Morgunblaðið - 24.02.2001, Page 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 61
ÖRSJALDAN fæð-
ast fámennum þjóðum,
eins og okkur Íslend-
ingum, einstaklingar,
er skara fram úr að
gáfum og gjörvileik.
Einstaklingar, sem eru
áratugum á undan
samtíð sinni í hugsjón-
um og framsýni,
stundum á þröngu
sviði en sumir einnig
víðsýnir, fjölhæfir og
vel menntaðir frum-
kvöðlar.
Oft er það svo að
samtíðarmenn þessara
,,snillinga“ eiga ekki
samleið með þeim,
misskilja þá, öfunda og finna þeim
allt til foráttu. Úrtölumennina er oft
að finna á meðal ráðamanna, jafnvel
æðstu ráðamanna, sem ráðið geta
miklu um framgang mála, er til
heilla gætu horft.
Þvergirðingshátturinn ríður ekki
við einteyming.
Þeim, sem lesið hafa hina geysivel
skrifuðu ævisögu Guðjóns Friðriks-
sonar, um Einar Benediktsson,
dylst ekki hvílíkur frumkvöðull og
jafnframt andans jöfur Einar var.
Hiklaust má telja Einar til allra gáf-
uðustu og framsýnustu manna sem
fæðst hafa með þjóð okkar. Fjöldi
þeirra hugmynda, er hann kom
fram með um síðustu aldamót og í
aldarbyrjun, hafa fyrst nú á síðustu
árum og áratugum, orðið að veru-
leika, vonum seinna, m.a. vegna
andstöðu þungavigtarmanna í sam-
félaginu.
Það er alkunna að slíkir snillingar
eru ekki allra viðhlæjendur og koma
sér gjarnan upp öfund-
armönnum, jafnvel
hatursmönnum. Það er
vel skiljanlegt að hugs-
un og skapgerð ,,snill-
inganna“ sé þannig, að
þeim lyndi ekki alltaf
við þá sem þeir þurfa
að eiga samskipti eða
orðastað við. Þeim óar
eflaust oft við
„heimsku“ og þröng-
sýni annarra og eiga
þá eflaust oft erfitt
með að halda aftur af
orðum sínum í annarra
garð.
Þegar Kári Stefáns-
son kom fram með
hugmynd sína að Íslenskri erfða-
greiningu og notkun gagnagrunns-
ins naut hann strax fylgis og at-
beina framsýnna ráðmanna og
Alþingi greiddi götuna með laga-
setningu.
Sú hugsun hefur læðst að und-
irrituðum hvort þeir samtíðamenn
,,snillingsins“ Kára Stefánssonar,
sem nú þvælast hvað mest fyrir við-
leitni hans og fyrirtækis hans í
gagnagrunnsmálinu, séu haldnir
sama þvergirðingshætti og ein-
kenndi marga samtíðarmenn Einars
Benediktssonar fyrr á öldinni.
Virkur, miðlægur gagnagrunnur
á heilbrigðissviði er grundvöllur að
því háleita markmiði, að finna með
sem skjótustum hætti orsakir og
lækningu við fjölda alvarlegra
meina,er hrjá mannkynið. Er það
skammsýni, öfund eða stundarhag-
ur sérhagsmunahópa, sem markar
afstöðu þeirra í þessu framfaramáli?
Það er með öllu óþolandi að fá-
mennur hópur geti, með málþófi og
í trausti aðstöðu sinnar, staðið í vegi
fyrir og tafið framgang framfara, er
til heilla horfa fyrir fyrir þjóð okkar
og mannkyn allt. Þetta minnir
óneitanlega á að einn ráðherra, fyrr
á öldinni, kom í veg fyrir virkjun-
aráform Titanfélagsins í Þjórsá eftir
að Alþingi hafði samþykkt vatnalög
er gáfu grænt ljós á framhaldið. Þar
réð kannski mestu ótti við erlenda
fjárfestingu en eflaust líka afstaðan
til frumkvöðulsins, Einars Bene-
diktssonar skálds, sem hafði þegar
fengið fjárfesta og hönnuði til
verksins (Titanfélagið).
Frumkvöðlar með háleit markmið
þurfa að hafa bjargfasta trú og mik-
ið úthald til að vinna sínum góðu
málum brautargengi. Þeir eiga oft
við ramman reip að draga. Þeir
þurfa á skilningi, samvinnu og sam-
heldni samferðamanna sinna að
halda en ekki fyrirstöðu.
Er það virkilega svo að Íslands
óhamingju verði allt að vopni?
Íslands óhamingju
verður allt að vopni
Jón H.
Karlsson
Frumkvöðlar
Það er með öllu
óþolandi, segir Jón H.
Karlsson, að fámennur
hópur geti, með málþófi
og í trausti aðstöðu
sinnar, staðið í vegi
fyrir og tafið framgang
framfara.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Cranio-nám
Norðurland / Akureyri
28. 04 — 3. 05. 2001
Thomas Attlee, DO, MRO, RCST
College of Cranio—Sacral Therapy
Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara
www.simnet.is/cranio
422 7228, 699 8064, 897 7469