Morgunblaðið - 24.02.2001, Side 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 55
✝ Arngrímur Atla-son fæddist í
Reykjavík 31. ágúst
1976. Hann lést mið-
vikudaginn 14. febr-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hans eru
Ragnheiður Kristín
Arngrímsdóttir og
Atli Ísleifur Ragn-
arsson. Þau skildu.
Seinni maður Ragn-
heiðar er Magnús
Óskar Ólafsson.
Seinni kona Atla er
Ágústa Hermanns-
dóttir. Alsystkini
Arngríms eru Ragnar Theódór,
Unnur Perla og Atli Kolbeinn.
Hálfbróðir sammæðra er Karel
Geir. Öll búa þau í Grindavík.
Árið 1992 kynntist
Arngrímur eftirlif-
andi konu sinni, Sól-
veigu Jónu Sævars-
dóttur, f. 12. apríl
1970. Börn þeirra eru:
Arngrímur Sævar, f.
13. mars 1994, Ragn-
heiður Kristín, f. 28.
júní 1997, og Ísleifur
Orri, f. 26. júlí 1999.
Arngrímur ólst upp
fyrstu árin í Reykja-
vík, síðan lá leiðin til
Vestmannaeyja og
þaðan til Grindavíkur.
Hann var sjómaður og
beitingamaður.
Útför Arngríms fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku frændi. Það var að morgni
15. febrúar að Addi vakti mig með
þær sorgarfréttir að þú værir lát-
inn. Það eina sem kom upp í huga
mér var að þetta væri ekki satt, ég
vildi ekki trúa því. Ég fór að hugsa
til baka hvað mér fannst ósann-
gjarnt að við hefðum ekki getað
haft meira samband í gegnum árin.
Því við vissum alltaf hvort af öðru
og okkur fannst mjög gaman að
hittast. Svo var það fyrir um ári að
við fluttum nær þér og það var eins
og við hefðum alltaf búið nálægt
hvort öðru. Þú, Solla og mamma þín
hjálpuðuð mér mjög að aðlagast
þegar ég flutti og þess mun ég
ávallt minnast. Við áttum saman
margar góðar stundir og mun ég
varðveita þær í hjarta mínu. Þú
varst alltaf tilbúinn að rétta hjálp-
arhönd sama hvað bjátaði á og
varst alltaf hress og yndislegur. Þér
fannst nú líka gaman að stríða
stelpunum og höfðu þær mjög gam-
an af því. Þú munt ávallt lifa í minn-
ingu minni. Elsku frændi, ég vona
að þú hafir fundið frið. Elsku Solla,
Arngrímur Sævar, Ragnheiður
Kristín, Ísleifur Orri, foreldrar og
systkini, ykkur votta ég mína
dýpstu samúð og megi guð gefa
ykkur styrk á þessum erfiðu tímum.
Þín frænka,
Rut.
Elsku Addi minn. Að takast á við
okkur frændurna var ekki auðveld-
asta hlutverk sem foreldrar okkar
tókust á við. Ég, þú og Ragnar
bróðir þinn hrelldum mörg bæjar-
félög með hrekkjum okkar og
strákapörum. En svo uxum við úr
grasi og stofnuðum okkar fjölskyld-
ur. Það hefði verið gaman að við
hefðum hist oftar,
börnin við og konurnar, en eins
og svo oft vill verða þá eru stystu
vegalengdir eins og miklar fjar-
lægðir í ys og þys hversdagslífsins
og manni finnst maður aldrei hafa
tíma, en það er alltaf til tími og oft
vill gleymast það sem mestu máli
skiptir, fjölskyldan.
Ég bið fyrir þér á ferðalagi þínu
og veit að þú munt vaka yfir okkur
öllum.
Elsku Addi minn, ég sakna þín og
mun alltaf gera það.
Hvíl í friði.
Nú ert þú horfinn úr lífi okkar en
minningin um þig lifir í hjarta okk-
ar allra um alla eilífð. Elsku Solla,
Arngrímur, Ragnheiður, Ísleifur,
Heiða, Atli og aðrir ástvinir, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Óli Ragnar, Kristín og
Daníel Dagur.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pét.)
Guð geymi þig, Addi minn.
Elsku Solla, börn, Heiða, Atli og
ástvinir allir. Megi algóður Guð
styrkja ykkur í sorginni.
Minningin um góðan dreng lifir.
Kolbeinn, Svanhvít og synir.
Ég hef augu mín til fjallanna:
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
Hann mun eigi láta fót þinn skriðna,
vörður þinn blundar ekki.
Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,
hann, vörður Ísraels.
Drottinn er vörður þinn,
Drottinn skýlir þér,
hann er þér til hægri handar.
Um daga mun sólarhitinn eigi vinna
þér mein,
né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu,
hann mun vernda sál þína.
Drottinn mun varðveita útgöngu þína
og inngöngu
héðan í frá og að eilífu.
Amen.
(Sálm. 121.)
Kveðja.
Theodóra, Róbert A.,
Róbert R., Ásdís og Giovanna.
Addi litli, frændi minn, er látinn
langt fyrir aldur fram. Ungur og
hraustur faðir, göfug og góð sál,
með allt lífið fram undan. Í þau fáu
skipti á undanförnum árum sem ég
var svo heppinn að vera í návist
frænda míns skynjaði ég ávallt
hlýju og góðmennsku, heiðarleika
og lítillæti. Ómældur harmur og
sorg eru í hjarta mínu þegar ég
hugsa um litlu börnin hans þrjú og
konu sem horfa á eftir elskulegum
föður og lífsförunaut. Ég vona að
það verði fjölskyldu hans þó einhver
huggun þegar þau skynja nærveru
hans og ást á öðru og betra tilvist-
arstigi.
Elsku Addi minn, hvíldu í friði.
Ég hitti þig síðar.
Róbert R. Spanó.
Í dag, 24. febrúar, verður Addi,
eins og hann var alltaf kallaður,
jarðsettur. Er sorgin knúði dyra að
kvöldi 14. febrúar var eins og allt
stæði í stað, nístandi sársauki hel-
tók mig. Af hverju? spyr maður
sjálfan sig, svona ungur maður drif-
inn burt frá ástvinum sínum. Á
stuttri ævi sinni afrekaði hann svo
margt. Við kynntumst Adda fyrir
rúmum átta árum heima hjá okkur
er hann og Solla systir fundu hvort
annað. Svo mikil ást í hjarta ykkar,
þið áttuð saman þrjú yndisleg börn
og yfirstiguð mikla erfiðleika og
þrautir á lífsleið ykkar. Það var allt-
af boðið upp á kaffi og yfirleitt
heimabakað meðlæti er litið var inn
til ykkar, og ávallt fullt af gestum,
sem sýndi að það var svo gott að
koma til ykkar.
Þínu hlutverki er lokið hér á
jörðu. Guð þarf á þér að halda, þeir
deyja ungir sem guðirnir elska er
sagt, en elsku Solla systir mín, guð
gefi þér allan þann kraft sem þú
þarft á að halda til að lifa áfram
með börnunum ykkar. Við verðum
alltaf til staðar fyrir ykkur. For-
eldrum og fjölskyldum þeirra ásamt
vinum sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Guð blessi
þig, elsku Addi.
Að lokum er hér lítið ljóð til þín:
Þú kemur oft upp í huga mér.
Minningar um liðna tíð rifjast upp
og mörg tár renna óhindrað niður vanga
minn.
Svo sárt að missa þig.
Þér gleymi ég aldrei.
Kveðja.
Ágústa og fjölskylda.
Addi minn, elsku Addi minn.
Ég veit að pabba þínum fannst
heimurinn stöðvast þegar þú komst
í heiminn. Eins finnst manni nú að
heimurinn eigi að stöðvast þegar þú
kveður svo skyndilega, elsku kút-
urinn minn.
Þú varst alveg einstaklega fallegt
barn og þið bræðurnir voruð ein-
staklega uppátækjasamir svo ekki
þýddi annað en að vera úrræðagóð
barnapía, en svo sannarlega áttir þú
og systkini þín sérstakan stað í
hjarta mínu.
Þú varst ekki bara fallegt barn,
Addi minn, þú óxt upp og varðst að
myndarlegum manni, og ég mun
aldrei gleyma þegar þú eignaðist
fyrsta barnið þitt. Ég kom upp á
spítala til þín og þið Solla höfðuð
gengið í gegnum ótrúlega erfiða
fæðingu. Þegar ég kom var Solla
komin á gjörgæsluna en litli kút-
urinn þinn lá í hitakassa á fæðing-
arstofunni og þú sast hjá honum og
það eina sem þú gast sagt var: Er
hann ekki fallegur, er hann ekki fal-
legur.
Elsku Addi minn, nú kveð ég þig
og þakka Guði fyrir þær samveru-
stundir sem ég fékk að eiga með
þér.
Elsku Solla mín, Arngrímur Sæv-
ar, Ragnheiður Kristín og Ísleifur
Orri, elsku Heiða mín, Magnús,
Ragnar, Unnur, Atli Kolbeinn og
Karel Geir, Atli minn og Ágústa.
Frá rótum hjarta míns bið ég
Drottin um að styrkja ykkur í sorg
ykkar og að hann megi fylla hjarta
ykkar kærleika sínum og friði.
Unnur frænka.
ARNGRÍMUR
ATLASON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Sjáum einnig um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
0
>?
>@
3 )&$)')&)3 AB
#)
1 *% / 89
*% #)
-&!#! 1
2 ! 3$# 4/4
#
5 / 4 6 !
#
!$
# $: )##) )#%# #$) )# )(")
) ) %#
/+
1& (")
,<5) (") &)) %#
2#
'#((") && *+ #%#
/ # / #%/ # / # / #5
7
>@C
6
;!;@
, 3"#)
0 )+3#&(+3 #.% ) %#
0
!40
!4 )+" )
, 3 " /2 1< 7)
4&,$"&7)DB
0" 7%)
& %
&
' ! (* *)
0 )+3#0 )+3#%# 1# 0%&/ 2#
'#((")
1&)!"#0 )+3#%# ) 1 *5E)&$+3&'(")
1 0 )+3#(")
)#
)0 )+3#%# #)&& F '& /#
/ # / #% ) ) #(#( 5
0
*!;
EE > ,< 75/ # +" )
37 && 8G
<+ 71
$
! +$ 6 ) & F: (") %,+&<&( 5
0
>*!;0
* 2#& 8
<+ ,+ 7)
# ! !"$ ## 0+ #(")
<7) ,#) /+ # %#
&)0 )7)#) /+ # %#
!"$ ## < ) /+ # %#5