Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 58

Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁRLA MORGUNS 20. mars 1995 voru íbúar Tókýó að tínast til vinnu eða í skóla í troðfullum neðanjarð- arlestum. Þriðjudagurinn verður frí- dagur líkt og sunnudagurinn á undan, en mánudagurinn er eins og hver annar dagur, vinna framundan eða skóli. Meðal farþega í þrem lestum á Hibiya- Chiyoda- og Marunouchi-leið eru meðlimir Aum-sértrúarsafnaðar- ins sem eru með brúsa vafða í dag- blöð. Á fyrirfram ákveðnum stöðum setja þeir bögglana frá sér og stinga gat á þá með yddum regnhlífum um leið og þeir fara úr lestinni. Ekki líður á löngu þar til farþegar sem eftir eru í lestinni og bætast við fara að finna óþægilega sætsúra lykt, fljótlega fara þeir að hósta og síðan líður yfir nokkra. Smám saman átta lestaryf- irvöld sig á að eitthvað er á seyði, starfsmenn taka pakkana, sem sumir eru rennvotir af torkennilegum vökva, og reyna að hreinsa mestu bleytuna úr vögnunum. Lestarnar halda áfram en þegar lestarstarfs- mennirnir sem unnu hreins- unarstarfið taka að hníga niður eru þær stöðvaðar og öllum vísað út. Þeg- ar upp er staðið liggja tólf manns í valnum og á sjötta þúsund hefur orð- ið fyrir alvarlegri eitrun af sarin- taugagasi. Japanski rithöfundurinn Haruki Murakami er með þekktustu og vin- sælustu rithöfundum seinni ára, bæði í heimalandinu og á Vesturlöndum. Hann er rétt kominn á sextugsaldur og nokkuð sér á báti í japönskum bókmenntaheimi, stendur utan við klíkur og samtök rithöfunda þar í landi og hefur eytt drjúgum tíma utan heima- landsins, meðal annars til að fá fjarlægð til að skrifa um jap- anskt þjóðfélag að hann sjálfur segir. Meðal helstu verka Murakamis eru bækurnar Norwegian Wood, Hard- Boiled Wond- erland and the End of the World, A Wild Sheep Chase / Dance, Dance, Dance, The Wind-Up Bird Chronicle og nú síðast South of the Border, West of the Sun. Murakami þykir ævintýralegur í skrifum sínum og bækurnar mett- aðar eins konar draumkenndu raunsæi þar sem kynjaverur og yf- irskilvitleg öfl hafa oftar en ekki áhrif á framvinduna. Það vakti því mikla athygli þegar hann sendi frá sér bók um hryðjuverk þeirra Aum-manna sem getið er í upphafi. Las af rælni lesendabréf Í inngangi að bókinni Under- ground: The Tokyo Gas Attack and the Japanese Psyche, segist Murak- ami hafa lesið af rælni lesendabréf í japönsku glanstímariti frá eiginkonu manns sem lenti í árásinni. Hann segir hana hafa rakið það er hann hafi mætt skilningi yfir- og sam- starfsmanna sinna fyrir það hve lengi hann var að glíma við eft- irköst árásarinnar en eftir því sem lengra leið frá henni snerist meðaumkunin upp í fyrirlitningu og spott og á endanum hrökklaðist hann frá vinnu. Að sögn Murakamis var engin beiskja í bréfinu eða reiði; það var helst að konan undr- aðist hvernig annað eins gat hent hana, en þrátt fyrir það varð hann djúpt snortinn af bréfinu og sleginn yfir því að mörgum mánuðum eftir árásina væri fólk enn að glíma við eft- irköst hennar. Í framhaldinu ákvað hann að hitta að máli sem flesta af þeim sem urðu fyrir árásinni og fá að heyra sögu þeirra svo hann gætið miðað henni áfram til lesenda. Murakami réð sér aðstoðarmenn til að hafa uppi á fórnarlömbunum og setti á endanum saman 700 nafna lista. Af þeim lista hafði hann upp á 140 manns en fæstir vildu ræða árás- ina, flestir vildu gleyma henni sem fyrst, vantreystu blaðamönnum eða vildu ekki vera bendlaðir við neitt sem snerti Aum-söfnuðinn. Þegar upp var staðið urðu viðtölin sem birt eru í bókinni 60 talsins, vandlega yf- irfarin af þeim sem þau veittu til þess að bókin væri laus við öll æsingaskrif. Þetta er bara svona Viðtölin gefa góða mynd af jap- önsku samfélagi ekki síður en sérlega skýra og merkilega mynd af því hvernig árásin kom Japönum gjör- samlega í opna skjöldu. Fyrir vest- ræna lesendur er merkilegt að skyggnast í hversdagslíf japanskra launamanna og hve líf þeirra er í föst- um skorðum. Þeir vinna langan vinnudag og þurfa að auki að fara langa leið í vinnuna, algengt er að fólk sé hálfan annan tíma á leið í vinnuna eða þaðan af lengur. Algengt er að fólk sé mætt í vinnu hálftíma áður en vinnutími hefst til að vera tilbúið að hefja störf á slaginu. Allir þrauka þó og enginn kvartar því þetta er bara svona. Murakami lýsir því í bókinni hve þessi samtöl við almenna borgara hafi verið sér dýrmæt, því hann hafi alltaf langað til að skilja japanska þjóðarsál betur eftir átta ára sjálf- skipaða útlegð í Evrópu og Banda- ríkjunum. Einnig segir hann viðtölin við þá sem verst urðu úti, Shizuko Akashi sem lamaðist að mestu og missti minnið og ungu ekkjuna Yosh- iko Wada sem missti mann sinn í árásinni og eignaðist stúlku stuttu síðar, hafi vakið hjá sér spurningar um getu sína sem rithöf- undar að tjá tilfinn- ingar í orðum; ótta, örvæntingu, ein- semd, reiði, doða, firringu, óvissu og von fórn- arlambanna. Samtök hins æðsta sannleika Aum Shinri Kyo-flokkurinn, „sam- tök hins æðsta sannleika“, iðkar eins- konar samhræring af búddatrú og kristni. Leiðtogi hreyfingarinnar Shoko Asahara, sem var nefndur Chizuo Matsumoto við fæðingu 1955, setti trúarbrögðin saman eftir að hafa numið búddafræði og hindúatrú í Himalaya-fjöllum. Í trúnni er hann Kristur endurborinn en hann notar óspart Opinberunarbókina og spá- dóma Nostradamusar. Fylgendur Asahara urðu flestir 20.000 um heim allan, en að sögn gengu þeir margir til liðs við söfnuðinn vegna þess að þeir töldu sig öðlast við það yfirnátt- úrlegan kraft, en aðrir hrifust af því hve Asahara hafnaði vestrænum gild- um og efnishyggju. Í viðtölum við félaga úr söfn- uðinum, þó ekki þá sem frömdu ódæðin, sem eru felld inn í ensku út- gáfuna en komu út sér í Japan, kem- ur vel í ljós að þeir eru hug- sjónamenn, flestir ganga til liðs við söfnuðinn ungir til að finna tilgang í lífinu, fylla tómarúm eða finna sér nýja fjölskyldu. Liður í inngöngunni er að þeir afsala sér öllu eignum og eftir það eru þeir á framfæri safn- aðarins, vinna þau verk sem þeir eru falin af leiðtogum hans, hvort sem er að moka skurði eða smíða vítistól. Meðal kenninga Asahara var að hann hefði farið fram til ársins 2006 og rætt þá við eftirlifendur þriðju heims- styrjaldarinnar. Í kjölfarið skipaði hann sérstakt varnarmálaráðuneyti og ar hófust menn handa við að rækta banvæna sýkla og búa til sarin tauga- gas. Murakami segist hafa fundið til samúðar er hann ræddi við Aum félagana, enda séu þeir á sinn hátt fórnarlömb álíka og þeir sem urðuð fyrir taugagasinu í neðanjarðarlest- inni, alvarlega þenkjandi ungmenni sem hafi áhyggjur af því hvert stefni í heiminum ólíkt hans kynslóð sem hafi glatað öllum sínum hugsjónum. Það sé ekki síst merki um það hve jap- ansk þjóðfélag sé fjandsamlegt þeim sem stinga í stúf að þessi ungmenni hafi orðið geðbiluðum trúarleiðtoga að bráð. Underground: The Tokyo Gas Attack and the Japanese Psyche eftir Haruki Murakami. Harville gefur út. 309 síð- ur, innb. Fæst í Máli og menningu. TAUGAGASÁRÁS Í NEÐANJARÐARLESTUM Í TÓKÝÓ Sarin og japönsk þjóðarsál Shoko Asahara, leiðtogi Aum Shinri Kyo-flokks- ins, „samtaka hins æðsta sannleika“. Associated Press TVÍBURARNIR Chang og Eng voru fæddir í Síam árið 1811. Þeir voru ósköp venjulegir drengir að öllu leyti nema því að þeir voru samvaxnir, orðið síamstvíburar kemur til af þeim. Þeir voru af fátæku fólki komnir. Faðir þeirra var fiskimaður á ánni Mekong og báturinn var heimili þeirra. Fæðing þeirra vakti að von- um mikla athygli og fréttin barst til eyrna konungsins. Á þessum tíma var hjátrúin slík, að jafnvel var talið að fæðing þeirra væri afar slæmur fyrirboði. Þegar þeir voru sjö ára voru þeir teknir frá foreldrum sínum og fluttir til konungshallarinnar í Bangkok svo kóngur gæti tekið ákvörðun um, hvað gera skyldi við tvöfalda drenginn, taka hann af lífi eða þyrma honum. Konungur sleppti piltunum og leyfði þeim að fara til síns heima. Þá höfðu aðstæður breyst mikið, faðir þeirra var látinn og móðir þeirra búin að missa tökin á lífi sínu. Dag nokkur kom útlendingur til hennar og bauðst til að gera syni þeirra fræga og ríka. Hún tók boðinu og sendi þá burt með hon- um. Í Ameríku voru þeir hafðir til sýnis fyrir almenning. Þeir voru settir í búr og fólk borgaði fyrir að fá að sjá skrímslið. Þeir voru rann- sakaðir í bak og fyrir af læknum og geta ekki um frjálst höfuð strokið. Þeir losna þó seint og um síðir úr þessari þrælavinnu og flytja til bæjar í suðurríkjunum. Þar kynn- ast þeir systrum, sem þeir kvæn- ast, þrátt fyrir mótmæli heima- manna. Þeir búa saman, auðvitað, með konum sínum og það er allt annað en auðvelt, því einkalíf þeirra bræðranna er ekkert. Darin Strauss tekst mjög vel að skrifa sögu síamstvíburanna. Hann lætur Eng segja frá og lýsing hans á samskiptum þeirra og návistinni, sem gat verið óþolandi, er frábær. Það er gott að eiga bróður en að hafa hann bundinn við sig alla ævi er of mikið af því góða. Forvitnilegar bækur Chang og Eng Chang & Eng, eftir Darin Strauss. Allison & Busby gefur út árið 2000. 348 síðna kilja. Kostar 2.195 í Máli og menningu. Ingveldur Róbertsdótt ir FLESTIR Peanuts-vinir kann- ast eflaust við það þegar Snoopy stendur á hundakofanum og leikur brúðuleikhús, oft leikþætti með tugum persóna. Eitt af þeim leik- verkum sem hann setur gjarnan á svið er sagan af þeim Geste-bræðr- um, tvíburunum Michael og Digby og John, sem kallast Beau Geste eftr viðurnefni elsta bróðurins, og naut gríðarlegra vinsælda á sinni tíð. Sagan af örlögum bræðranna þriggja og eðalsteininum bláa er ævintýraleg í meira lagi. Hún segir frá göfugmennsku, ást og grimmi- legum örlögum, hetjudáðum á fjar- lægum slóðum og sannri herra- mennsku upp á enska vísu. Stór hluti hennar gerist í eyðimörkum Norður-Afríku og í virkinu Zind- erneuf í Frönsku-Súdan, en þar verða þeir atburðir sem greiða loks úr flækjunni sem hefst í dagstof- unni á Brandon Abbas í Englandi. Að því er fram kemur í stuttri samantekt um höfundinn fremst í bókinni var Wren ævintýramaður sjálfur og gekk meðal annars í frönsku útlendingahersveitina sem hann segir svo frá í bókinni. Það hafði sitt að segja um vinsældir bókarinnar, því ævintýraljóminn yfir þeirri sveit hefur ævinlega verið mikill þótt ekki fái hún ýkja háa einkunn hjá Wren. Hann lýsir henni sem safni auðnuleysingja og illmenna með stöku góðmenni inn á milli. Líkt og ævintýrabóka er siður eru persónur í bókinni dregnar grófum dráttum, menn eru yfirleitt afskapega vondir, og þá oftar en ekki mjög ljótir, eða yfirnáttúrlega góðir og göfugir. Enginn skyldi þó láta það aftra sér frá að lesa bókina því að flóknar og útpældar persón- ur þvælast bara fyrir þegar fjörið byrjar. Forvitnilegar bækur Harmleik- urinn í Zinderneuf Beau Geste eftir P.C. Wren. Bókin kom fyrst út árið 1924 en þessi út- gáfa 1994 í röðinni Wordsworth Classics. 391 bls. kilja. Keypt á fornsölu í Barcelona á 250 kr. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.