Morgunblaðið - 24.02.2001, Side 20
EINN bekkur í Mennta-
skólanum á Akureyri hefur
verið valinn til að vera til-
raunabekkur í námi og
kennslu með fartölvur á
þessari önn, en það er 3.
bekkur A sem er máladeild-
arbekkur. Unnið hefur verið
að því að þróa kennsluað-
ferðir og búa skólann tækj-
um til að taka á móti nem-
endum með fartölvur, en
skólinn hefur 25 fartölvur
sem hafa verið í færanlegu
fartölvuveri. Nú hafa nem-
endur í 3A, en þeir eru um
15 talsins, fengið fartölvur
úr verinu til að nota við nám
sitt. Nemendurnir taka m.a.
þátt í samskiptaverkefni við
skóla í útlöndum og munu
kennarar bekkjarins laga
kennslu að þessum nýju að-
stæðum.
Menntaskólanemendur í 3A
gera tilraun með fartölvur
Nemendur 3A í Menntaskólanum á Akureyri munu nota fartölvur í náminu.
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag í Safnaðarheimili. Messa á Seli
kl. 14 og á Hlíð kl. 16, séra Guð-
mundur Guðmundsson. Fundur í
Æskulýðsfélaginu kl. 17 í kapellu.
Fundur með fermingarbörnum og
fulltrúum Hjálparstarfs kirkjunnar,
kl. 19.30 fyrir Brekkuskóla og 20
fyrir Oddeyrar- og Lundarskóla.
Kvöldmessa í kirkjunni kl. 20.30,
séra Svavar A. Jónsson. Tónlist frá
Taizé, fermingarbörn boðuð.
Söfnun fermingarbarna fyrir
Hjálparstarf kirkjunnar milli kl. 18
og 20 á mánudag. Biblíulestur kl.
20.30 sama kvöld, tíu boðorð, reiði
og sátt, umsjón séra Guðmundur
Guðmundsson. Morgunsöngur kl. 9
á þriðjudag. Mömmumorgunn fell-
ur niður á miðvikudag. Kyrrðar- og
fyrirbænastund kl. 12 á fimmtudag.
Bænaefnum má koma til prest-
anna. Léttur hádegisverður í safn-
aðarsal á eftir. Fundur hjá Sam-
hygð kl. 20 um kvöldið. Sigurður
Pálsson flytur fyrirlestur um sjálfs-
víg. Kaffisopi og umræður.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera
og messa kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Sameiginlegt upphaf. Foreldr-
ar eru hvattir til að koma með
börnunum. Séra Hulda Hrönn
Helgadóttir predikar og kór Ár-
skógskirkju syngur. Kyrrðar- og
tilbeiðslustund verður í kirkjunni
kl. 18.10 á þriðjudagskvöld. Hádeg-
issamvera á miðvikudag frá 12 til
13, öskudagsmessa í upphafi föst-
unnar. Orgelleikur, fyrirbænir og
sakramenti. Léttur hádegisverður í
safnaðarsal að helgistund lokinni á
vægu verði. Opið hús fyrir mæður
og börn kl. 10 til 12 á fimmtudag.
Sigfríður Inga Karlsdóttir fjallar
um fyrstu mánuði móðurhlutverks-
ins. Æfing barnakórs Glerárkirkju
kl. 17.30 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Almenn samkoma kl. 20 um
kvöldið. Heimilasamband kl. 15 á
mánudag. Hjálparflokkur á mið-
vikudag kl. 20.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Hríseyjarkirkju
kl. 11 á morgun, sunnudag og einn-
ig verður sunnudagaskóli kl. 11 á
morgun í Stærri-Árskógskirkju.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Aðal-
fundur safnaðarins kl. 13 í dag,
laugardag og eru allir meðlimir
safnaðarins hvattir til að mæta.
Samkoma um kvöldið kl. 20, Gunn-
ar Þorsteinsson forstöðumaður í
Krossinum predikar. Sunnudaga-
skóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á
morgun, sunnudag. Aldursskipt
kennsla þar sem allir fá eitthvað
við sitt hæfi. Gunnar Þorsteinsson
predikar. Vakningasamkoma kl.
16.30 sama dag, Gunnar Þorsteins-
son predikar. Páll Rósinkrans
syngur ásamt lofgjörðarhóp kirkj-
unnar. Fyrirbænaþjónusta, krakka-
kirkja og barnapössun. Bæna-
stundir alla virka daga kl. 6.30.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11. Messa á öskudag,
28. febrúar, kl. 18 í Péturskirkju
við Hrafnagilssstræti 2.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á sunnudag.
Almenn samkoma kl. 17 á Sjón-
arhæð, Hafnarstræti 63. Fundur
fyrir 6-12 ára krakka á Sjónarhæð
kl. 17.30 á mánudag.
Kirkjustarf
BYGGÐ í blóma var yfirskrift á
ráðstefnu sem íbúar Grýtu-
bakkahrepps héldu nýlega í
íþróttahúsinu á Grenivík.
Tveimur ráðherrum var boðin
þátttaka í ráðstefnunni, þeim
Guðna Ágústssyni landbúnað-
arráðherra og Valgerði Sverr-
isdóttur, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, sem var fundarstjóri.
Haldnir voru nokkrir fyrir-
lestrar auk þess sem sett var
upp ljósmyndasýning þar sem
voru ýmsar myndir teknar í
hreppnum í fyrri tíð. Þá var
margs konar handverk til sýn-
is, unnið af íbúum sveitar-
félagsins.
Guðbergur Eyjólfsson bóndi
í Hléskógum rakti sögu land-
búnaðar í hreppnum og Björn
Ingólfsson skólastjóri við
Grenivíkurskóla sagði frá sjáv-
arútvegi og vinnslu sjávarfangs
innan sveitarfélagsins. Báðir
gerðu efninu góð skil, en m.a.
kom fram að útvegsbændur
fyrri tíma í Grýtubakkahreppi
hafi ekki verið eftirbátar ann-
arra á landinu þegar að útgerð
kom.
Guðný Sverrisdóttir sveitar-
stjóri flutti fyrirlestur um
skólamál og þá flutti sr. Pétur
Þórarinsson í Laufási fyrirlest-
ur um umhverfi íbúanna og líf
þeirra í sveitarfélaginu. Í lokin
flutti Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra ræðu og kom
víða við. Ráðstefnudeginum
lauk með kvöldvöku í sam-
komuhúsinu þar sem flutt voru
gamanmál og dans stiginn við
harmonikkuspil.
Morgunblaðið/Jónas
Sveinn á Hóli og Flosi í
Höfða mættu á ljósmynda-
sýninguna á Grenivík.
Byggð í
blóma í
Grýtubakka-
hreppi
TÆPLEGA fimmtugur karlmaður
á Dalvík hefur verið sýknaður af
kröfum ákæruvalds um umferðar-
lagabrot, en honum var gefið að
sök að hafa ekið undir áhrifum
áfengis frá Stykkishólmi áleiðis til
Dalvíkur þar til hann stöðvaði bif-
reið sína við sumarbústað skammt
sunnan bæjarins.
Málsatvik eru þau að lögreglu-
varðstjóri á ferð eftir Ólafsfjarð-
arvegi veitti ökumanni sem hann
kannaðist við athygli og fannst
hann ekki vera eins og hann á að
sér. Lét hann aðstoðarvarðstjóra á
Dalvík vita, en hann fór að sum-
arbústaðnum og handtók manninn.
Farið var með hann á lögreglustöð
á Dalvík og síðan til Akureyrar
þar sem sýni voru tekin.
Neitaði maðurinn að hafa verið
undir áhrifum áfengis við akstur-
inn en viðurkenndi að hafa drukkið
áfengi í sumarbústaðnum eftir að
akstri lauk.
Fram kemur í áliti dómsins að
engin haldbær rök hafi komið fram
um að akstursmáti mannsins hafi
sérstaklega bent til ölvunar hans
og að ekki liggi heldur fyrir
hversu langur tími leið frá því
akstri lauk og þar til lögreglumað-
ur kom í sumarbústaðinn og engin
könnun hafi farið fram þar á því
hvort áfengisneysla hafi átt sér
þar stað.
Álit lyfjafræðistofnunar um
áfengismagn í blóði gefi ekki
óyggjandi til kynna að það hafi
verið yfir leyfilegum mörkum með-
an á akstri stóð. Því þótti ekki
næg sönnun komin fram fyrir því
að maðurinn hefði ekið undir
áfengisáhrifum og hann sýknaður.
Málskostnaður var greiddur úr
ríkissjóði.
Sýknað-
ur af
kæru um
ölvunar-
akstur
Morgunblaðið/Kristján
Guðmundur Kristjánsson, versl-
unarstjóri Húsasmiðjunnar á
Dalvík, stendur hér við hlið
Braga Jónssonar sem sér um
fjarsöluna fyrir norðan.
EINN starfsmaður Húsasmiðjunnar
á Dalvík sinnir símasölu á timbri
ásamt þremur timbursölumönnum
félagsins í Reykjavík, en það er Bragi
Jónsson sem sér um þetta starf norð-
ur á Dalvík.
Guðmundur Kristjánsson, verslun-
arstjóri Húsasmiðjunnar á Dalvík,
sagði að ákveðið hefði verið að bæta
við timbursölumönnum í Reykjavík
og upp komið sú hugmynd að hægt
væri að sinna starfinu í einhverri af
verslunun félagsins á landsbyggðinni.
Á Dalvík hefðu verið fjórir starfs-
menn, en til tals hefði komið að fækka
um einn. Það hefði svo orðið úr að
færa einn starfsmanna Húsasmiðj-
unnar á Dalvík í umrætt verkefni.
„Þetta hefur gefist mjög vel,“ sagði
Guðmundur, en starfsmaðurinn á
Dalvík er tengdur við lager um tölvu
og sér því nákvæmlega hvað til er á
hverjum tíma líkt og starfsbræður
hans suður í Reykjavík. „Hann af-
greiðir pantanir héðan, prentar út
kvittun á prentara í höfuðstöðvunum
og síðan er varan flutt þangað sem
hún á að fara, hvort sem er innan höf-
uðborgarsvæðisins eða út á land.“
Guðmundur sagði að málið hefði
snúist um það hvort bæta ætti einum
starfsmanni við í Reykjavík og segja
einum upp á Dalvík. Niðurstaðan
hefði hins vegar orðið þessi og menn
una glaðir við.
Hann sagði reksturinn á Dalvík
ganga ágætlega, greinilegt væri að
heimamenn vildu hafa þessa þjónustu
í heimabyggð og væru duglegir að
versla þar.
Fjarsala á timbri frá
Reykjavík og Dalvík
TVEIR ungir Akureyringar, þau Ír-
is Erlingsdóttir í Oddeyrarskóla og
Halldór Baldvin Stefánsson í Gilja-
skóla, voru meðal vinningshafa í
Brunavarnaátaki Landssambands
slökkviliðsmanna. Efnt var til eld-
varnaviku fyrir síðustu jól og heim-
sóttu slökkviliðsmenn þá nær alla
grunnskóla landsins og lögðu fyrir
nemendur sérstakt verkefni ásamt
eldvarnagetraun og ræddu um eld-
varnir. Þátttaka var góð í þessu
átaki. Þau Íris og Halldór hlutu við-
urkenningarskjal, hlaupahjól, reyk-
skynjara og bókina Gættu þín á eld-
inum.
Íris og Hall-
dór meðal
vinningshafa
Eldvarnagetraun
Landssambands
slökkviliðsmanna
TVÍTUGUR karlmaður hefur ver-
ið úrskurðaður í gæsluvarðhald til
9. mars næstkomandi, en hann er
grunaður um fíkniefnasölu.
Fulltrúar úr rannsóknardeild
lögreglunnar á Akureyri með að-
stoð frá lögreglu á Blönduósi
handtóku manninn vegna gruns
um fíkniefnamisferli, á Blönduósi
síðdegis á fimmtudag, en hann var
farþegi í bíl á leið frá Reykjavík til
Akureyrar. Við handtökuna fram-
vísaði maðurinn 80 E-töflum og
100 grömmum af hassi, sem ætlað
er að hann hafi ætlað að selja á
Akureyri um helgina. Þetta er
stærsti skammtur af E-töflum sem
rannsóknardeildin hefur lagt hald
á.
Áður uppvís að
fíkniefnamisferli
Ökumaður bílsins og annar far-
þegi voru einnig handteknir en all-
ir voru fluttir til yfirheyrslu til Ak-
ureyrar. Þar var ökumanni og
farþega sleppt að lokinni yfir-
heyrslu.
Farið var fram á að maðurinn
yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald
og varð Héraðsdómur Norður-
lands eystra við þeirri kröfu síð-
degis í gær. Maðurinn sem um
ræðir hefur áður orðið uppvís að
fíkniefnamisferli.
Neysla fíkniefna í
bænum síst minnkandi
Daníel Snorrason, lögreglu-
fulltrúi í rannsóknardeild lögregl-
unnar á Akureyri, sagði að neysla
fíkniefna í bænum væri síst minni
en verið hefði áður og mikið væri
um að sterk fíkniefni væru í um-
ferð.
Karlmaður úrskurðaður
í gæsluvarðhald
Tekinn með 80
e-töflur og 100
grömm af hassi