Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 28
ERLENT 28 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ JEAN Chrétien, forsætisráðherra Kanada, sagði á miðvikudag að í við- ræðum sínum við George W. Bush Bandaríkjaforseta hefði hann orðið þess áskynja að Bandaríkjastjórn væri reiðubúin að falla frá umdeild- um áformum um að koma upp eld- flaugavarnakerfi ef önnur ríki settu sig algerlega upp á móti þeim. „Ég hef átt viðræður við Banda- ríkjamenn, sem hafa ákveðið að halda áformunum ekki til streitu ef það skapar verulegan vanda fyrir NATO eða ef þeir komast ekki að samkomulagi við Kínverja og Rússa,“ sagði Chrétien í ræðu á kanadíska þinginu á miðvikudag. Áður hafði Alexa McDonough, leið- togi stjórnarandstöðunnar, farið fram á að forsætisráðherrann for- dæmdi eldflaugavarnaáætlunina á fundi sínum með Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, á fimmtu- dag. The Daily Telegraph hafði í gær eftir mönnum úr fylgdarliði Blairs í Kanada að ummæli Chrétiens hefðu „vakið furðu“. Þetta kæmi Blair í nokkuð óþægilega stöðu, en hann hélt að Kanadaheimsókninni lokinni til Bandaríkjanna og átti þar fund með Bush í gær. Blair hefur lýst því yfir að hann muni ekki leggja bless- un sína yfir eldflaugavarnaáætl- unina fyrr en frekari upplýsingar liggi fyrir. The Daily Telegraph hafði jafnframt eftir ónafngreindum embættismanni bandaríska þjóðar- öryggisráðsins að svo virtist sem Chrétien hefði annaðhvort misskilið eða mistúlkað afstöðu Bush í mál- inu. „Forsetinn hefur lýst þeirri skoðun sinni að koma eigi upp eld- flaugavarnakerfi. Þetta eru orð for- setans og hann hefur ítrekað þau nokkrum sinnum.“ Bandaríkjastjórn hafi samráð við NATO-ríkin Chrétien sagði hins vegar á sam- eiginlegum fréttamannafundi með Blair á fimmtudag að hann hefði ekki átt við að NATO hefði neit- unarvald gagnvart áætlun Banda- ríkjastjórnar. En NATO-ríkin, ásamt Rússum og Kínverjum, myndu krefjast þess að Bandaríkja- stjórn hefði samráð við þau um mál- ið og ætluðust til að á þau væri hlustað. Ella væri hætta á að „veru- legur vandi“ skapaðist innan banda- lagsins. Umdeild áform bandarískra stjórnvalda um eldflaugavarnakerfi Bush sagður reiðubúinn að láta undan þrýstingi Ottawa. The Daily Telegraph. Reuters Jean Chrétien og Tony Blair á fréttamannafundi í Ottawa á fimmtudag. ÞÝSK fjögurra manna fjölskylda lét lífið og nokkurra er saknað eftir að snjóflóð féllu á bíla í skíðabænum Obergurgl í Týról í gær. Talsmaður lögreglunnar í Inn- sbruck sagði í gær, að mikið snjó- flóð hefði fallið í fjallaskarði rétt við Obergurgl en bærinn er í 50 km fjarlægð frá Innsbruck í Ötz- dal. „Við fundum fjóra mann- eskjur látnar í bíl, sem flóðið hafði gjöreyðilagt,“ sagði tals- maðurinn en um 100 björg- unarmenn leituðu í gær að fólki, sem var saknað. Annað flóð féll einnig við Obergurgl en þá tókst að grafa tvo menn úr fönninni heila á húfi. Mikill viðbúnaður var í gær í vesturhluta Austurríkis vegna snjóflóðahættu en þar hefur snjó- að mjög mikið. Eru þúsundir manna innilokaðar á ýmsum skíðastöðum vegna fannfergisins. Fyrir réttum tveimur árum lok- uðust 20.000 manns inni vegna snjóa á þessum sömu stöðum og það ár fórust alls 38 manns í snjóflóðum. Reuters Björgunarmenn með hunda við leit skammt frá Obergurgl. Fjórir fórust í snjóflóði Vín. Reuters. HILLARY Clinton, öldungadeildar- þingmaður og fyrrverandi forsetafrú í Bandaríkjunum, sagði á blaða- mannafundi í þinghúsinu í Washing- ton á fimmtudag að hún væri „harmi slegin og miður sín“ vegna frétta um að bróðir hennar, Hugh Rodham, hefði þegið fé fyrir að tala máli tveggja manna sem Bill Clinton veitti sakar- uppgjöf og mildun refs- ingar á síðasta degi sín- um í forsetaembætti. Hillary kvaðst ekki hafa frétt af málinu fyrr en á mánudags- kvöld og þá hafi þau hjónin krafist þess að Rodham skil- aði fénu, sem hann gerði. „Ég tel að bróðir minn hafi gert hræðileg mis- tök,“ sagði Hillary á blaðamanna- fundinum og lagði áherslu á að hún hefði ekki haft nein áhrif á ákvörðun eiginmanns síns um hverjum ætti að veita sakaruppgjöf og mildun refs- ingar. Hugh Rodham viðurkenndi opin- berlega á miðvikudag að hafa þegið samtals tæplega 400 þúsund dollara, eða nær 35 milljónir króna, fyrir að vinna að því að kaupsýslumaðurinn Glenn Braswell fengi sakaruppgjöf, en hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik árið 1983, og að Carlos Vignali, sem situr í fangelsi fyrir fíkniefnamisferli, fengi frelsi eftir að hafa afplánað sex ár af fimm- tán ára dómi. Repúblikaninn Dan Burton, for- maður umbótanefndar Bandaríkja- þings, sagði á fimmtudag að nefndin hefði farið fram á það við Rodham að hann skýrði frá því hvaða umsækj- endur um náðun hann hefði unnið fyrir og með hvaða hætti. Umsóknum kunn- ingja Rogers Clint- ons var hafnað Skrifstofa Bills Clintons staðfesti á fimmtudagskvöld að hálfbróðir forsetans fyrrverandi, Roger Clinton, hefði rætt við hann fyrir hönd nokk- urra kunningja sinna sem sóttu um náðun, en þeim hefði öllum verið hafnað. Tekið var fram að Roger Clinton hefði ekki þegið neitt fé fyrir að tala máli þeirra. AP-fréttastofan skýrði frá því í gær að alríkissaksóknari í New York, sem rannsakar nú sakarupp- gjöf kaupsýslumannsins Marc Rich, hafi ákveðið að taka einnig til skoð- unar þá ákvörðun Clintons að milda refsingar fjögurra hassída-gyðinga, sem hlutu dóm fyrir stórfelldan fjár- drátt úr opinberum sjóðum. Rann- saka á hvort samið hafi verið um að meðlimir samfélags hassída-gyðinga í Rockland-sýslu í New York-ríki greiddu Hillary Clinton atkvæði sitt í kosningunum til öldungadeildarinn- ar í nóvember, gegn því að Clinton mildaði refsingu fjórmenninganna. Náðunarvandræði Bills Clintons Hillary kveðst „miður sín“ New York, Washington. AFP, AP. Hillary Rodham Clinton HEIMILISHJÁLPIN sem aldraðir hafa notið um árabil, kann innan fáeinna ára að heyra sögunni til. Vísindamenn um all- an heim vinna nú af kappi að því að þróa vélmenni til að aðstoða aldraða við þrif, lyfta þeim upp í rúminu, keyra hjólastól og kaupa inn, svo fátt eitt sé nefnt. Fjölgun aldraðra og niðurskurð- ur í velferðarkerfinu hefur orðið til þess að það sem mörgum finnst vera hryllingssýn úr framtíðinni er í huga annarra lausn á sívaxandi vandamáli. Danski prófessorinn Henrik I Christensen kynnti heimilis- hjálp framtíðarinnar fyrir lönd- um sínum í vikunni en hann starfar á vélmennaþróunardeild tækniháskólans í Stokkhólmi sem er ein af fimm virtustu stofnunum þeirrar tegundar í heiminum. Christensen segir fyrstu vélmennin með gervi- greind væntanleg eftir 3–4 ár og að áratug liðnum verði enn þró- aðri útgáfur, sem geta þrifið, lyft sjúklingum, keypt inn og keyrt hjólastól, boðnar til sölu fyrir um 100.000 til 150.000 kr. Ein af ástæðum þess að vélmennaþróuninni miðar hratt nú er fyrirséð fjölgun aldraðra og sjúkra. Gert er ráð fyrir að eftir 30 ár hafi fjöldi fólks yfir 85 ára aldri tvöfaldast. Til að sinna öllum þessum fjölda og gera fólki kleift að vera lengur heima, verði vélmenni að koma til. Nú þegar eru til vélmenni sem geta sinnt einfaldri þjón- ustu en kostnaðurinn við gerð þeirra er enn allt of hár. Ryksuga fyrr en varir Framþróunin á sviðinu er hins vegar hröð. „Vélmennin verða farin að ryksuga fyrr en varir, þess er ekki langt að bíða að vísindamennirnir verði búnir að leysa tæknilega örðugleika.“ Christensen segir vélmennin enn allt of dýr, fyrstu ryksugu- vélmennin muni líklega kosta um 350.000 ísl. kr. en verðið muni fljótlega verða komið nið- ur í 30–40.000 ísl. kr. „Það er nógu lágt til þess að fólk kaupir þau, þeir sem alltaf verða að eiga það nýjasta og besta munu að sjálfsögðu verða að eignast vélmenni og hægt verður að nota það fólk til að þróa vél- mennin og sníða af vankanta.“ Vélmennunum sem þróuð eru í Svíþjóð er stýrt með röddinni. Óljóst er hins vegar hvernig þau munu líta út, enn sem komið er minna þau helst á tunnur með armi. Ljóst er þó að Evrópubúar vilja ekki vélmenni eins og Jap- anir hafa verið að þróa og eru í mannsmynd. „Evrópubúum finnst þau ógnvekjandi og hafa engan áhuga á því að hafa vél- menni líkast Tortímandanum heima hjá sér.“ Christensen segir að niður- staðan verði einhvers staðar þar á milli, vélmennin verði að verða falleg og hagnýt, stofuprýði þeg- ar þau séu ekki í notkun. Eitt helsta vandamálið nú er að þróa arm sem er nógu sterkur til að lyfta sófa en jafnframt nógu „mjúkhentur“ til að ýta undir sjúkling í rúmi. Reynist Christensen sann- spár mun orðið vélmenni fljót- lega hverfa og þess í stað koma orð á borð við „greind“. Saman- ber „greindur hjólastóll“ sem getur komist leiðar sinnar án þess að sá sem í honum situr þurfi að skipta sér af. Vél- menni í heimilis- hjálp Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.