Morgunblaðið - 25.03.2001, Qupperneq 31
Mæðgurnar viðurkenna að skort-
ur á bílastæðum geti verið baga-
legur fyrir verslunina, en segjast
vona að borgaryfirvöld liðki fyrir í
þeim málum með fleiri stöðumæl-
um við Snorrabrautina. „Sem betur
fer hafa viðskiptavinir okkar ekki
látið bílastæðavandann á sig fá.
Þeir leggja bara þar sem þeir fá
stæði og ganga svo til okkar. Það
er því heilsusamlegt að versla við
okkur,“ segir Elín.
Oft langur vinnudagur
Erna segist taka sérstaklega eft-
ir því hvað margir viðskiptavinir
minnist á að það sé notalegt að
koma í búðina þeirra úr ópersónu-
legum stórmörkuðum. „Við reynum
líka eftir megni að veita persónu-
lega þjónustu og verða við óskum
viðskiptavinanna. Um tíma var
mikið spurt um svört sængurföt og
við útveguðum þau og eigum til.
Flesta daga er líka einhver sér-
saumur í gangi.“
Verið er opnað um leið og búðir
almenn, en oftar en ekki er opið
frameftir. Elín segir að eigendurnir
verði að taka því að vinna mikið,
fyrirtæki af þessari stærð gangi
ekki nema með ómældri vinnu
þeirra. Eins hringir fólk á öllum
tímum til að biðja um þjónustu.
„Stundum hringir fólk um það bil
sem við ætlum að loka og biður
okkur að bíða aðeins. Það sé á leið-
inni. Einu sinni hringdi kona utan
af flugvelli og sagðist vera að bíða
eftir systur sinni, sem væri að
koma utan af landi til að versla.
Hún hefði ætlað að koma í Verið en
fluginu seinkað. Konan spurði
hvort við gætum beðið eftir syst-
urinni í einn og hálfan tíma? Auð-
vitað gerði ég það og hún kom og
keypti heilmikið. Fólk metur mikils
svona þjónustu. Ein kona sem kom
í búðina úr stórmarkaði sagði: Mér
finnst eins og ég komi í vin í eyði-
mörkinni, við að koma hingað,“
segir Erna.
Tryggir viðskiptavinir
Dýrmætasta eign Versins hf. eru
tryggir og góðir viðskiptavinir, að
sögn þeirra Ernu og Elínar. „Við
fáum marga nýja viðskiptavini á
hverju ári. Ungt fólk, sem stundum
er sent hingað, og lærir að meta
þau gæði og þjónustu sem við veit-
um. Hingað er að koma 3. og 4.
kynslóð viðskiptavina.“
Erna og Elín segja að unga fólk-
ið sé mikið fyrir ljósleit sængurföt.
Það sé orðið leitt á mikið mynstr-
uðu. Mikið sé um að ungt fólk vilji
fá blúndur á koddaver og sæng-
urver.
Viðskiptin eru nokkuð árstíða-
bundin. Mestu annatímarnir eru
fyrir jól, fermingar og á sumrin
vegna brúðkaupa. „Það er vinsælt
að kaupa brúðarsængurverasett og
brúðargjafir hjá okkur,“ segir Elín.
„Við höfum skreytt körfur sem við
setjum vörurnar í til brúðargjafa.
Þetta hefur mælst mjög vel fyrir.
Fólki finnst notalegt að vera með-
tekið sem einstaklingar og fá per-
sónulega þjónustu. Við þekkjum
marga viðskiptavinina og heilsum
þeim persónulega,“ segir Elín.
Fjörutíu ára afmæli Versins var
fagnað á liðnu hausti. Það var aug-
lýst opið hús og Erna og Elín segja
að fjöldi fólks hafi komið til að sam-
fagna þeim. Eins hafi borist blóm
frá aðdáendum búðarinnar. Þessi
viðbrögð viðskiptavina hafi glatt
þær mikið.
Landsbyggðarverslun
„Við eigum dygga viðskiptavini
úti um allt land og reynum eftir
megni að veita þeim sem besta
þjónustu. Þeir hringja og við send-
um efnisprufur eða koddaver sem
þeir geta valið eftir. Stundum er
hringt og við bara beðnar um að
velja eitthvað fallegt í sængurföt-
um og senda. Fólk kemur aftur og
aftur. Við verðum varar við að
ömmur og mæður senda börnin sín
til okkar að kaupa sér sængurföt,“
segir Elín. Hún segir það algengt
að eldri jafnt sem yngri hjón komi
til að velja sér sængurföt. Þeim í
búðinni hafi komið á óvart hvað
karlarnir hafi ákveðna skoðun á
rúmfötum.
Spurðar um framtíðaráform
segjast þær Elín og Erna ætla að
halda áfram að veita viðskiptavin-
um sínum sem besta þjónustu. Ver-
ið sé sérverslun á sviði sængurfata
og baðherbergisvara og verði það
áfram. Ef til vill verði bætt við
gjafavöru sem tengist sérsviði
verslunarinnar. „Þetta er sérversl-
un og við höfum ekki áhuga á að
vasast í öllu. Við erum bjartsýnar á
framtíðina og þykir gaman að
standa í þessum rekstri,“ sagði El-
ín að lokum.
Morgunblaðið/Ásdís
Hjá Verinu hf. er lögð áhersla á að veita persónulega þjónustu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 31