Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GEIR H. Haarde, fjármálaráð- herra, er í ferð um Ís- lendinga- slóðir í Manitoba í Kanada. Þar mun hann meðal annars eiga fundi með fjármálaráðherra og vararíkisstjóra Manitoba fylk- is. Flutti erindi í Manitoba Ráðherrann flutti erindi á föstudag við Háskólann í Manitoba. Einnig mun hann fara um slóðir Íslendinga á Nýja Íslandi og hitta forystu- menn þeirra, auk þess að vera sérstakur gestur á samkomu Íslendingafélaganna á svæð- inu. Fjármála- ráðherra heimsækir Kanada Geir H. Haarde MÖRÐUR Árnason, sem situr í út- varpsráði, hefur sent frá sér yfirlýs- ingu þar sem hann segir að sér þyki ekki stætt á því að útvarpsráð gangi á skjön við þann skilning sem heild- arsamtök íslenskra listamanna leggja í tjáningarfrelsi við listsköp- un. Þess vegna muni hann leggja fram tillögu um það á fundi útvarps- ráðs í næstu viku, að listamaðurinn, sem vann í forkeppninni fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva, ráði því sjálfur á hvaða tungumáli lag hans verður sungið í Kaupmannahöfn í vor. Í tilkynningu Marðar segir hann að þegar útvarpsráð hafi tekið þá sakleysislegu ákvörðun að íslenska lagið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva yrði að þessu sinni sungið á móðurmálinu hafi ekki hvarflað að útvarpsráðsmönnum að það að syngja á íslensku gæti skert tjáningarfrelsi listamanna. Nú hafi Bandalag íslenskra listamanna lýst því yfir að svo sé. Því þyki honum ekki stætt á að útvarpsráð gangi á skjön við þann skilning sem heildar- samtök íslenskra listamanna leggi í tjáningarfrelsi við listsköpun. „Ég ætla því að flytja um það til- lögu á fundi útvarpsráðs á þriðjudag að listamaðurinn, sem vann í for- keppninni, ráði því sjálfur á hvaða tungumáli lag hans verður sungið í Kaupmannahöfn í vor, að útvarps- ráð kanni að nýju forsendur og framkvæmd þessarar söngvakeppni og hafi við það verk samráð við starfsmenn Sjónvarpsins og þá listamenn sem helst koma við sögu,“ segir í tilkynningu Marðar. Verður til sóma hvort sem er á íslensku eða ensku Einar Bárðarson, höfundur lags- ins Birtu sem vann íslensku und- ankeppnina, gaf í vikunni út yfirlýs- ingu um að hann myndi sætta sig við það skilyrði útvarpsráðs að lagið verði flutt á íslensku í Kaupmanna- höfn. Einar sagði í samtali við Morgunblaðið að sér þætti málið nú komið í annan og betri farveg og hann vonaðist til þess að fulltrúar í útvarpsráði sæju sér nú fært að breyta fyrri ákvörðun sinni. „Þetta er búið að vera flókið og skrítið ferli, en ég fagna þessum sinna- skiptum enda skiptir þetta miklu máli, bæði fyrir flytjendur og höf- und, og snýr t.d. málunum alveg við fjárhagslega,“ sagði Einar og benti á að útgefendur hefðu lítinn áhuga á að setja fjármagn til markaðssetn- ingar vöru sem hefði takmarkaðan markhóp. „Ég vona að útvarpsráð fari að því sem virðist vera vilji meirihluta þjóðarinnar og það er að leyfa höfundi að velja á hvaða tungumáli höfundur lags vill tjá sig,“ sagði Einar. Spurður hvert val hans verður, samþykki útvarpsráð tillögu Marðar, sagðist Einar kjósa að nota ensku í aðalkeppninni. „En hvort sem sungið verður á íslensku eða ensku verðum við landinu til sóma.“ Mörður Árnason leggur fram tillögu til útvarpsráðs Listamaðurinn ráði á hvaða máli sungið er NÝJU fötin keisarans var yfirskrift fyrirlesturs sem prófessor Mohammed Ranavaya við Marshall University School í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum hélt á vegum læknaráðs Landspítalans í gær. Fyrirlesturinn fjallaði um umdeilda sjúkdóma á borð við síþreytu, vefja- gigt og fjölþætt efnaofnæmi (e. Multiple Chemical Sensitivity) og viðbrögð tryggingakerfisins við þeim. Prófessor Ranavaya er sérfræð- ingur í atvinnusjúkdómum og tryggingalækningum og einn helsti sérfræðingur Bandaríkjamanna um örorkumat. Hann var staddur hér á landi til að halda námskeið fyrir lækna Tryggingastofnunar og Sambands íslenskra trygginga- félaga. Að hans sögn hafa þessir um- deildu sjúkdómar fjölda sameig- inlegra einkenna á borð við minn- istap, líkamlega verki, svefntruflanir, þreytu og þung- lyndi. „Margir telja að þessir sjúk- dómar séu alls ekki til, heldur séu þeir röng greining á ástandi sem skapast af andlegri streitu. Í raun sé um geðræn, félagsleg og pólítísk vandamál að ræða. Þar með er ég ekki að segja að þetta fólk þjáist ekki í raun heldur eru þjáning- arnar líklegast af öðrum toga en líkamlegum.“ Ramavaya segir sjúkdómana eiga það sameiginlegt að litlar eða engar hlutlægar vísbendingar séu til staðar fyrir lækna að byggja sjúkdómsgreiningu sína á. Þvert á móti ákvarðist greiningin á því sem sjúklingurinn heldur fram og engu öðru. Enn hafi heldur ekki verið sýnt fram á orsök þessara sjúk- dóma þó að læknar hefi sett fram kenningar þar um. „Það skortir al- gerlega sannanir fyrir því að þess- ar kenningar standist,“ segir Ram- avaya. „Þannig minna þær á söguna af Sókratesi. Hann hélt því fram að karlmenn hefðu fleiri tenn- ur en konur og allir trúðu honum en engum datt í hug að líta upp í munn karla og kvenna til að telja hversu margar tennur væri þar að finna.“ Að sögn Ramavaya hafa þessir sjúkdómar reynst erfiðir í með- förum í sjúkratryggingakerfinu. Á flestum stöðum sé borgað fyrir meðferð þeirra en þeir ekki metnir til örorku. „Fólkið sem kvartar hef- ur engar sannanir fyrir veikindum sínum. Og er rétt að greiða fólki ör- orkubætur eingöngu vegna þess að það kvartar?“ spyr Ramavaya og segir ekkert eitt svar til við því. „Ég er þeirrar skoðunar að með því værum við að feta í fótspor keis- arans sem borgaði fyrir fötin sem hann aldrei fékk.“ Fyrirlestur prófessors Muhammed Ranavaya um umdeilda sjúkdóma Morgunblaðið/Ásdís Prófessor Mohammed Ranavaya: Ekki rétt að greiða örorkubætur ein- göngu vegna kvartana sjúklings. Í fótspor keisarans STEFNT er að því að nýbygging Háskólans í Reykjavík verði tekin í notkun á nýju skólaári næsta haust. Verið er að slá upp fyrir þriðju hæð en alls verður húsið nærri fjögur þúsund fermetrar á fimm hæðum sem þýðir að húsnæði skólans tvö- faldast. Með nýbyggingunni verður unnt að taka á móti kringum 1.200 nem- endum en Guðfinna Bjarnadóttir rektor segir stækkunina ekki síður auka möguleika skólans á sviði þekk- ingarþjónustu, til dæmis með auk- inni símenntun og stjórnunar- fræðslu. Arkitektar eru Ormar Þór Guð- mundsson og Örnólfur Hall hjá Arki- tektastofunni og um framkvæmdir sér byggingaverktakinn ÓG bygg en sömu aðilar reistu einnig fyrsta áfanga skólans. Kostnaður við fram- kvæmdirnar er nærri 500 milljónir króna. Eiríkur Arnarson, sem er eftirlits- maður fyrir hönd Verkfræðistofu Stanleys Pálssonar, segir uppsteypu hússins um 10 dögum á eftir áætlun en telur það ekki svo mikið að erfitt verði að vinna það upp. Hann segir bráðlega unnt að hefja vinnu innan dyra en sami verktaki annast hana einnig. Kringum 20 smiðir hafa starfað við framkvæmdirnar að und- anförnu en Eiríkur segir að búast megi við að starfsmenn verði 50 til 60 í sumar þegar vinnan innanhúss verður komin í fullan gang. Í þessum nýja hluta skólans verða fleiri og stærri kennslusalir en í nú- verandi byggingu. Einn salurinn á að rúma um 300 nemendur og þrír geta tekið 50 til 100 nemendur. Ei- ríkur segir ákveðinn sveigjanleika vera varðandi fráganginn innan dyra, t.d. hvað varðar stærð á kennslustofum. Bílastæðum við skólann verður einnig fjölgað nokkuð og verða þau orðin vel yfir 200 þegar framkvæmd- um lýkur. Samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir enn einum bygging- aráfanga á lóð Háskólans í Reykja- vík. Húsnæði Háskólans í Reykjavík tvöfaldast Morgunblaðið/Ásdís Nýbygging Háskólans í Reykjavík á að vera tilbúin næsta haust. ÞEIR þingmenn sem svöruðu erindi FÍB-blaðsins eru þeirrar skoðunar að taka skuli upp olíugjald í stað þungskatts á dísilbíla. Alls svöruðu 24 þingmenn spurningunni. Þetta kemur fram í umfjöllun um málið í nýjasta hefti FÍB-blaðsins, sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda gef- ur út. Í formála að spurningunni, sem al- þingismönnum var send í tölvupósti, segir að það sé skoðun FÍB að leggja beri niður núverandi þungaskatt- skerfi fyrir dísilbíla en taka í þess stað upp olíugjald. Auk FÍB séu flest samtök atvinnubifreiðarstjóra og Samtök iðnaðarins sama sinnis. Sýnt hafi verið fram á að þungaskatt- skerfið gangi á skjön við jafnræðis- sjónarmið þar sem í því er fólgin mis- munun. Jafnframt fari kerfið á skjön við umhverfisverndarsjónarmið. Spurning FÍB-blaðsins var eftir- farandi: „Ert þú þeirrar skoðunar að taka skuli upp olíugjald í stað þunga- skatts á dísilbíla?“ Þeir sem svöruðu spurningunni játandi voru Sverrir Hermannsson, Frjálslynda flokkn- um, Árni R. Árnason, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristján Páls- son, Gunnar Birgisson, Árni John- sen og Guðmundur Hallvarðsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Jó- hanna Sigurðardóttir, Einar Már Sigurðsson, Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Guðrún Ögmunds- dóttir, Margrét Frímannsdóttir, Gísli S. Einarsson, Sigríður Jóhann- esdóttir, Kristján L. Möller og Jó- hann Ársælsson, þingmenn Sam- fylkingarinnar, Ísólfur Gylfi Pálmason, Guðni Ágústsson og Hjálmar Árnason, þingmenn Fram- sóknarflokksins, Þuríður Backman og Ögmundur Jónasson, þingmenn vinstri–grænna. FÍB-blaðið kannar viðhorf þingmanna til olíugjalds Margir eru hlynntir afnámi þungaskatts FLUGVÉL Flugleiða, sem kom til landsins í gær, tafðist um þrjá og hálfan klukkutíma í New York vegna óveðurs. Mjög vont veður var í borg- inni og tafðist áhöfn vélarinnar um rúman hálftíma vegna ófærðar á vegum. Um þriggja tíma töf varð síð- an á flugvellinum vegna þess að vélin þurfti að bíða eftir að komast í af- ísingu. Miklar tafir urðu á flugi í New York vegna veðursins og neyddust sum flugfélög til að aflýsa flugi vegna þess að flugmenn, sem biðu á flugvellinum, voru búnir að vaka fram yfir leyfilegan tíma. Tafir vegna óveðurs í New York ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.