Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 13 EKKI mátti greina mikla sátt um framtíð kvótakerfisins á morgun- verðarfundi Sambands ungra fram- sóknarmanna í Kaffivagninum í gær- morgun. Þar voru m.a. frummælendur þeir Kristinn H. Gunnarsson, formaður Byggðastofn- unar og þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins, og Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, og sýndist sitt hvorum um framtíð kvótakerfisins og úthlutun aflaheim- ilda. Kristinn H. Gunnarsson sagði að ekki væri samstaða fyrir hendi um að halda áfram á sömu braut með þeim plástrum sem laga ættu kvótakerfið. Til þess að bregðast við telur Krist- inn að menn eigi að fara svipaða leið og auðlindanefnd benti á og kallast fyrningarleiðin. „Ég aðhyllist leið af því tagi. Ég tel að það sem verði að gera, til þess að meiri sátt náist um kerfið, sé að innkalla allar veiðiheim- ildir. Og úthlutun á nýjan leik fari fram eftir leikreglum sem eru þannig að menn séu á jafnréttisgrundvelli.“ Að mati Kristins er eina leiðin sú að leigja aflaheimildirnar á markaði. Þannig verði til kerfi sem allir hafi að- gang að og geti boðið í veiðiheimildir. „Til þess að treysta stöðu byggðar- laga tel ég að hluti af aflaheimildum eigi að vera á forræði sveitarfélaga. Þau eiga að hafa tekjurnar af hlut- anum, þau eiga að hafa möguleika á að geta sett reglur sem tryggja at- vinnustarfsemi í þeirra byggðarlagi.“ Kristinn segist líta svo á að slíkar breytingar ættu að ganga hægt fyrir sig og innkalla ætti 3–5% af aflaheim- ildum árlega sem myndi leiða til þess að 20–33 ár tæki að breyta alveg yfir í nýtt kerfi. Séreignarréttur það eina sem dugir atvinnuveginum? Friðrik J. Arngrímsson sagði markmið fiskveiðistjórnunar augljós- lega þau að vernda fiskistofnana og hámarka arðsemi í nýtingu þeirra. Hann sagði það staðreynd að yfir 80% veiðiheimilda hefðu skipt um eigendur frá því að aflamarkskerfið var tekið upp og þannig hefðu útvegs- menn fylgt því markmiði um hagræð- ingu sem lög um stjórn fiskveiða kveða á um og fjárfest í aflaheimild- um fyrir milljarða og keypt þá lakari út í flestum tilfellum. Friðrik gagnrýndi harðlega þá hugmynd að innkalla aflaheimildir og endurúthluta þeim. „Maður spyr sig hvort útvegsmenn geti við þessar að- stæður nokkurn tíma um frjálst höf- uð strokið í því kerfi sem við höfum, og hvort séreignarréttur á fiskistofn- unum sé ekki það eina sem dugir at- vinnuveginum til að vera óhultur fyr- ir þeim sem láta stundarhagsmuni ganga framar þjóðarhagsmunum.“ Friðrik sagði að með séreignar- rétti á fiskistofnunum næðist mest arðsemi út úr þeim, enda færu menn best með sínar eigin eignir og með því trausti sem séreignarrétturinn tryggði féllu stundarhagsmunir fyrir borð. „Og með því yrði væntanlega hægt að ljúka þessu máli.“ Friðrik benti á að yfirgnæfandi hluti aflaheimilda í dag væri á lands- byggðinni og það yrði að hafa í huga varðandi byggðamál og útdeilingu kvóta til að styrkja byggð. Ef færa ætti einum aðila kvóta væri ljóst að taka þyrfti hann af öðrum. Hann sagðist frekar telja að nota ætti skatttekjur sem til verða í vel rekn- um fyrirtækjum til aðstoðar þeim sem þurfa á því að halda en ekki að færa veiðiheimildir til með pólitískum hætti. Framkvæmdastjóri LÍÚ telur innköllun veiðiheimilda ekki koma til greina Mest arðsemi næst með sér- eignarrétti Morgunblaðið/Golli Menn fylgdust vandlega með málflutningi framsögumanna á morgun- verðarfundi um framtíð kvótakerfisins. Í BARÁTTUNNI við þá ógn sem af- greiðslufólki verslana stafar af ræn- ingjum, þjófum og öðrum vágestum, hefur lögreglan að undanförnu gert úttekt á Skeljungs- og Sel- ectstöðvum og sett upp merkingar sem gefa til kynna að stöðvarnar hafi fengið vottun. Í gærmorgun var komið að því að votta bensínstöð Skeljungs í Smár- anum í Kópavogi og önnuðust það verk lögreglumennirnir Guðmundur Gígja og Eiður Eiðsson úr Reykja- víkurlögreglunni og Jónas Haf- steinsson úr Kópavogslögreglunni. Vottunin felur í sér að á stöðinni sé allur nauðsynlegur öryggisbúnaður gegn þjófnuðum, fastmótað verklag sé viðhaft og starfsmenn hafi sótt námskeið þar sem farið er yfir ör- yggismál, bæði forvarnir og rétt við- brögð við hnupli, ránum og annarri móttöku vágesta. Varnir gegn vágestum er átak sem SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa hrundið af stað í sam- vinnu við forvarnadeild lögregl- unnar í Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Vágestir vari sig! UMBOSÐMAÐUR Alþingis hefur í nýlegu áliti sínu komist að þeirri niðurstöðu að Rannsóknarráð Ís- lands, Rannís, hafi brotið lög um varðveisluskyldu opinberra skjala með því að eyða tilteknum um- sögnum um styrkumsóknir til ráðs- ins. Samkvæmt lögum um Þjóð- skjalasafn Íslands er Rannís, líkt og öðrum opinberum stofnunum, skylt að afhenda safninu öll gögn sem verða til í starfsemi ráðsins. Þar sem gögnunum hafði verið eytt gat umboðsmaður ekki tekið formlega afstöðu til erindis eins umsækjenda um styrk hjá Rannís, sem kvartaði til umboðsmanns þar sem Rannís neitaði honum um upp- lýsingar um nöfn umsagnaraðila og umsagnirnar sjálfar. Viðkomandi umsækjandi sótti um styrk úr Vísindasjóði Rannís fyrir árið 1999, en var hafnað. Ósk- aði hann þá eftir skriflegum grein- argerðum umsagnaraðila um verk- efni hans og einnig vildi hann vita hverjir gáfu umsagnirnar. Rannís varð við hvorugri beiðni umsækj- andans en eftir að hann kvartaði til umboðsmanns Alþingis í desember 1999 upplýsti ráðið hvaða tveir að- ilar gáfu umsagnir um styrkum- sóknina. Kom þá í ljós að umsögn- um þeirra hafði verið eytt. Rannís harmar mistökin Eftir nokkur bréfaskipti milli umboðsmanns og Rannís á síðasta ári fékk sá fyrrnefndi þá tilkynn- ingu í bréfi í nóvember sl. að um- rædd gögn hefðu ekki verið varð- veitt í skjalasafni ráðsins og voru þau mistök hörmuð. Umsækjand- inn var einnig beðinn afsökunar á mistökunum af hálfu Rannís. Í áliti sínu fer umboðsmaður þess á leit við Rannís að það kynni fyrir honum þær aðgerðir sem gripið verður til í því skyni að bæta meðferð og vörslu skjala sem verða til í starfsemi þess. Rannís talið hafa brotið lög um varðveisluskyldu skjala Umsögnum styrkum- sækjanda var eytt SAMKVÆMT svörum nemenda 10. bekkja í grunnskólum Reykjanesbæj- ar í fyrra var hassneysla þeirra langt undir landsmeðaltali og hefur auk þess minnkað umtalsvert síðan 1999. Þetta kemur fram í skýrslu Rann- sókna og greiningar ehf. á högum og líðan ungs fólks á Suðurnesjum. Í apríl á síðasta ári var könnuð meðal nemenda í efstu bekkjum grunnskóla vímuefnaneysla, líðan þeirra í skóla, íþróttaiðkun, tengsl við foreldra og margt fleira. Í fyrra sögðust 5% 10. bekkinga í Reykjanesbæ einhvern tíma hafa not- að hass en 1999 var hlutfallið 15%. Nemendurnir í Reykjanesbæ eru töluvert undir landsmeðaltali á árinu 2000, þar sem 12% 10. bekkinga á landsvísu sögðust þá hafa notað hass og 14% nemenda í Reykjavík. Hass- neysla 10. bekkinga á Suðurnesjum er nálægt landsmeðaltali, eða 11%. 10. bekkingar í Reykjanesbæ koma enn fremur best út úr samanburði við aðra nemendur þegar notkun ann- arra ólöglegra vímuefna var athuguð, sérstaklega sniffs. Í Reykjanesbæ sögðust 2% 10. bekkinga hafa notað sniff á móti 8% á Suðurnesjum, 6% í Reykjavík og 7% á landsvísu. Þá virð- ist e-töfluneysla einnig vera minnst í Reykjanesbæ, þar sem 1% nemenda sögðust hafa notað eiturlyfið á móti 3% á Suðurnesjum, 2% í Reykjavík og landsvísu. Sveppi sögðust þá 2% 10. bekkinga í Reykjanesbæ hafa notað á móti 3% á hinum þremur stöðunum. Þá voru svefntöflur minnst notaðar í Reykja- nesbæ, 9% nemenda sögðust hafa notað þær, á móti 12% á Suðurnesjum og 10% í Reykjavík og á landsvísu. Áfengisneysla mikil Áfengisneysla unglinga sem voru í 9. bekkjum grunnskóla í Reykja- nesbæ í fyrra var hins vegar áberandi meiri en annars staðar. 49% níundu bekkinga sögðust hafa drukkið áfengi síðastliðna 30 daga á móti 29% jafn- aldra þeirra annars staðar á Suður- nesjum, 35% í Reykjavík og 34% á landsvísu. Hassneyslan undir lands- meðaltali í Reykjanesbæ Vímuefnakönnun lögð fyrir grunnskólanemendur í fyrra GERT er ráð fyrir að á bilinu 32–37 landverðir verði við störf vítt og breitt um landið í sumar á vegum Náttúruverndar ríkisins. Stofnunin hefur auglýst eftir landvörðum og er umsóknarfrestur til 5. mars. Að öllum líkindum verður bætt við tveimur nýjum stöðum þótt ekki hafi fengist auknar fjárveitingar til landvörslu. Ekki er frágengið hvar nýju stöðurnar tvær verða á land- inu. Viðræður um landvörslu í Lakagígum Í fyrra var á hluta ferðamanna- tímabilsins landvarsla á Gullfossi og Geysi og verður landvarsla þar yfir allan háannatímann. Árni Braga- son, forstjóri Náttúruverndar rík- isins, segir að nauðsynlegt sé að halda uppi fullri vörslu á Geysi- ssvæðinu eftir að breytingar urðu á virkni hveranna. Einnig er Nátt- úruverndin í samningaviðræðum við Skaftárhrepp um að halda uppi landvörslu í Lakagígum í sumar. Hreppurinn stóð fyrir vörslu þar hluta af síðasta sumri með styrk frá Náttúruverndinni en stefnt er að því að halda uppi fullri landvörslu þar. Einnig stendur til að bjóða út rekstur á tjaldsvæðinu í Jökulsár- gljúfrum og áfram verður leigt út tjaldsvæðið í Skaftafelli. Að öðru leyti verður landvarslan með hefð- bundnu sniði. Samstarf verður áfram við Landsvirkjun um land- vörslu við Kárahnjúka og Snæfell. Landvarsla verður við Geysi í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.