Morgunblaðið - 25.03.2001, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Undirtónum, þá hugmynd að færa út
kvíarnar og koma í gang útgáfu á
nýrri íslenskri tónlist. Var Örlygur
svo vinsamlegur að uppfræða ofan-
greindan um málið.
1.000 krónur
„Þetta er hugsað sem athvarf fyrir
nýja íslenska tónlistarmenn til að
koma tónlist sinni á framfæri með
HIÐ mánaðarlega rit Undirtónar
hefur nú verið starfrækt í um fjögur
ár. Alla tíð hefur það fylgst með og
stutt við list- og dægurmenningu á
Íslandi hvers kyns og eru þar reglu-
lega umfjallanir um t.d. tónlist, kvik-
myndir, tölvuleiki og myndasögur.
Jaðar- og neðanjarðarmenning hef-
ur verið Undirtónum hugleikin alla
tíð eins og nafnið ber með sér og hin-
ar ýmsu grasrótarstefnur eiga sama-
stað þar á bæ. Þannig hafa Undir-
tónar lengið vel haldið úti
tónleikadagskrá sem nefnist Stefnu-
mót eins og lesendur Fólks í fréttum
kannast líkast til við þar sem ungir
og efnilegir tónlistarmenn troða upp.
Einn góðan veðurdag fékk Örlyg-
ur Eyþórsson, innanbúðarmaður á
engum kostnaði,“ upplýsir Örlygur.
„Með Stefnumótsheitinu erum við að
tengja þetta við Stefnumótatónleika
Undirtóna sem eru fyrir upprenn-
andi íslenska tónlistarmenn. Þetta
eru sem sagt hljóðversupptökur af
upprennandi tónlistarmönnum.
Þetta eru ekki upptökur frá Stefnu-
mótatónleikum.“
Fyrsti diskurinn inniheldur lög
eftir tvo listamenn. Skurken á sex
lög og Prince Valium er einnig með
sex. Báðir spila raftónlist.
„Það mætti segja að þetta sé
kynningarútgáfa, sem kostar 1000
kr. og rennur til tónlistarmannanna
til að þeir geti komið tónlist sinni á
framfæri erlendis,“ bætir Örlygur
við.
Engir samningar
Strákarnir tveir, Þorsteinn Ólafs-
son (Prince Valium) og Jóhann Óm-
arsson (Skurken) eru hæstánægðir
með þetta. „Það er líka gott að hafa
Undirtóna á bak við þetta,“ segir Jó-
hann. „Þá er þetta sýnilegra,“ og er
hér að vísa til þess að hlutir eiga það
til að týnast ef fólk er að standa í
þessu algerlega sjálft.
Örlygur segir að hér sé um útgáfu-
röð að ræða. „Það koma tveir svona
diskar á mánuði.“ Hann hikar aðeins
við og brosir svo. „Þangað til við
nennum þessu ekki lengur,“ (hlær).
Listamennirnir eru sammála um
að svona vettvang hafi sárlega vant-
að fyrir þá tónlist sem þeir eru að
fást við. Örlygur tekur fram að eng-
inn sé samningsbundinn þó hann sé
með lög á þessari útgáfu og þeir
kinka allir kolli samþykkjandi.
Finnst það greinilega hinn mesti
kostur.
Engin mörk eru heldur um hvern-
ig tónlist skuli gefa út. „Við viljum
reyna að fá alla flóruna hérna á Ís-
landi,“ segir Örlygur. „Þetta er snið-
ugt fyrir útlendingana sem koma
hérna á sumrin. Að geta keypt hérna
seríu með nýrri íslenskri tónlist á lít-
inn pening.“
Örlygur staðhæfir að þörfin sé
brýn fyrir svona útgáfustarfsemi.
„Eins og þetta fyrirkomulag er lagt
upp þá finnst mér þetta bara vera
málið.“
Hann segir að lokum ákveðinn að
þetta sé hugsjónastarfsemi nr. 1, 2
og 3. „Þetta er í rauninni gæluverk-
efni hjá okkur (með honum í þessu
eru þeir Ísar Logi Arnarson, fram-
kvæmdastjóri Undirtóna og Egill
Tómasson, menningarmálafrömuð-
ur). Þetta er áhugamál. Skemmti-
legt.“
„Hugsjónastarfsemi
nr. 1, 2 og 3“
Nokkrir framtakssamir
menn hafa hafið útgáfu
á íslenskri tónlist undir
merkinu Stefnumót.
Arnar Eggert Thor-
oddsen ræddi við Örlyg
Eyþórsson og tvo þá
listamenn sem eiga tón-
list á fyrstu plötunni.
Svona lítur fyrsta plata Stefnu-
mótaútgáfunnar út.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhann, Þorsteinn og Örlygur eru bjartsýnismenn.
Undirtónar/Stefnumót gefa út hljómdiska
Þannig hlógum við / Cosi ridev-
ano Þessi nýjasta mynd ítalska leikstjór-
ans Gianni Amelio segir fjöl-
skyldusögu á óvenjulegan en vel
heppnaðan máta.
Geimvegferðin / Galaxy Quest
Bráðskemmtileg og snjöll gam-
anmynd sem gerir góðlátlegt grín að
Star-Trek kúltúrnum.
The Filth and the Fury / Eldur og
brennisteinn Sterk heimildarmynd um pönkgoð-
sögnina Sex Pistols.
Pinocchio / Gosi Þessi rúmlega sextíu ára gamla
teiknimynd um spýtustrákinn Gosa
er eitt af hinum sígildu meist-
araverkum Disney-fyrirtækisins.
Uppreisnarskáldin / Beat Fróðleg og vel gerð mynd um upp-
reisnarskáldin (Beat) svokölluðu sem
setur þó fram nokkuð vafasamar
hugmyndir lokin.
Glæpur og refsing í úthverfinu /
Crime and Punishment in Sub-
urbia Dramatísk mynd með sönnum per-
sónum sem sver sig svolítið í ætt við
Ameríska fegurð.
Brjáluð keyrsla / Human Traffic
Hressileg og hreinskilin heimild um
æsilega klúbbamenningu breskra
ungmenna.
Frelsishetjan / The Patriot Stórkarlaleg kvikmyndagerð með
mögnuðum hópbardagasenum. Hins-
vegar er dramatíkin handónýt.
Hnuplið / Snatch Framför hjá Guy Ritchie. Heilsteypt-
ari og í alla staði betri mynd en Lock,
Stock and Two Smoking Barrels.
X-mennirnir / X-Men Hasarmynd með gamaldags mynda-
söguhetjum, sem fær plús fyrir að
leggja áherslu á dýpt söguhetjanna.
Ást og kynlíf / Love and Sex
Óvenju raunsönn og trúverðug róm-
antísk gamanmynd með fínum texta
og enn betri leikurum.
Guinevere Einkar vel leikin og vandvirknislega
unnin mynd um samband eldri lista-
manns og ungs og óharnaðs lærlings.
Hús gleðinnar / The House of
Mirth Fáguð kvikmyndaaðlögun á sam-
nefndri skáldsögu Edith Wharton,
um yfirstéttarkonu í New York sem
hafnar hlutskipti sínu.
Skotgrafirnar / The Trench Vægðarlaus stríðsmynd sem sýnir
blákaldan veruleika skotgrafahern-
aðarins í fyrri heimsstyrjöldinni.
Bettý hjúkka / Nurse Betty
Yndisleg tragikómedía um unga
konu sem missir manninn og heldur
til Hollywood að leita að stóru ást-
inni. (H.L.)
Hræðslumynd / Scary Movie
Fyndin og fríkuð mynd sem skýtur á
hrollvekjur seinustu ára með beittum
og grófum húmor. (H.L.)
Sá eini sanni / Den eneste ene
Rómantísk gamanmynd eftir banda-
rísku formúlunni, sem hefði mátt
vera frumlegri en er fínasta af-
þreying. (S.V.)
Heiða Jóhannsdótt ir
Ottó Geir Borg
Skarphéðinn Guðmundsson
Renée Zellweger leikur auðtrúa
hjúkkuna Betty og hlaut að
launum Golden Globe-verðlaun.
GÓÐ MYNDBÖND