Morgunblaðið - 28.03.2001, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur
fest kaup á tveimur Boeing 767-
200-breiðþotum og leigt tvær til
viðbótar. Verða þær afhentar á
næstu vikum. Félagið hefur samið
við breska flugfélagið Excel
Airways um verkefni næstu fimm
árin og verða íslenskar áhafnir á
þotunum. Þrjár vélanna verða í
þessum verkefnum en ein sinnir
bæði þeim og flugi fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn.
Kaupverð Boeing-þotnanna
tveggja, sem eru af gerðinni 767-
200 EM, er tæpir fjórir milljarðar
króna. Kaupin eru fjármögnuð af
japanska bankanum Sumitomo og
hafa samningar staðið yfir í all-
margar vikur. Vélarnar eru
keyptar af breska flugfélaginu
Britannia Airways og verða þær
afhentar í Atlanta 30. apríl næst-
komandi. Þær taka 290 farþega.
Vélarnar sem verða leigðar eru
einnig af gerðinni 767-200 en af
svonefndri Extended Range sem
þýðir að þær hafa meira flugþol.
Önnur er leigð frá Air Europa á
Spáni og verður hún afhent 1.
maí en hin er fengin hjá Air New
Zealand og verður afhent 5. maí.
Þessar vélar taka 274 farþega.
Báðar gerðir eru breiðþotur og
eru þær búnar sjónvarpsskjám í
farþegarými. Vélarnar eru smíð-
aðar á árunum 1988 og 1989.
Eins og fyrr segir verða þrjár
þotnanna í verkefnum fyrir
breska leiguflugfélagið Excel
Airways. Er það samningur til
fimm ára og er andvirði hans um
7,2 milljarðar króna. Heimahafnir
vélanna verða í London og Man-
chester. Sú fjórða verður einnig í
verkefnum fyrir Excel Airways
en aðeins um helgar og þá út frá
Glasgow. Sú vél á síðan að fljúga
frá Íslandi á virkum dögum fyrir
Samvinnuferðir-Landsýn.
Einn stærsti íslenski
flugleigusamningurinn
Arngrímur Jóhannsson, for-
stjóri og annar aðaleigenda Atl-
anta, segir þetta stærsta flug-
leigusamning sem gerður hefur
verið í íslenskri flugsögu. Arn-
grímur tjáði Morgunblaðinu að
samningurinn við Excel Airways
sé sá lengsti sem fyrirtækið hefur
gert á einu bretti. Hann segir Atl-
anta þó hafa flogið um árabil fyr-
ir marga aðila og þá samið til
fárra ára í senn. Þannig hafi til
dæmis verið flogið í 9 ár fyrir
Lufthansa, fjögur ár fyrir Finnair
og um þessar mundir er að ljúka
viðamiklu pílagrímaflugi fyrir
Saudi Airways og er það í 9. sinn
sem Atlanta sinnir því. Auk píla-
grímaflugsins eru tvær þotur Atl-
anta í 11 mánaða verkefni fyrir
félagið.
Arngrímur segir að undirbún-
ingur að kaupunum og leigunni
hafi staðið svo mánuðum skipti.
Þar hafi skipt sköpum að ganga
frá öllum þremur samningunum á
sama tíma, þ.e. kaupum og leigu
annars vegar og hins vegar fram-
leigu vélanna til Excel Airways.
Að þessari samningagerð unnu
einkum þeir Arnar Þórisson fjár-
málastjóri, Hafþór Hafsteinsson
markaðsstjóri og Magnús Gylfi
Thorstenn, lögfræðingur Atlanta.
Voru samningarnir undirritaðir í
London í síðustu viku.
Íslenskar áhafnir verða að
miklu leyti á þotunum hjá Excel
Airways og er nú að hefjast þjálf-
un flugmanna og flugfreyja.
Fimm áhafnir þarf á hverja þotu,
tvo flugmenn eða alls 40, og 8
flugfreyjur, 160 alls. Sigurlaug
Sveinsdóttir, ein þeirra sem sér
um flugfreyjuþjálfun, segir að
mikil vinna hafi staðið yfir að
undanförnu í útvegun mynda og
gagna um vélarnar og síðan
samningu handbóka og annars
kennsluefnis.
Flugfélagið Atlanta verður með
20 breiðþotur í rekstri þegar nýju
þoturnar hafa bæst við flotann.
Geta þær borið samtals vel yfir
sjö þúsund farþega. Fimmtán eru
af gerðinni Boeing 747, ein er
Lockheed Tristar og síðan nýju
þoturnar fjórar. Nýju vélarnar
leysa af hólmi þrjár Tristar-vélar
sem hafa verið í notkun hjá félag-
inu frá árinu 1991 og eru sumar
orðnar 20 ára gamlar og eldri.
Starfsmenn Flugfélagsins Atl-
anta eru kringum 1.200 og flutti
félagið á síðasta ári nærri tvær
milljónir farþega. Aðalstöðvarnar
eru í Mosfellsbæ en miðstöðvar
voru á síðasta ári m.a. í Keflavík,
London, Manchester, Manston,
Madrid, Jeddah, Bombay, Tel
Aviv og París.
Flugfélagið Atlanta semur um verkefni til fimm ára í Englandi
Kaupir tvær
breiðþotur og
leigir tvær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Arngrímur Jóhannsson og Þóra Guðmundsdóttir ásamt Arnari Þórissyni fjármálastjóra.
Sigurlaug Sveinsdóttir er ein þeirra sem und-
irbúa þjálfun flugfreyja hjá Atlanta.
Sumitomo í Japan fjármagnar kaupin á tveimur breiðþotum.
Boeing 767-þoturnar sem Atl-
anta er að kaupa og leigja eru
með tveimur göngum og sjón-
varpsskjám í farþegarými.
KOLBEINN Kristinsson, stjórnar-
formaður Sjálfseignarstofnunar
Verslunarráðs Íslands um viðskipta-
menntun (SVÍV), segir að SVÍV sé
tilbúin til að koma að rekstri Tækni-
skóla Íslands og reka skólann með
sama hætti og stofnunin rekur
Verzlunarskóla Íslands og Háskól-
ann í Reykjavík.
„Sjálfseignarstofnunin rekur í dag
tvær skólastofnanir, þ.e. Verzlunar-
skóla Íslands og Háskólann í
Reykjavík. Við höfum að okkar mati
byggt upp gott módel fyrir rekstri
þessara skóla og það hefur gengið
mjög vel. Við sjáum ekki annað en að
það ætti að geta gengið vel upp við
Tækniskóla Íslands. Við höfum því
boðið menntamálaráðherra að ganga
til viðræðna við okkur um þennan
kost,“ sagði Kolbeinn.
Kolbeinn tók fram að formlegar
viðræður væru ekki hafnar og málið
væri á frumstigi. Niðurstaða málsins
væri því fyrst og fremst háð vilja
menntamálaráðuneytisins. Aðspurð-
ur sagði Kolbeinn að hann teldi að
það ætti ekki að þurfa að taka mjög
langan tíma að kanna hvort grund-
völlur væri fyrir samstarfi mennta-
málaráðuneytisins og SVÍV um
rekstur Tækniskólans.
„Ef af þessu yrði myndum við
reka skólann með sama hætti og við
höfum rekið Verzlunarskólann og
Háskólann í Reykjavík. Við höfum
reynslu af þeirri leið og hún hefur
reynst vel. Við sjáum ekkert í veg-
inum fyrir því að þetta ætti ekki að
geta gengið upp þarna líka.“
Jón Búi Gauðlaugsson, formaður
skólanefndar Tækniskóla Íslands,
sagði að skólanefnd Tækniskólans
hefði stutt þá hugmynd að aðilar
vinnumarkaðarins kæmu að rekstri
Tækniskólans en endanlega hefði
orðið ljóst fyrir nokkrum vikum að
ekkert yrði úr henni. Hann sagðist
ekkert hafa heyrt af þeirri hugmynd,
sem sagt var frá í Morgunblaðinu sl.
sunnudag, að sameina Tækniskólann
og Háskólann í Reykjavík en
menntamálaráðherra sagði í frétt-
inni að horfið hefði verið frá henni.
Jón Búi sagði að skólanefnd Tækni-
skólans myndi koma saman nk.
þriðjudag til að fjalla um málið.
SVÍV tilbúin að
reka Tækniskólann
Kröfu
Sleipnis
hafnað
FÉLAGSDÓMUR hefur
hafnað kröfu Bifreiðastjóra-
félagsins Sleipnis um að við-
urkennt verði með dómi að
félagið fari með samningsað-
ild fyrir tíu bifreiðastjóra hjá
SVR. Vagnstjórarnir sögðu
sig úr Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar frá og
með 1. júlí sl. og gengu í
Sleipni. Kröfunni var hafnað
á þeim forsendum að lögum
samkvæmt sé einungis gert
ráð fyrir samningsumboði
fagfélaga fyrir þá opinberu
starfsmenn, sem tilheyri lög-
formlegum starfsstéttum.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að strætisvagns-
stjórar fullnægi ekki laga-
ákvæðum um formlega
menntun og lögformleg
starfsréttindi. Þá segir: „Bif-
reiðastjórafélagið Sleipnir
telst ekki vera starfsstétt
með „lögformleg starfsrétt-
indi“ í skilningi tilvitnaðs
lagaákvæðis, eins og túlka
ber það samkvæmt fyrirliggj-
andi lögskýringargögnum. Þá
verður ekki heldur talið að
félagsmenn stefnanda upp-
fylli skilyrði lagaákvæðisins
um formlega menntun sem
jafna má til slíkra starfsrétt-
inda. Laga- og reglugerðar-
ákvæði um ökupróf og öku-
réttindi breyta ekki þeirri
niðurstöðu,“ að því er segir í
niðurstöðum dómsins. Meira-
prófsréttindi ökumanna upp-
fylla samkvæmt því ekki þau
skilyrði sem löggjafinn hefur
sett.
Fer fyrir Mannrétt-
indadómstólinn
Sleipnir hefur ákveðið að
láta reyna á niðurstöðu
félagsdóms fyrir Mannrétt-
indadómstóli Evrópu og vill
félagið láta reyna á gildi
ákvæða laga nr. 94/1986 um
kjarasamninga opinberra
starfsmanna. Auk þessa segir
í fréttatilkynningu frá félag-
inu: „Bifreiðastjórafélagið
Sleipnir telur niðurstöðu
félagsdóms í málinu brjóta
gróflega í bága við jafnræðis-
og félagafrelsisákvæði stjórn-
arskrárinnar og sambærileg
ákvæði Mannréttindasáttmála
Evrópu, enda er það viður-
kennt af félagsdómi að samn-
ingsrétturinn sé órofa hluti
félagafrelsisins.“
Félagsdómur