Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 61
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 14. Vit nr. 191.
1/2
ÓFE hausverk.is
www.sambioin.is
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
HL.MBL
ÓHT Rás 2
Stöð 2
GSE DV
Sýnd kl. 6. Enskt tal.
Vit nr. 187.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
B.i. 14 ára. Vit nr. 182
Sýnd kl. 5.45,
8 og 10.15. Vit nr.188.
Óskarsverðlaunatilnefningar3
www.sambioin.is
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal.
Vit nr. 179
Golden Globe verðlaun
fyrir besta leik
Var á toppnum í Bandaríkjunum í 3 vikur.
1/2 HL.MBL
ÓHT Rás 2
Stöð 2
GSE DV
G L E N N C L O S E
Sýnd kl. 3.50 og 5.55 með íslensku tali.
Vit nr. 194.
"Grimmhildur er mætt aftur
hættulegri og grimmari en
nokkru sinni fyrr!"
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 Vit nr. 191. Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.Vit nr. 185.
1/2
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
1/2 MBL
Rás 2
Sýnd kl 5, 8 og 10. Vit nr. 190.
Óskarsverðlaunatilnefningar3
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6.
Miði í Regnbogann gildir sem happadrættismiði fyrir PS2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Ísl texti.
Skríðandi tígur, dreki í leynum
SV.MBL
EMPIRE
LA Daily News
NY Post
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Al MBL
1/2
ÓFE hausverk.is
GSE DV
Sýnd kl. 6.
Hrein og
klár klassík
Geðveik grínmynd í
anda American Pie
LITLE NICKY
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.Síðustu sýningar.
Bíllinn er týndur
eftir mikið partí.
Nú verður grínið sett í botn!
Sýnd kl. 8 og 10.
Ótextuð. Síðustu sýningar.
10Óskarsverðlauna-tilnefningar
JODIE Foster var ekki fyrr búin að
samþykkja að leiða dómnefndina á
kvikmyndahátíðinni í Cannes en að
hún sá sig tilneydda að afþakka
boðið. Ástæðan er yfirvofandi verk-
fall handritshöfunda sem mun hefj-
ast í maí hafi samningar ekki náðst
í tæka tíð. Vegna þess hafa fram-
leiðendur í Hollywood sett allt á
fullt og flýtt framleiðslu á kvik-
myndum. Nicole Kidman hafði sam-
þykkt að leika aðalhlutverkið í
myndinni Panic Room eftir David
Finchers (Seven og Fight Club) en
þegar tökum var flýtt kom hún því
ekki við vegna annarra skuldbind-
inga og meiðsla sem hún er að jafna
sig af. Því sneri Fincher sér til Fost-
er, sem sló þegar í stað til.
Aðstandendur í Cannes voru ekk-
ert að eyða allt of miklum tíma í að
sleikja sárin heldur hófu þegar í
stað leit að einhverjum til að fylla
skarð Foster og nú um helgina var
tilkynnt að leitin hefði borið árang-
ur. Nýi dómnefndarformaðurinn er
norska leikkonan og kvikmynda-
gerðarkonan Liv Ullmann. „Þetta
er mikill heiður fyrir mig,“ sagði
Ullmann þakklát og bætti við að
hlutskiptið gæfi sér færi á að gera
það sem hún hefur mesta ánægju af
að gera, horfa á bíómyndir.
Kvikmyndahátíðin í Cannes
Ullmann í skarð Foster
Reuters
Liv Ullmann er í skýjunum yfir
því að fá að horfa á bíómyndir í
Cannes.
LEIKARAR og tónlistarmenn
taka höndum saman í kvöld kl. 21
og halda tónleika á Litla sviði
Borgarleikhússins. Þeir ætla að
sækja í smiðju Tom Waits og
flytja lög, ljóð og sögur frá því
tímabili sem hann sjálfur kýs að
kalla „skipulagðan hávaða“.
Flytjendur eru Valur Freyr
Einarsson, Halldór Gylfason, Stef-
án Már Magnússon, Karl Olgeirs-
son, Vernharður Jósefsson, Birkir
Freyr Matthíasson og Ottó Tynes.
Óhátíðlegt andrúmsloft
Karl: „Þetta eru nokkurs konar
tónleikar, en settir fram á frekar
listrænan hátt, að hætti Tom
Waits, og andrúmsloftið verður
ekki mjög hátíðlegt.“
Stefán Már: „Þetta er engan
veginn úthugsað sem neinskonar
úttekt á ferli Waits enda væri það
ekki hægt á svona stuttum tíma. Í
rauninni væri bara móðgun við
hann að reyna það. Dagskráin er
einn og hálfur tími, tólf til fimmtán
lög, sem eru aðallega frá tíma-
bilinu í kringum plötuna Raindogs
sem var gefin út 1985. Það er t.d
ekkert lag af uppáhaldsplötunni
minni sem er The Heart of Sat-
urday Night. Svo þetta er bara
svona héðan og þaðan.“
– Hvernig kviknaði þessi hug-
mynd?
Stefán Már: „Valur Freyr leik-
ari er mikil aðdáandi Waits og ég
held að hann og Dóri Gylfa hafi átt
hugmyndina. Þeir leituðu svo til
mín til að setja saman hljómsveit.
Valur og Dóri ætla að syngja og
Ottó Tynes ætlar að kíkja inn og
taka nokkur lög. Líka af því að
hann hefur rétta útlitið í þetta, ha,
ha.“
Karl: „Þarna verða kynstur af
hljóðfærum, kontrabassi, nikka,
klukkuspil og baritónhorn sem
hljómar einsog heil lúðrasveit.“
– En ásláttarhljóðfæri?
Karl: „Já, við höfum eitthvað af
þeim og síðan auðvitað hefðbundið
trommusett, einhverjar hristur og
svona.“
Stefán Már: „Svo höfum við ver-
ið að lemja í alls konar stangir,
statíf og dót á æfingum, sem
reyndist ágætlega líka. Lömdum
bara í það járnarusl sem var til
staðar.“
Karl: „Svo má berja í áhorf-
endur og geljað hár. Það getur
virkað í sumum lögum.“
– Eruð þið frekar að taka ein-
faldari lögin eða...?
Karl: „Þetta er ekki mjög létt
dagskrá hjá okkur. Við erum ekki
að taka vinsælustu lögin hans.“
Stefán Már: „Ég veit ekki
hvernig á að skilgreina hvað eru
vinsælustu lögin hans.“
Kalli: „Lögin sem Rod Stewart
hefur sungið.“
Dagskráin á Litla sviðinu í kvöld
erað öllum líkindum héðan og það-
an, létt og þung, vinsæl eða ekki,
en áreiðanlega frumleg og
skemmtileg, svona í anda Tom
Waits.
Listræna og járnarusl
Skipulagður hávaði í Borgarleikhúsinu
Tom Waits
er alltaf hress.