Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 71
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 69
Mjög
got
t
verð
!
H
TH
H
Ö
N
N
U
N
Loksins þvotta-
efni sem
hreinsar
þvottinn sem
tekið hefur í sig
lit úr öðru efni
í þvotti.
ÞVOTTAEFNI
FYRIR LITASMIT
FYRIR VÉLÞVOTT
Bíldshöfða 6 · Sími 515 7025 Tryggvabraut 5 · Akureyri · Sími 462 2700 www.brimborg.is
Opið frá 9 - 18 virka daga og 11 - 16 laugardaga
Verð 3.050.000 kr.
Leitaðu að notuðum bíl á
brimborg.is með öflugri og
hraðvirkri leitarvél. Komdu í
1000 fermetra sýningarsal
okkar að Bíldshöfða 6 og
skoðaðu fjölda notaðra úrvals-
bíla. Settu öryggið á oddinn
og tryggðu þér góðan bíl.
Einstakir
Skrd:4/1999. Ekinn 17.000 km
Vél:2435 cc, 5 strokka LPT,
193 hö. Sjálfskiptur.
Búnaður m.a.
Rafmagn í rúðum
Samlæsing
Rafdrifnir speglar
Geislaspilari, 8 hátalarar
Leðuráklæði
Fjarstýring fyrir samlæsingu
ABS bremsukerfi
Hiti í sætum
Dagljósabúnaður
Álfelgur 16"
Kastarar í stuðara
Vökvastýri
Barnasæti
Þverbogar
Hiti í hliðarspeglum
Málmlitur
Spólvörn
6 Líknarbelgir
Hleðslujafnari
Velti- og aðdráttarstýri
Bifreiðin er til sýnis í
neðri sal Brimborgar.
Volvo V70 XC 4X4 STW
KRAFTUR á öllum fjórum verða
einkunnarorð sýningarviku B&L á
fjórhjóladrifnum bifreiðum, sem
hefst laugardaginn 24. febrúar.
Sýningin spannar breitt svið, eða
allt frá tröllauknum jeppum að fjöl-
nota bifreiðum.
Í fréttatilkynningu segir: „Sýn-
inguna heldur B&L í samvinnu við
Útilíf og Aukaraf, með það fyrir
augum að hún nái jafnframt yfir
sem flestar nýjungar á sviði auka-
búnaðar fyrir fjórhjóladrifnar bif-
reiðar annars vegar og útivistar-
búnaðar hins vegar. Sem dæmi um
aukabúnað má nefna svonefnt
GSM-start, en það er búnaður
hannaður af Aukarafi, sem gerir
kleift að fjarstýra ekki aðeins bif-
reiðum í gang um GSM-síma heldur
einnig upphitunarkerfum í sum-
arbústöðum, svo að dæmi séu
nefnd. Jafnframt má nefna til sög-
unnar tölvustýrðar driflæsingar,
spólvörn og nýjar vélar. Þá verður
til sýnis fyrsti tölvustýrði 35“ bílinn
sem hækkar sig og lækkar eftir að-
stæðum.
B&L er umboðsaðili 4 bifreiða-
framleiðenda og á sýningunni getur
að líta það nýjasta í 4X4 frá þeim
öllum. Sem dæmi má nefna 35“
breytta Range Rover og Discovery
og 38“ og 44“ breyttan Defender.
Frá breska framleiðandanum Land
Rover verður einnig til sýnis Free-
lander með nýja 6 strokka vél. Frá
BMW verður nýi X5 jeppinn, sem
hefur m.a. hlotið hæstu einkunn
sem gefin hefur verið í árekstr-
aprófun bandarísku stofnunarinnar
IIHS (Insurance Institute of
Highway Safety). Fyrir þá sem
vilja ekki vera á allra stærstu gerð í
innanbæjarakstrinum verður nýi
Renault RX4 til sýnis en hann sam-
einar í einum bíl kosti fólksbíls og
jepplings. Þá verður á sýningunni
Starex, nýr fjölnota bíll frá Hy-
undai sem er m.a. innréttaður með
færanleg sæti, og frá Hyundai
verður einnig til sýnis nýr Santa
Fe, 6 strokka jeppi á fólksbílaverði.
“
Sýningin Kraftverk 2001 verður í
sýningarsal B&L, Grjóthálsi 1, frá
24. febrúar til 4. mars, að báðum
dögum meðtöldum. Opnunartími er
frá 9 til 18 virka daga, 10 til 16
laugardaga og 12 til 17 sunnudaga.
4X4-sýn-
ing hjá
B&L
ÍÞRÓTTADAGUR FÁÍA, Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra,
verður haldinn á öskudaginn, 28.
febrúar, í Austurbergi samkvæmt
venju og hefst kl. 14.
Dagskráin verður fjölbreytt að
vanda en áður en hún hefst mun
fara fram stutt minningarathöfn
um Þorstein Einarsson þar sem
fram koma m.a. nokkrir ungir
glímumenn og sýna íþrótt sína.
Aðgangur er ókeypis og eru all-
ir velkomnir sem áhuga hafa með-
an húsrúm leyfir.
Félag áhugafólks um íþróttir
aldraðra (FÁÍA) var stofnað árið
1985. Eins og nafn þess gefur til
kynna var markmið stofnendanna
að stuðla að og efla áhuga eldra
fólks á nauðsyn líkamshreyfingar
og iðkun íþrótta við þess hæfi og
skiptir engu máli hvar það býr á
landinu.
Einn aðalhvatamaður að stofn-
un þessa félagsskapar var Þor-
steinn Einarsson, fyrrum íþrótta-
fulltrúi, sem þá hafði látið af
störfum nokkrum árum áður fyrir
aldurs sakir. Þorsteinn andaðist
5. janúar sl. 89 ára að aldri.
Mestan hluta þess tíma sem lið-
inn er frá stofnun félagsins var
Þorsteinn ein aðaldriffjöðrin í
starfi þess.
Hann var síhvetjandi og óþreyt-
andi í áróðri sínum fyrir málefn-
inu og sýndi það með eft-
irminnilegum hætti í verki, ræðu
og riti. Íslenska glíman var Þor-
steini mjög hugstæð og hann
studdi framgang hennar af heil-
um hug allt til síðasta dags.
Síðustu árin hefur félagið kynnt
starfsemi sína á íþróttadegi FÁÍA,
á öskudeginum, í íþróttamiðstöð-
inni í Austurbergi í Reykjavík.
Þar hafa komið fram fjölmargir
hópar eldra fólks frá hinum ýmsu
félagsmiðstöðvum í Reykjavík og
nágrenni og sýnt bæði dansa og
margskonar leikfimiæfingar við
sitt hæfi.
Frá íþróttahátíð F.Á.Í.A. í Austubergi.
Íþróttahátíð FÁÍA
á öskudaginn
FORELDRARÁÐ Hafnarfjarðar
hefur sent frá sér eftirfarandi álykt-
un:
„Fundur Foreldraráðs Hafnar-
fjarðar, er haldinn var þriðjudaginn
20. febrúar 2001, hefur kynnt sér
ætlun Hafnarfjarðarbæjar um að
bjóða út kennsluþátt Áslandsskóla.
Foreldraráð Hafnarfjarðar fagnar
áhuga bæjaryfirvalda á að bæta
skólastarfið og koma fram með nýj-
ungar. En þar sem útboðið gefur
væntanlegum rekstraraðilum val um
áherslur í skólastarfi vill Foreldra-
ráð gera fyrirvara um endanlega nið-
urstöðu í málinu og minnir einnig á
að úr lögum um grunnskóla nr. 66/
1995 –16. gr., segir: Við hvern grunn-
skóla skal starfa foreldraráð sem
fjallar um og gefur umsögn til skól-
ans og skólanefndar um skólanám-
skrá og aðrar áætlanir sem varða
skólahaldið. Því óskar Foreldraráð
eftir nánari samvinnu og kynningu
um skólahald í Áslandsskóla ef þessi
tilraun fer í framkvæmd.“
Óska eftir nánari
samvinnu um skólahald
í Áslandsskóla
JÓHANN Breiðfjörð heldur fyrir-
lesturinn „Í sjöunda himni“ í sal 101 í
Odda í Háskóla Íslands sunnudaginn
25. febrúar kl. 14. Aðgangseyrir er
1.000 kr. Jóhann heldur fyrirlestur-
inn á eigin vegum og leigir einungis
aðstöðuna í Odda.
Í fréttatilkynningu segir: „Þessi
fyrirlestur er ekki fyrir viðkvæmar
sálir þar sem fjallað verður um mál-
efni sem geta rist djúpt í hugann,
hjartað og sálina. Fyrirlesarinn mun
segja frá eigin reynslu af því að
drukkna og því sem hann skynjaði í
þær 3–5 mínútur sem líkaminn var
látinn. Fyrirlesturinn var áður hald-
inn hinn 25. nóvember en verður
endurtekinn vegna fjölda fyrir-
spurna. Það skal tekið sérstaklega
fram að umfjöllunin er ekki trúar-
legs eðlis heldur einungis byggð á
beinni skynjun og reynslu.
Markmiðið með umfjölluninni er
að lýsa upp þetta dimma málefni og
kenna fólki að nýta meðvitundina um
dauðann sér í hag. Hún getur nefni-
lega verið okkar mesti fjörgjafi og
getur verið fyrsta skrefið í áttina að
lífshamingju. Í þessari reynslu er
líka að finna fegurð sem gæti sefað
ótta margra og hlýjað einhverjum
um hjartaræturnar.“
Fyrirlesarinn, Jóhann Breiðfjörð,
hefur meðal annars starfað sem hug-
myndasmiður, hönnuður og ráðgjafi
fyrir Lego í fimm ár og haldið fjölda
fyrirlestra um skapandi hugsun fyrir
almenning og innan fyrirtækja.
Segir frá eigin reynslu
af því að „drukkna“
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
skíðagönguferðar á Mosfellsheiði
sunnudaginn 25. febrúar.
Þetta verður fyrsta skíðagöngu-
ferð vetrarins og byggist að sjálf-
sögðu á veðri og færð en snjór hefur
verið af skornum skammti til þessa.
Nú telja menn lag að komast loksins
á gönguskíðin.
Fararstjóri í þessari ferð er Gest-
ur Kristjánsson og þátttökugjald
1.200 krónur fyrir fullorðna. Brott-
för er frá BSÍ kl. 10.30 og komið við í
Mörkinni 6.
Skíðagöngu-
ferð á Mos-
fellsheiði
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð býður mánudaginn 26.
febrúar til stofnfundar félagsdeildar
á Seltjarnarnesi. Fundurinn verður í
fundarsalnum að Eiðismýri 30 og
hefst kl. 20.30.
Gestir verða m.a. Steingrímur J.
Sigfússon og Svanhildur Kaaber
sem munu ræða um málefni flokks-
ins og stjórnmál líðandi stundar.
Einnig verður fjallað um málefni
Seltjarnarness og starf bæjarstjórn-
ar. Allir velkomnir.
Vg stofnar
félagsdeild
Seltjarnarnes
KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir
börn eru haldnar í fundarsal Norræna
hússins. Sunnudaginn 25. febrúar kl.
14 verður kvikmyndin um Lottu í
Ólátagötu, gerð eftir söguAstrid
Lindgren sýnd. Aðgangur er ókeypis
og börn á öllum aldri eru velkomin.
„Lotta í Ólátagötu er kotroskin og
óþekk fimm ára stelpa. Þessi morg-
unn virðist ósköp venjulegur, sólin
skín inn um gluggann og blái bollinn
hennar Lottu stendur á borðinu, full-
ur af súkkulaði. En Lotta er alveg æf
því að mamma hennar hefur sagt
henni að fara í þessa leiðinlegu peysu
sem klæjar undan. Oj, hvað mamma
getur verið leiðinleg! Lotta laumast til
að taka skæri og klippa stórt gat á
peysuna ...“ segir í fréttatilkynningu.
Kvikmynda-
sýningar
fyrir börn
AÐALFUNDUR Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna,
haldinn 22. febrúar sl., hvetur
íbúa Reykjavíkur til þess að
taka þátt í atkvæðagreiðslu 17.
mars um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar og kjósa með áfram-
haldandi staðsetningu hans í
Vatnsmýrinni.
Fundurinn áréttaði einnig
fyrri samþykktir um að fram-
kvæmdum við nýja flugstöð fyr-
ir innanlandsflug verði hraðað.
Flugmenn
vilja flugvöll-
inn kyrran