Morgunblaðið - 25.03.2001, Síða 11
Þar til nýverið leiddi Axel viðræðurnar fyrir
hönd S-hópsins. S-hópurinn varð við þeirri
kröfu Landsbankans, sem taldi það ekki eðli-
legt, að forstjóri fyrirtækisins VÍS, að hálfu í
eigu Landsbankans, leiddi samningaviðræður
við Landsbankann, að setja nýjan mann í við-
ræðurnar. Landsbankinn mun hafa haft þá
skoðun að Axel, sem er í forsvari fyrir S-hópn-
um, gætti fremur hagsmuna þess eigendahóps
VÍS og sýndi honum meiri trúnað en hinum
eiganda VÍS, Landsbankanum. Það var Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélagsins, sem tók við
af Axel í þessum samningaviðræðum.
S-hópurinn benti á móti á að stjórnarfor-
maður VÍS, Kjartan Gunnarsson, varaformað-
ur bankaráðs Landsbankans, ætti að vera
stjórnarformaður félagsins alls og gæta hags-
muna allra eigenda til jafns og ekki sýna
Landsbankanum trúnað umfram S-hópnum.
Því samþykkti Landsbankinn að stjórnarfor-
maður VÍS og varaformaður bankaráðs
Landsbankans, Kjartan Gunnarsson, héldi sig
til hlés, rétt eins og Axel og Halldór J. Krist-
jánsson bankastjóri tók við af honum.
Með Axel á samningafundum framan af voru
þeir Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins,
Margeir Daníelsson, forstjóri Samvinnulífeyr-
issjóðsins, og Örn Gústafsson, sem var hjá
Frjálsa fjárfestingarbankanum, en er nú kom-
inn yfir til Kaupþings.
Af hálfu Landsbankans hafa þeir Kjartan
Gunnarsson, varaformaður bankaráðs Lands-
bankans og stjórnarformaður VÍS, Halldór J.
Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og
Stefán Héðinn Stefánsson, forstöðumaður
stefnumótunar- og þróunarsviðs Landsbank-
ans, tekið þátt í viðræðunum.
Eftir að leyst var úr ofangreindum ágrein-
ingi um það hverjir leiddu viðræðurnar fyrir
hvorn hóp fyrir sig var framhaldið að mestu í
höndum þeirra Geirs Magnússonar og Hall-
dórs J. Kristjánssonar.
Voru nálægt samkomulagi
Fyrir liðlega tveimur vikum voru taldar góð-
ar horfur á því að þeir Geir Magnússon og
Halldór J. Kristjánsson næðu samkomulagi
sem unnt yrði að kynna á aðalfundi VÍS næsta
fimmtudag, hinn 29. mars. En samkvæmt þeim
upplýsingum sem aflað hefur verið, sigldu um-
ræðurnar enn á ný í strand síðastliðinn mánu-
dag.
Það samkomulag Landsbankans og S-hóps-
ins sem var nánast í höfn var í megindráttum
svohljóðandi, eins og það horfir við Lands-
bankamönnum: Landsbankinn var reiðubúinn
að fara með sinn eignarhlut úr 50% í 37,43% og
setja þannig tæp 13% síns hlutar á markað,
gegn því að S-hópurinn færi með sinn eign-
arhlut niður í 42,43% og setti þannig tæp 8%
síns hlutar á markað. Starfsmenn VÍS ættu
3,98% og nýir hluthafar ættu 16,16%.
Jafnframt segja Landsbankamenn að
ákvæði hafi verið í samkomulagsdrögunum um
að fækkað yrði í stjórn VÍS úr átta í fimm. S-
hópurinn fengi tvo stjórnarmenn, Landsbank-
inn tvo og nýir eigendur einn.
Um þetta atriði ber heimildum ekki saman:
S-hópurinn segir að samkomulagið hafi falið
það í sér að S-hópurinn væri einungis reiðubú-
inn til þess að setja 4% hlutar síns á markað,
þ.e. að fara úr 50% niður í 46% og að S-hóp-
urinn fengi þrjá stjórnarmenn í ljósi eignar-
hlutar S-hópsins og Landsbankinn tvo.
Eftir að þessi drög, sem menn greinir veru-
lega á um, hver hafi í raun og veru verið, höfðu
verið kynnt fyrir Axel Gíslasyni og Margeiri
Daníelssyni framkvæmdastjóra Samvinnulíf-
eyrissjóðsins, var þeim hafnað af S-hópnum.
Viðræðum hætt, a.m.k. í bili
Það sigldi viðræðunum í strand, að minnsta
kosti um stundarsakir, þar sem Landsbanka-
menn segja að með þessari afstöðu sé S-hóp-
urinn ekki reiðubúinn að fara með félagið á
markað í raun og veru. Vissulega vilji ákveðinn
hluti S-hópsins fá félagið skráð og nýja með-
eigendur inn, en hann geti ekki hugsað sér að
missa ráðandi hlut í félaginu.
Með þessu yrði ekki um annað en sýndar-
skráningu að ræða, sem Landsbankamenn
segjast engan hug hafa á, þar sem þeir segja að
trúverðugleiki slíkrar markaðssetningar verði
enginn. Trúverðugleikinn felist í því að félagið
verði raunverulega opnað, ekki bara skráð.
Hér ber aftur mikið á milli aðila: S-hópurinn
segir að hann hafi enga sérstaka þörf fyrir að
skrá bréf VÍS á markað nú. Félagið hafi gengið
og gangi mjög vel og sé að skila góðri afkomu.
Á meðan markaðurinn sé í þeirri lægð sem
raun ber vitni sé ekki endilega rétti tíminn að
skrá félagið á Verðbréfaþingi Íslands. Þeir
segja raunar að það sé rétt að þeir hafi engan
hug á að gefa eftir ráðandi hlut í félaginu, en
slík afstaða sé í engu ný, þótt félög séu skráð
sem almenningshlutafélög á markaði.
Staðreyndin sé sú að hvort sem fyrirtæki
séu skráð á markaði eða ekki, sýni reynslan að
stór hluti viðskipta margra fyrirtækja sé bund-
inn og sömu menn haldi um stjórnartauminn í
árum saman.
Ákveðinn hluti talsmanna S-hópsins er jafn-
framt fullur grunsemda í garð meðeigenda
sinna að VÍS, um að önnur markmið búi að baki
óskum Landsbankamanna um skráningu
félagsins á markaði og sölu á ákveðnum hluta
félagsins en látið hefur verið í veðri vaka. Þeir
eru nokkuð vissir í sinni sök, um að viðsemj-
endur þeirra vilji með einum eða öðrum hætti
ná VÍS úr höndum S-hópsins.
Hluti af valdastrúktúr S-hópsins
Gagnrýni Landsbankans á S-hópinn beinist
ekki síst að því að VÍS sé sem slíkt ekki í raun
óháð fjármála- og tryggingafélag, heldur hluti
af valdastrúktúr S-hópsins. Þetta tvennt fari
einfaldlega ekki saman og því sé það lykilatriði
að rjúfa þá sterku tengingu sem sé á milli Ol-
íufélagsins og VÍS, auk þess sem þeir sem
stýra Samvinnutryggingum gt. og Líftrygg-
ingafélaginu Andvöku verði fyrst og fremst að
koma fram sem fjárhagslegir fjárfestar, en
ekki sem hluti af viðskiptavaldablokk S-hóps-
ins.
Fyrir svona röksemdir gefa talsmenn S-
hópsins lítið. Þeir benda á að Olíufélagið hf. og
Samvinnutryggingar sf. hafi verið stofnuð árið
1946. Félögin eigi sér 55 ára farsæla samvinnu-
sögu, þar sem samstarf hafi verið náið og gott.
Þau hafi átt hluti í sömu félögum og mikil við-
skipti við sömu fyrirtækin. VÍS, stór hluthafi í
ESSÓ eigi mikið undir velgengni ESSÓ og það
sé gagnkvæmt. Arðbærasta fjárfesting ESSÓ
sé fólgin í eignarhlut þess í VÍS.
Setti S-hópnum úrslitakosti
Samkvæmt þeim upplýsingum sem aflað
hefur verið, fjallaði bankaráð Landsbankans
um þessar viðræður og þá stöðu sem upp var
komin á fundi sínum fimmtudaginn 15. mars og
var þar komist að einróma niðurstöðu í þá
veru, að ef S-hópurinn samþykkti ekki að
minnka eigin eignarhlut í VÍS niður í 42% og
skiptingu stjórnarmanna tveir til S-hópsins,
tveir til Landsbanka og einn til nýrra eigenda,
þá yrði viðræðunum einfaldlega slitið.
Það varð svo ljóst sl. mánudag að S-hóp-
urinn hygðist í engu breyta afstöðu sinni og
þar við situr.
Voru tilbúnir að kaupa eða selja
Innan úr Landsbanka fengust þær upplýs-
ingar að ágreiningurinn milli eigenda VÍS und-
anfarin fjögur ár hafi m.a. snúist um það hvort
báðir aðilar ættu að taka til jafns þátt í mark-
aðsvæðingunni. Það hefur verið krafa Lands-
bankans, að S-hópurinn féllist á það að þegar
félagið færi á markað settu báðir eigendurnir
jafnmikinn hlut á markað, til sölu.
Fyrr í ofangreindu samningsferli gerðist
það að Landsbankinn gerði S-hópnum tilboð
um að kaupa hlut þeirra í VÍS, í þeim yfirlýsta
tilgangi að skrá félagið á markaði og lýsti sig
um leið reiðubúinn til þess að selja S-hópnum
sinn helming í VÍS á sama verði og hann var
tilbúinn til þess að kaupa af S-hópnum. S-hóp-
urinn hafnaði hvorutveggja.
!"
#
$
%
&
' "
()*+,
(-*-+
(-*,)
.*+.
/*.)
0*()
1*.1
-*+-
(*22
(*/0
,,*)1
!" # $ #%
34
5
6
% -0*+
,2*+
(2*/
(-*+
2*1
"8
9 $*
9
5 :$
5
; $
4
4 $
& ' #%
(! #
)* %
) +
!
,- , ./
01'
2* #%
! # 3#"
*4! 2*
1' 2*
55
55
67 & &
"
'
&
6& ,/*,
(-*1
/*+
((*,
&
"
&
11
11
(,
0+
0+
!
(! % #
!
!-8* ./
!
"
#
(++
( *
.09::;$,<9:.,
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 11