Morgunblaðið - 24.02.2001, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VÍSINDAMENN kunna að vera vel
á veg komnir með að lækna park-
insonveiki með því að nota ígræddar
stofnfrumur úr fósturvísum, en hvar
og hvenær þessi nýja meðferð verð-
ur prófuð á fólki er komið undir póli-
tískum ákvörðunum, að því er vís-
indamenn segja.
Dr. Ole Isacson, við læknadeild
Harvardháskóla, og dr. Ronald
McKay, við Heilbrigðismálastofnun
Bandaríkjanna (NIH), sögðust ný-
verið hafa „læknað“ parkinsonveiki í
bæði músum og rottum, og notað til
þess stofnfrumur sem teknar hafi
verið úr fósturvísum tilraunastofu-
dýra.
Í skýrslu sem Isacson kynnti á
fundi vísindasamtakanna American
Association for the Advancement of
Science, kemur fram að fósturvísa-
frumur úr rottum og músum hafi
verið græddar í heila dýranna þar
sem þær breytist og komi í stað
fruma sem sjúkdómurinn hafi
grandað.
Með aðeins öðru vísi tækni hafa
McKay og samstarfsmenn hans hjá
NIH einnig komið stofnfrumum úr
músafósturvísum til að breytast í
frumur sem sjúkdómurinn drepur.
Tilbúnir í tilraunir á fólki
McKay og Isacson sögðu að vís-
indamenn væru allt að því reiðubún-
ir að gera tilraun með þessa tækni á
fólki, en leysa verði félagslega og
pólitíska þætti í Bandaríkjunum áð-
ur en það skref verði tekið þar í
landi.
McKay sagði að að þessu gæti
fljótlega orðið í Bretlandi, Frakk-
landi eða Hollandi því að í þessum
löndum væri verið að breyta stefn-
unni til þess að ýta undir rannsóknir
á fósturvísastofnfrumum. „Þetta
mun gerast, en hvar það verður kann
að ráðast af félagslegum og pólitísk-
um þáttum,“ sagði McKay. „Fólk
sem starfar á þessu sviði er fullt
bjartsýni.“
Í Bandaríkjunum eru ýmsir hóp-
ar, þar á meðal sumir þingmenn,
andvígir notkun fósturvísastofn-
fruma við rannsóknir, því að til þess
að afla þeirra þarf dáinn mannfóst-
urvísi. Nýjar starfsreglur NIH leyfa
að opinberu fé sé veitt til slíkra
stofnfrumurannsókna, en einungis ef
frumurnar eru teknar úr fósturvís-
um á rannsóknarstofum sem ekki
njóta opinberra styrkja.
Parkinsonveiki orsakast af dauða
heilafrumna sem framleiða dópamín,
sem er nauðsynlegt taugaboðefni.
Þegar um 80 prósent af þessum
frumum hafa orðið sjúkdómnum að
bráð fara sjúklingar að sýna ein-
kenni sjúkdómsins, skjálfta og stífni.
Hægt er að meðhöndla sjúkdóminn
með L-dopa, lyfi sem býr til dópamín
í heilanum. En lyfið virkar aðeins í
stuttan tíma og eftir það þróast sjúk-
dómurinn áfram.
Takmarkaðar tilraunir með notk-
un heilafruma úr eyddum fóstrum
hafa stöðvað framgang veikinnar í
allt að 12 ár, að sögn Isacsons.
Ígræddu frumurnar breytast í dóp-
amínframleiðslufrumur og koma
þannig í stað frumnanna sem sjúk-
lingana vantar. En margir eru einnig
andvígir því að notaðar séu vefir úr
eyddum fóstrum við rannsóknir. Og
vegna takmarkaðs framboðs og af
tæknilegum ástæðum eru fósturvef-
ir ekki taldir henta vel til meðferðar
á parkinsonveiki.
Besta vonin, segja vísindamenn,
eru fósturvísastofnfrumur. Þær eru
grunnfrumur sem hægt er að fá til að
breytast í svo að segja hvaða vef sem
er í líkamanum. Vísindamenn segja
að hægt sé að rækta mikið magn af
fósturvísastofnfrumum og nota þær
til meðferðar á sjúklingum.
Enn skila tilraunir með stofnfrumur athyglisverðum niðurstöðum
Lækning við parkinsonveiki
sögð raunhæfur möguleiki
Er réttlætanlegt að
nota ígræddar stofn-
frumur úr fósturvísum í
lækningaskyni? Póli-
tískum og siðferðilegum
álitamálum fjölgar á
sviði læknavísindanna.
Reuters
San Francisco. AP.
TENGLAR
.....................................................
NIH um stofnfrumur: www.nih.gov/
news/stemcell/index.htm
Bandarísku parkinsonsamtökin:
www.apdaparkinson.org
American Association for the
Advancement of Science: www.aaa-
s.org
Nóbels-
verðlaun
Bandaríkjamaðurinn Eric R.
Kandel fékk í fyrra nób-
elsverðlaun í læknisfræði ásamt
þeim Paul Greengard, yfirmanni
rannsóknarstofu í taugalífeðl-
isfræði við Rockefeller-háskóla í
New York, og sænska vísinda-
manninum Arvid Carlsson. Verð-
launin fengu þeir fyrir að upp-
götva á hvern hátt dópamín og
önnur boðefni verka á taugakerfi
mannsins. Vonast er til þess að
rannsóknir þeirra greiði fyrir því
að unnt verði að þróa lyf gegn
parkinson-veiki og geðklofa.
GÍFURLEG aukning hefur orðið á
fjölda þeirra hjóna í Bretlandi sem
kaupa mannaegg frá Bandaríkjunum
um Netið, að því er breska ríkisút-
varpið, BBC, greinir frá.
Rannsókn fréttamanna BBC leiddi
í ljós að á undanförnum tveimur árum
hefur fjöldi þeirra hjóna, sem eru
reiðubúin að fara til Bandaríkjanna
og greiða allt að fimm þúsund dollara
(ríflega 400 þúsund krónur) fyrir egg-
ið, þrefaldast.
Í Bretlandi er ólöglegt að kaupa
egg og verða hjón oft að bíða í nokkur
ár þangað til egg fæst frá gjafa. En
reglur um þetta eru ekki eins strang-
ar í Bandaríkjunum og mega hjón þar
ráða meiru um gjafann og geta valið
konu með gott útlit, bakgrunn og
heilsufarssögu. Með tilkomu Netsins
hefur þetta orðið mun auðveldara og
þar er hægt að skoða væntanlega
gjafa.
Það er einkum til Kaliforníu sem
bresk hjón leita nú í síauknum mæli,
en þar er verslun með egg lögleg.
Upplýsingar um gjafa, þ. á m. myndir
og skólaganga, er birt á Netinu á veg-
um umboðsskrifstofa. Hjón geta leit-
að í þessum upplýsingum og valið
gjafa áður en þau fara til Bandaríkj-
anna til að láta koma egginu fyrir.
Verð eggjanna sjálfra getur numið
allt að fimm þúsund dollurum en að
viðbættum lögfræðikostnaði og öðr-
um þáttum getur heildarkostnaður-
inn numið tuttugu þúsund dollurum,
eða ríflega 1,7 milljónum króna. Sam-
kvæmt upplýsingum umboðsskrif-
stofanna sem veita þessum bresku
hjónum þjónustu snúa allt að 60%
hjónanna barnshafandi aftur til Bret-
lands.
Yfirvöld ófrjósemismála í Bretlandi
vita af því að mun fleiri hjón eru farin
að leita til Bandaríkjanna til meðferð-
ar og hafa nokkrar áhyggjur af því
hversu rúmar reglurnar um þessi mál
eru í sumum ríkjum þar og hversu lít-
illar verndar hjónin, sem leiti þessara
viðskipta, njóti.
Gagnrýnendur hafa lýst efasemd-
um um að eggjamarkaðurinn sé sið-
legur og segja þetta ýta undir að fólk
reyni að eignast „fullkomið barn“.
Umboðsskrifstofurnar fara ekki dult
með að vilji sé fyrir því að börnin fái
sem besta arfbera í vöggugjöf.
Lyne Makline, sem starfar hjá
skrifstofunni Egg Donation, segir:
„Ég segi hjónum sem eru að leita að
gjafa að ef veikleiki er í fjölskyldu eig-
inmannsins, til dæmis þunglyndi,
alkóhólismi eða offita viljum við ekki
gjafa sem hefur neitt af þessu vegna
þess að við viljum ekki tvöfalda lík-
urnar á að fá slæma arfbera.“
Shelley Smith, sem rekur Egg
Donor and Surrogacy Program í Los
Angeles, segir: „Tilkoma Netsins og
möguleika á að nota tölvu til að fá
upplýsingar og sjá mynd af gjöfum
hefur gert að verkum að hjón eru far-
in að vanda valið. Þau eru orðin býsna
upptekin af því hvernig gjafinn lítur
út og hvaða eiginleika hún hafi.“
Shauna, 24 ára gjafi, segir að rúm-
ar reglur í Bandaríkjunum hafi mjög
jákvæð áhrif. Hún er jafnvel til í að
hitta hjónin sem munu fá egg úr
henni. „Af hverju ekki að hafa allar
þessar upplýsingar? Seinna meir er
hægt að deila þessu með barninu og
segja við það: Já, ég hitti konuna sem
gaf egg til að hjálpa mér við að eign-
ast þig og hún var falleg og brosti blítt
og var hláturmild.“
Vanda valið á Netinu
Samkvæmt rannsókn
breska ríkisútvarpsins
hefur fjöldi breskra
hjóna, sem tilbúinn er
að kaupa mannaegg frá
Bandaríkjunum,
þrefaldast á aðeins
tveimur árum.
Associated Press
Egg til sölu
Tískuljósmyndarinn Ron Harris fyrir framan viðeigandi höggmynd á lista-
safni í New York. Harris komst í fréttirnar þegar hann bauð upp á Netinu
egg úr átta fyrirsætum í þeirri trú að fólk væri reiðubúið til að greiða veru-
legar fjárhæðir í þeirri vissu að með því móti myndi það eignast fallegt
barn. Þessi gjörningur ljósmyndarans mæltist misjafnlega fyrir og tals-
menn ýmissa samtaka sögðu þetta framferði viðurstyggilegt þar er eð
mannslífinu væri með þessum hætti breytt í vöru. Harris sagði þetta tilboð
í fullu samræmi við ríkjandi viðmið í Bandaríkjunum þar sem fegurð væri
líkt og annað seld þeim sem best byði.
Rannsókn í Bretlandi leiðir í ljós að sífellt algengara verður að barnlaus hjón
leiti eftir kaupum á mannaeggjum frá Bandaríkjunum
SAMKVÆMT niðurstöðum
nýrrar rannsóknar geta hveiti
og ýmsar aðrar korntegundir,
sem er að finna í brauði, verið
orsök annars óútskýranlegra
höfuðverkja.
Í rannsókninni tóku þátt tíu
manns á miðjum aldri sem
voru viðkvæmir fyrir glúteini,
sem er prótín sem er að finna
í hveiti, byggi og rúgi. Nið-
urstöðurnar eru birtar í nýj-
asta hefti tímaritsins Neuro-
logy. Allir þátttakendurnir tíu
þjáðust af alvarlegum höfuð-
verkjum og höfðu merki um
bólgur í miðtaugakerfinu. En
þegar níu þeirra hættu að
neyta þessara korntegunda
hættu sjö þeirra að finna fyrir
höfuðverkjunum, að sögn vís-
indamannanna er unnu að
rannsókninni. Einn þátttak-
endanna neitaði að breyta
matarvenjum sínum.
„Glúteinsnauður matur
virðist hafa hemil á höfuð-
verkjunum,“ segir dr. Marios
Hadjivassiliou, taugasér-
fræðingur við taugalíffræði-
deild Konunglega Hallam-
shire-sjúkrahússins í
Sheffield á Englandi. Hinir
sjúklingarnir tveir losnuðu að
hluta við höfuðverkina, sagði
Hadjivassiliou. Þeim hefði
fækkað og ekki verið eins al-
varlegir.
Allt að einn af hverjum 100
manns kann að þjást af glú-
teinóþoli og geta einkennin
verið niðurgangur, blóðleysi
og jafnvægistruflanir, segir
Hadjivassiliou. Samkvæmt
upplýsingum bandarískrar
rannsóknarstofnunar í astma-
og ofnæmisfræðum eru átta
prósent allra barna undir sex
ára aldri haldin fæðuóþoli en
eitt til tvö prósent fullorðinna
þjást af ofnæmi fyrir matvæl-
um eða aukaefnum.
Þótt rannsóknin sé áhuga-
verð er hún ekki þannig gerð
að hægt sé að fullyrða að
brottnám korns hafi valdið
því að þátttakendurnir hættu
að þjást af höfuðverk, segir
dr. Robert Zeiger, prófessor í
barnalæknisfræði við Háskól-
ann í Kaliforníu í San Diego.
Engin samanburðarhópur tók
þátt í rannsókninni, þannig að
einhverjir aðrir þættir kunna
að hafa valdið því að höfuð-
verkirnir hurfu, segir Zeiger.
Þar að auki vissu sjúkling-
arnir að þeir voru að hætta að
borða korn og því gæti áhugi
þeirra á málinu hafa ráðið því
að verkirnir hurfu – þ.e. um
gæti verið að ræða svonefnd
lyfleysuáhrif (placebo effect).
Hadjivassiliou viðurkennir
að tengslin sem hann hafi
fundið geti verið tilviljun en
hann bendir á að höfuðverkir
hafi alveg horfið hjá sjö af níu
sjúklingum og að hluta til hjá
hinum tveimur.
Korn get-
ur valdið
höfuð-
verk
The New York Times Syndicate.
TENGLAR
.............................................
Tímaritið Neurology:http://
intl.neurology.org.
Associated Press