Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ 38% FÉLAGSMANNA BSRB eru óánægð með tölvuþekkingu sína og 85% þeirra hafa áhuga á að sækja námskeið í tölvunotkun og upplýs- ingatækni. Þetta er meðal þess sem nýleg skoðanakönnun um tölvu- kunnáttu, aðgengi að tölvum, notk- un og óskir um námskeið, leiðir í ljós. Úrtakið var 800 einstaklingar sem skiptust hlutfallslega á milli að- ildarfélaga BSRB. BSRB mun bregðast við niður- stöðum könnunarinnar með því að efla tölvulæsi og standa fyrir grunn- námskeiðum þar sem reynt verður að ná til þeirra félagsmanna sem minnst kunna. „Jafnframt verður þeim sem hafa einhverja þekkingu boðið upp á fræðslu til að auka við tölvuþekkingu sína,“ segir Garðar Gíslason, fræðslustjóri Kennslumið- stöðvar Háskóla Íslands, sem kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi. Tekið verður upp samstarf við starfsmenntunarsjóði aðildarfélag- anna við að fjármagna námskeiðin en ætlunin er að fyrir næsta haust verið búið að skipuleggja 50 tölvu- námskeið fyrir félagsmenn BSRB vítt og breitt um landið. Af hálfu BSRB er litið svo á að með þessu átaki verði stigið mikilvægt skref í þekkingarmisræminu í landinu. „Það hafa verið skrifaðar lærðar greinar um þekkingarmisræmið og félagsvísindamenn hafa lengi haft áhyggjur af því að það sé að mynd- ast gjá á milli þeirra sem kunna að nýta sér tölvutæknina og hinna sem kunna það ekki. Það er síðarnefndi hópurinn sem verður útundan og fær aldrei upplýsingar. Hann er ekki með í umræðuhópum nema staðbundið, fylgist ekki með því sem er að gerast og ég lít á það sem fötl- un.“ 97% telja góða tölvukunnáttu nauðsynlega Meðal þess sem kom fram í könn- uninni var að 97% svarenda töldu góða tölvukunnáttu nauðsynlega í nútíma samfélagi. 41,7% svarenda nota tölvu mikið í tengslum við starf sitt og 34,4% aldrei. Flestir, eða 27,2% nota tölvuna til að senda tölvupóst og næstflestir, 18,9% við ritvinnslu. 48,6% voru mjög sam- þykkir því að tölvukunnátta væri nauðsynleg í starfinu og 14,3% fremur samþykkir. Næstum 72% svarenda nota aldrei tölvu í nám og 9% gera það sjaldan. 69,4% svar- enda hafa aðgang að tölvu í vinnunni og 75% heima hjá sér, en 6,4% sögð- ust ekki hafa aðgang að tölvu. Ekki var munur á íbúum landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis hvað snerti tölvuaðgang, en karlar höfðu hins vegar meiri aðgang en konur. Könnun meðal félagsmanna BSRB Langflestir vilja auka tölvu- þekkingu sína HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær tæplega sextugan karl- mann í fjögurra mánaða skilorðs- bundið fangelsi og til að greiða 3,3 milljóna króna sekt fyrir virðisauka- skattsvik og brot gegn lögum um bók- hald. Maðurinn var ákærður fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatts- skýrslum vegna sjálfstæðrar atvinnu- starfsemi sinnar á árunum 1994 til 1997 og fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti sömu ár, samtals rúmlega 1,6 millj- ónir króna. Maðurinn var einnig sakfelldur fyr- ir bókhaldsbrot en hann færði ekki bókhald og hélt hvorki ársreikninga né varðveitti bókhaldsgögn. Maður- inn játaði skilyrðislaust þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru. Þau brot sem hann framdi í júlí til september 1994 voru talin fyrnd. Maðurinn hefur áður verið dæmd- ur í sjö mánaða fangelsi vegna brota á lögum um virðisaukaskatt, þar af voru fjórir mánuðir bundnir skilorði. Nú var hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Refsingin fellur niður eftir þrjú ár ef maðurinn brýtur ekki gegn skilorði. Borgi maðurinn ekki sektina, 3,3 milljónir króna, innan fjögurra vikna þarf hann að sitja 80 daga í varðhaldi. Sveinn Sigurkarlsson héraðsdóm- ari kvað upp dóminn. Hefur fjórar vikur til að greiða sektina Í gær var einnig kveðinn upp dóm- ur í Héraðsdómi Reykjaness yfir tæp- lega fertugum karlmanni fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt, tekju- skatt, eignarskatt og lögum um tekju- stofna sveitarfélaga. Alls námu svik mannsins um 2,2 milljónum króna. Hann játaði afdráttarlaust brotin sem hann framdi á árunum 1993–1997. Brot sem voru framin fyrir október 1994 taldi héraðsdómur fyrnd og því var maðurinn ekki dæmdur fyrir þau. Héraðsdómur dæmdi manninn til að greiða tvær milljónir í sekt til rík- issjóðs eða sæta fangelsi í 70 daga ella. Maðurinn hefur fjórar vikur til að greiða sektina. Þá var hann dæmd- ur til þriggja mánaða skilorðsbund- innar refsingar. Haldi maðurinn al- mennt skilorð fellur refsingin niður að tveimur árum liðnum. Sveinn Sigurkarlsson héraðsdóm- ari kvað einnig upp þennan dóm. Skilorðsbund- ið fangelsi fyrir skattsvik BJÖRN Bjarnason mennta- málaráðherra og nemendur í Ár- bæjarskóla sendu í gær fyrstu formlegu frétt nemenda skólans á vefinn www.mbl.is/utskolar. Fréttaskrifin marka upphaf þróun- arverkefnis í upplýsingatækni á vegum menntamálaráðuneytisins, sem sex þróunarskólar á grunn- og framhaldsskólastigi, taka þátt í. Samningur sem gerður hefur verið á milli skólanna og Morgunblaðsins felur í sér að nemendur, kennarar og stjórnendur þróunarskólanna skrifa og senda daglega fréttir úr skólastarfinu á vef sem hýstur er af Morgunblaðinu, en einnig hafa skólarnir ókeypis aðgang að gagna- safni Morgunblaðsins í vetur. Ráð- herra óskaði nemendunum góðs gengis í verkefninu og sagðist sjálf- ur hafa kynnst tölvunni við blaða- mannastörf sín á Morgunblaðinu. Hann hvatti nemendur til að vera duglegir við fréttaskrifin, sjálfur hlakkaði hann til að lesa það sem þeir hefðu fram að færa. Framtíð- arfréttahaukarnir voru einnig hvattir til að nýta sér gagnasafn Morgunblaðsins því þar væri að finna „ótæmandi upplýsinga- brunn“, sem nýttist vel við upplýs- ingaöflun fyrir fréttaskrif. Á vefnum er að finna fréttir frá þróunarskólunum sex, Árbæj- arskóla, Barnaskólanum á Eyr- arbakka og Stokkseyri, Varma- landsskóla í Borgarfirði, Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel- fossi og Menntaskólanum á Ak- ureyri. Hlutverk skólanna er að vinna að þróun upplýsingatækni í kennslu, námi og skólastarfi þar sem áhersla er lögð á breytt hlut- verk kennarans með aukinni notk- un upplýsingatækninnar í kennslu. Í vor verður árangur fréttaverk- efnisins metinn með það í huga að veita fleiri skólum þátttöku í fram- tíðinni. Morgunblaðið/Golli Fyrsta fréttin var send inn á vefinn í gær. Jóna Pálsdóttir, verkefnastjóri þróunarskólanna, Björn Bjarnason menntamálaráðherra og nemendur í tíunda bekk Árbæjarskóla. Fréttavefur þróunarskóla í samvinnu við Morgunblaðið Daglegar fréttir úr skólastarfinu á Netinu VÍSITALA byggingarkostnaðar hækkaði um 1,0% milli janúar- og febrúarmánaðar. Hækkun vísitöl- unnar síðustu þrjá mánuði samsvar- ar 9,8% hækkun á heilu ári en síðast- liðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 5,3%. Hagstofan hefur einnig reiknað út launavísitölu miðað við meðallaun í janúar og hækkaði vísitalan um 3,1% frá fyrra mánuði. Síðustu tólf mán- uði hefur launavísitalan hækkað um 9,3%. Byggingarvísi- talan hækkar um 1,0% ÍSLENSKI alpaklúbburinn stendur fyrir svokölluðu „Ísklifurfestivali“ í Út-Kinn við Skjálfandaflóa um helgina. Fjöldi félaga er mættur til leiks en svæðið sem klifrað er á er hið stærsta á Norðurlandi og stutt er síðan alpaklúbbsfélagar upp- götvuðu svæðið til ísklifurs. Aðkoman að svæðinu er með því besta sem gerist en vegur liggur út alla Út-Kinnina og norður í Skjálf- andaflóafjöru, þannig að stutt er í allar ísklifursleiðir. Íþrótta- vöruverslunin Nanoq hefur komið upp tjaldi á svæðinu og hyggst vera þar með vörukynningu, auk þess að bjóða upp á hressingu. Því er upp- lagt fyrir áhugasama að fara á staðinn um helgina og fylgjast með. Morgunblaðið/Kristján Jón Gunnar Þorsteinsson klifrar upp snarbrattan ísinn í Kinnarfjöllum. Hægra megin við hann sést út á Skjálfandaflóa. Ísklifur- æfingar í Út-Kinn ♦ ♦ ♦ FÉLAGSMENN í Blaðamanna- félagi Íslands samþykktu í gær ný- gerðan kjarasamning sem gerður var við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd útgefenda Morgunblaðsins, DV og Dags. Á kjörskrá var 191 en 92 greiddu atkvæði eða 48,17%. Já sögðu 82 eða 89,13%. Nei sögðu 10 eða 10,87%. Samningurinn gildir frá 1. febrúar sl. til 31. október 2004. Samningur- inn tryggir öllum 5,4% upphafs- hækkun, 3% hækkun 1. janúar 2002, 3% hækkun 1. janúar 2003 og 2,5% hækkun 1. janúar 2004. Jafnframt eru taxtar færðir nær greiddu kaupi. Taxtalaun verða samkvæmt samn- ingnum á bilinu 121.500–195.000 á mánuði án vaktaálags. Blaðamenn samþykktu kjarasamning ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.