Morgunblaðið - 25.03.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna ASÍ um velferðarkerfið
Hvert viljum
við stefna?
Á MIÐVIKUDAGkl. 13 til 17 verðurhaldin ráðstefna
Alþýðusambands Íslands
um samspil almannatrygg-
inga, lífeyris- og skattkerf-
is. Ráðstefna ber yfir-
skriftina: Hvert viljum við
stefna og hún hefst á
ávarpi forsætisráðherra,
Davíðs Oddssonar. Einn
fyrirlesara er Rannveig
Sigurðardóttir hagfræð-
ingur ASÍ. Hún var spurð
hvað hún ætlaði að ræða
um?
„Ég ætla að fjalla um
uppbyggingu bóta al-
mannatrygginga kerfisins.
Samspil bóta, tekna og
skattkerfis. Ég ætla líka
að reyna að velta fyrir mér
hvernig tekjusamsetning
ellilífeyrisþega er í dag.“
– Er þessum málum hagað á
svipaðan hátt hér á landi og í Sví-
þjóð og Bandaríkjunum, þar sem
þú hefur stundað rannsóknir?
„Okkar kerfi er hvorki líkt
sænska velferðarkerfinu né því
bandaríska. Það má kannski segja
að við höfum sitt lítið af hvoru.
Það litla velferðarkerfi sem er í
Bandaríkjunum er hugsað til að
tryggja þeim allra fátækustu lífs-
viðurværi meðan hugmyndafræð-
in á bak við sænska og raunar nor-
ræna velferðarkerfið er þannig að
það sé kerfi fyrir alla þegna þjóð-
félagsins þegar þeir þurfa á því að
halda, t.d. vegna atvinnuleysis,
veikinda, fæðingarorlofs, náms og
fl. Og gæðin séu þannig að þau séu
fyrir alla, líka fyrir þá sem ella
gætu keypt sér þjónustu. En þar
er líka gengið út frá því að allir
greiði til velferðarkerfisins sam-
kvæmt tekjum.“
– Hvers vegna er efnt til þess-
arar ráðstefnu í dag?
„Það sem Alþýðusambandið
hyggst gera og þetta er fyrsta
skrefið í er að boða til þjóðarum-
ræðu um framtíð velferðarkerfis-
ins. Markmiðið er að ná þjóðarsátt
um hvers konar velferðarkerfi við
viljum hafa á Íslandi. Fyrsti þátt-
ur velferðarkerfisins er það sem
við ætlum að ræða í dag, þ.e. hlut-
verk almannatryggingakerfisins í
velferð landsmanna. Ástæðan fyr-
ir því að við viljum nú taka upp
þessa umræðu er að undanfarinn
áratug hafa verið gerðar misstór-
ar breytingar á velferðarkerfinu
og oftast frekar tilviljunarkennd-
ar, hugsaðar til að spara útgjöld
til skamms tíma. Það hefur lítið
verið hugsað um hvaða áhrif
margar litlar breytingar geta haft
á uppbyggingu velferðarkerfisins
í heild. Við viljum þess vegna að
það sé rætt og komist að niður-
stöðu um hvernig velferðarkerfi
við viljum búa við, þannig að þeg-
ar illa árar sé ekki gripið til óhugs-
aðra niðurskurðaraðgerða sem
jafnvel geta leitt til þess að við
sitjum uppi með eitthvert allt ann-
að kerfi en við í upphafi lögðum af
stað með og vildum hafa.“
– Hverjir tala auk þín á ráð-
stefnunni?
„Már Guðmundsson
aðalhagfræðingur
Seðlabanka Íslands
ætlar að velta upp
spurningunni hvort líf-
eyrissjóðskerfið hafi
burði til að vera meg-
instoð lífeyrisfram-
færslu landsmanna. Stefán Ólafs-
son prófessor við Háskóla Íslands
ætlar að fjalla um íslenska vel-
ferðarkerfið í fjölþjóðlegum sam-
anburði. Yfirskrift míns fyrirlest-
urs er: Fólk, framfærsla og
fátæktargildrur. Loks höfum við
svo boðið hingað Joakim Palme
prófessor í félagsfræði. Hann ætl-
ar að fjalla um mismunandi gerðir
velferðarkerfa og hvernig þeim
tekst að stuðla að tekjujöfnun og
koma í veg fyrir fátæk. Hann
nefnir fyrirlestur sinn: Hrói hött-
ur, Matteus eða algjört jafnrétti.
Velferðarkerfi 21. aldarinnar –
viðfangsefni og möguleikar.“
– Hefur að þínu mati of lítið ver-
ið rætt um velferðarkerfið sem
kerfi?
„Við teljum að umræðan um
grundvallaruppbyggingu kerfis-
ins hafi ekki verið nægileg né
markviss hér á landi. Einstaka
þættir kerfisins hafa komið til um-
ræðu en oft mjög afmarkaðir
þættir og umræðan þá sjaldnast
náð lengra.“
– Er velferðarkerfið okkar búið
fátæktargildrum?
„Það sem verkalýðshreyfingin
hefur gagnrýnt í samspili bóta og
skattkerfis er fyrst og fremst það
að mestu jaðaráhrif kerfisins
koma niður á þeim tekjulægstu og
t.d. barnafólki sem er að koma yfir
sig þaki. En ekki eins og á Norð-
urlöndum þar sem mestu jaðar-
áhrifin lenda á þeim tekjuhæstu.“
– Hvert verður næsta skrefið í
umræðunum um velferðarkerfið?
„Á 39. þingi ASÍ var samþykkt
að ræða um framtíð velferðarkerf-
isins og sem fyrsta skref í þeirri
umræðu var ákveðið að ræða um
samspil lífeyriskerfis
og skattkerfis. Alþýðu-
sambandið hefur lagt
mikla áherslu á að
skoða kosti og galla
fjölþrepa skattkerfis.
Nú hefur verið skipuð
nefnd ASÍ, fjármála-
ráðuneytis og Þjóð-
hagsstofnunar sem á að skoða það
mál nánar. Þegar niðurstöður
þeirrar nefndar liggja fyrir er
ljóst að við getum haldið áfram
umræðunni um samspil bóta og
skattkerfis út frá því hvort fjöl-
þrepa skattkerfi skili okkur mark-
vissara tæki til tekjujöfnunar.
Rannveig Sigurðardóttir
Rannveig Sigurðardóttir
fæddist í Reykjavík 1955. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1975 og
hagfræðiprófi frá háskólanum í
Gautaborg í Svíþjóð 1980. Hún
lauk mastersprófi í hagfræði frá
sama skóla 1990. Hún var við
nám, kennslu og rannsóknir í
Svíþjóð og Bandaríkjunum en frá
1990 hefur hún búið á Íslandi,
fyrst starfaði hún hjá Hagstofu
Íslands, síðan hjá BSRB og er nú
hagfræðingur ASÍ, for-
stöðumaður kjara- og félags-
málasviðs sambandsins. Rann-
veig er gift Hermanni Þórissyni
stærðfræðingi og eiga þau tvö
börn.
Viljum fá
þjóðar-
umræðu um
framtíð
velferðar-
kerfisins
Jú, jú, kona góð, það er vel hægt að þjóna tveimur herrum ef maður
hefur réttu græjurnar.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf
krefst þess að stjórnvöld hlutist til
um að læknisskoðun starfsmanna
fyrirtækja verði sem fyrst fram-
kvæmd á þann hátt sem gildandi lög
gera ráð fyrir og þess verði gætt að
persónulegar upplýsingar úr slíkum
skoðunum verði í höndum heilsu-
gæslustöðva eða sjúkrahúsa en alls
ekki hjá trúnaðarlæknum sem eru á
launum hjá fyrirtækjum. Sigurður
T. Sigurðsson, formaður verkalýðs-
félagsins Hlífar, segir misbrest vera
á þessu og vítir stjórnvöld fyrir
sinnuleysi í þessu mikilsverða máli
og krefst þess að þeir sem valdir eru
til að stjórna landinu virði gildandi
lög sem sett eru til að gæta heilsu og
velferðar launafólks.
Í 66. grein laga um aðbúnað, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum
segir m.a.: „Heilsuvernd starfs-
manna skal falin þeirri heilsugæslu-
stöð eða sjúkrahúsi, sem næst liggur
og/eða auðveldast er að ná til, sbr.
19. gr. laga nr. 57/1978.“ Sigurður
segir stjórnvöld hafa hundsað þessi
lög allt frá því þau voru sett, Hlíf hafi
fylgt málinu eftir sl. 15 ár með litlum
sem engum árangri og lögin hafi
ítrekað verið brotin af öllum ríkis-
stjórnum sem setið hafi frá lagasetn-
ingunni.
„Í staðinn fyrir að veita þessa
þjónustu á sjúkrahúsum eða heilsu-
gæslustöðum hafa trúnaðarlæknar
sumra atvinnurekenda séð um þetta
og skikkað menn til að mæta til skoð-
unar hjá sér, með hótunum um brott-
rekstur eða lagaákvæði ef þeir kjósa
að mæta ekki,“ segir Sigurður og
segist vita dæmi þess að sami læknir
sé heimilislæknir starfsmanns og
trúnaðarlæknir fyrirtækisins sem
sjúklingurinn vinnur hjá.
Þar með sé kominn trúnaðarbrest-
ur á milli læknis og sjúklings/laun-
þega. Í sumum tilfellum hafi jafnvel
gögn læknisins verið geymd inni á
launadeild viðkomandi fyrirtækis.
Þannig sé persónuvernd einstak-
lingsins þverbrotin.
Engin viðbrögð
„Allt frá því að fyrrgreind lög voru
sett hafa stjórnvöld virt þau að vett-
ugi og látið það viðgangast að læknar
sem eru launaðir starfsmenn fyrir-
tækja framkvæmi skoðunina,“ segir
m.a. í ályktun frá Hlíf sem send var
öllum ráðuneytum og þingmönnum
Alþingis. Sigurður sagði að engin
viðbrögð hefðu borist við ályktuninni
frekar en fyrri ár.
Skoðun starfsfólks hjá trúnaðarlæknum fyrirtækja
Trúnaðarbrestur milli
lækna og sjúklinga