Morgunblaðið - 25.03.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
LAUGARFERÐIR standa alltaf
fyrir sínu hvort sem gengið er til
laugar að vetri eða sumri. Bláa
lónið í Svartsengi hefur lengi
dregið að sér erlenda jafnt sem
innlenda gesti sem leita sér hvíld-
ar í heilsulauginni. Hvarvetna
stíga síðan kröftugar gufurnar til
himins, líkt og tröllslegir katlar
væru settir á hlóðir. Líklega
finnst mörgum tengsl lónsins við
náttúruna veita því dulúðugan
blæ sem veitir heilbrigt mótvægi
við skipulagt tæknisamfélag nú-
tímans.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Andstæður í
Bláa lóninu
AÐ undanförnu hafa farið fram við-
ræður á milli eigenda Vátrygginga-
félags Íslands hf., þ.e. svonefnds
S-hóps og Landsbankans, sem hvor
um sig á 50% í VÍS, um skráningu
félagsins á Verðbréfaþingi Íslands
og sölu ákveðins eignarhlutar á
markaði. Enn hafa þessar viðræður
ekki borið árangur, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Slíkar viðræður aðila hafa staðið
með hléum, frá því að Landsbank-
inn keypti 50% hlut í fyrirtækinu í
ársbyrjun 1997, án þess að þær
leiddu til niðurstöðu. Að því hafði
verið stefnt að ná samkomulagi fyrir
aðalfund VÍS sem haldinn verður
næstkomandi fimmtudag, hinn 29.
marz, en síðastliðinn mánudag
sigldu samningaviðræður í strand,
að minnsta kosti um stundarsakir.
Ágreiningur er um það milli eig-
endanna með hvaða hætti skrá eigi
félagið á Verðbréfaþingi Íslands.
Þeir sem standa fyrir svonefndan
S-hóp, þ.e. Olíufélagið hf, Samvinnu-
tryggingar gt og Samvinnulífeyris-
sjóðurinn vilja ekki setja nema 4%
af 50% hlut sínum í VÍS á markað
og fá þrjá af fimm stjórnarmönnum
í sinn hlut, en Landsbankinn vill að
S-hópurinn setji a.m.k. 8% á markað
og er sjálfur reiðubúinn að selja tæp
13% af 50% eignarhlut sínum.
Landsbankinn gerir kröfu um að
bankinn fái tvo stjórnarmenn, S-
hópurinn tvo og nýir eigendur einn.
Í dag eru átta í stjórn VÍS, fjórir
fulltrúar frá hvorum og telja fulltrú-
ar beggja ákjósanlegt að fækka í
stjórn, en ágreiningur er um skipt-
inguna.
Í hluthafasamkomulagi eigend-
anna frá því í ársbyrjun 1997 er
ákvæði um að aðilar séu samþykkir
því að félagið verði skráð á markaði.
Jafnframt er ákvæði um að aðilar
skuli minnka sinn hlut til jafns.
Engin tímamörk eru á hinn bóginn í
þessu ákvæði og ekki er heldur get-
ið um hversu mikinn hluta félagsins
eigi að selja á markaði.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur árangursleysi þess-
ara viðræðna á milli eigendahóp-
anna leitt til ákveðinna samstarfs-
örðugleika. Þótt hlé hafi verið gert á
viðræðum nú útiloka menn ekki að
eigendur VÍS muni að lokum ná
saman um skráningu og hve mikill
hlutur verði seldur.
Ágreiningur um skrán-
ingu VÍS á markaði
Mikill/10–12
HÁSKÓLINN í Reykjavík er ekki
að svo stöddu reiðubúinn að koma
að rekstri Tækniskóla Íslands.
Þetta kom fram á fundi forsvars-
manna Háskólans í Reykjavík með
Birni Bjarnasyni menntamálaráð-
herra á föstudag.
Björn sagði að á fundinum
hefði komið fram að skólinn væri
ekki að svo stöddu tilbúinn að
koma að rekstri Tækniskólans
þótt skólinn teldi verkefnið
spennandi og mjög álitlegt. Skól-
inn sé enn á mótunarstigi og þess
vegna telji hann að ekki sé tíma-
bært fyrir hann að taka að sér
nýtt stórverkefni á borð við þetta
rekstrarverkefni.
Björn sagði að hins vegar hefði
það líka komið fram á fundinum að
sá aðili sem stæði að baki Háskól-
ans í Reykjavík sýndi mikinn
áhuga á að stofna til samstarfs við
menntamálaráðuneytið vegna
Tækniskóla Íslands og koma hugs-
anlega að rekstri hans.
Þetta væri ný hugmynd sem
ráðuneytið hefði ekki tekið afstöðu
til, en hann hefði í framhaldinu
haft samband við rektor Tækni-
skólans og skýrt honum frá þess-
ari niðurstöðu og þeir myndu ræða
þetta nánar á næstu dögum.
Háskólinn í Reykjavík
Ekki tilbúinn að koma að
rekstri Tækniskólans nú
KVIKMYNDIN Kanadiana hefur
verið frumsýnd í Winnipeg í
Kanada en um er að ræða
fyrstu leiknu myndina sem Jón
Einarsson Gústafsson leikstýrir.
Jón er jafnframt einn þriggja
höfunda handrits og einn fjög-
urra framleiðenda myndarinnar
sem fékk meðal annars mjög
góða dóma í útbreiddasta dag-
blaði Manitoba-fylkis, Winnipeg
Free Press.
Áður hefur hann gert nokkr-
ar heimildarmyndir og tónlist-
armyndbönd auk þess sem hann
hefur sett upp leiksýningar á
Íslandi og í Kanada.
The Watchmen, ein vinsæl-
asta hljómsveit Kanada, á lag í
myndinni auk þess sem for-
sprakki hljómsveitarinnar er á
meðal leikaranna en Jón gerði
tónlistarmyndband fyrir hljóm-
sveitina samhliða tökum. Bæði
kvikmyndin og myndbandið
hafa vakið athygli og fékk
Kanadiana fimm tilnefningar til
svonefndra Blizzard-verðlauna,
sem Samtök kvikmynda-
framleiðenda í Manitoba veita
annað hvert ár.
Tónlistarmyndbandið var
einnig tilnefnt og var það út-
nefnt besta myndbandið á hátíð-
inni nú í mars. „Þetta er góð
viðurkenning,“ segir Jón Ein-
arsson Gústafsson.
Fær hól fyrir fyrstu leiknu myndina
Umdeildur/B24
TIL átaka kom milli sambýlisfólks í
heimahúsi í Árbænum í Reykjavík í
fyrrinótt með þeim afleiðingum að
kona stakk sambýlismann sinn tvisv-
ar sinnum með hníf. Maðurinn
hringdi sjálfur á lögreglu og hleypti
inn lögreglumönnum sem kallaðir
voru út um klukkan fjögur.
Hinn slasaði var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi
og var til eftirlits á gjörgæsludeild í
gær. Að sögn vakthafandi læknis var
ekki þörf á að hann færi í aðgerð
vegna sára sinna og er líðan hans eft-
ir atvikum. Sambýliskona hans var
vistuð í fangageymslum lögreglu í
fyrrinótt og átti að yfirheyra hana í
gær.
Stunginn
með hnífi
♦ ♦ ♦