Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 76
DAGBÓK 74 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Víkverji skrifar... VÍKVERJI er ákafur málvernd-arsinni enda telur hann að framtíð íslenskrar tungu og ís- lensks þjóðernis fari saman. Hann hefur oft áður á þessum vettvangi lýst áhyggjum sínum vegna eng- ilsaxneskra áhrifa á tunguna, eink- um meðal ungs fólks, og ekki að ástæðulausu. Þess vegna fagnaði hann tilskipun útvarpsráðs á sín- um tíma um að íslenska framlagið í Evrópusöngvakeppninni skyldi flutt á móðurmálinu. Víkverji vildi raunar ganga enn lengra og skylda höfunda til að yrkja undir fornum bragarhætti, svo sem fornyrðislagi eða drótt- kvæðum hætti, enda ekki vanþörf á að hefja skáldskaparmál Snorra- Eddu til vegs og virðingar á ný. Íslendingar eru að glata brag- eyranu og Björk, sem syngur á ensku, er farin að skyggja óþarf- lega mikið á Snorra, að dómi Vík- verja. Nei, án gríns. Íhlutun útvarps- ráðs í þessu máli var eins og aftan úr grárri forneskju og tilskipunin gjörsamlega út í hött, svo Víkverji hætti nú að hafa þetta grafalvar- lega mál í flimtingum. Ákvörðun útvarpsráðs, að lagið skyldi flutt á íslensku í hinni evr- ópsku söngvakeppni, hefur ekkert með málvernd að gera. Tilskipunin var hjákátlegur ómur af þjóðern- isrembingi sem átti vissulega rétt á sér í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld en á ekki við í upphafi 21. ald- ar. x x x NÚ hafa hins vegar þau undurog stórmerki átt sér stað, að íslenskur stjórnmálamaður hefur brotið odd af oflæti sínu og ákveð- ið að draga fyrri tillögu sína til baka í útvarpsráði og leggja til að höfundur skuli ráða því á hvaða tungumáli lagið verður flutt. Slíkt er fáheyrt í íslenskri pólitík, að menn viðurkenni mistök sín með þessum hætti, og er viðkomandi útvarpsráðsfulltrúi maður að meiri fyrir vikið, að dómi Víkverja. Það er sjálfsagt að standa vörð um tunguna og eflaust hefur út- varpsráðsmanninum, sem flutti til- löguna í upphafi, gengið gott eitt til. Hann er heldur ekki einn um mistökin því útvarpsráð samþykkti tillöguna og sjálfsagt í þeirri trú að með því væru menn að standa vörð um tunguna. En í þessu til- viki horfir öðruvísi við. Evrópu- söngvakeppnin er samkeppni dæg- urlaga um að ná hylli alþýðu manna í hinum ýmsu Evrópulönd- um. Ekki menningarviðburður eða vettvangur til að kynna menning- ararf okkar Íslendinga. x x x Skaðinn er þó skeður að hlutatil. Með þessari vanhugsuðu tilskipun gerði útvarpsráð í raun okkur málverndarmönnum erfið- ara fyrir. Fólk hlær að okkur vegna þessa máls og eftir þessa uppákomu mun unga fólkið blása á alla viðleitni okkar til að fá það til að vanda betur mál sitt og hætta að sletta ensku. Sjálft hefur út- varpsráð skotið sig í fótinn með þessu tiltæki. Þessi uppákoma endurspeglar og undirstrikar úrelt stjórnskipulag sem felst í pólitískt skipuðu útvarpsráði. Víkverji vill hins vegar taka fram að hann er hlynntur rekstri Ríkisútvarpsins í núverandi mynd ef undan er skilið hlutverk og skipan útvarpsráðs. Skipin Reykjavíkurhöfn: Ás- björn fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Polar Amaroq og Stalt- or fóru í gær. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Íþróttadagur aldraðra verður 28. feb. í Aust- urbergi, Breiðholti. Leikfimi og danssýn- ing, söngur. Sýningin verður frá kl. 14–16, rúta frá Bólstaðarhlíð kl. 13.45, skráning á skrifstofu fyrir kl. 11 miðvikudaginn 28. febrúar. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10–13. Matur í hádeg- inu. Félagi eldri borg- ara í Reykjavík, Ás- garði, Glæsibæ. Aðalfundur FEB verð- ur haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, í dag, laug- ardaginn 24. febrúar, kl.13.30. Félagsmenn, fjölmennið og framvísið félagsskírteini. Leik- hópurinn Snúður og Snælda sýna, „gamlar perlur“ sem eru þættir valdir úr fimm gömlum þekktum verkum. Sýn- ingar eru á mið- vikudögum kl. 14 og sunnudögum kl. 17 í Ásgarði, Glæsibæ. Miðapantanir í símum 588-2111, 568-9082 og 551-2203. Mánudagur: Brids kl. 13. Þriðjudag- ur: Skák kl. 13.30. Al- kort spilað kl. 13.30. Góugleði á vegum FEB og Heimsferða verður haldin föstudaginn 2. mars nk. Hátíðina setur Ólafur Ólafsson for- maður FEB. Glæsi- legur matseðill. Feðg- arnir Örn Árnason og Árni Tryggvason skemmta, kórsöngur, upplestur, ferðavinn- ingar. Veislustjóri verð- ur Sigurður Guðmunds- son skemmtanastjóri Heimsferða. Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur fyrir dansi. Sala að- göngumiða á skrifstofu FEB. Silfurlínan opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10– 12. Ath. Opnunartími skrifstofu FEB er frá kl. 10-16. Upplýsingar í síma 588-2111. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurveg 50 Leikhúsferðí kvöld 24. febr. Á sama tíma síð- ar. Rúta frá Hjalla- braut 33 og Hraunseli kl. 19. Haustferð FEBH 1. okt. til Prag, Bratislava, Búdapest og Vínar, skráning og allar upplýsingar í Hraun- seli. síma 555 0142. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Öskudaginn 28. febrúar verður Íþróttahátíð í Aust- urbergi kl. 14-16, rúta frá Kirkjulundi kl. 13. Fimmtudaginn 5. mars félagsvist í Holtsbúð kl. 13.30. Mánudaginn 5. febrúar kl. 15 leiðbein- ingar um vísnagerð í Kirkjulundi, stjórnandi Ragnar Ingi Að- alsteinsson. Spiluð félagsvist á Álftanesi 8. mars kl. 19.30. Ferð í Þjóðleikhúsið í dag 24. febrúar kl. 20. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, á Kjalarnesi og í Kjós. Námskeiðin í skrautskrift og leirlist eru að byrja, og tölvu- námskeiðið byrjar 5. mars. Skráið ykkur hjá Svanhildi í síma 586- 8014 kl.13-16. Gerðuberg, félagsstarf. Sund og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug á mánudögum kl. 9.25 og fimmtudögum kl. 9.30. Umsjón Edda Bald- ursdóttir íþróttakenn- ari. Boccia á þriðjudög- um kl. 13 og á föstudögum kl. 9.30, umsjón Óla Stína. Mánudaginn 6. febrúar kl. 15 bolluveisla í kaffi- húsi Gerðubergs. Mið- vikudaginn 28. febrúar íþróttahátíð „leikdagur aldraðra“ í íþróttahús- inu við Austurberg á vegum FÁÍA, m.a. danssýning, hnerri- polki, umsjón Helga Þórarinsdóttir. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Opið hús þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, matur, helgistund og fræðsla. Verið velkomin. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur verður í kvöld kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105, Nýir félagar vel- komnir. Munið gönguna mánudag og fimmtu- dag. Félagsstarf SÁÁ. Félagsvist í Hreyf- ilshúsinu (3. hæð) laug- ardaga kl. 20. Allir vel- komnir. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Minningarkort Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrif- stofan er opin mið- vikud. og föstud. kl. 16– 18 en utan skrifstofu- tíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. MS-félag Íslands. Minningarkort MS- félagsins eru afgreidd á Sléttuvegi 5, Rvk, og í síma 568-8620 og myndrita s. 568-8688. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holt- sapóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elías- dóttur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl 13- 17. Eftir kl. 17 s. 698- 4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563-5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna, Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apó- tekum. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingadeildar Land- spítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogs- hæli), síma 560-2700 og skrifstofu Styrktar- félags vangefinna, s. 551-5941 gegn heim- sendingu gíróseðils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið er við minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minn- ingargjöfum á deild 11-E í síma 560-1225. Í dag er laugardagur 24. febrúar, 55. dagur ársins 2001. Matthías- armessa. Orð dagsins: Látið fætur yðar feta beinar brautir, til þess að hið fatlaða vindist ekki úr liði, en verði heilt. (Hebr. 12, 13.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. LÁRÉTT: 1 hetja, 8 vælir, 9 líkams- hlutar, 10 skemmd, 11 bylur, 13 trjábúta, 15 sneypa, 18 hávelborin, 21 bókstafur, 22 dáni, 23 skakkt, 24 óvarlega. LÓÐRÉTT: 2 kjánar, 3 tré, 4 manns- nafn, 5 ferskar, 6 ótta, 7 vaxa, 12 frístund, 14 húsdýr, 15 spilltan félagsskap, 16 erfið, 17 skaðað, 18 risi, 19 sori, 20 dægur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 svíns, 4 sprek, 7 molna, 8 ólgan, 9 pál, 11 amma, 13 unna, 14 sökin, 15 hark, 17 afla, 20 ána, 22 tómur, 23 falda, 24 lærir, 25 alinn. Lóðrétt: 1 summa, 2 íslam, 3 skap, 4 stól, 5 Regin, 6 kunna, 10 álkan, 12 ask, 13 una, 15 hótel, 16 rúmur, 18 fálki, 19 arann, 20 árar, 21 afla. K r o s s g á t a ÉG hef velt fyrir mér þeim möguleika að byggja nýjan flugvöll á Lönguskerjum. Kostirnir við það eru, að þeir sem vilja hafa flugvöll- inn í Reykjavík hafa hann í Reykjavík og þeir sem vilja byggja í Vatnsmýrinni fá það líka. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað borgin yrði stórkostleg ef millilanda- flugvöllur kæmi líka á Löngusker. Þrátt fyrir að þau rök hafi komið á móti flugvell- inum á Lönguskerjum að selta sé hættuleg fyrir flugvélar held ég að ég hafi ráð við því. Í fyrsta lagi er hægt að hækka flugvöllinn mikið og í öðru lagi er hægt að setja upp veggi eða hlíf- ar til að hægt sé að komast hjá því að selta komist í flugvélar. Ég er viss um að um leið og millilandaflug- völlur kæmi á Löngusker yrði Ísland mikið vinsælli ferðamannastaður en það er nú. En maður efast um að eitthvað gangi í gegn vegna þess að við erum með vanhæfan samgöngu- ráðherra sem heitir Sturla Böðvarsson. Ég vonast til þess að meiri umfjöllun verði um Löngusker en er nú. Til dæmis þótti mér slöpp umfjöllun um Löngu- sker á borgarafundinum í Ráðhúsinu. Og ég vil minna á það, að samkvæmt skoðanakönn- un vilja um 45% þjóðarinn- ar hafa flugvöll á Löngu- skerjum. Ég hvet sem flesta til að kjósa og vona að þeir kjósi rétt. Sindri M. Stephensen, Framnesvegi 62, Rvk. Reykingafólk vestanhafs ÞAÐ er hálfhlálegur mála- rekstur reykingafólks vestanhafs, þar sem læknar hafa upplýst al- menning í hálfa öld hvílíkt eitur tóbaksreykur er. Og getur þá ekki hver sjálfum sér um kennt varðandi beinar reykingar? Björn. Þakkir KRISTÍN hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þökkum fyrir veitta aðstoð. Kristín var á leiðinni frá Bónusi í Faxafeni þegar hún datt á gangstéttinni fyrir utan verslunina Oxford Street. Tveir menn sem voru nær- staddir veittu henni aðstoð sína, hringdu m.a. til dótt- ur hennar til að láta hana vita og síðan keyrði annar maðurinn hana upp á sjúkrahús en Kristín var fingurbrotin. Vill Kristín þakka þessum mönnum innilega fyrir veitta aðstoð sem var ómetanleg. Kristín gleymdi nöfnum hjálparmanna sinna svo hún gat ekki haft samband við þá til að senda þeim þakkir sínar. Ragnarök? ÞAÐ stóð ekki á nýkjörn- um forseta Bandaríkjanna að varpa sprengjum á Írak. Tilefni – Flugvélar Am- eríkana og Breta urðu fyrir „ónæði“ – engin skotin nið- ur – í lofthelgi Íraks. Maður minnist landhelg- isgæslu Íslands – Baráttu okkar lands þegar útlendir togarar drógu hér fisk allt upp undir fjöruborð. Guðrún Jacobsen. Frábær blaðburður í Barmahlíð KRISTÍN Halldórsdóttir hafði samband við Velvak- anda og langaði að þakka Guðmundi blaðbera fyrir frábæran blaðburð á Morgunblaðinu í Barma- hlíð. Hann hefur staðið sig einstaklega vel og alltaf komið skilmerkilega og snemma með blaðið til okk- ar. Tapað/fundið Bangsímon-sundpoki gleymdist í skólabíl BANGSÍMON-sundpoki gleymdist í skólabíl Breiðagerðisskóla í októ- ber sl. Upplýsingar í síma 588-8307. Fundarlaun. Dýrahald Enn bólar ekkert á Felix! BLESSAÐUR kötturinn minn hann Felix er enn í felum síðan 3. janúar sl. Mér hefur hins vegar dottið í hug að hann gæti verið kostgangari hjá ein- hverjum hjartahlýjum dýravini. Sem betur fer eru fjölmargir sem gefa vega- lausum köttum að éta og þá njóta jafnvel þeir sem merktir eru í bak og fyrir kræsinganna líka. Ég vil þess vegna biðja þá sem af velvilja fóðra blessuð dýrin að athuga hvort Felix hafi nokkuð bæst í hópinn. Fel- ix er 2 ára, grábrúnbrönd- óttur á litinn. Hann er eyrnamerktur og var með græna sjálflýsandi ómerkta hálsól þegar hann fór að heiman. Vinsamlega hafið samband við Ariane í síma 861-1836 ef þið hafið ein- hverjar upplýsingar um ferðir hans. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Flugvöllinn á Löngusker? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.