Morgunblaðið - 25.03.2001, Page 58

Morgunblaðið - 25.03.2001, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á Fólkinu á mbl.is er vefur um Buena Vista Social Club í tilefni af tónleikum þeirra á Íslandi 30. apríl næstkomandi. Buena Vista Social Club er hópur kúb- verska tónlistarmanna og skærustu stjörnurnar í þeim hópi eru Ruben Gonzalez, Ibrahim Ferrer og Omara Portuondo. Hægt er að lesa greinar um hljómsveitina, hlusta á tvö lög og fá upplýsingar um miðasöluna á tón- leikana. buena vista social club á mbl.is Smelltu þér á BVSC á mbl.is! Joseph Barbera, einn af frum- kvöðlum í teiknimyndagerð í draumaborginni Hollywood. Þeir störfuðu saman í meira en hálfa öld og var afrakstur samstarfsins meðal annars félagarnir Tommi og Jenni. Talsmenn teiknimyndasjón- varpstöðvarinnar Cartoon Net- work, sem sýnir reglulega margar af teiknimyndum Hanna, segja að Hanna verði minnst sem eins af hæfileikaríkustu teiknurum allra tíma. Hanna og Barbara hófu sam- vinnu árið 1937 og stofnuðu sitt nafntogaða fyrirtæki tveimur ára- tugum síðar. Þegar frægðarsól Hanna og Barbera reis hvað hæst framleiddu þeir allt að 11 hálftíma langa teiknimyndaþætti á viku. Á endanum skildu þeir eftir sig yfir 3 þúsund slíka þætti. Þar til við- bótar unnu þeir að einstaka stutt- um teiknimyndum eins og hinum fimm mínútna löngu Tomma og Jenna þáttum. Saman unnu þeir til sjö Óskarsverðlauna. Hanna fæddist í Nýju-Mexíkó árið 1910. Hann skilur eftir sig eiginkonuna Violet, tvö börn og sjö barnabörn. anna, eins og Flintstone-fjölskyld- unnar, Jóga bjarnar og Scooby Doo. Hanna var, ásamt félaga sínum WILLIAM Hanna teiknimynda- frumkvöðullinn er látinn á 91. ald- ursári. Hann er höfundur margra af þekktustu fígúrum teiknimynd- Hér má sjá William Hanna (til hægri) og Joseph Barbera umvafða nokkrum af fjölmörgum sköpunarverkum sínum. Faðir Tomma og Jenna látinn AP SARAH Jessica Parker er afmæl- isbarn dagsins í dag því þessi smellna leikkona, sem við þekkjum helst sem Carrie Bradshaw úr þátt- unum Beðmál í borginni, fæddist í Nelsonville, Ohio-fylki, fyrir 36 ár- um. Sarah Jessica virðist fædd í hlut- verk sitt, að fjalla um kynlíf og stefnumótasiði, sá eldheiti hrútur sem hún er. Hún hefur ekki bara sólina í hrút heldur einnig ástar- stjörnuna Venus og samskipta- og tjáningarstjörnuna Merkúr í þessu brautryðjandi og bíræfna stjörnu- merki. Hún er fædd til að vera krossfari í kynferðismálum. Stjörn- urnar eru þannig staðsettar að stelpan er berorð og blátt áfram og að hún mun gefa hvaða manni sem er tækifæri ef hann á peninga. Hún er sjálfstæð, bardagfús og ögrandi, og lifir lífinu eftir eigin reglum. En þrátt fyrir að hún sé ofurhugi á ytra borði hefur hún hið tilfinn- ingasama tungl í hinni jarðbundnu steingeit sem afhjúpar konu sem kýs traust, langvarandi sambönd. Hún gæti litið út fyrir að vera mann- gerð sem maður veit ekki hvar mað- ur hefur en þeim sem Sarah Jessica þykir vænt um reynist hún stoð og stytta krefst jafnvægis í tilfinninga- málum og trausts. Það sem snýr að framanum hefur Sarah Jessica hina einbeittu og metnaðagjörnu stjörnu Mars í því nákvæma og rökvísa meyjarmerki sem gefur til kynna að Sarah Jess- ica sé látlaus fullkomnunarsinni í starfi sínu. Hún er sífellt að betr- umbæta sjálfa sig og færni sína. Júpíter hefur hún svo í nauti, sem er merki efnislegs ríkidæmis og mun- aðar sem mun sjá til þess að tryggja varanlegan frama Söruh Jessicu og ríkidæmi. Það er nú heppilegt fyrir leikarann Matthew Broderick sem klófesti kellu fyrir hartnær fjórum árum. Stjarna stjarnanna í þetta sinnið er hrúturinn Sarah Jessica Parker.  Ögrandi fullkomnunarsinni Reuters Hrein sum viðar-, rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld. Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.