Morgunblaðið - 28.03.2001, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 11
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að
komast í sólina á hreint ótrúlegu verði. Um
páskana er frábært veður á Kanarí, 28 stiga hiti,
einstakt veðurfar og þú getur notið frábærra
aðstæðna á Kanarí. Þú bókar ferðina núna og
tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og
látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú
þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann.
Síðustu sætin
Út 10. apríl
2 vikur
Aðeins 14 sæti
Páskarnir á
Kanarí
frá kr. 59.985
Verð kr. 69.930
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð,
gisting, skattar. 10..apríl - 2 vikur
Ferðir til og frá flugvelli,
kr. 1800
Verð kr. 59.985
Verð fyrir manninn, m.v hjón
með 2 börn, 2 - 11 ára, flug og
skattar. 10. apríl - 2 vikur
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
SAMKEPPNISSTOFNUN mun í
næstu vika ljúka formlegri rannsókn
á samráði fyrirtækja á grænmetis-
markaði, en rannsóknin hófst með
húsleit hjá fyrirtækjunum haustið
1999. Stofnunin er einnig að ganga
frá erindi til landbúnaðarráðuneytis-
ins sem varðar innflutningshöft og
innflutningsvernd á grænmeti. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur Samkeppnisstofnun komist að
þeirri niðurstöðu að innflutnings-
verndin og tengsl sölufyrirtækjanna,
ekki síst Sölufélags garðyrkjumanna
við önnur fyrirtæki á markaðinum,
hafi gert bændum kleift að hafa í
frammi samkeppnishindranir. Liður
í því að koma á virkri samkeppni á
þessum markaði er að mati Sam-
keppnisstofnunar að rjúfa tengslin
milli garðyrkjubænda og afurðasölu-
fyrirtækis sem gert er ráð fyrir að
Eignarhaldsfélagið Fengur muni
koma á fót.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í
gær að samkeppnisráð hafi úrskurð-
að að afurðasala Eignarhaldsfélags-
ins Fengs skuli færast til sjálfstæðs
fyrirtækis. Samkvæmt úrskurðinum
er Feng og tengdum fyrirtækjum
óheimilt að hafa afskipti af daglegum
rekstri nýja fyrirtækisins og í stjórn
þess mega ekki sitja sömu menn og
skipa stjórnir Fengs né dótturfélaga
eða tengdra fyrirtækja.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þessi breyting hluti af
víðtækum breytingum sem Sam-
keppnisstofnun leggur til að gerðar
verði á grænmetismarkaðinum í
þeim tilgangi að auka samkeppni.
Pálmi Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Fengs, sagði í samtali við
Morgunblaðið að með stofnun sér-
staks afurðasölufyrirtækisins myndi
nást fram stærðarhagkvæmni og því
myndu neytendur fá ódýrari vöru.
Hann sagði óljóst hvort Fengur
kæmi til með að eiga 100% í nýja af-
urðusölufyrirtækinu eða hvort fleiri
kæmu að því.
Lögin alla tíð brotin?
Langstærstu afurðasölufyrirtæki
á grænmetis- og ávaxtamarkaði eru
Sölufélag garðyrkjumanna ehf. og
Bananar ehf., sem bæði eru í eigu
Fengs. Dótturfyrirtæki Banana,
Ágæti hf., er einnig mjög stórt á sínu
sviði. Segja má að eina sjálfstæða
græmetis- og ávaxtafyrirtækið, sem
stendur utan við SFG-samsteypuna,
sé Mata ehf. Þess ber þó að geta að
allmargir aðilar sjá sjálfir um rækt-
un og sölu á kartöflum og nokkrum
tegundum grænmetis.
Félag garðyrkjumanna er sam-
vinnufélag í eigu bænda og sagði
Pálmi að samkeppnisyfirvöld væru
búin að setja því mjög ströng skil-
yrði. „Við erum að mörgu leyti ósátt-
ir við þessi ströngu skilyrði. Okkur
finnst að Samkeppnisstofnun hafi
ekki sýnt skilning á starfsemi félags-
ins, en hún er að vinna í umboði fram-
leiðenda. Það hefur komið upp í við-
ræðum við stofnunina að félagið hafi
hugsanlega verið að brjóta sam-
keppnislöggjöfina alveg frá því að
lögin tóku gildi. Ástæðan er sú að
framleiðendur eru á öðru sölustigi en
félagið sjálft og Samkeppnisstofnun
hefur gagnrýnt að framleiðendur og
félagið skuli hafa haft með sér sam-
ráð.
Það sem er sérstakt við þetta er að
önnur afurðasölufyrirtæki eru und-
anþegin löggjöfinni og Samkeppnis-
stofnunin telur raunar að við hefðum
getað sótt um undanþágu. Þetta hef-
ur ekki hvarflað að nokkrum manni
fram að þessu, en þetta sýnir kannski
betur en margt annað hversu flókin
þessi samkeppnislöggjöf er.“
Pálmi sagði ljóst að Samkeppnis-
stofnun liti svo á að SFG mætti ekki
vinna náið með framleiðendum.
Hann sagði nauðsynlegt í þessu
sambandi að hafa í huga að tveir að-
ilar skiptu smásölumarkaðinum á
milli sín. Þessi tvö fyrirtæki væru
Aðföng og Búr og væru þau með
u.þ.b. 93% af markaðinum. Það væri
einfaldlega mjög erfitt fyrir margar
heildsölur að starfa í slíku umhverfi.
Samkeppnisstofnun er að ljúka rannsókn
á meintu samráði grænmetisfyrirtækjanna
Sendir landbúnaðar-
ráðuneytinu álit um
innflutningshöft
rekstraraðilar hitaveitnanna. Hann
sagðist reikna með því að eignar-
hlutinn myndi skiptast til helminga
milli Íslendinga og Kínverja.
Samstarfssamningurinn um hita-
veitu í Yanqing var undirritaður 17.
mars en áður hafði verið undirrit-
aður hliðstæður samningur um hita-
veituverkefni á Lishuiqiao í Reykja-
vík.
Yanqing er sumardvalarstaður í
um 74 km fjarlægð frá Peking og
sagði Alfreð að gert væri ráð fyrir
að ný hitaveita þar myndi þjóna um
SAMSTARFSSAMNINGAR milli
Orkuveitu Reykjavíkur, Enex og
borgaryfirvalda í Peking um hita-
veitur í Yanqing og Lishuiqiao eru
metnir á um 1 til 2 milljarða króna
að sögn Alfreðs Þorsteinssonar,
stjórnarformanns Orkuveitu
Reykjavíkur.
Alfreð sagði að hingað til hefðu
Íslendingar aðallega veitt Kínverj-
um ráðgjöf um nýtingu jarðhita en
nú væri verið að fara inn á nýjar
brautir, þar sem stefnt væri að því
að Íslendingar yrðu meðeigendur og
30.000 íbúum. Hann sagði að í Yanq-
ing ætti sér stað mikil uppbygging
þar sem áhersla væri lögð á um-
hverfisvernd. Þar væri mikill jarð-
hiti sem ætlað væri að nýta til hús-
hitunar. Að sögn Alfreðs er
Lishiqiao svæði sem Kínverjar
hyggjast byggja upp ef þeir fá að
halda Ólympíuleikana árið 2008 en
Alþjóðaólympíunefndin mun taka
ákvörðun um staðarval í júlí. Hann
sagði að ef Kínverjar myndu fá Ól-
ympíuleikana yrði mjög spennandi
að fá að taka þátt í uppbyggingu
svæðisins.
Íslendingar og Kínverjar semja um stofnun og rekstur hitaveitna við Peking
Verkefni
upp á 1 til 2
milljarða kr.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Guo Zhenqing, héraðsstjóri í Yanqing, und-
irrita samning um nýja hitaveitu. Í samningsgerðinni tóku einnig þátt Ólafur Egilsson sendiherra, Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri OR og stjórnarmaður í Enex, og Vilhjálmur Vilhjálmsson, stjórnarmaður OR.
VONSKUVEÐUR var víða á Aust-
ur- og Suðausturlandi í fyrrinótt og
gærmorgun. Vegna veðurs og
ófærðar var kennsla felld niður í
grunnskólunum á Fáskrúðsfirði,
Eskifirði, Vopnafirði, Reyðarfirði
og í Brúarárskóla á Norðurhéraði.
Færð spilltist víða, einkum á fjall-
vegum. Þá varð ófært um vegi á
Austfjörðum og Fjarðarheiði var
lokuð.
Austan við Hala í Suðursveit valt
flutningabíll í snarpri vindhviðu.
Fjölnir Torfason, bóndi á Hala og
sonur hans, Arnór komu ökumann-
inum til aðstoðar.
„Það snöggversnaði veðrið hérna
rétt fyrir klukkan þrjú í [fyrri]nótt.
Hér var mikill jafnfallinn snjór og
léttur. Það gerði allt í einu glóru-
lausan bil og það varð feiknarlega
hvasst af norðvestri,“ sagði Fjölnir
í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það má segja að nákvæmlega
klukkan þrjú hafi komið mjög hörð
vindhviða, með þeim hörðustu sem
koma hérna,“ segir Fjölnir. Hann
telur að vindhraði hafi þá náð um
50–60 m/sek. „Einmitt í þeirri
hviðu lendir bíllinn út af.“
Bíllinn mun hafa lagst nokkuð
mjúklega á hægri hliðina. Ökumað-
urinn hafði samband við lögregluna
á Höfn í Hornafirði en hann taldi
sig ekki geta komist af sjálfsdáðum
út úr bílnum. Hann var í bílbelti og
sakaði ekki. Lögreglan kallaði út
Björgunarfélag Hornafjarðar en
hafði einnig samband við Fjölni.
Hann og Arnór afréðu að bíða þar
til veður gengi eitthvað niður. Um
hálftíma síðar fóru þeir að bílnum,
hjálpuðu ökumanninum út og óku
honum því næst að Hala þar sem
honum var boðið upp á kaffi. Björg-
unarsveitin náði síðan í hann og ók
honum á Höfn.
Bílnum var komið á réttan kjöl í
gær og segir Fjölnir hann lítið
skemmdan.
Ljósmynd/Einar B. Einarsson
Flutningabíllinn á hliðinni utan vegar við Hala í Suðursveit. Óverulegar skemmdir urðu á bílnum.
Snörp vindhviða feykti
flutningabíl á hliðina
Aftakaveður á Austurlandi í fyrrinótt