Morgunblaðið - 25.03.2001, Page 55

Morgunblaðið - 25.03.2001, Page 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 55 Á sunnudögum bjóðum við upp á matseðil fyrir sælkera. Sunnudagar fyrir sælkera 4 rétta fiskmatseðill 2.700.- 5 rétta kjöt- eða fiskimatseðill 3.500.- Stórglæsilegur a la Carté matseðill Valin vín og vingjarnlegt umhverfi Stærri/stinnari brjóst, án sílikon- a›ger›ar? • Hefur flú veri› me› barn á brjósti? • Hefur flú íhuga› sílikona›ger›? • Ertu ósátt vi› brjóstin á flér? • Finnst flér sílikona›ger› vera of mikil áhætta? • Mundir flú vilja íhuga nátturulega a›fer›? Uppl‡singar um Erdic® hjá: Erdic Umbo›inu í síma: 5640062 (9-17 alla virka daga) Veffang: www.erdic.is • Netfang: erdic@erdic.isEr di c kú ri nn er ít öf lu fo rm i• 18 ár a al du rs ta km ar k. iw inther/0 3 /0 1 Tilnefnd til 2 Óskarsverðlauna Joan Allen, besti kvennleikari í aðalhlutverki Jeff Bridges, best karlleikari í aukahlutverki Stundum getur þú tekið le iðtoga a f l í f i án þess að skjóta e inu einasta skot i . Gary Oldman, Christian Slater F R A M B J Ó Ð A N D I N N Sýnd í Háskólabíói BREIÐSKÍFAN, sem situr í efsta sæti breska sölulistans, heitir Song- bird og inniheldur upp- tökur með bandarísku söngkonunni Evu Cass- idy. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þessi nýuppgötvaða söngkona lést fyrir fimm árum úr húðkrabbameini, langt fyrir aldur fram, einungis 33 ára gömul. Það sem meira er er að hún er systir fiðluleik- arans Dans Cassidys sem búsettur hefur verið á Íslandi undanfarin ár og verið duglegur við að gefa okkur Frónbúum færi á að njóta fiðlusnilli sinnar með ýmsum þjóðlagasveitum á borð við Papa og Gras. Á meðan hún lifði náði Eva aldrei að skapa sér nafn svo merkja mætti. Meginvettvangur hennar var litlir djassklúbbar þar sem hún var dugleg að troða upp en henni tókst þó aldrei að ná sér í hljómplötusamning – ekki fyrr en hún var fallin frá. Það var útsendingastjóri morgun- þáttar BBC Radio 2 stöðvarinnar bresku Paul Walters sem „uppgötv- aði“ töfra Cassidy og sá til þess að rödd hennar næði loks til eyrna al- mennings. Vinur Walters keypti handa honum geislaplötu með hljóð- ritunum er hún hafði gert og kolféll hann samstundis fyrir þessari mögn- uðu rödd sem hann segir svipa til Karenar Carpenter og Barbra Streis- and. Hann kom túlkun Cassidy á lag- inu „Over The Rainbow“, sem Judy Garland gerði ódauðlegt í Galdrakar- linum í Oz, í spilun og viðbrögðin létu ekki á sér standa: „Það varð allt vit- laust, símalínur rauðglóuðu og tölvu- pósturinn streymdi inn. Allir vildu vita hver ætti þessa rödd og hvar væri hægt að nálgast upptök- urnar.“ Um það leyti var tónlist Cassidy ekki einu sinni fáanleg í Bretlandi en um leið og því hafði verið kippt í liðin rauk plata hennar Songbird inn á listann og vermir nú eins og fyrr segir topp- sætið í fyrsta sinn. Faðir Cassidy, Hugh, sagði í samtali við heimspressuna að síðbúin velgengni hennar væri gleði- legur vitnisburður um að hæfileika- ríkir listamenn næðu ætíð á endanum athygli fólks. Hæfileiki hennar fólst í því að snerta fólk djúpt og færa því von með túlkun sinni. Hann bætti við að það kæmi honum ekki á óvart að dóttir hans heitin væri nú loksins að slá í gegn því hann hefði fengið fjöl- mörg bréf síðan hún lést þar sem fólk um allan heim opnaði sig upp á gátt og lýsti hvernig tónlist Evu hefði komið við það og hversu mjög það deildi söknuðinum með fjölskyldunni: „Það gleður mig að fólk fái hugarró af því að hlýða á tónlist Evu. Það er okk- ur mikil huggun.“ Þegar Morgunblaðið ræddi við Dan á dögunum sagðist hann finna fyrir miklum áhuga á tónlist systur sinnar og að hann fyndi á sér að hún væri við það að slá í gegn. Og það hefur gengið eftir. Songbird selst ekki einungis í Bretlandi því Þjóðverjar hafa einnig uppgötvað Evu og aðrar Evrópuþjóð- ir eru að taka við sér um þessar mundir. Komin í 1. sætið í Bretlandi Eva Cassidy Látin systir fiðluleikarans Dans Cassidys slær í gegn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.