fyrir að vera þjóð okkar og
ungri íþróttagrein til slíks sóma sem
raun ber vitni,“ sagði Birna jafn-
framt.
Dansíþróttasamband Íslands mun
standa fyrir þremur öðrum mótum á
þessu ári. Íslandsmeistaramót í 10
dönsum með frjálsri aðferð og Ís-
landsmeistaramót í gömlu dönsunum
og línudönsum fer fram í mars. Í maí
heldur sambandið svo Íslandsmeist-
aramót í grunnsporum, línudönsum
og bikarkeppni með frjálsri aðferð.
Það kemur svo í hlut DSÍ að halda
Norðurlandameistaramótið í sam-
kvæmisdönsum 1. og 2. desember nk.
Keppnin sl. sunnudag var sett með
hefðbundum hætti. Keppendur
marseruðu inn á keppnisgólfið,
áhorfendur risu úr sætum og fána
var heilsað. Þessi athöfn setur mik-
inn hátíðleikablæ á danskeppnir og
er að mínu mati ómissandi við slík
tækifæri. Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra flutti þá stutt ávarp og
setti þetta fyrsta Íslandsmeistara-
mót DSÍ með óskum um gott gengi
dansíþróttarinnar um ókomin ár.
Keppnisskipulagið var með örlítið
öðrum hætti en vanalega, þar sem
grunnsporaflokkum og frjálsum
flokkum var blandað saman í dag-
skránni. Kostir þessa fyrirkomulags
eru helst þeir að það verður engin
flokkun eftir kunnáttu og keppendur
og aðstandendur sjá fleiri útgáfur af
dansinum. Eins ber að hafa í huga að
keppndur eru svo fáir að nánast allt-
af er dansað til úrslita beint, sem
þýðir að erfitt er að setja upp tíma-
töflu, þar sem að lágmarki verða að
líða 20 mínútur milli umferða. Gall-
inn við þetta er hinsvegar sá að
keppnirnar verða örlítið þyngri og á
stundum líður dálítið langur tími
milli umferða.
Keppnin á sunnudag gekk ágæt-
lega að flestu leyti. Umhverfið var
mjög notalegt, sérstaklega til að
byrja með, þar sem kastarar lýstu
upp keppnisgólfið og salurinn
myrkvaður. En kveikja þurfti aðal-
ljós salarins í síðari hluta keppninn-
ar, sem dró svolítið úr stemmningu í
salnum, en sem betur fer ekki úr
dönsurunum, því þeir stóðu sig allir
með stakri prýði.
Dómarar keppninnar voru 5, þeir
Michael Eichert (Þýskalandi), Per J.
Palmgren (Svíðþjóð), Leif Krabbe
(Danmörku), Grethe Andersen (Nor-
egi) og Karen Hardy (Englandi). Ég
get ekki neitað því að ég saknaði þess
að hafa ekki tvo íslenzka dómara á
gólfinu. Það er mikilsvert að við eig-
um okkar dómara, það er svo í öllum
öðrum íþróttagreinum. Ég veit ekki
um neitt land sem notar enga inn-
lenda dómara í landskeppnum sín-
um, þó það finnist hugsanlega ein-
hvers staðar. Ef við ætlum að láta
taka okkur alvarlega verðum við að
sjálfsögðu að eiga íslenzka dómara
sem geta dæmt bæði íslenzkar og er-
lendar danskeppnir, það liggur í
hlutarins eðli.
Nú er hópur af íslenzkum döns-
urum að fara til Kaupmannahafnar
um næstu helgi til að taka þátt í einni
sterkustu danskeppni sem haldin er í
Evrópu, Copenhagen Open. Mun
Morgunblaðið að sjálfsögðu fylgjast
vel með gangi mála í þessari sterku
keppni og óskar keppendum góðs
gengis.
Úrslit og umsagnir
Unglingar I, F, suður-amerískir
dansar
1. Jónatan Örlygss./Hólmfríður Björnsd. GT
2. Þorleifur Einarss./Ásta Bjarnad. GT
3. Baldur K. Eyjólfss./Erna Halldórsd. GT
4. Björn E. Björnss./Herdís H. Arnalds GT
5. Stefán Claessen/María Carrasco GT
6. Ingólf D. Petersen/Laufey Karlsd. HV
7 Arnar Georgss./Tinna R. Pétursd.GT
Þetta er yngsti hópur frjálsu
keppninnar og er alltaf gaman að
horfa á þennan hóp, með tilliti til þess
hve stutt hann er búinn að dansa með
frjálsri aðferð. Þarna eru á ferðinni
ákaflega efnilegir dansarar, þó svo
segja verði að efstu tvö pörin, þau
Jónatan og Hólmfríður og Þorleifur
og Ásta, séu ennþá í sérflokki.
Jónatan og Hólmfríður voru í góðu
formi á sunnudaginn og dönsuðu
ákaflega vel, og hlutu gullverðlaun.
Þeim hefur farið mikið fram og er lík-
amsstaða þeirra og hreyfingar miklu
agaðari og nákvæmari. Mér fannst
þau sýna mesta framför í sömbu, þá
sérstaklega varðandi pelvis-hreyf-
ingar og notkun fóta.
Þorleifur og Ásta voru einnig að
gera góða hluti, þó fannst mér þau
örlítið þyngri á sér en venjulega, sér-
staklega í jive-inu. Mér hefur yfirleitt
fundist cha,cha vera þeirra sterkasti
dans og var einnig svo nú. Þunga-
flutningur góður og hreyfingar fínar.
Unglingar I, F, sígildir
samkvæmisdansar
1. Þorleifur Einarss./Ásta Bjarnad. GT
2. Jónatan Örlygss./Hólmfríður Björnsd. GT
3. Arnar Georgss./Tinna R. Pétursd. GT
4. Baldur K. Eyjólfss./Erna Halldórsd. GT
5. Ingolf D. Petersen/Laufey Karlsd. HV
6. Stefán Claessen/María Carrasco GT
7. Björn E. Björnss./Herdís H. Arnalds GT
Það sama verður að segja um sí-
gildu samkvæmisdansana og þá suð-
ur-amerísku nema munur paranna
er mun minni í þessum flokki. Það
sem mér fannst kannski einna mest
ábótavant er að koma dansstöðunni í
gott lag. Það hvernig hún skekkist
oft stafar af of lítilli notkun fóta og
hreyfingarnar koma þá í gegnum
hendurnar.
Þorleifur og Ásta fóru með sigur af
hólmi í þessum flokki. Mér fannst
tangóinn þeirra góður og vel dans-
aður, aðeins fannst mér þó gæta þess
almennt að axlalína var of há. Enski
valsinn var líka mjög fallegur. Passið
talningu í foxtrot!
Jónatan og Hólmfríður voru einnig
að gera mjög góða hluti og fannst
mér þar foxtrottinn bera af. Nýting
þeirra á tónlistinni var mjög góð, sér-
staklega á hægu sporunum. Með að-
eins betri nýtingu fóta í sígildu döns-
unum eru þeim allir vegir færir.
Unglingar II, F,
suður-amerískir dansar
1. Davíð G. Jónss./Helga Björnsd. GT
2. Agnar Sigurðss./Elín D. Einarsd. KV
3. Ásgrímur Logas./Bryndís M. Björnsd. GT
4. Friðrik Árnas./Sandra J. Bernburg GT
5. Sigurður Arnarss./Sandra Espersen HV
6. Jón Þ. Jónss./Hjördís Ö. Ottósd. HV
7. Davíð M. Steinarss./Sóley Emilsd. GT
8. Baldur Þ. Emilss./Dagný Grímsd. GT
Í þessum flokki eru margir af okk-
ar reyndustu dönsurum í dag og var
keppnin mjög hörð og spennandi.
Davíð Gill og Helga fóru með sigur af
hólmi og voru að gera marga mjög
góða hluti. Ég er samt viss um þau
geta gert mun betur, þau voru ekki
heldur að keyra á fullu, þar sem Dav-
íð var meiddur. Þau eiga svo sann-
arlega bjarta framtíð, enda ákaflega
glæsilegt og metnaðarfullt par.
Rúmban þeirra og cha,cha fannst
mér þeirra sterkustu dansar og ákaf-
lega vel dansaðir.
Agnar og Elín Dröfn hafa verið í
gríðarlegri framför og þetta var svo
sannarlega þeirra dagur. Agnar hef-
ur sýnt mikla framför á undanförn-
um mánuðum og kemur mun sterk-
ari til leiks nú en áður. Þau náðu vel
saman, sérstaklega í cha,cha og eins
fannst mér jive-ið þeirra gott.
Unglingar II, F- sígildir
samkvæmisdansar
1. Agnar Sigurðss./Elín D. Einarsd. KV
2. Friðrik Árnas./Sandra J. Bernburg GT
3. Davíð G. Jónss./Helga Björnsd. GT
4. Davíð M. Steinarss./Sóley Emilsd. GT
5. Sigurður. Arnarss./Sandra Espersen HV
6. Ásgrímur Logas./Bryndís M. Björnsd. GT
7. Jón Þ. Jónss./Hjördís Ö. Ottósd. HV
Eins og fyrr sagði var þetta dagur
Agnars og Elínar Drafnar. Þau komu
mjög sterk til leiks og uppskáru sem
þau höfðu sáð. Notkun fóta hefur
lagast mikið hjá þeim og verður von-
andi haldið áfram að vinna með það.
Haldið þeirra var mun afslappaðra
en áður, sérstaklega í vínarvalsi og
quickstep.
Friðrik og Sandra Júlía unnu til
silfurverðlauna. Þetta var bezta
ballroom sem ég hef séð þau gera.
Dansstaða orðin mun betri en áður,
þökk sé betri notkun fóta. Þau þurfa
samt sem áður að passa vel uppá
dansstöðuna, hún á það til að verða
svolítið há.
Ungmenni F/áhugamenn F,
suður-amerískir dansar
1. Ísak H. Nguyen/Helga D. Helgad. HV
2. Hannes Þ. Egilss./Sigrún Ýr Magnúsd. GT
3. Gunnar Gunnarss./Halldóra Halldórsd. GT
4. Grétar A. Khan/Jóhanna. Bernburg KV
Hér eru okkar reyndustu dansarar
og þeir sem hafa verið að ná einna
lengst á alþjóðavettvangi. Norður-
landameistararnir Ísak Halldórsson
og Helga Dögg fóru með sigur af
hólmi. Mér fannst þau dansa frábær-
lega vel og þau voru einstaklega
heillandi á gólfinu. Mér finnst þau
miklu öruggari en áður, þá sérstak-
lega í hreyfingum. Ég hafði á orði í
fyrra að mér þættu hreyfingar þeirra
í hverjum dansi fyrir sig of líkar. Að
mínu mati er þetta að mestu horfið,
það er orðinn mjög skýr munur á
hreyfingum þeirra í t.d. sömbu og
cha,cha. Árangur þeirra er sá bezti
sem íslenzkt par hefur náð í þessum
flokki og er engin ástæða til að ætla
annað en að þau haldi áfram á þess-
ari braut.
Hannes Þór og Sigrún Ýr dönsuðu
mjög vel. Það var eitthvað sem small
núna. Þau dönsuðu betur saman
núna en þau hafa gert og hefur þar
æfingin greinilega skapað meistar-
ana. Hreyfingar Hannesar voru
mjög sterkar og öruggar á móti
kvenlegum og mjúkum áherslum
Sigrúnar. Sérdeilis glæsilegt par,
með bjarta framtíð!
Ungmenni F/áhugamenn F,
sígildir samkvæmisdansar
1. Ísak H. Nguyen/Helga D. Helgad. HV
2. Hilmir Jenss./Ragnheiður Eiríksd. GT
3. Hannes Þ. Egilss./Sigrún Ýr Magnúsd. GT
4. Grétar A. Khan/Jóhanna B. Bernburg KV
Ísak og Helga Dögg fóru með sig-
ur af hólmi í þessum flokki. Þau voru
mun öruggari og afslappaðri en síð-
ast þegar ég sá þau og tónlistarnotk-
un þeirra til fyrirmyndar, svo og
notkun fóta.
Hilmir Jensson og Ragnheiður Ei-
ríksdóttir hafa verið með okkar
sterkustu pörum til margra ára. Að
þessu sinni dönsuðu þau einungis
hina sígildu samkvæmisdansa.
Foxtrottinn finnst mér alltaf vera
þeirra dans, þar er notkun fóta og
tónlistarnotkun til fyrirmyndar. Mér
finnst tangóinn þeirra þurfa smá lag-
færingu, sérstaklega hvað varðar
fótaburðinn og hraðabreytingar.
Ákaflega gott og efnilegt par!
Fullorðnir, F-
suður-amerískir dansar
1. Björn Sveinss./Bergþóra Bergþórsd. GT
2. Eggert Claessen/Sigrún Kjartansd. GT
Okkar elztu dansarar með frjálsri
aðferð. Björn og Bergþóra, Íslands-
meistarar síðustu ára, dansa ákaf-
lega yfirvegaðan og stílhreinan dans.
Mér finnst þó á stundum sum sporin
ekki henta þeim, sérstaklega í rúmbu
og cha,cha. Góður pasó og jive bætti
þetta þó upp.
Eggert Claessen og Sigrún döns-
uðu mun betur en áður að mínu mati.
Mér fannst einnig pasó og jive þeirra
bestu dansar
Fullorðnir, F- sígildir
samkvæmisdansar
1. Björn Sveinss./Bergþóra Bergþórsd. GT
2. Jón Eiríkss./Ragnhildur Sandholt GT
Björn og Bergþóra sigruðu einnig
í þessum flokki með góðum dansi.
Jón og Ragnhildur höfnuðu í 2. sæti.
Ég hef séð þau dansa betur, þá sér-
staklega vals og foxtrot. Þetta er
samt sem áður mjög sterkt par í
þessum flokki sem hefur verið í mik-
illi framför undanfarin misseri.
Úrslit í grunnsporakeppninni
Börn I, A, sígildir
samkvæmisdansar
1. Alex F. Gunnarss./Vala B. Birgisd. DÍK
2. Sigurþór Björgvinss./Telma Sigurðard. DÍK
3. Sævar Þ. Sigfúss./Ragna B. Bernburg GT
4. Hörður Ö. Harðars./Guðrún Arnalds DÍK
5. Davíð Ö. Pálss./Elísabet Jónsd. DÍK
6. Kristján Kristjánss./Anný Herm. DÍK
Börn I, A, suður-amerískir dansar
1. Alex F. Gunnarss./Vala B. Birgisd. DÍK
2. Sævar Þ. Sigfúss./Ragna B. Bernburg GT
3. Davíð Ö. Pálss./Elísabet Jónsd. DÍK
4. Sigurður M. Atlas./Sara R. Jakobsd. KV
5. Pétur G. Magnúss./Jóna Benediktsd. DÍK
6. Sigurþór Björgvinss./Telma Sigurðard. DÍK
Börn II A/D, sígildir
samkvæmisdansar
1. Valdimar Kristjánss./Rakel Guðm. HV
2. Arnar M. Einarss./Helena Jónsd. DÍK
3. Guðmundur Guðm./Ester Halldórsd. DÍK
4. Sigurður Brynjólfss./Rakel Guðm. HV
5. Torfi B. Birgiss./Telma Ólafsd. GT
6. Ólafur B. Tómass./Telma Ýr Arnarsd. DÍK
7. Magnús Kjartanss./Helga Rúnarsd. DÍK
Börn II, A/D, suður-
amerískir dansar
1. Arnar M. Einarss./Helena Jónsd. DÍK
2. Valdimar Kristjánss./Rakel Guðm. HV
3. Júlí H. Halldórss./Rakel S. Björnsd. GT
4. Edda B. Jónsd./Helga Haraldsd. GT
5. Magnús Kjartanss./Helga Rúnarsd. DÍK
6. Torfi B. Birgiss./Telma Ólafsd. GT
7. Guðmundur Guðm./Ester Halldórsd. DÍK
Unglingar I, A/D,
suður-amerískir dansar
1. Alexander Mateev/Olga E. Þórarinsd. GT
2. Stefán Víglundss./Andrea Sigurðard. ÝR
3. Jón E. Gottskáldss./Elína H. Jónsd. KV
4. Þór Þorvaldss./Lilja Guðmundsd. GT
5. Steinar Ólafss./Ragnheiður Árnad.ÝR
6. Haraldur Harðars./Áslaug Daníelsd. DÍK
Unglingar I, A/D,
sígildir samkvæmisdansar
1. Þór Þorvaldss./Lilja Guðmundsd. GT
2. Gunnh. Steinþórsd./Hildig. Steinþ. GT
3. Haraldur Harðars./Áslaug Daníelsd. DÍK
4. Jón E. Gottskálkss./Elína H. Jónsd. KV
5. Fannar Kristmannss./Sara Harðard. DÍH
6. Jón G. Guðmundss./Þórunn Ólafsd. DÍK
Unglingar I, D, sígildir
samkvæmisdansar
1. Gunnh. Steinþórsd./Hildigunnur Steinþd. GT
2. Ólöf Á. Ólafsd./Elísabet Ö. Jóhannsd.ÝR
3. Iðunn Jónasard./Rakel Pálsd. GT
4. Oddný S. Davíðsd./Tinna Gunnarsd. GT
5. Klara Hjartard./Ása K Jónsd. DÍH
6. María Vesterdal/Karen Axelsd. ÝR
7. Ólöf K. Helgad./Jóhanna A. Arnarsd. ÝR.
Unglingar I, D,
suður-amerískir dansar
1. Gunnhildur Steinþ.d./Hildigunnur Steinþd. GT
2. Ólöf Á. Ólafsd./Elísabet Ö. Jóhannsd.ÝR
3. Iðunn Jónasard./Rakel Pálsd. GT
4. Oddný S. Davíðsd./Tinna Gunnarsd. GT
5. Birta M. Kristinsd./Rakel Ó. Axelsd. GT
6. María Vesterdal/Karen Axelsd. ÝR
7. Ólöf K. Helgad./Jóhanna A. Arnarsd. ÝR
Unglingar II, A/D,
suður-amerískir dansar
1. Anita T. Helgad./Arna S. Ásgeirsd. ÝR
2. Theodór Kjartanss./Telma Ægisd. ÝR
3. Katrín Ýr Sigurðard./Sigrún Birgisd. GT
Áhugamenn, A, suður-amerískir dansar
1. Steinunn Reynisd./Aðalh. Svavarsd. ÝR
Áhugamenn, A, sígildir
samkvæmisdansar
1. Steinunn Reynisd./Aðalh. Svavarsd.ÝR
2. Klara Hjartard./Ása K. Jónsd. DÍH
Börn II, K, sígildir
samkvæmisdansar
1. Haukur F. Hafsteinss./Hanna R. Ólad. HV
2. Arnar D. Péturss./Gunnhildur Emilsd. GT
3. Karl Bernburg/Helga S. Guðjónsd. KV
4. Aðalsteinn Kjartanss./Erla Kristjánsd. KV
5. Jökull Örlygss./Denise Hannesd. KV
Börn II, K, suður-amerískir dansar
1. Haukur F. Hafsteinss./Hanna R. Ólad. HV
2. Arnar D. Péturss./Gunnhildur Emilsd. GT
3. Aðalsteinn Kjartanss./Erla Kristjánsd. KV
4. Jökull Örlygss./Denise Hannesd. KV
5. Karl Bernburg/Helga Guðjónsd. KV
Unglingar I, K, sígildir
samkvæmisdansar
1. Björn I. Pálss./Ásta B. Magnúsd. KV
2. Þorsteinn Sigurðss./Nadine Hannesd. KV
4. Fannar H. Rúnarss./Edda G. Gíslad. HV
5. Ásgeir Erlendss./Hanna M. Óskarsd.GT
6. Eyþór S. Þorbjörnss./Ásrún Ágústsd. HV
7. Ari F. Ásgeirss./Rósa J. Magnúsd. DÍH
Unglingar I, K,
suður-amerískir dansar
1. Björn I. Pálss./Ásta B. Magnúsd. KV
2. Þorsteinn Sigurðss./Nadine Hannesd. KV
4. Fannar H. Rúnarss./Edda G. Gíslad. HV
5. Ásgeir Erlendss./Hanna M. Óskarsd. GT
6. Eyþór S. Þorbjörnss./Ásrún Ágústsd.HV
7. Ari F. Ásgeirss./Rósa J. Magnúsd. DÍH
Ísak Halldórsson Nguyen og
Helga Dögg Helgadóttir í flokki
ungmenna og áhugamanna F.
Hannes Þór Egilsson og Sigrún
Ýr Magnúsdóttir í flokki ung-
menna og áhugamanna F.
Hilmir Jensson og Ragnheiður
Eiríksdóttir í flokki ungmenna
og áhugamanna F.
Fjölmennt
Íslandsmót
í dansi
Jóhann Gunnar Arnarsson
DANS
L a u g a r d a l s h ö l l
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
Í SAMKVÆMISDÖNSUM
MEÐ FRJÁLSRI AÐFERÐ
Sunnudagur 11. febrúar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ingolf D. Petersen og Laufey
Karlsdóttir í fl. unglingar I F.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 47