Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Húsavík - Kiwanisklúbburinn Skjálf-
andi stendur árlega fyrir vali á
íþróttamanni ársins á Húsavík. Fyrir
skömmu var tilkynnt við hátíðlega
athöfn í Íþróttahöllinni hver var val-
inn íþróttamaður ársins 2000. Fyrir
valinu varð Sigurbjörg Hjartardóttir
handknattleiks- og frjálsíþróttamað-
ur. Í öðru sæti varð Pálmar Péturs-
son handknattleiksmaður og í þriðja
sæti golfarinn Arnar Vilberg Ingólfs-
son. Sigurbjörg náði þeim árangri að
verða valinn besti maður ársins bæði
í handknattleik og frjálsum íþróttum.
Um árangur Sigurbjargar sem
besti frjálsíþróttamaður ársins 2000
á Húsavík 17 ára og eldri segir: Sig-
urbjörg keppir í kastgreinum og hef-
ur náð góðum árangri, og tvímæla-
laust verið einn öflugasti
íþróttamaður Þingeyinga á síðustu
árum og í hópi þeirra bestu á land-
inu. Hún á héraðsmet í öllum kast-
greinum nema spjótkasti. Hún hefur
áður verið valin til æfinga með ung-
lingalandsliðinu í frjálsum og náði á
síðasta ári frábærum árangri á
Meistaramóti Íslands innanhúss, á
Unglingameistaramóti Íslands í
Mosfellsbæ og á Meistaramóti Ís-
lands sl. sumar. Á afrekaskrá ÍSÍ ár-
ið 2000 raðar Sigurbjörg sér á meðal
hinna bestu í öllum kastgreinum, og
m.a. í 1. sæti í bæði kringlukasti og
kúluvarpi, 2. sæti í sleggjukasti og 3.
sæti í spjótkasti í aldursflokknum 19-
20 ára.
Um árangur hennar sem besti
handknattleiksmaður ársins 2000 á
Húsavík segir: Sigurbjörg hefur æft
handbolta frá unga aldri með Völs-
ungi og leikið stöðu markvarðar.
Hún var aðalmarkvörður Völsungs í
2 fl. kvenna og var áður valin í ung-
lingalandsliðið. Til að geta stundað
íþrótt sína æfir hún og keppir með
meistaraflokki KA-Þór á Akureyri
nú í vetur og tekur þátt í Íslands-
mótinu. Hún er fastamaður í liðinu
og hefur vakið mikla athygli fyrir
frammistöðu sína.
Sigurbjörg hefur skipað sér á bekk
með allra bestu markvörðum lands-
ins í handknattleik. Sigurbjörg hefur
tvívegis áður verið kosin Íþróttamað-
ur Húsavíkur, árin 1997 og 1998.
Einnig var tilkynnt val á besta
manni ársins í einstökum greinum
íþrótta sem viðurkenndar eru af ÍSÍ.
Eftirtaldir urðu fyrir valinu að þessu
sinni.
Knattspyrna 16 ára og yngri:
Pálmi Rafn Pálmason. Knattspyrna
17 og eldri: Ómar Þorgeirsson.
Handknattleikur 16 ára og yngri:
Pálmar Pétursson. Handknattleikur
17 ára og eldri: Sigurbjörg Hjartar-
dóttir. Frjálsar íþróttir 17 ára og
eldri: Sigurbjörg Hjartardóttir.
Sund 16 ára og yngri: Hjörtur Ás-
björnsson. Boccia 16 ára og yngri:
Jóna Rún Skarphéðinsdóttir. Boccia
17 ára og eldri: Hörður Ívarsson.
Hnit 16 ára og yngri: Ásthildur
Gísladóttir. Golf 16 ára og yngri:
Arnar Vilberg Ingólfsson. Hestaí-
þróttir16 ára og yngri: Eyþór Hem-
mert Björnsson. Skotfimi 17 ára og
eldri: Ómar Örn Jónsson.
Þá voru veitt hvatningarverðlaun
til íþróttamanns úr röðum fatlaðra
og þau hlaut Erla Ýr Hansen sem
æfir og keppir með boccialiði Völs-
ungs.
Sigurbjörg Hjartardóttir
íþróttamaður Húsavíkur
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigurbjörg Hjartardóttir
hlaðin verðlaunagripum.
Keflavík - Nýr leikskóli, Hjalla-
tún, verður formlega tekinn í
notkun í dag, laugardag og hefst
athöfnin kl. 12. Skólinn stendur
við Vallarbraut í Njarðvíkum
skammt frá Samkaupum. Þetta er
bygging á einni hæð sem er um
660 fermetrar. Aðalverktaki var
Hjalti Guðmundsson ehf. og
heildarkostnaður byggingarinnar
var um 96 milljónir króna.
Leikskólinn Hjallatún er sjö-
undi leikskólinn í Reykjanesbæ.
Aðrir leikskólar eru, Heiðarsel,
Vesturberg, Tjarnarsel, Garðasel,
Gimli og Holt. Í leikskólunum
verða 650 börn í næsta mánuði,
þegar Hjallatún verður fullnýttur
og ákvæði nýs kjarasamnings
leikskólakennara er komið til
framkvæmda.
Börnum á biðlista eftir leik-
skólavist í Reykjanesbæ hefur
fækkað um helming síðan 1996,
en gert er ráð fyrir að í upphafi
næsta leikskólaárs 1. september
verði rúmlega 30 börn á biðlista
auk 47 barna með lögheimili í
öðrum sveitarfélögum. Árið 1996
voru 166 börn á biðlista í upphafi
leikskólaársins.
Næsta verkefni í bygging-
armálum leikskóla er stækkun
leikskólans Holts í Innri-Njarðvík
í fjögurra deilda skóla sem ljúka
sumarið 2003.
Leikskólinn Hjallatún er heils-
dagsskóli með fjórum deildum,
tvær fyrir 2 og 3 ára börn og
tvær deildir fyrir 4 og 5 ára
börn. Alls munu dvelja um 94
heilsdagsbörn í leikskólanum.
Leikskólastjóri er Gerður Péturs-
dóttir.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Hjallatún, nýr leikskóli í Reykjanesbæ verður tekinn í notkun í dag.
Nýr leikskóli í
Reykjanesbæ
Egilsstöðum - Nýverið var á Egils-
stöðum haldið námskeið fyrir núver-
andi og verðandi stjórnmálakonur á
Austurlandi. Var það haldið á vegum
nefndar um aukinn hlut kvenna í
stjórnmálum, Fræðslunets Austur-
lands og jafnréttisnefndar Austur-
Héraðs. Á námskeiðinu var fjallað
um stöðu kvenna á öllum stigum ís-
lensks stjórnmálalífs og með hvaða
hætti konur geti aukið hlut sinn og
þátttöku á þeim vettvangi. Meðal
annars voru skoðaðar skilvirkar að-
ferðir við hugmyndavinnu og skipu-
lega framsetningu hugmynda í ræðu
og riti og samskipti við fjölmiðla.
Fimmtán þátttakendur sóttu nám-
skeiðið, en kennarar voru Guðlaug
Guðmundsdóttir íslenskufræðingur,
Ingibjörg Frímannsdóttir málfræð-
ingur, Sigrún Jóhannesdóttir M.Sc. í
kennslutækni og dr. Sigrún Stefáns-
dóttir deildarstjóri hjá Norrænu ráð-
herranefndinni og Norðurlandaráði.
Í tengslum við námskeiðið var
boðað til opins fundar um þátttöku
kvenna í stjórnmálum. Fyrir svörum
sátu dr. Sigrún Stefánsdóttir, Ragn-
hildur Guðmundsdóttir, þingmenn-
irnir Arnbjörn Sveinsdóttir og Þur-
íður Bachman, Hildur Helga
Gísladóttir, formaður nefndar um
aukinn hlut kvenna í stjórnmálum,
Una María Óskarsdóttir verkefnis-
stjóri nefndarinnar, Sigrún Jóhann-
esdóttir og Ingibjörg Frímannsdótt-
ir. Umrædd nefnd var skipuð af
félagsmálaráðherra árið 1998 og eiga
í henni sæti fulltrúar allra stjórn-
málaflokka á Alþingi, auk fulltrúa frá
Kvenréttindafélagi Íslands og Jafn-
réttisstofu. Á fundinum var farið vítt
yfir sviðið, en m.a. voru ræddar þær
hindranir sem konur telja vera í vegi
fyrir þátttöku sinni í stjórnmálum.
Voru tekin dæmi eins og að ungar
konur færu síður en karlar í pólitík
vegna þess að þær væru önnum
kafnar við fjölskyldur sínar. Þá virk-
aði hætta á neikvæðri umfjöllun letj-
andi fyrir konur, ásamt reynsluleysi í
samskiptum við fjölmiðla og að póli-
tískt flokksstarf þeirra sem væru ut-
an framboðslista væri hverfandi.
Á fundinum var frumkynning á
ritinu Konur og fjölmiðlar, sem
fjallar um aðferðir og grundvallar-
reglur í samskiptum kvenna og fjöl-
miðla. Þar kemur m.a. fram að hlutur
kvenna í íslenskum fréttum sé rýr og
að fjölmiðlar séu í lykilaðstöðu til að
bæta þar úr og skapa um leið fjöl-
breyttari fréttir.
Staða kvenna á vettvangi stjórnmálalífs rædd á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Steinnun Ásmundsdóttir
Þátttakendur námskeiðs fyrir núverandi og verðandi stjórnmálakonur.
Námskeið
um pólitíska
þátttöku og
samskipti
við fjölmiðla
Fagradal - Oft hefur verið gott úti-
vinnuveður í Mýrdalnum í vetur,
lítill sem engin snjór og veðurblíð-
an einstök. Þetta nýttu starfsmenn
verktakafyrirtækisins Framrásar í
Vík sér nú í lok vikunnar og voru
úti í sólskininu að gera gröfu klára
til sprautunar með því að blása
lofti og sandi á ryð og málningu.
Ársæll Guðlaugsson, einn af eig-
endum Framrásar, segir að þetta
sé sá árstími sem minnst sé að gera
hjá fyrirtækinu og því upplagt að
nota mannskapinn til að gera tæki
og tól klár í slaginn fyrir vorið.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Kristján Böðvarsson, starfsmaður Framrásar, með sandblástursstútinn,
en með sandblæstrinum nær hann öllu ryði og lakki af gröfunni.
Skurðgrafa
sandblásin
Bolungarvík - Kútt-
magakvöld Lions-
klúbbsins í Bolung-
arvík hefur um langt
árabil verið árviss við-
burður í bæjarlífi Bol-
víkinga sérstaklega er
þetta kvöld vinsælt hjá
karlmönnum staðarins
þar sem konum er
meinaður aðgangur.
Um hundrað karl-
menn sátu veisluna í
samkonuhúsinu Vík-
urbæ laugardaginn 17.
febrúar síðastliðinn.
Að venju var boðið upp
á glæsilegt sjávarrétt-
ahlaðborð sem SKG
veitingar á Ísafirði sáu um að þessu
sinni. Veislustjóri kvöldsins átti að
vera Logi Bergmann Eiðsson
fréttamaður en sökum ófærðar gaf
honum ekki vestur þannig að
veislugestir sameinuðust um að
fylla það skarð með því að skemmta
hver öðrum með gríni, kveðskap og
söng. Þá var efnt til bögglauppboðs
þar sem sumir gerðu betri kaup en
aðrir.
Þar sem aðgangur að Kúttmga-
kvöldinu er aðeins heimill karl-
mönnum þá hafa bolvískar konur
brugðist við því undanfarin ár með
því að efna til kvennagleði á Veit-
ingahúsinu Finnabæ sama kvöld og
karlarnir snæða kúttmaga.
Á kvennagleðinni var að þessu
sinni boðið uppá sjávarréttahlað-
borð og fjölbreytta skemmtun þar
sem m.a söngtríóið Víkurdætur
komu fram, sýnd var nýjasta tísk-
an, og póstmeistari og prestur stað-
arins, sem eru kvenkyns, fengu nýtt
útlit í boði Hárstofunnar í Bolung-
arvík og Fjólu Bjarnadóttur snyrti-
fræðings. Sextíu konur sóttu
kvennagleðina að þessu sinni.
Veislustjóri var Pálína Vagnsdóttir.
Síðar um kvöldið, að veislunum
loknum, mættu síðan þeir sem vildu
á dansleik í Víkurbæ þar sem kynin
skemmtu sér saman fram á nótt.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Guðmundur Páll Einarsson, Ólafur Halldórsson, Jónatan Einarsson og
Benedikt Bjarnason saddir og sælir á kúttmagakvöldi Lions.
Víkurdætur; Margrét Pétursdóttir, Auður
Ragnarsdóttir og Pálína Vagnsdóttir
skemmtu með söng á kvennagleðinni.
Kvennagleði og kútt-
magakvöld í Bolungarvík