Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 43 Í síðasta mánuði hófust fram- kvæmdir við nýjan 1.900 fermetra verslunarkjarna í miðbæ Hafnar, sem opnaður verður í sumar. Það er Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, KASK, sem reisir húsið en félagið mun ekki sjálft vera með verslun- arrekstur í húsinu. KASK verður eignaraðili og leigir Kaupás rekst- urinn í stærstum hluta hússins og mun þar að auki leigja smærri verslunum og þjónustufyrirtækj- um aðstöðu í húsinu. Áður fyrr var KASK umsvifa- mesti atvinnurekandi sýslunnar og rak þar mest alla verslun og stóra útgerð auk ýmiss konar þjónustu og framleiðslu. Seinni árin hefur félagið hætt útgerð og hefur dregið verulega saman seglin í verslun og er stefnan sú að láta öðrum eftir at- vinnurekstur og þjónustu á meðan kaupfélagið sjálft starfar fyrst og fremst sem eignarhaldsfélag og fjárfestir í öðrum fyrirtækjum. Pálmi Guðmundsson, kaup- félagsstjóri KASK, segir að hlut- verk kaupfélagsins sé í rauninni að breytast yfir í að verða eignar- haldsfélag og bygging miðbæjar- kjarnans sé liður í þeirri þróun. „Mikið af þeim rekstri sem við vor- um í hefur núna flust í sjálfstæð hlutafélög eins og Goða, og Borgey á sínum tíma. Í versluninni gerðist þetta þannig að við seldum rekst- urinn en eigum og rekum áfram fasteignirnar.“ Nýi miðbæjarkjarninn verður alls rúmir 1.900 fermetrar og sam- anstendur af tveimur húsum sem tengjast saman með yfirbyggðri göngugötu. Stóra húsið verður um 1.160 fermetrar og þar verður al- hliða verslun frá Kaupási, sem í dag heitir KÁ. Í hinu húsinu, sem verður á tveimur hæðum, verða skrifstofur á efri hæðinni og versl- anir og þjónustufyriræki á þeirri neðri. Þá er ætlunin að færa bakaríið, sem KASK á ennþá og rekur, inn í stóru bygginguna við hlið KÁ þannig að framleiðsla og verslun bakaríisins verða á einum stað í kjarnanum. Huga að fjárfestingu í nýjum atvinnutækifærum „Þessi hugmyndafræði er búin að eiga sér langan aðdraganda og það eru í rauninni mörg ár síðan KASK setti sér það markmið að byggja þarna upp miðbæjarkjarna. Nú er staðan sú að við verðum ekki með rekstur þarna, nema á bakarí- inu, sem er ekkert forgangsatriði heldur er aðalatriðið að tryggja að hér verði rekið bakarí. Það kann síðan vel að stofnað verði sérstakt hlutafélag um rekstur þess í fram- tíðinni.“ Að sögn Pálma hefur kaupfélag- ið horft á ýmis atvinnutækifæri á Hornafirði með fjárfestingu í huga til að stuðla að uppbyggingu at- vinnulífsins á staðnum. „Við ákváð- um að fjárfesta í eignarhaldsfélag- inu Gagnvirkri miðlun, og með því erum við að reyna að styðja hér ákveðna nýsköpun. Við teljum að það sé hlutverk kaupfélagsins hér á staðnum, sem er í eigu íbúanna hér og þeirra sem eru hér á hverjum tíma, að við sköpum aðstæður og einhvern ramma fyrir slíka starf- semi, hvort sem það er með hluta- fjáreign eða með leigu á aðstöðu. Í tilfelli Gagnvirkrar miðlunar kaup- um við ákveðið hlutafé en erum auðvitað að horfa til þess að við get- um haft áhrif á að hér byggist upp einhver störf hér í kringum Gagn- virka miðlun.“ Þegar miðbæjarkjarninn rís mun talsvert húsnæði losna í Vöru- húsinu, þar sem KASK rak um ára- bil stærstu verslun sýslunnar og hefur leigt Kaupási þar reksturinn undir merkjum KÁ. Pálmi segir ýmsar hugmyndir uppi um nýtingu Vöruhússins, sem er um 1.200 fer- metrar á þremur hæðum. Hann segir til greina koma að mynda eignarhaldsfélag um húsið með öðrum aðilum sem sjái sér hag í að gera á því breytingar og leigja það út. Hefur vonandi áhrif á ungt fólk varðandi búsetu Svipða átti sér stað þegar KASK hætti rekstri Mjólkurstöðvarinnar fyrir nokkrum árum og stóð uppi með gott matvælavinnsluhús. Stofnað var eignarhaldsfélag um húsið sem síðan leigir nýsköpunar- fyrirtækinu Norðurís húsið, en það fyrirtækið vinnur bragðefni úr fiskúrgangi. „Það er þetta sem við horfum á í sambandi við Vöruhúsið, að mynda um það eignarhaldsfélag sem gæti skapað þessar aðstæður fyrir t.d. starfsemi Gagnvirkrar miðlunar. Við vitum að það er hér ákveðin vöntun á húsnæði framundan, jafn- vel fyrir skólana vegna þess að það eru að koma stórir árgangar og það þarf pláss fyrir þá.“ Pálmi segir að menn voni að mið- bæjarkjarninn, ásamt þeirri upp- byggingu sem bæjarfélagið og rík- ið eru að fara af stað með í Nýheimum, eigi eftir að hafa áhrif á þá sem vilja búa á Hornafirði og sérstaklega það yngra fólk sem hefur áhuga á að fara út land. „Það hefur áhuga á tvennu, hvernig er að búa og lifa þar og hins vegar hvaða atvinnutækifæri höfum við. Við vitum að það er ekki nóg að geta útvegað atvinnu. Það þarf ákveðið umhverfi og hluti af því er að verslunin geti verið samkeppn- ishæf og boðið sambærileg verð og þjónustu og gerist á suðvestur- horninu og þessi kjarnahugmynd er það sem sveitarfélagið þarf á að halda til að geta boðið upp á sam- keppnishæfa þjónustu, það er al- veg ljóst.“ þrátt fyrir fækkun íbúa undanfarin ár Eiríkur P. aldraða. Fyrstu stoðirnar risu fyrir skömmu í nýjum verslunarkjarna í miðbæ Hafnar. Við hliðina munu Nýheimar rísa með framhaldsskóla, bókasafni og nýherjabúðum. tekinn í notkun á Höfn í síðasta mánuði. g í atvinnulíf- ir samfélagið ginu Hornafirði búa nú um s. Ólíkt mörgum byggðar- andsbyggðinni ríkir þar g bjartsýni á framtíðina, þar ru sér þess meðvitandi að um sér næstur. Eiríkur P. heimsótti Höfn á dögunum bæjarstjóra Hornafjarðar stjóra Austur-Skaftfellinga gingaframkvæmdir og ggingu í samfélaginu. ið byggingu verslunarkjarna í síðasta mánuði arninn mun leysa Vöruhúsið, sem sést í bak- það hefur verið stærsta verslunarhús. YFIRGNÆFANDI meiri-hluti lækna hér á landi, eðaátta af hverjum tíu, erfylgjandi uppbyggingu á miðlægum gagnagrunni á heilbrigð- issviði, samkvæmt könnun sem Ís- lensk erfðagreining lét Gallup gera í byrjun mánaðarins. Um leið var gerð könnun meðal almennings þar sem um 90% þeirra sem afstöðu tóku lýstu sig fylgjandi gagnagrunninum. Í ljósi þessara niðurstaðna segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, að fyrirtækið árétti þá afstöðu sína að það muni fara að samþykktum alþjóðasamtaka lækna og hins alþjóðlega vísindasamfélags, en í drögum að samþykktum alþjóða- samtaka lækna segir að við upplýs- ingaöflun úr sjúkraskrám verði miðað við ætlað samþykki sjúklings en ekki skriflegt, líkt og stjórn Læknafélags Íslands hefur farið fram á. Vonast fyrirtækið til þess að víðtæk sátt náist nú um gagnagrunninn og viðræður geti hafist að nýju við Læknafélag Íslands, sem slitið var í síðasta mánuði, þar sem vilji meirihluta starfandi lækna sé í andstöðu við vilja stjórnar lækna- félagsins. Eftir að Læknafélagið sleit viðræðunum óskaði Íslensk erfðagreining eftir því við félagið að viðræður hæfust á ný. Þeirri ósk var hafnað. Kári Stefánsson sagði við Morgunblaðið í gær, þegar könnunin var kynnt, að í kjölfar neit- unar Læknafélagsins um nýjar við- ræður hefði Íslensk erfðagreining ákveðið að láta Gallup kanna afstöðu allra starfandi lækna í landinu til gagnagrunnsins. Könnunin meðal lækna fór fram símleiðis dagana 9. til 12. febrúar sl. Leitað var eftir svörum frá 779 lækn- um, sem eru að störfum hér á landi. Ekki náðist í 100 lækna og 97 neituðu að svara. Fjöldi svarenda var því 582, eða svarhlutfall upp á 74,7%, en þar af tóku 73 ekki afstöðu til spurningar- innar sem var þessi: „Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) uppbyggingu á mið- lægum gagnagrunni á heilbrigðissviði ef farið er eftir öllum skilmálum al- þjóðasamtaka lækna og vísindasam- félagsins?“ Af þeim 509 læknum sem tóku afstöðu sögðust 57,2% vera mjög fylgjandi uppbyggingu gagnagrunns- ins og 26,7% voru fremur fylgjandi þannig að fylgjandi spurningunni voru í heild 83,9% þeirra sem afstöðu tóku. Mjög andvíg gagnagrunninum voru 11,8% lækna, 2,2% sögðust vera fremur andvíg og hvorki fylgjandi né andvíg voru 2,2%. Andvígir læknar voru því í heild 14%. Til viðbótar þessu gerði Gallup könnun 7. til 19. febrúar sl. meðal al- mennings á öllu landinu á aldrinum 16–75 ára. Svarendur voru 800 en þar af tóku 72 ekki afstöðu. Þar var spurt: „Ert þú fylgjandi eða andvíg(ur) því að settur verði saman gagnagrunnur á heilbrigðissviði?“ Niðurstaðan var sú að 82,8% voru fylgjandi en 10,6% andvíg. Sömu spurningar var spurt meðal almennings fyrir ÍE í maí á síð- asta ári og þá voru 81,3% fylgjandi en 8,7% andvíg gagnagrunninum. Tillaga um skriflegt samþykki skiptir minna máli nú Kári sagði það eðlilegt að við jafn- stórt verkefni og gagnagrunninn væri afstaða þeirra könnuð sem koma til með að taka þátt í verkefninu, þ.e. læknar. „Það er ljóst að í þessu máli er stjórn Læknafélagsins svolítið úr takt við hinn almenna félagsmann. Mikil- vægt er að koma þessum niðurstöð- um könnunarinnar til þeirra sem ætla að koma að þessari vinnu á einhvern hátt, þannig að þeim sem okkur styðja í þessu máli líði kannski svolítið betur,“ sagði Kári. Hann minnti á að í þeim viðræðum við Læknafélagið sem höfðu átt sér stað, áður en þeim var slitið, hefði Ís- lensk erfðagreining tekið stórt skref með því að fallast á að nota skriflegt samþykki við öflun heilsufarsupplýs- inga. Það hefði verið töluvert á skjön við þá hefð sem ríkti í alþjóðlegu vís- indasamfélagi og þær tillögur sem væru að koma fram um allan heim, þ.e. einróma á þann veg að miða við ætlað samþykki sjúklings en ekki skriflegt. Kári sagði að með könnun- inni nú skipti minna máli að fallast á skriflegt samþykki þar sem vilji stjórnar Læknafélagsins væri á skjön við hinn almenna félagsmann, læknana sem annast sjúk- lingana. „Þegar niðurstöður þessarar könnunar eru skoðaðar í samanburði við afstöðu stjórnar Læknafélagsins þá má ekki gleyma því að stjórnin er kosin á að- alfundi. Aðalfundurinn er ekki fundur hins al- menna félagsmanns heldur fulltrúa sem eru langflestir kjörnir af stjórnum læknafélaga. Aðalfundurinn er því fulltrúafundur og því ætti það ekki að koma á óvart að svo- lítið gap myndist á milli stjórnarinnar og hins almenna félagsmanns. Að því sögðu tel ég að Sigurbjörn Sveinsson sé hinn ágætasti formaður síns félags; skýr, skemmtilegur og vel virkur sem formaður, þó svo að við séum með býsna ólíkar skoðanir á þessu máli,“ sagði Kári ennfremur. Vinnuaðferðum breytt skipti al- þjóðasamtök lækna um skoðun Með því að árétta að Íslensk erfða- greining muni fara að samþykktum alþjóðasamtaka lækna og hins alþjóð- lega vísindasamfélags sagði Kári það ekki eiga við ef alþjóðasamtökin myndu setja saman sérstaka ráðlegg- ingu í sambandi við miðlægan gagna- grunn á Íslandi sem yrði öðruvísi en sú afstaða sem þau tækju til heil- brigðisupplýsinga almennt. „Það sem við erum að segja er að við förum að þeim skoðunum og þeim vilja sem hið alþjóðlega vísindasam- félag tjáir og þeim vilja sem alþjóða- læknasamtökin tjá um það hvernig eigi að nota heilbrigðisupplýsingar sem verða til við það að heilbrigðis- þjónusta sé veitt. Í dag er vilji hins al- þjóða samfélags að þessar upplýsing- ar eigi að nota og megi nota með ætluðu samþykki. Ef það breytist í framtíðinni þá komum við til með að breyta okkar vinnuaðferðum. Þetta er ekki bara okkar vilji sem fyrirtæk- is heldur er þetta tjáð skýrt og skor- inort í lögunum um gagnagrunninn og leyfinu sem byggist á þeim lög- um,“ sagði Kári. Hann sagði könnunina sýna að 14% lækna væru andvíg gagnagrunninum. Þeir yrðu að sætta sig við þau lög sem giltu í landinu og sætta sig við vilja mikils meirihluta sinna starfsbræðra, sem væri í samræmi við vilja Alþingis og meirihluta þjóðarinnar. „Þar sem ég ólst upp þótti mjög mikilvægt ef menn gátu haldið sig innan ramma laganna,“ sagði Kári Stefánsson við Morgunblaðið. Átta af hverj- um tíu læknum fylgjandi Kári Stefánsson Könnun Gallup fyrir Íslenska erfðagreiningu á afstöðu lækna og almennings til gagnagrunnsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.