Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 86

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 86
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. MJÖG góð loðnuveiði hefur verið á loðnumiðunum út af Snæfellsnesi síð- asta sólarhringinn og í kjölfarið hefur verið nóg að gera í loðnuvinnslu frá Bolungarvík til Vestmannaeyja. Hólmaborg SU fyllti sig um kvöld- matarleytið í gær, er með um 2.300 til 2.400 tonn. Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri segir að hann hafi kastað nótinni átta sinnum og heimferðin hafist eftir að hafa verið 13 tíma að veiðum. „Það er mjög mikil loðna á miðunum og þetta er falleg loðna en mér sýnist hún vera nokkuð langt gengin,“ segir Þorsteinn. Óli í Sandgerði AK landaði um 1.000 tonnum í bræðslu hjá Gná hf. í Bolungarvík í gærmorgun og um svipað leyti fékk Haraldur Böðvars- son hf. á Akranesi um 1.200 tonn frá Víkingi AK. Að sögn Sveins Stur- laugssonar, útgerðarstjóra HB, var reynt að frysta loðnuna úr Víkingi en of mikil áta reyndist vera í henni og varð því nánast ekkert úr frystingu. Ingunn AK, nýjasta skipið í flotan- um, kom úr fyrstu ferð sinni til Akra- ness um kvöldmatarleytið í gær eftir að hafa fengið fullfermi í nótina um 12 mílur suður af Malarrifi.Morgunblaðið/RAX Mikil loðnuveiði hefur verið á miðunum út af Snæfellsnesi síðasta sólarhring og skipin hafa fyllt sig á skömmum tíma. Skipin hafa verið þétt og nóg var að gera hjá skipverjum á Hákoni ÞH og Berki NK síðdegis í gær. Nóg var að gera í loðnuvinnslum frá Bolungarvík til Vestmannaeyja. Líflegt í loðnunni  Loðnufrysting/25 TVEIR ungir flugmenn leggja af stað á eins hreyfils flugvél áleiðis til Addis Abeba í Eþíópíu í dag, ef veð- ur leyfir. Áætlaður flugtími er 37 stundir og verða mennirnir í flot- galla og með björgunarbát með- ferðis. Flugvélin verður nýtt í hjálparstarfi í Eþíópíu en flug- mennirnir ungu hafa ráðið sig í vinnu hjá flugfélagi í Kenýa. Vélin er af gerðinni Cessna 182 og hefur staðið á Reykjavík- urflugvelli í tvö ár. Hún er í eigu Helga Hróbjartssonar, sem starfað hefur sem kristniboði í Afríku í 17 ár. Að sögn Friðriks Hróbjarts- sonar, bróður Helga, hafa eþíópsk yfirvöld ekki viljað veita flugleyfi fyrr en nú og segir hann stjórnvöld þar mjög varkár í slíkum málum. Friðrik sagði að Helgi hyggist nýta flugvélina í hjálparstarf í Eþíópíu, þar sem hann sæi um dreifingu matvæla í suðurhluta landsins. Friðrik sagði að flugvélin ætti eftir að breyta miklu því að 600 km ferð sem tæki tvo daga í bíl tæki ekki nema tvær klukkustundir í flugvél. Þrír flugmenn fljúga vélinni, þ.e. Sigurður Arnar Runólfsson, Viktor Viktorsson og Hergill Sigurðsson og skiptast þeir á í ferðinni. Flug- þol vélarinnar er um sex og hálf klukkustund og því þurfa þeir að millilenda æði oft. Flogið verður frá Reykjavík til Skotlands og það- an til Lúxemborgar. Frá Lúx- emborg verður haldið til Norður- Ítalíu og þaðan til Suður-Ítalíu. Frá Ítalíu verður flogið til Krítar og þaðan til Egyptalands, þar sem lent verður á tveimur stöðum áður en haldið verður til Addis Abeba í Eþí- ópíu. Flugvélin var áður í eigu Ómars Ragnarssonar fréttamanns og hef- ur víða farið, m.a. lent á Esjunni og Bárðarbungu. Á einum hreyfli til Eþíópíu Morgunblaðið/Árni Sæberg Við flugvélina í gær. Talið frá vinstri: Friðrik Hróbjartsson, Friðrik Ingi Friðriksson, Viktor Viktorsson og Sigurður Arnar Runólfsson.                 EKKI var greint frá því á blaða- mannafundi sem Íslensk erfðagrein- ing, ÍE, boðaði til í gær, til þess að kynna niðurstöður skoðanakönnunar meðal almennings og lækna á afstöðu til miðlægs gagnagrunns á heilbrigð- issviði, að jafnframt var spurt um af- stöðu til viðræðuslita stjórnar Læknafélags Íslands og ÍE. Bæði var spurt í könnun sem lögð var fyrir alla starfandi lækna á Ís- landi 9.–12. febrúar sl. og könnun sem lögð var fyrir almenning á svipuðum tíma um hvort fólk væri sammála eða ósammála þeirri ákvörðun stjórnar LÍ að slíta viðræðum við ÍE um mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Páll Magnússon, upplýsingafulltrúi ÍE, segir að þegar spurningin um viðræðuslitin var borin upp í skoðana- könnuninni hafi ekki verið komið end- anlegt svar frá Læknafélaginu um hvort það vildi halda viðræðunum áfram eður ei. „Eftir að spurningarn- ar voru sendar inn kom svar um að þeir vildu ekki frekari viðræður,“ seg- ir Páll. „Eftir að það svar lá fyrir skipti þessi spurning engu máli en könnunin var aftur á móti farin í gang.“ Meirihluti aðspurðra lækna sem eru starfandi hér á landi, eða 83,9%, svaraði játandi spurningunni: „Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) upp- byggingu á miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði ef farið er eftir öllum skilmálum alþjóðasamtaka lækna og vísindasamfélagsins?“ Andvígir voru 14 af hundraði. Afstaða lækna til viðræðuslita í könnun ÍE um gagnagrunninn Niðurstöður ekki gefnar upp  Átta/43 AFKOMA Búnaðarbanka Íslands hf. var rúmlega milljarði króna lak- ari í fyrra en árið 1999. Hagnaður ársins í fyrra var 202 milljónir króna. Þessi mikla breyting stafar aðallega af gengistapi af markaðs- verðbréfaeign bankans, þ.e. hluta- bréfum og skuldabréfum, en á móti kom gengishagnaður af gjaldeyr- isviðskiptum. Gengistap bankans vegna hlutabréfaeignar var 977 milljónir króna, bókfært gengistap vegna skuldabréfaeignar var 437 milljónir, en gengishagnaður af gjaldeyrisviðskiptum nam aftur á móti 295 milljónum króna. Geng- istap bankans er því samtals rúmur 1,1 milljarður króna en árið hafði gengishagnaðurinn verið tæplega 1,3 milljarðar. Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 27 milljarða króna á árinu og var 145 milljarðar í árslok. Útlán hækkuðu um 29 milljarða og voru 110 milljarðar króna í árslok. Gengistap Búnaðarbank- ans 1,1 milljarður króna  Hagnaður minnkar/24 MILDI þykir að fimmtugur maður í Ólafsvík skyldi ekki hafa slasast al- varlega í gærkvöld þegar hann gekk í veg fyrir lyftara á hafnarsvæðinu. Festist hann í gafflinum, dróst með honum 22 metra og hafnaði undir honum. Hann var að skoða aflatölur á bílvoginni og sá ekki lyftarann. Varð undir lyftara ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.