Morgunblaðið - 25.03.2001, Side 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 21
Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar á verði sem
hefur aldrei fyrr sést. Þú bókar tvö sæti til Prag, en greiðir bara fyrir 1, og
kemst til fegurstu borgar Evrópu á frábærum kjörum. Hjá Heimsferðum
getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela og fararstjórar
Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur.
Gildir út 1.apríl - heim 5.apríl.
Tveir fyrir einn til
Prag
1. apríl
frá kr. 16.770
Verð kr. 16.770
Flugsæti p.mann, m.v. 2 fyrir 1.
27.900 / 2 = kr. 13,950
Skattar kr. 2.820
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
MARIA (Marie Theisen) er ung,
falleg og hraust unglingsstúlka,
prestsdóttir í norsku sveitaþorpi.
Sumarið er að byrja, veröldin fögur
og full af væntingum. Þetta er ferm-
ingarsumarið hennar Mariu, hún að
stíga fyrstu, óstyrku spor táningsár-
anna. Að breytast úr unglingi í konu
og hún veit ósköp lítið um leyndar-
dómana sem bíða hennar handan við
hornið. Biður því góðan guð um fal-
leg brjóst, ást og skilning.
Ekkert slíkt fær hún í heimahús-
um. Þar vokar karl faðir hennar yfir
öllum hreyfingum fjölskyldunnar.
Eins og þrumuský með saltarann í
hendinni. Helstu fræðsluna fær hún
hjá vinnukonunni, fröken Turheim
(Hildegun Riise) sem sjálf er á barmi
örvæntingarinnar þar sem hún hefur
aldrei fengið það sem Maria er að
byrja að þrá og dreyma. Maria, þrátt
fyrir að bera höfuð og herðar yfir
stöllur sínar í flestum skilningi, er
engu að síður hálfgerð hornreka í
unglingasamfélagi þorpsins. Jafn-
aldrarnir gera grín að henni þar sem
hún er í hálfgerðri einangrun of-
stækiskennds uppeldis og óttast
hana jafnframt því hún er jú dóttir
siðaprédikarans, trúarleiðtoga sam-
félagsins, sem þrumar yfir þeim alla
sunnudaga. Maria er ekki aðeins að
þroskast líkamlega, heldur ekki síð-
ur að viti og hún er skynsöm, heið-
arleg stúlka með heilbrigðar skoðan-
ir sem sér í gegnum innantóman
orðaflauminn og lætur ekki klerk né
skinheilagt umhverfi kúga sig.
Norðmenn eru kunnir bókstafs-
trúarmenn þar sem skammt er öfg-
anna milli. Kirkjusókn mikil og vafa-
laust finnast þar fleiri hundruð
sóknir hliðstæðar þeirri sem við
kynnumst í Sunnudagsenglum.
Vissulega gerist myndin undir lok
sjötta áratugarins og vonandi hefur
margt breyst til þess betra síðan.
Myndin er þó fyrst og fremst tíma-
laus ádeila á trúarhræsni og þann
dragbít sem þröngsýnir, ofstækis-
fullir kennimenn eru á söfnuð sinn og
sína nánustu. Prestsheimilið í mynd-
inni er ömurleg stofnun undir ást-
lausum ofstækismanni sem kúgar
börn sín, búinn að svínbeygja eigin-
konuna niður í duftið og að öllum lík-
indum táldraga hjúið. Ljótt er það.
Sólargeislinn í myndinni er hin
undurfagra og vel gerða Maria sem á
hug manns allan. Theisen er efnileg
leikkona með umtalsverða útgeislun
og ber myndina léttilega uppi. Er
nánast í hverju atriði. Björn Sund-
quist er ámóta sterkur, dregur upp
ófélega mynd af sveitaklerk með
stálhnefa. Sunnudagsenglar er góð
hugvekja um hættur kreddna og of-
stækis í því magni að þær kæfa hið
heilaga orð. Myndin er einnig vel
gerð og hnyttin innsýn í löngu
gengna og saklausa veröld, þegar
Pat Boone og djúkbox voru djöfuls-
ins útsendarar.
Sá yðar sem ...
KVIKMYNDIR
N o r r æ n i r b í ó d a g a r
H á s k ó l a b í ó
Leikstjóri og handritshöfundur
Berit Nesheim. Tónskáld Geir
Böhren. Kvikmyndatökustjóri Arne
Borsheim. Aðalleikendur Marie
Theisen, Björn Sundquist, Hilde-
gun Riise, Kristian Aaby, Ina Sofie
Brodahl. Sýningartími 100 mín.
Norsk. N.F. AS. Árgerð 1996.
SUNNUDAGSENGLAR –
SÖNDAGSENGLER
Sæbjörn Valdimarsson
LJÓÐA- og kammertónlist er yfir-
skrift fyrstu tónleika á Vilbergsdög-
um í Kirkjuhvoli í Garðabæ, sem
hefjast í dag, sunnudag, kl. 17. Á
fyrrihluta tónleikanna syngur hinn
nýstofnaði Kvennakór Garðabæjar
nokkur lög. Þá leikur Richard Simm
píanóverk eftir M. Ravel. Hanna
Björk Guðjónsdóttir og Júlíana
Kjartansdóttir flytja tvær þjóðlaga-
útsetningar fyrir fiðlu og söngrödd
eftir W. Williams. Þá verður flutt
verk fyrir óbó og gítar eftir N. Coste.
Flytjendur eru þeir Peter Tompkins
og Pétur Jónasson.
Eftir hlé leikur Daníel Þorsteins-
son tvö Intermezzo eftir J. Brahms
og þá kemur til liðs við hann Sigríður
Elliðadóttir söngkona og þau flytja
saman þrjú sönglög eftir J. Brahms.
Kammermúsíkhópurinn Cameract-
ica leikur síðan kafla úr verkum eftir
Mozart og Weber. Tónleikunum lýk-
ur með því að þau Ingibjörg Guð-
jónsdóttir sópran, Gréta Guðnadótt-
ir fiðluleikari, Helga Ágústsdóttir
sellóleikari og Richard Simm píanó-
leikari flytja þjóðlagaútsetningar
eftir Beethoven og Haydn.
Aðgangseyrir er 1.500 og rennur
allur ágóði í minningarsjóð um Vil-
berg Júlíusson skólastjóra.
Vilbergsdagar
Ljóða- og
kammertónlist
Hanna Björk
Guðjónsdóttir
Richard
Simm
fimm daga vikunnar