Morgunblaðið - 24.02.2001, Qupperneq 82
TRÚÐARNIR með barnssálina,
Barbara og Úlfar, ætla að heilla
gesti Borgarleikhússins í kvöld með
einlægum hugleiðingum sínum um
píslargöngu Krists. Eða kannski
frekar vekja þá til umhugsunar um
þessa stórkostlegu sögu eða jafnvel
um sjálfa sig?
Sýningin hefst alla vega kl. 19 og
er sú eina sem haldin verður, hún er
bönnuð innan 12 ára og er spunasýn-
ing. Barbara og Úlfar er því ekki
beint að æfa sig, frekar að undirbúa
sig þegar ég hitti þau í leikhúsinu.
„Við erum að skoða ljós, lesa Bibl-
íuna, tala saman og svona,“ segir
Úlfar sætur og góður einsog alltaf.
Trúðar eru
ekki fyndnir
– Í kynningu stendur að um sé að
ræða „splatter“-sýningu. Eru leik-
sýningarnar ykkar alltaf blóðugar?
Úlfar: Nei, ekki alltaf sko. En
þegar við erum með „splatter“, þá
eru þær blóðugar.
Barbara: Þá erum við með gervi-
blóð sem við notum þegar það á við,
en ekki þegar það þarf ekki. Það
kemur náttúrlega blóð þegar Jesús
er krossfestur, þegar er sett á hann
síðusárið og þegar hann er húð-
strýktur. En aðalatriðið er að segja
þessa sögu fallega.
– En er píslarsaga Krists ekki
frekar sorgleg og blóðug?
Úlfar: Jú, hún er alveg hryllileg
því hann var píndur og krossfestur
og drepinn, sko.
Barbara: Já, og hann var niður-
lægður alveg ótrúlega mikið. Af því
að hann var svo góður.
– En ég hélt að trúðar segðu
fyndnar sögur.
Úlfar: Nei, trúðar eiga ekki að
vera fyndnir.
Barbara: Alls ekki. Fólk bara
hlær af því að við kannski segjum
það sem það er sjálft að hugsa, en
segir ekki af því að það er svo einfalt.
Því það heldur að þá fari allir að
hlæja að þeim. Við erum ekkert að
reyna að vera fyndin, við segjum
bara það sem er innst inni.
– Þorir fólk ekki að vera það sem
það er? Eru kannski allir Barbara og
Úlfar inni í sér?
Úlfar: Nei, það er alltof hættulegt
að vera Barbara og Úlfar í kokkteil-
partíum og svoleiðis.
Barbara: Það er mjög banal að
vera Barbara og Úlfar og ef maður
er ekki trúður. Því það er hættulegt
að segja sannleikann og vera svona
hreinn.
Pontíus Pílatus var
svolítið góður
– Ætliði að segja fleiri sögur en
þessa?
Barbara: Nei, það þarf ekki, þessi
er alveg nóg. Hún er alveg ótrúleg
eins og hún stendur í Biblíunni.
Úlfar: Við ætlum líka að segja frá
Heródesi og Pílatusi, öllum læri-
sveinunum, Maríu mey og María
Magdalenu.
Barbara: Af hverju María mey fór
svo snemma frá krossinum og María
Magdalena sat þar svo lengi. Af
hverju allir halda að Pontíus Pílatus
hafi verið vondur en í rauninni var
hann kannski bara svolítið góður.
Úlfar: Hann var bara huglaus.
Barbara: Af hverju heldur maður
alltaf að hann hafi verið vondur þótt
maður segi krossfestur, dáinn og
grafinn á dögum Pontíusar Pílatus-
ar? Þá er maður búinn að dæma
aumingja Pontíus vondan.
Úlfar: Já, hann var líka píndur á
dögum Pontíusar Pílatusar, sem lét
líka húðstrýkja hann.
Barbara: Já, það er satt.
– En var Jesús þá kannski svolítið
vondur?
Barbara: Nei, Jesús var kærleik-
urinn. Og kærleikurinn er þolinmóð-
ur, góðlátur, hann öfundar ekki,
hann er ekki raupsamur, hann reið-
ist ekki, hann er langlyndur... ég
man ekki alveg meira um kærleik-
ann. En Jesús lifði það í botn og þess
vegna grætur maður þegar maður
les þessa sögu. Jesús var svo hug-
rakkur að enginn sem ég þekki
myndi þora að vera svona hugrakk-
ur.
Úlfar: Og heldur enginn annar í
sögunni um Jesú. Postularnir þeir
sofnuðu þegar hann bað þá um að
biðja. Pétur afneitaði honum þrisvar
áður en haninn gól. Júdas sveik hann
og hengdi sig svo, því hann þorði
ekki að standa við það. Enginn hefur
þorað að standa við sitt jafn mikið og
Jesú. Í dag eru listamenn að sofa
inni í skáp og ganga með hárkollu og
eru rosalega þornir, en eru þeir að
segja satt? Það er hægt að bera virð-
ingu fyrir fólki sem þorir að láta
einsog kjánar, en þorir það að...
Barbara: ...lifa hreint í kærleik-
anum?
Úlfar: Já, og vera trúðar allan
daginn?
Píslarsaga Krists í Borgarleikhúsinu
Hættulegt að
vera trúður
Barbara og Úlfar ætla að segja fólki
söguna af Jesú og þau sannfærðu
Hildi Loftsdóttur um að hann væri
hugrakkari en nokkur annar.
Morgunblaðið/Golli
„Við segjum það sem fólk er að hugsa.“
80 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
HENGIFLUG G L E N N C L O S E
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 196.
Sýnd kl. 1.40, 3.50 og 5.55. Íslenskt tal. Vit nr. 194
Sýnd kl. 1.40, 3.50, 5.55 og 8. Enskt tal. Vit nr. 195
Sý
nd
m
eð
Ís
le
ns
ku
og
e
ns
ku
ta
li.
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B. i. 12. Vit nr. 192.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Vit nr. 203. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 204.
Frumsýning
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 191
Engin sýning sunnudag.
Sýnd kl. 2 og 3.45. Ísl tal. Vit nr. 183.
Sýnd kl. 10.05. Vit nr. 177
Sýnd kl. 2 og 3.50. ísl tal. Vit nr. 169
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
www.sambioin.is
Spennandi
ævintýramynd
fyrir börn
á öllum aldri
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi sími 530 1919
þar sem allir salir eru stórir
INGVAR E. SIGURÐSSON
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
EGGERT ÞORLEIFSSON
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
SV Mbl
DAGUR
ÓFE Sýn
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10.
Golden Globe verðlaun
fyrir besta leik
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
DV
Rás 2
1/2
ÓFE.Sýn
1/2
Kvikmyndir.is
Bylgjan
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Ísl tal.
Rás 2
1/2 MBL
1/2 Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
i i .i
i i .
Tilnefnd til 2 óskarsverðlauna: Besta handrit byggt
á áður útkomnu efni og besta kvikmyndataka.
Tilnefnd til 2 óskarsverðlauna : Besti karl-
leikari í aðalhlutverki og besta hljóðsetning.
Var á toppnum í Bandaríkjunum í 3 vikur
Sýnd kl. 8.
Billy Elliot er tilnefnd til
BAFTA verðlauna og Óskarsverðlauna
12
3ja
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Frumsýning
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
GSE DV
HL Mbl
ÓHT Rás 2
ÓFE Sýn
Svartamyrkur
Pitch Black
G e i m t r y l l i r
Leikstjórn og handrit David N.
Twohy. Aðalhlutverk Vin Diesel,
Radha Mitchell. (112 mín.)
Ástralía 2000. Háskólabíó.
Bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ VERÐUR að segjast eins og
er að myndir eins og þessi eru alltof
fágætar. Við erum að tala um metn-
aðarfullan vísinda-
skáldskap sem gef-
ur taugunum engin
grið og heldur þeim
í heljargreipum frá
upphafi til enda.
Við erum að tala
um mynd sem helst
ekkert má gefa upp
um vegna hættunn-
ar á því að spilla
fyrir spennunni, mynd þar sem hug-
myndafluginu hefur verið gefinn
laus taumurinn. Hvað þær eru marg-
ar ódýru myndirnar úti á leigu sem
einmitt eru að reyna að gera það sem
lukkast hér.
Allt í fína. Einhverjir kunna að
finna henni til foráttu að hún sé eft-
iröpun á æðri framtíðartryllum á
borð við Alien-myndirnar og jafnvel
Mad Max. Einhverjir kunna að
agnúast út í nokkrar hæpnar stað-
reyndir eins og að ekkert líf geti þrif-
ist, hvað þá mannfólk andað eðlilega
og spókað sig á plánetu sem um-
kringd er þremur eldheitum sólum
en ég lét það ekkert pirra mig heldur
naut þess að láta til leiðast og kaupa
allt hrátt og uppskar að launum hina
bestu skemmtun.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Þriggja
sóla
myrkvi